Morgunblaðið - 20.07.2008, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 20.07.2008, Qupperneq 8
8 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Flogið verður til höfuðborgar Þýskalands, Berlínar og ekið áfram til Dresden þar sem gist er í 3 nætur. Í Dresden er mikið af sögufrægum byggingum og þar verður einnig hægt að kynnast þjóðarbroti, Sorbum, sem búa á þessu svæði, en sérstætt tungumál þeirra og menning eiga í vök að verjast. Eftir áhugaverðar skoðunarferðir í Dresden er haldið aftur til Berlínar, þar sem gist er í 4 nætur, en leiðin þangað liggur í gegnum Spreewald, þar sem upplagt er að fara í skemmtilega bátsferð frá Lübbenau. Skoðunarferð um hina sögulegu Berlín og til Potsdam, sem er einn vinsælasti ferðamannastaður Þýskalands. Fararstjóri: Kristín Jóhannsdóttir Verð: 121.920 kr. 21. - 28. ágúst Sp ör - Ra gn he ið ur In gu nn Ág ús ts dó tti r Dresden og s: 570 2790www.baendaferdir.is A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R SUMAR 10 Berlín Ertu að segja, pjakkurinn þinn, að Haarde minn hefði átt að fara heim af ballinu með eitt- hvað annað sem gerir sama gagn?? VEÐUR Á nýrri plötu Bubba Morthens,Fjórum nöglum, eru ófáar tilvís- anir í kristindóminn, beinar og óbeinar, í textum og myndskreyt- ingum á plötuumslaginu.     Bubbi fer ekkert í felur með þaðað hann er trúaður maður.     Í viðtali við Kol-brúnu Berg- þórsdóttur hér í blaðinu í gær seg- ir hann: „Ég er trúaður. Það þarf ekki að ræða það nánar. Trúin breytti lífi mínu til hins betra þótt heiðingjarnir séu kannski á öðru máli.“     Ætli forystumenn þjóðkirkjunnarátti sig á því hvað þeir hafa eignazt öflugan prédikara í Bubba?     Hann er vinsælasti tónlistarmaðurlandsins, plötur hans seljast í stærri upplögum en plötur annarra. Hann er töffari og alvöru stjarna.     Að minnsta kosti eitt lag á nýjuplötunni, „Dýrðin er þín“, er hrein og tær lofgjörð til almættisins.     Þetta er einfalt og sönghæft lag.     Og textinn er ekki síðri en margirsálmar, sem við syngjum í kirkj- unni á sunnudögum.     Ímyrkri var ég móður sár / Ímyrkri gekk ég sautján ár / Frjáls finn ég kraftinn þinn / Ljósið skín á veginn minn, syngur Bubbi.     Er ekki ástæða til að skoða hvortþessi sálmur Bubba fái náð fyrir augum sálmabókarnefndarinnar? Hann yrði örugglega sunginn. STAKSTEINAR Bubbi Morthens Bubbi í sálmabókina? SIGMUND                            ! " #$    %&'  ( )                   * (! +  ,- . / 0     + -             ! "##  $# $            %& &%##  $# $       12       1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                   %& &%         :  3'45;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@).? $    $    $  $      $                              *$BCD                 ! "#  $  %    "" &"#' $( ()  *      " # *! $$ B *!   '( ) #  #( #    * <2  <!  <2  <!  <2  ') &%#+ &" ,#-%&.  D2E                 <    87     &%   " %    #+ #       , $)  &% - ! "% . !   "  " !    !" #'  / $0  *   12 2 "# B   "  2       &%#'  $) $3  *   " # /0%% ##11 &%# #2   #+ &" #3 $# * (# $#$ Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ PÍLAGRÍMAGÖNGUR verða heim að Hólum í Hjaltadal þann 16. ágúst n.k. í tilefni af Hólahátíð sem haldin verður 15.–17. ágúst. Gengið verður frá Svarfaðardal og Flugumýri. Skráning í göngurnar er um net- fangið malfridur@holar.is. Á Hólahátíð verður einnig haldið málþing um textíla í kirkjulist og Hóladómkirkju verður afhent ný- saumuð eftirgerð af kantarakápu Jóns biskups Arasonar. Þá verður samkoma í tilefni af útgáfu 1. bindis Hólarita, sögu Bauka-Jóns, sem Jón Þ. Þór sagnfræðingur hefur ritað. Sigurbjörn Einarsson biskup mun prédika í hátíðarmessu og ræðumað- ur hátíðarsamkomu verður Páll Skúlason, fv. háskólarektor. Höfuðból Mikið verður um dýrðir á Hólahátíð um miðjan ágúst. Pílagríma- göngur og textílþing Hólahátíð verður haldin 15.–17. ágúst VEGAGERÐIN hefur almennt litið svo á að án- ingarstaðir hennar og hvíldarstaðir séu öllum veg- farendum opnir þeim að kostnaðarlausu hvort sem áningarstaðirnir eru byggðir á einkalandi eða landi hins opinbera, að því er fram kemur í frétta- tilkynningu Vegagerðarinnar. Hins vegar hefur Vegagerðin ekki tekið sérstaklega afstöðu til gjaldtöku við Kerið í Grímsnesi eða til banns við því að langferðabifreiðar stöðvi á bílastæðinu. Á árunum 2001 og 2002 varði Vegagerðin a.m.k. 2,5 milljónum króna til gerðar áningarstaðar við Kerið til viðbótar við bílastæði sem lagt hafði verið þar áður. Er þar m.a. um að ræða frágang á bíla- stæði, uppsetningu upplýsingaskiltis, frágang göngustíga og uppgræðslu. Þetta fé er til viðbótar þeim fjórum milljónum króna sem Ferðamálaráð hefur lagt í aðstöðuna við Kerið. Vegna orða Óskars Magnússonar, talsmanns eigenda Kersins, í Kastljósi þann 17. júlí síðastlið- inn um efnistöku Vegagerðarinnar við Kerið vill Vegagerðin taka fram að „engin efnistaka hefur átt sér stað af hálfu Vegagerðarinnar á þessu svæði, a.m.k. ekki svo lengi sem elstu menn muna. Hinsvegar lá gamla Biskupstungnabrautin þar til um 1970 um þann stað þar sem bílastæðið er nú. Þar var þá líka vísir að útafkeyrslu eða bílastæði enda hafa vegfarendur stoppað við Kerið frá því bílaumferð hófst á Suðurlandi.“ gudni@mbl.is Engin efnistaka verið við Kerið Í HNOTSKURN »Kerið í Grímsnesi er nyrst gíghóla semnefnast Tjarnhólar. Gígurinn er 55 metra djúpur og í botni hans er tjörn. »Kerfélagið segir átroðning ferðamannaspilla svæðinu. Það vildi fá gjald af rútufarþegum en ferðaskrifstofur neituðu. »Rútur hafa sniðgengið Kerið en aðrirgeta lagt þar líkt og fyrr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.