Morgunblaðið - 20.07.2008, Síða 15

Morgunblaðið - 20.07.2008, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 15 Eftir Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur Eftir Steinunni Ólínu Það ermeð ólíkindum hvað tím-inn líður hratt. Vikurnarfjúka áfram og mér finnst mér ekki verða neitt úr verki. Mér skilst að eftir því sem maður eldist líði tíminn hraðar. Samkvæmt þessu hljóta síðustu æviárin að verða sann- kallað kapphlaup. Munið þið hvað tíminn var lengi að líða þegar maður var barn? Hvað hugmyndin um að eitthvað myndi gerast á morgun var óbærileg? Miðstúlkan mín varð sjö ára í vik- unni. Það er að sjálfsögðu búið að vera mikið tilhlökkunarefni um langa hríð. Hún setti saman óskalista sem að mestu var ógjörningur að uppfylla. „Fara og finna Atlantis“ var til dæmis ofarlega á listanum sem og að fara til Egyptalands og skoða pýra- mídana. Ég gat afsakað það við hana að við gætum lítið ferðast um þessar mund- ir þar sem við værum í ferðastraffi um stundarsakir vegna græna korts- ins og þessar ævintýraferðir yrðu því að bíða eitthvað. Hún kom þá með tillögu að mála- miðlun og spurði hvort hún mætti baða sig upp úr mjólk því samkvæmt upplýsingum sem hún fann á netinu hafði Kleópatra drottning verið mik- ið fyrir mjólkurböð til að viðhalda æskuþokka og fegurð. Þar komst hún líka að því að Kle- ópatra hefði aldrei gert neitt ein síns liðs og hefði meira að segja ekki get- að klætt sig hjálparlaust. Ungfrúin leiddi líkur að því að sennilega hefði drottningin verið eitt- hvað fötluð. Afmælisbarnið hefur mikinn áhuga á ráðgátum og mannkynssögu og ætlar sér að verða einhverskonar rannsóknarkona þegar fram líða stundir. Sú stutta notar wikipedia mikið til að afla sér upplýsinga um eitt og ann- að. Hún hefur að undanförnu verið niðursokkin í Anastasiu og Rom- anov-fjölskylduna og er mjög hug- leikið hvað um prinsessuna varð eins og fleirum. Rannsóknarkonan er með þá teo- ríu að Jack the Ripper hafi verið valdur að hvarfi Anastasiu en ég tel víst að hún sé ein um þá skoðun. Hann hét að vísu um tíma í munni hennar Jack the Rapper og var, held ég, að hennar viti tónlistarmaður. Núna veit hún betur og því finnst henni rökrétt að álykta að hann hafi eitthvað komið við sögu í áðurnefndu mannshvarfi, þó að ég hafi útskýrt fyrir henni að Anastasia og Jack hafi ekki verið samtímamenn. Þær upplýsingar finnast henni lít- ils virði í rannsóknarferlinu því kons- eptið tími er henni algerlega óvið- komandi. Hún býr yfir því frelsi sem felst í því að lifa aðeins í augnablik- inu. Fortíðin er enn ekki orðin henni fjötur um fót og hún hvorki þráir né óttast framtíðina. Um daginn kom hún upp í til mín snemma morguns og sagði mér frá því að þegar hún yrði fullorðin ætlaði hún að uppgötva eða „innventa“ eins og hún kallar það fljúgandi hesta og einhyrninga „all for myself“ eða til einkanota. Ég hvatti hana til dáða því á vorum dögum klóna menn dýr og það er alls ekki úr vegi að eftir nokkur ár getum við farið að framleiða samsett dýr og þar með nýjar dýrategundir. Og hver veit nema vísindin geri okkur það kleift í framtíðinni að endurvekja til lífs útdauðar skepnur. Rétt í þessu kom hún til mín og spurði hvað ég væri að gera og ég sagði henni að ég væri að skrifa um hana. Hvað ertu að skrifa um mig? spurði hún og ég las fyrir hana það sem komið var. Þú talar ekkert um það að mér finnist gaman að spæja, sagði hún forviða, segðu frá því! Hvers vegna? spurði ég. Nú, fólk þarf að fá að vita það! Ég bað hana síðan vinsamlegast að gefa mér vinnufrið sem hún sam- þykkti með semingi því hún hélt fram þeim rökum að ég væri að skrifa um hana og því þyrfti ég á henni að halda í heimildaskyni. Við gáfum henni málmleitartæki í afmælisgjöf því hún stendur í þeirri meiningu að það sé hægt að finna fjársjóði nánast hvar sem er hafi maður réttu græjurnar. Hún varð afar glöð og tók strax til við að leita í garðinum og fann innan skamms gamalt plastarmbandsúr með málmplötu og þóttist heldur bet- ur fjáð. Sú gjöf hitti sem sagt í mark. Við gáfum henni líka lítinn mynd- varpa sem varpar sólkerfinu á loftið í herberginu hennar þegar rökkvar. Við sátum að kvöldi afmælisdags- ins saman fjölskyldan með þrívídd- argleraugu á nefinu og horfðum á ljósmyndir af himintunglunum í stofuloftinu. Þetta spann af sér heilmiklar um- ræður um alheiminn og hvort til væri líf á öðrum hnöttum. Afmælismanneskjan þóttist nú viss um það þrátt fyrir að pabbi hennar segði henni að fram að þessu hefðu vísindamenn ekki fundið nein- ar haldbærar sannanir fyrir því. Hún sagði einfaldlega við hann: „Pabbi minn, ég veit það. Ég hef séð geimverur.“ Mikið vildi ég stundum gefa fyrir að tíminn stæði í stað. Það er nefni- lega allt of sjaldan sem maður leyfir sér að lifa í augnablikinu. Jack the Ripper og Romanov-fjölskyldan Tíðarandi »Frekar þiggjum við ekkineitt en svona ölmusu. Formaður Félags ungra lækna,. Ragnar Freyr Ingvarsson , um kjarasamn- ing sem skrifað var undir milli samninga- nefndar ríkisins og Læknafélags Íslands aðfaranótt föstudags. »Ég hafði alltaf verið týpansem fór og reykti bak við gám í leikfimitíma í skólanum. Eva Margrét Einarsdóttir sigraði í kvennaflokki í hinu árlega Laugavegs- hlaupi. » Það er gaman að sjá eitthvaðsem ég hef skapað sjálfur stækka og dafna. Undanfarnar vikur hefur Andri Már Gunnarsson , fangi á Litla-Hrauni, ræktað grænmeti ásamt nokkrum samföngum sín- um. » Það er aldrei neitt að banda-rísku samfélagi. Sigrún Ólafsdóttir um viðhorfin vestra til róta geðrænna vandamála. Sigrún var ný- verið heiðruð fyrir doktorsritgerð sína á sviði geðheilsufræði. » Það var svo æðislegt aðskríða upp á sandinn í Frakklandi að ég get varla lýst því með orðum. Benedikt Hjartarson varð á miðvikudag fyrstur Íslendinga til að synda yfir Erm- arsund. » Íslendingarnir nefna ým-islegt minniháttar sem aðrir myndu hugsanlega ekki nefna. Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur leitar skýringa á því af hverju Íslendingar barma sér undan glæpatíðni. Hann bendir á að mjög margir Íslendingar hafi nefnt verðsamráð olíufélaganna sem dæmi um fjársvik. »Mitt takmark er allavega aðborða eitthvað framandi, eins og hunda eða rottur. Einn keppenda á Ólympíuleikum í eðl- isfræði, Róbert Torfason, bíður spenntur eftir að komast til Víetnam. »Keppnin er til heiðurs SteiniSteinari, sem auðvitað er uppáhald allra hérna. Ívar Örn Gíslason, fangavörður á Litla- Hrauni, hleypti af stokkunum ljóða- samkeppni meðal fanga, undir heitinu „Steinn í steininum“. »Ég vona að ég sé ekki afturað lenda í lögsókn. Tónlistarmaðurinn Herbert Guðmunds- son upplýsti að hann hefði notað upptökur af trommuslætti Charlie Watts, trommu- leikara Rolling Stones, án vitundar þess síðarnefnda. » Þetta er eins og hvert annaðlífdísil, þetta smyr vélina. Óðinn Sigurðsson drýgir dísilolíuna á gamla jeppann með hákarlalýsi. Reuters Ummæli vikunnar Hreint Nú styttist í Ólympíuleika og Kínverjar snurfusa torg. Kópavogsbær auglýsir byggingarétt til úthlutunar á eftirtöldum lóðum: 1. Austurkór 49- 53 - Raðhús á tveimur hæðum. Um er að ræða lóð fyrir raðhús á tveimur hæðum með innbyggðri bílageymslu. Heimilaður hámarksgrunnflötur húss er 132 m² með bílageymslu. Heildarlóðargjöld eru kr. 34.957.848. Lóðargjöld eru annars vegar yfirtökugjöld og hins vegar gatnagerðargjöld. Gatnagerðargjöld eru lágmarksgjöld og miðast við 600 m³. Ef byggt er umfram 600 m³ greiðast viðbótargatnagerðargjöld. 2. Almannakór 2 - Einbýlishús á einni eða tveimur hæðum. Um er að ræða lóð fyrir einbýlishús á einni eða tveimur hæðum með innbyggðri eða stakri bílageymslu. Heimilaður hámarksgrunnflötur húss er 250 m² með bílageymslu. Heildarlóðargjöld eru kr. 14.887.402. Lóðargjöld eru annars vegar yfirtökugjöld og hins vegar gatnagerðargjöld. Gatnagerðargjöld eru lágmarksgjöld og miðast við 700 m³. Ef byggt er umfram 700 m³ greiðast viðbótargatnagerðargjöld. 3. Þrúðsalir 13 - Einbýlishús á tveimur hæðum. Um er að ræða lóð fyrir einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðri eða stakri bílageymslu. Heimilaður hámarksgrunnflötur húss er 180 m² með bílageymslu. Heildarlóðargjöld eru kr. 14.887.402. Lóðargjöld eru annars vegar yfirtökugjöld og hins vegar gatnagerðargjöld. Gatnagerðargjöld eru lágmarksgjöld og miðast við 700 m³. Ef byggt er umfram 700 m³ greiðast viðbótargatnagerðargjöld. 4. Arakór 5 - Einbýlishús á einni hæð með kjallara. Um er að ræða lóð fyrir einbýlishús á einni hæð með kjallara með innbyggðri eða stakri bílageymslu. Heimilaður hámarksgrunnflötur húss er 235 m² með bílageymslu. Heildarlóðargjöld eru kr. 14.887.402. Lóðargjöld eru annars vegar yfirtökugjöld og hins vegar gatnagerðargjöld. Gatnagerðargjöld eru lágmarksgjöld og miðast við 700 m³. Ef byggt er umfram 700 m³ greiðast viðbótargatnagerðargjöld. 5. Austurkór 8 - Einbýlishús á tveimur hæðum. Um er að ræða lóð fyrir einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðri eða stakri bílageymslu. Heimilaður hámarksgrunnflötur húss er 250 m² með bílageymslu. Heildarlóðargjöld eru kr. 14.887.402. Lóðargjöld eru annars vegar yfirtökugjöld og hins vegar gatnagerðargjöld. Gatnagerðargjöld eru lágmarksgjöld og miðast við 700 m³. Ef byggt er umfram 700 m³ greiðast viðbótargatnagerðargjöld. 6. Austurkór 107 - Einbýlishús á einni hæð auk kjallara. Um er að ræða lóð fyrir einbýlishús á einni hæð auk kjallara. Heimilaður hámarksgrunnflötur húss er 400 fm. Heildarlóðargjöld eru kr. 14.887.402. Lóðargjöld eru annars vegar yfirtökugjöld og hins vegar gatnagerðargjöld. Gatnagerðargjöld eru lágmarksgjöld og miðast við 700 m³. Ef byggt er umfram 700 m³ greiðast viðbótargatnagerðargjöld. 7. Austurkór 113 - Einbýlishús á tveimur hæðum. Um er að ræða lóð fyrir einbýlishús á tveimur hæðum. Heimilaður hámarksgrunnflötur húss er 400 fm. Heildarlóðargjöld eru kr. 14.887.402. Lóðargjöld eru annars vegar yfirtökugjöld og hins vegar gatnagerðargjöld. Gatnagerðargjöld eru lágmarksgjöld og miðast við 700 m³. Ef byggt er umfram 700 m³ greiðast viðbótargatnagerðargjöld. Ofangreindar lóðir eru byggingarhæfar. Nánar verður kveðið á um afhendingu í úthlutunarbréfi. Lóðargjöld eru bundin byggingarvísitölu og breytast með henni. Úthlutunargögn ásamt umsóknareyðublöðum og úthlutunarreglum fást afhent hjá þjónustuborði Kópavogs, Fannborg 2, 1. hæð, alla virka daga frá kl. 8-16:00. Úthlutunargögn fást afhent fyrir kr. 1000. Umsóknum skal skilað á sama stað fyrir kl. 16:00 föstudaginn 8. ágúst n.k. Vakin er athygli á reglum Kópavogsbæjar um úthlutun á byggingarétti fyrir íbúðarhúsnæði. Þá er jafnframt vakin sérstök athygli á því að umsóknum einstaklinga um byggingarétt þarf að fylgja staðfesting banka eða lánastofnunar á greiðsluhæfi. Fyrir umsækjendur einbýlishúsalóða kr. 35 milljónir. Fyrirtækjum ber að skila ársreikningi sínum fyrir árið 2007. Yfirlýsing frá banka og lánastofnunar um greiðsluhæfi og lánamöguleika umsækjenda skal vera án fyrirvara. Æskilegt er að umsækjendur leggi inn skattframtal. Bæjarstjórinn í Kópavogi. Kópavogsbær Úthlutun á byggingarétti Vegna mistaka við birtingu eftirfarandi auglýsingar komu fram rangar dagsetningar í henni síðastliðinn sunnudag. Leiðrétt auglýsing er því birt hér með, og um leið er beðist velvirðingar á mistökunum GANGA.IS Ungmennafélag Íslands

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.