Morgunblaðið - 20.07.2008, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 29
Morgunblaðið/Eyþór
Í
Reykjavíkurbréfi fyrir viku var
fjallað um nauðsyn þess að fara að
huga að einkavæðingu í orkugeir-
anum, ekki sízt til að greiða fyrir út-
rás hans. Gífurlegir möguleikar fel-
ast í útrás íslenzkra orkufyrirtækja.
Opinbert eignarhald mun hins vegar
þvælast fyrir þeim og samkrull op-
inbers og einkarekstrar verða tilefni
sífelldra uppákomna. Með einkavæð-
ingu orkuframleiðslufyrirtækja má leysa mik-
ið afl úr læðingi.
En hvað með aðra einkavæðingu? Um
einkavæðingu ríkisfyrirtækja er nánast ekkert
rætt þessa dagana. Í stefnuskrá ríkisstjórn-
arinnar stendur ekkert um hana. Fram-
kvæmdanefnd um einkavæðingu skilaði fyrir
síðustu áramót af sér skýrslu um árangur
einkavæðingar á síðasta kjörtímabili; síðan
hefur ekki heyrzt frá nefndinni. Er einkavæð-
ingin búin? Hún hefur skilað miklum árangri
og hagsbótum fyrir þjóðina. Getur verið að svo
sé komið að enginn rekstur sem nú er á hönd-
um ríkisins sé betur kominn hjá einkaaðilum?
Nýtt upphaf í Bretlandi?
Svipaðra spurninga er spurt annars staðar. Í
Bretlandi kom nýlega út skýrsla á vegum The
Adam Smith Institute, sem löngum hefur haft
hugmyndalega forystu um einkavæðingu, þar
sem spurt er hvort botninn sé dottinn úr
einkavæðingarstefnunni í landinu, sem kalla
má vöggu hennar. Höfundur skýrslunnar, Nig-
el Hawkins, leggur til að nú verði nýjum krafti
hleypt í einkavæðinguna í Bretlandi.
Á meðal þeirra fyrirtækja, sem hann setur
efst á listann yfir þau sem nú ætti að einka-
væða, eru póstfyrirtækið Royal Mail og flug-
umferðarstjórnarfyrirtækið NATS, sem er að
hluta sambærilegt við Flugstoðir hér á landi.
Þar á brezka ríkið raunar aðeins 49% hlut;
flugfélög og starfsmenn keyptu meirihluta í
fyrirtækinu fyrir nokkrum árum. Í skýrslu
Hawkins er einnig rifjuð upp einkavæðing
BAA, British Airport Authority, sem nú rekur
sjö stóra flugvelli á Bretlandi og er í útrás víða
um heim.
Er ríkisrekstur í þessum atvinnugreinum
ekki jafnframt nokkuð, sem mætti endurskoða
hér á landi? Bæði í póstþjónustu og flugvall-
arekstri er einkavæðing komin á fleygiferð í
mörgum ríkjum. Í flugumsjóninni hafa Bretar
gengið einna lengst með sölu meirihluta í
gamla ríkisfyrirtækinu. Ýmis önnur ríki hafa
hins vegar breytt gömlum ríkisstofnunum á
sviði flugumsjónar í hlutafélög til að ýta undir
hagræðingu i rekstri og styrkja þær í al-
þjóðlegri samkeppni. Lengi hefur staðið til að
selja þrjá fjórðu hluta í þýzku flugumsjóninni,
DFS, sem gerð var að hlutafélagi fyrir all-
löngu, en stjórnskipulegar flækjur hafa staðið
í vegi fyrir því.
Íslandspóstur: Liggur beint við
Einkavæðing Íslandspósts hf. liggur einna
beinast við. Víða í Evrópu hafa gömul ríkisfyr-
irtæki á sviði póstdreifingar verið einkavædd.
Meira að segja í Frakklandi er nú til umræðu
að selja 20-30% hlutafjár í La Poste, eins og
fram kom hér í blaðinu í síðustu viku.
Hér á landi var pósturinn einu sinni rekinn í
sömu stofnun og síminn, en skilið var á milli
árið 1998 og stofnuð sérstök hlutafélög um
póst og síma. Síminn hefur verið einkavæddur
með glæsilegum árangri. Skattgreiðendur
högnuðust um tugi milljarða króna, við-
skiptavinir hafa fengið betri þjónustu og lægra
verð og samkeppni á fjarskiptamarkaðnum er
lífleg. En hvað með litla bróður, Póstinn?
Gengið hefur hægar að afnema einkarétt á
póstþjónustu en á fjarskiptaþjónustu. Það var
ekki fyrr en nýlega að gildi tóku Evrópu-
reglur, sem kveða á um að einkaréttur ríkisins
til að bera út bréf sem eru 50 grömm eða létt-
ari verði afnuminn. Það gerist árið 2011. Eftir
það mun Íslandspóstur hf. starfa alfarið á sam-
keppnismarkaði. Hann á nú þegar öfluga
keppinauta og fer Pósthúsið þar fremst í
flokki. Auðvitað er ekki nokkur ástæða fyrir
ríkið til að standa í samkeppnisrekstri á þessu
sviði frekar en öðrum.
Fyrir tveimur árum vakti athygli að Ís-
landspóstur keypti prentfyrirtækið Samskipti.
Mörgum þótti skjóta skökku við að hálfum
öðrum áratug eftir að Ríkisprentsmiðjan
Gutenberg var einkavædd, skyldi fyrirtæki í
eigu ríkisins kaupa einkarekna prentsmiðju.
Fyrirtækið hefur ennfremur farið í harða sam-
keppni við einkareknar verzlanir í t.d. sölu rit-
fanga. Við þessu væri ekkert að segja ef búið
væri að lýsa því yfir að það ætti að einkavæða
Íslandspóst; þá mætti líta á starfsemi af þessu
tagi sem undirbúning einkavæðingar. En á
meðan engin pólitísk ákvörðun hefur verið tek-
in um slíkt, er mjög hæpið að ríkisfyrirtæki
fari þannig í beina samkeppni við einkaaðila.
Í orðaskiptum, sem urðu af þessu tilefni á
Alþingi milli Sigurðar Kára Kristjánssonar al-
þingismanns Sjálfstæðisflokksins og Kristjáns
Möller samgönguráðherra kom sá síðarnefndi
sér hjá því að ræða nokkuð um áform um
einkavæðingu Íslandspósts. Það fer hins vegar
að verða brýnt að taka afstöðu til málsins, ekki
sízt vegna afnáms einkaréttarins.
Í viðskiptafréttum Morgunblaðsins í síðustu
viku var fjallað um undirbúning póstfyrirtækj-
anna fyrir afnám einkaréttarins. Ingimundur
Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, sagði þar
að fyrirtækið teldi að afnema mætti einkarétt-
inn fyrr hér á landi, en hafa yrði í huga að hon-
um fylgdi alþjónustukvöð. Hún felur í sér
skyldu Íslandspósts til að safna og dreifa pósti
fimm daga vikunnar um allt land.
Einkavæddur Íslandspóstur myndi vafa-
laust áfram bera alþjónustukvöð, rétt eins og
Síminn gerir. Hins vegar yrði þá að búa svo
um hnútana að fyrirtæki, sem tæki á sig slíka
kvöð, fengi greiðslur úr ríkissjóði fyrir að
sinna alþjónustu þar sem slíkt er ekki hag-
kvæmt. Ætla má að einnig verði að endur-
skoða alþjónustukvöðina í ljósi tækniþróunar.
Tölvupóstur hefur leyst hefðbundinn bréfa-
póst af hólmi í sívaxandi mæli. Hvaða vit er í
því að gera kröfu til þess í einu net- og tölvu-
væddasta landi í heimi að póstfyrirtæki beri út
póst á hverjum virkum degi, alls staðar á land-
inu?
Kastrup – af hverju ekki Keflavík?
Víða um heim hafa stórir flugvellir verið einka-
væddir. Hér að framan var einkavæðing BAA í
Bretlandi nefnd, en margir aðrir flugvellir
hafa verið seldir einkaaðilum. Nærtækasta
dæmið fyrir Íslendinga er Kaupmannahafnar-
flugvöllur í Kastrup.
Rökin fyrir því að einkavæða flugvelli hafa
verið, auk fjáröflunar fyrir ríkissjóði, að bæta
rekstur og þjónustu og fjármögnun nýfram-
kvæmda. Ríkisreknir flugvellir hafa iðulega
haft lítinn hvata til að ráðast í dýrar fjárfest-
ingar til að anna vaxandi umferð. Það vanda-
mál þekkja menn frá Keflavíkurflugvelli;
stækkun Leifsstöðvar heldur yfirleitt ekki í við
umferðaraukninguna.
Gamla ríkisstofnunin Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar var raunar klassískt dæmi um rík-
isstofnun í vanda. Árið 1997 var fyrsta árið
sem flugstöðinni tókst að standa í skilum með
vexti og afborganir af lánum vegna bygging-
arkostnaðar. Síðan hefur reyndar verið gripið
til ýmissa aðgerða til að auka tekjur stöðv-
arinnar og um aldamótin var henni breytt í
hlutafélag til að auka sveigjanleika í rekstri og
möguleika á að standa undir fjárfesting-
arkostnaði. Reksturinn gengur betur, en er
nokkur þörf á að hann sé á hendi ríkisins?
Fyrir fáeinum árum gaf sig fram hópur fjár-
festa, sem sýndi því áhuga að kaupa og reka
Leifsstöð. Einkavæðing hennar er klárlega
verðugt verkefni. Eini stjórnmálamaðurinn,
sem hefur haft orð á því, er hins vegar Geir H.
Haarde, sem sagði á þingi fyrir tveimur árum,
þegar hann var utanríkisráðherra, að stefna
ætti að því að koma rekstri Keflavík-
urflugvallar í hendur einkaaðila. Nú er Leifs-
stöð á forræði Kristjáns Möller samgöngu-
ráðherra, en ekkert hefur heyrzt af
einkavæðingaráformum.
Flugstoðir og hagsmunir flugfélaga
Flugstoðir ohf. eru þriðja hlutafélagið í eigu
ríkisins, sem skoða mætti einkavæðingu á,
a.m.k. flugumsjónarhlutanum. Fyrirtækið hef-
ur ekki starfað lengi í hlutafélagsforminu og
segja má að enn sé að komast reynsla á það.
Hins vegar hljóta menn að skoða hvernig hef-
ur gengið í Bretlandi og fleiri ríkjum. Hjá
NATS var farin sú leið að tengja saman hags-
muni flugumferðarstjórnarinnar og stærstu
viðskiptavina hennar með því að selja flug-
félögum hlut í félaginu. Flugfélögin eiga allt
undir því að Flugstoðir veiti ódýra þjónustu og
tryggi jafnframt öryggi eins og bezt verður á
kosið.
Í viðtali við Þorgeir Pálsson, forstjóra Flug-
stoða, hér í blaðinu fyrir skömmu kom fram að
gera mætti ráð fyrir að fyrirtækið yrði að
hækka verðið fyrir flugumsjón til innlendu
flugfélaganna. Ástæðan er sú að erlend flug-
félög, sem senda flugvélar sínar suður fyrir ís-
lenzka flugstjórnarsvæðið, telja ósanngjarnt
að greiða sama verð fyrir þjónustu Flugstoða
og þau flugfélög, sem fara um svæðið og nýta
þjónustu fyrirtækisins að fullu. Orsök þess að
Flugstoðir neyðast til að breyta verðlagning-
unni er væntanlega sú, sem var nefnd við und-
irbúning að stofnun félagsins, að ella myndu
erlend flugfélög gera kröfu um að flugstjórn á
Norður-Atlantshafinu yrði færð til keppinauta
Flugstoða í Kanada og Bretlandi. Það eru ein-
mitt fyrirtæki, sem hafa verið hlutafélaga-
vædd og starfa á markaðsforsendum.
Má ekki ímynda sér að ef íslenzku flug-
félögin ættu hlut í Flugstoðum, myndu þau
reynast útsjónarsamari við að ná niður kostn-
aði en núverandi eigandi þess, íslenzka ríkið?
Undarleg þögn
Hér hafa aðeins verið nefnd þrjú dæmi um
hlutafélög í eigu ríkisins, sem ástæða gæti ver-
ið til að einkavæða. Núverandi tímapunktur er
sennilega ekki heppilegur til að setja ríkisfyr-
irtæki á markað; hlutabréfamarkaðurinn hef-
ur sannarlega verið í betra formi. En þeim
mun mikilvægara er að nota tímann til und-
irbúnings, þannig að hægt sé að skapa ný
tækifæri fyrir fjárfesta þegar markaðurinn
tekur við sér á nýjan leik. Um leið þarf að
hyggja að eftirlits- og reglugerðarumhverfi
þeirra fyrirtækja, sem um ræðir, þannig að
tryggt sé að viðskiptavinir þeirra njóti góðs af
einkavæðingunni í lækkandi verðlagi.
Og fyrsta skrefið er að ræða málin. Í tíð
þessarar ríkisstjórnar hefur ríkt undarleg
þögn um einkavæðingu ríkisfyrirtækja, í ljósi
hins mikla árangurs sem náðist í fyrra stjórn-
arsamstarfi. Er ekki að verða tímabært að
rjúfa þá þögn?
Hvað varð um einkavæðingarstefnuna?
Reykjavíkurbréf
190708
1997
Pósttilskipun ESB tekur gildi.
Einkaréttur ríkisins á þyngri
pósti en 350 g afnuminn
1998
Íslandspóstur hf. stofnaður
2002
Einkarétturinn takmarkaður
við 200 g póst
2006
Einkarétturinn lækkaður í 50 g
2011
Einkaréttur ríkisins á
póstdreifingu endanlega
afnuminn