Morgunblaðið - 20.07.2008, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 20.07.2008, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 35 Virðing og umburð- arlyndi eru meðal þeirra þátta sem ein- kenna gott skátastarf. Baden Powell, stofn- andi skátahreyfing- arinnar, lagði frá upp- hafi ríka áherslu á að skátinn nýtti sér tæki- færin sem felast í skátastarfinu til að uppgötva fegurðina í hinu framandi. Í ræðu sem hann hélt á fjölþjóðlegu skátamóti 1929 sagði hann meðal annars við skátafor- ingjana sem þangað voru mættir með skátana sína: ,,Við ættum að hvetja þá [skátana] til að nýta hverja mínútu af þessum stutta tíma til að efla kynnin og leyfa kunningskap að vaxa í vináttu við bræður og systur, skáta, framtíðarfjölskyldu þeirra í þessum heimi. Þannig getur skátinn axlað nýja ábyrgð þegar hann held- ur heim af mótinu, ábyrgð þess sem kemur með boðskap í sitt heima- samfélag um frið og jákvætt hug- arfar í garð annarra.“ Frá 22. til 29. júlí nk. flykkjast ís- lenskir skátar ásamt skátum frá Bretlandi, Bandaríkjunum, Skot- landi, Wales og öllum Norðurlönd- unum á landsmót skáta sem að þessu sinni ber yfirskriftina ,,Á vík- ingaslóð“ og verður haldið að Hömr- um á Akureyri. Fyrir skátann verð- ur þetta landsmót eins og önnur skátamót kjörið tæki- færi til að efla þá vin- áttu sem fyrir er um leið og stofnað er til nýrra kynna og vinátta fæðist og ný lönd opn- ast fyrir hugum og hjörtum þátttakenda. Þegar rúmlega 400 íslenskir skátar ásamt 40 þúsund öðrum skát- um frá öllum heims- hornum sóttu alheims- mót skáta sem haldið var á síðasta ári við Chelmsford um 60 míl- ur norðaustur af London upplifðu þeir sig í því fjölmenningarlega um- hverfi sem alþjóðlegt skátastarf er. Þannig mátti til dæmis sjá tjöld skáta frá Saudí-Arabíu, Tékklandi og Kína við hlið aðaltjaldbúðar ís- lensku skátanna. Yfirskrift mótsins var ,,Einn heimur, eitt heiti“ og var þar með vísað til þess að skátaheitið er eitt af því sem skátar eiga sam- eiginlegt, sama úr hvaða menning- arheimi og trúarbakgrunni þeir koma. Eins og yfirleitt á skátamót- um var fjölbreytnin í fyrirrúmi og er mjög gaman að hlusta á lýsingar ís- lensku skátanna sem voru viðstaddir athöfn sem fram fór á mótinu þar sem þessi fjölbreytti skátahópur fór með skátaheitið í kór, hver á sínu tungumáli og með þeim orðum sem ríma við þeirra menningu og trú. Í dagskrá alheimsmótsins mátti finna margskonar tilboð sem fóru fram á dagskrártorgi sem bar heitið ,,Faith and belief zone“ en þar voru eins og nafnið ber með sér ýmis dag- skrártilboð sem tengdust lífsskoð- unum og trú. Auk þess var sérstakt kyrrðarsvæði á hverju tjaldbúð- artorgi. Þessi dagskrártilboð undir- strikuðu mörg hver að skátastarf felur andlega viðleitni í sér og birtist hún gjarnan í því að skátastarf snýst ekki aðeins um að rannsaka áður ótroðnar slóðir um fjöll og firnindi, heldur einnig það að kanna hið ósýnilega og má benda á fræðsluefni fyrir skátastarf sem ber heitið ,,Explorers of the invisible“ í þessu samhengi. Trúarlega þjónustan á alheims- mótinu í ,,Faith and belief zone“ var ekki ný af nálinni. Frá upphafi skátastarfs hefur verið lagt mikið upp úr því að skátar, óháð menning- arlegum og trúarlegum bakgrunni, geti unnið saman í sátt og samlyndi. Um leið er trú og lífssýn einstakling- anna tekin alvarlega og birtist það til dæmis á alheimsmóti í þeim starfsreglum sem starfsfólk trúar- legu þjónustunnar setti sér. Þar var meðal annars lögð rík áhersla á frelsi einstaklingsins, heiðarleika, næmi, kurteisi, það að virða réttinn til að vera ósammála og að lífssýn, trú eða trúarbrögð væru ekki kynnt af öðrum en þeim sem kæmu úr við- komandi menningar- eða trúar- heimi. Skátastarf á Íslandi hefur tekið breytingum hin síðari ár í takt við þær þjóðfélagsbreytingar sem hér hafa átt sér stað sem og út frá þeirri umræðu sem farið hefur fram á al- þjóðavettvangi um skátastarf. Einn ávöxtur alþjóðlegs samstarfs og samtals er trúarleg þjónusta á landsmóti skáta. Landsmótið í ár er fimmta landsmótið í röð þar sem trúartengd dagskrá einkennist meira af fjölbreyttum tilboðum og minna af einhliða helgistundum sem eru ætlaðar öllum. Á landsmóti nú verður starfrækt svokallað Kyrrðartjald sem er smækkuð útgáfa af því sem kallað er á alþjóðamótum ,,Faith and belief zone“. Dagskráin er fjölbreytt, boðið er upp á þvertrúarlegar stundir sem og helgistundir á vegum einstakra trúfélaga og má nefna sem dæmi að kaþólska kirkjan verður með messu á sunnudagsmorgninum og að Ása- trúarfélagið verður með dagskrá í kyrrðartjaldinu á föstudeginum. Auk þess er tjaldið opið öllum alla daga. Á síðustu landsmótum hefur verið vinsælt hjá ungum sem eldri mótsgestum að setjast niður í tjald- inu, kveikja á kerti eða skrifa já- kvæð skilaboð eða bænir á miða og hengja upp á vegg vonarinnar. Skátar, fjölmenning, gildi og trú Pétur Björgvin Þorsteinsson skrif- ar um skátastarfið » Á landsmóti skáta verður starfrækt svokallað Kyrrðartjald sem er smækkuð útgáfa af því sem kallað er á al- þjóðamótum skáta ,,Fa- ith and belief zone.“ Pétur Björgvin Þorsteinsson Höfundur er djákni í Glerárkirkju. HUGMYNDA- FRÆÐI heilsugæsl- unnar á Íslandi var hrint af stað árið 1974, við þessa ákvörðun varð bylting í heilbrigðismálum á Íslandi. Stigið var ákveðið skref sem hefur reynst afar far- sælt og mikilvægt fyrir íbúa þessa lands. Heilsugæslan er öflugt stjórntæki þar sem tekið er á öll- um grunnþáttum í undirstöðu heil- brigðisþjónustunnar og er hún kjölfesta hennar. Hlutverk og starfsemi heilsugæslustöðva nær yfir allt heilsu- verndarstarf og allt lækningastarf sem unnið er vegna heil- brigðra og sjúkra sem ekki dveljast á sjúkra- húsi. Með öflugri heilsu- gæslu má draga úr heildarkostnaði, minnka sóun, auka arðsemi, bæta hag starfsmanna og viðskiptavina í heilbrigðiskerfinu og stuðla að betri nýtingu fjármagns. Yfirvöld heilbrigðismála þurfa að marka skýrari stefnu og gera strangari kröfur til heilsugæslunnar að mínu mati. Heilsugæslan þarf að standast nútímakröfur um betri gæði og öryggi. Afkastagetu henn- ar verður að auka á starfsvæði stöðvanna og taka verður upp skil- virkt gæðastjórnunarkerfi þannig að gegnsæi í rekstri og samræm- ing á vinnu verði betri á milli stöðva. Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður skjólstæð- inga að heilbrigðiskerfinu. Stjórn- endur stöðvanna ættu að vera ábyrgir fyrir rekstri þeirra og stuðla þannig að árangursríkri fyrirtækjamenningu þar sem áhersla er lögð á að mörkuð stefna nái fram að ganga. Auka þarf fjármagn til rekstrar og bæta úr aðstöðu stöðva sem eru engan veginn í stakk búnar til að starfa í því umhverfi sem þær hafa dagað uppi í. Margar heilsugæslustöðvar eru til fyrirmyndar í dag en því miður er ekki hægt að segja það sama um þær allar. Sterk liðsheild er það sem skiptir meginmáli fyrir þann mannauð sem starfar við heilsu- gæsluna þar sem hver hlekkur í keðjunni er dýrmætur og stendur á jafnræðisgrundvelli og vinnur sameiginlega að því að efla og leiða heilsugæsluna á farsælla stig til framtíðar. Læknar og hjúkrunarfræðingar eru í lykilhlutverki hverrar heilsu- gæslustöðvar ásamt öðru heil- brigðisstarfsfólki. Hjúkrunarfræð- ingar hafa haft margfeldisáhrif á gæði þjónustunnar á grundvelli sinnar menntunar, þjálfunar, færni og reynslu sem hefur skilað sér vel út í þjóðfélagið. Heilsugæslan er til vegna við- skiptavinanna, skjólstæðingurinn er sá aðili sem fær þjónustuna af- henta og þarf að greiða fyrir hana. Hlutverk heilsugæslunnar er að skilgreina þarfir og væntingar en ekki er nóg að vita hvað skjól- stæðingurinn vill eða þarfnast heldur þurfa forystumenn að vera í stakk búnir að framleiða þá þjónustu sem til er ætlast. Tím- arnir breytast stöðugt og þess vegna er stöðug þörf á umbótum. Orðspor hvers fyrirtækis byggir á gæðum og áreiðanleika, þetta á einnig við um heilsugæsluna. Heilsugæsluna ber að efla af mikl- um krafti, margar rannsóknir hafa sýnt fram á að öflug heilsugæsla eykur lífslíkur skjólstæðinga, bæt- ir heilbrigði og minnkar heildar- útgjöld til heilbrigðismála. Heilsu- gæslan er dýrmætt kerfi sem verður að viðhalda vel í bættri mynd og leiða fram á veginn sem sterka undirstöðu fyrir heilbrigð- isþjónustuna og í þágu fólksins í landinu. Ég skora á heilbrigðisyfirvöld að standa vörð um heilsugæslu- stöðvarnar, að þær verði efldar en í bættri mynd og að það verði haft að leiðarljósi að hjúkrunarfræð- ingar heilsugæslustöðvanna hafa að stórum hluta borið uppi þá starfsemi sem unnin er á stöðv- unum. Þá þjónustu verður að meta að verðleikum. Öflug heilsugæsla Stöndum vörð um heilsugæslustöðv- arnar segir Kristín Þórarinsdóttir »Heilbrigðiskerfið er dýrmætt kerfi sem verður að viðhalda vel í bættri mynd. Kristín Þórarinsdóttir Höfundur er hjúkrunarfræðingur. Á EFNAHAGSLEGA viðsjálum breytingatímum, eins og nú ganga yfir, er framsýnt skipulag og sókn- arbarátta í landbúnaði lífsnauðsyn. Þjóðir, sem framleiða sem mest til daglegra þarfa fólksins, verða hvorki sveltar í hel né kúgaðar til hlýðni. Svæðið: Húnavatns-, Skaga- fjarðar- og Eyjafjarðarsýslur, eru kjörnar til öflugrar framþróunar í fjölbreyttum landbúnaði. Þær ber að friða fyrir eit- urspúandi orkuhákum málmbræðsl- unnar. En krefjast af stjórnvöldum mark- vissrar fyrirgreiðslu á þessu svæði, við uppbyggingu stórfelldrar mat- vælaframleiðslu og úrvinnslu afurða til útflutnings og innanlands nota. Efla ber menntun og menningu á svæðinu með stuðningi við þær menntastofnanir sem fyrir eru s.s. háskólana á Akureyri og Hólum og stofnun nýrra fræðasetra eftir þörf- um og rannsóknarverkefnum, sem þróast munu með þessari framtíð- arsýn. Miðhálendið, Hofsjökul, Kjöl, Langjökul, Þjórsárver og Guðlaugs- tungur ber að gera að þjóðgarði til jarðfræðirannsókna. Fyrri hitasveiflur í hnattrænum skilningi og nútíma „hlýnunarskeið“ mætti þar tengja rannsóknum á bú- setu og afkomumöguleikum í fortíð og framtíð. Læra margt um aðlögunarhæfni mannsins og getu til sjálfsbjargar, ef allt færi á versta veg í hungurdeyj- andi heimi náttúruhamfara og sóun- ar mannsins á misskiptum jarð- argæðum. Gengi gjaldmiðla hrynur, ágjarnt valdabrölt riðar til falls. En gróð- ursæl frjósöm jörð, uppspretta vatns og hreint loft verða alltaf undirstaða lífs á jörðu. Með vinsemd og kveðju, GUÐRÍÐUR B. HELGADÓTTIR, Austurhlíð II, Blöndudal, A.-Hún. Ábending Frá Guðríði B. Helgadóttur Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Fréttir á SMS UMRÆÐAN Miklar framfarir hafa orðið í neð- anjarðarbortækni og komast bor- arnir allt að 15-20 m á dag. Nú er hægt að leggja allt að 2 km leiðslur í einum áfanga og tengja þær saman með mikilli nákvæmni. Þá kemur fram á heimasíðu Cargocap að beygjur og sveigjur hvers konar séu ekkert vandamál því að fjarstýrðir borar leysi auðveldlega slíkan vanda. Hann segir að hægt sé að leggja Cargocap-kerfið neðanjarðar í raun og veru hvar sem er. Raskið vegna framkvæmdanna verði mun minna en þegar akbrautir eru lagðar of- anjarðar. Þá sé framkvæmdakostn- aður mun lægri. Þá bendir hann á að ávinning- urinn sé mikill á ýmsum sviðum. Vörusendingar og póstur berist milli staða á ódýrari og skjótari hátt en áður og hægt sé að fylgjast ná- kvæmlega með því hvar sending- arnar eru á vegi staddar, en gervi- greind er m.a. beitt til þess að stýra kerfinu. DHL tekur þátt í þróuninni Fjölmiðlar hafa fjallað nokkuð um Cargocap-kerfið og sitt sýnist hverj- um. The Economist benti nýlega á í grein að erfiðlega hefði gengið að fá fjárfesta til að fjármagna til- raunakerfi sem nauðsynlegt væri að leggja svo að hægt væri að fullþróa hugmyndina. Sú hindrun virðist nú yfirunnin því að DHL-fyrirtækið í Þýskalandi hefur ákveðið að leggja fé til verkefnisins. Tanja Herzberg segir að fleiri fjárfestar hafi nýlega komið til skjalanna og vonast sé til að fyrsta tilraunaleiðin verði tekin í notkun innan 5 ára. Hæðst að hugmyndinni Nokkuð hefur borið á að blaða- menn hafi hent gaman að Cargocap- kerfinu og telji ólíklegt að það verði nokkru sinni lagt. Í þætti í BBC kom hins vegar fram hjá breskum og bandarískum skipulagsfræðingum að Cargocap- kerfið væri alls ekki svo fráleitt. Töldu þeir að um væri að ræða ein- hverja snjöllustu lausn á þeim vanda sem iðnaður og íbúar stórborga standa nú ráðþrota frammi fyrir – sífellt meiri mengun, vaxandi um- ferð og hávaða. Birt með leyfi Cargocap GMBH

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.