Morgunblaðið - 20.07.2008, Side 43
sem nýbúið er að gefa út. Það verk-
efni stuðlar að aukinni samvinnu for-
eldra og skóla en hún hafði mikinn
áhuga á að efla þau tengsl. Jónína
hélt marga fyrirlestra og stýrði
námskeiðum um lestrarkennslu.
Fjölskyldan og golfið átti hug henn-
ar í frístundum en þó gaf hún sér oft
tíma til að lesa sér til og finna nýtt
efni í frítíma sínum. Jónína hafði
létta lund og gott viðmót, hún var
alltaf jákvæð og leysti málin á já-
kvæðan hátt. Það var mjög þægilegt
að vinna með henni, hún var alltaf
áhugasöm, hafði skoðun á skólamál-
um, stjórnmálum og samfélagsmál-
um. Jónína var frjó og skemmtileg
kona, hún var ætíð hrókur alls fagn-
aðar, fór með samstarfsfólki í gleð-
skap, utanlandsferðir o.fl. Þó líkam-
legur styrkur hafi ekki verið mikill
eftir áralanga baráttu við erfið veik-
indi var andlegur styrkur sá sami
sem fyrr og brennandi áhuginn enn
til staðar á að bæta kennsluhætti og
auka lestraráhuga barna. Hennar
framlag verður seint fullmetið eða
þakkað og við söknum hennar úr
okkar hópi. Við sendum fjölskyldu
Jónínu innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning okkar kæru
samstarfskonu Jónínu Friðfinns-
dóttur.
F.h. samstarfsmanna á Fræðslu-
skrifstofu Reykjanesbæjar,
Guðbjörg Sveinsdóttir.
Fallinn er frá frábær félagi og
góðvinur eftir harða baráttu við
krabbamein. Sú barátta stöðvaði
hana þó ekki í að taka þátt í fé-
lagsstarfi okkar golfara og voru þau
hjónin með okkur í sérlega vel-
heppnaðri golfferð til Spánar sem
Golfklúbburinn Oddur stóð fyrir síð-
astliðið vor. Jónína og maðurinn
hennar Hallgrímur Þorsteinsson
hafa stutt dyggilega við bakið á okk-
ur golfurum. Þau hafa verið félagar í
golfklúbbunum á Urriðavelli frá
stofnun þeirra og komið að fé-
lagsstarfinu á margan hátt. Einnig
hafa þau komið að mörgum málum
er snerta beint og óbeint uppbygg-
ingu golfvallarins og landsvæðisins
sem tengist Oddfellow-reglunni í
Urriðavatnslandi. Jónína var mikill
golfari og náði frábærum árangri í
þeirri íþrótt. Hún varð m.a. klúbb-
meistari GO árin 1996 og 1997,
klúbbmeistari kvenna 50 ára og eldri
árin 1998 og 1999 og klúbbmeistari
kvenna 65 ára og eldri árið 2005.
Hún var að sjálfsögðu í kvennasveit
Golfklúbbsins Odds og liðstjóri
kvennasveitar klúbbsins síðastliðin
fimm ár. Hér sannast að sjaldan fell-
ur eplið langt frá eikinni því greini-
legt er að hjónin hafa komið golf-
áhuganum áfram til næstu kynslóða.
Bæði sonur þeirra og sonarsonur
eru duglegir golfarar og á nýaf-
stöðnu meistaramóti GO vann Hall-
grímur Þorsteinsson yngri sinn
flokk. Fyrir hönd stjórna GO og
GOF, starfsfólks og framkvæmda-
stjóra Urriðavallar, votta ég eftirlif-
andi eiginmanni Jónínu, Hallgrími
Þorsteinssyni og fjölskyldu þeirra
okkar dýpstu samúð.
Páll Kristjánsson,
formaður GO og GOF.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 43
✝ Eggert ÁgústKonráðsson
fæddist í Kárdals-
tungu í Vatnsdal í
A-Húnavatnssýslu
13. júlí 1920. Hann
lést á Heilbrigðis-
stofnun Hvamms-
tanga 6. júlí síðast-
liðinn.
Hann var sonur
hjónanna Konráðs
Jónssonar og Ragn-
heiðar Guðmunds-
dóttur. Eggert var
næstelstur fimm
barna þeirra hjóna, elstur var
Ingólfur, f. 1914, síðan Eggert, f.
1920, Jón, f. 1923, Lárus, f. 1928,
Ragnheiður, f. 1932. Þau misstu
móðir sína eftir erfið veikindi árið
1933.
Konráð giftist aftur Sigur-
björgu Sigurjónsdóttur og eign-
uðust þau fjóra syni, Gunnar, f.
1943, Óskar, f. 1945, Hauk, f.
1949, og Kjartan, f. 1955.
Sambýliskona Eggerts var J.
Selma Jónsdóttir, f.
15. nóvember 1921,
d. 8. september
1999. Þau eignuðust
þrjú börn, Konráð,
f. 1952, Ragnheiði
Jóhönnu, f. 1956, og
Valdimar Inga, f.
1959, fyrir átti
Selma dótturina
Agnesi Magnús-
dóttur, f. 1947 og
gekk Eggert henni í
föðurstað.
Eggert vann öll
hefðbundin sveita-
störf sem vinnumaður á ýmsum
bæjum í Vatnsdalnum, þar til
hann hóf búskap sjálfur með
Selmu sinni, fyrst voru þau í
Vatnsdalnum voru síðan eitt ár í
Sölvadal í Eyjafirði, en árið 1954
baust þeim að flytja að Kistu í
Vesturhópi þar sem þau bjuggu
síðan til ársins 1989 er þau fluttu
til Hvammstanga.
Eggert var jarðsunginn frá
Hvammstangakirkju 14. júlí.
Um miðjan sjötta áratug síðustu
aldar, kom hingað í sveitina ungur
röskleikamaður. Hann hafði alist
upp í Vatnsdalnum, verið þar í vinnu-
mennsku, lengst af hjá Guðmundi í
Ási. Hann hóf fyrst búskap ásamt
sambýliskonu sinni Selmu Jónsdótt-
ur í Ási, en flutti svo norður í Sölva-
dal í Eyjafirði, þaðan fluttu þau eftir
skamma setu þar á Kistu á Vatns-
nesi, fyrst í sambýli við Valdimar
Jónsson póst, en tóku síðan við jörð-
inni, þar sem þau bjuggu allan sinn
búskap, uns þau fluttu til Hvamms-
tanga vegna aldurs.
Hér var kominn Eggert Konráðs-
son, sem vakti strax athygli fyrir
dugnað og ósérhlífni. Hann var létt-
ur á fæti og sást iðulega hlaupandi
um hagann við búfé, eða önnur störf.
Eggert var fræg grenjaskytta og sá
um refaveiðar sveitarinnar í fjölda-
mörg ár og sinnti því með góðum ár-
angri, enda var veiðimennska honum
í blóð borin, en 14 ára að aldri skaut
hann sína fyrstu tófu, sem urðu
margar um ævina. Eggert kunni
margar ótrúlegar sögur af eltingar-
leik sínum við tófur og náðist að festa
nokkrar þeirra á blað á meðan að
minnið var óbilað. Þessar sögur eru
sérstakar og ómetanlegar heimildir
um það kapp sem að lagt var á slíkar
veiðar, enda eru og verða refir miklir
skaðvaldar í fugla og dýaralífi, sem
að halda verður í skefjum.
Sumarið 1951, var hann upp á
Arnarvatnsheiði við vörslu mæði-
veikisgirðingar, með öðrum manni.
Þar í sumarblíðu heiðanna kunni
hann vel við sig og samviskusamlega
var starfið unnið svo að engin kind
slapp í gegn.
Í fjölda mörg ár var Eggert viðrið-
inn póstferðir um Vatnsnes. Fyrst
var hann aðstoðarmaður Valda pósts
og keyrði hann hálfsmánaðarlega á
lítilli dráttarvél umhverfis Nesið, en
tók síðan sjálfur við þessum ferðum
alfarið, þar til breytingar urðu á
póstferðum og þeim fjölgað.
Eggert var mikill járnsmiður og
smíðaði og seldi skeifur o.fl. í mörg
ár. Hann hafði yndi af kveðskap og
hans hinsta ósk var að kveðnar yrðu
stemmur við jarðarförina. Varð
Kvæðamannafélagið Vatnsnesingur
við þeirri bón. Þar á meðal var þessi
þekkta hringhenda, sem að var í
miklu uppáhaldi hjá honum.
Höldum gleði hátt á loft,
helst það seður gaman,
þetta skeður ekki oft,
að við kveðum saman.
Eggert var að jafnaði elskulegur í
viðmóti, þó að stundum gæti hvesst
verulega ef honum fannst á sig hall-
að, eða ef störf voru ekki rétt eða af
alúð unnin. Hann var sérstakur per-
sónuleiki, sem að mikill missir er af
úr mannlífinu.
Við þökkum honum fyrir áratuga-
vináttu og samstarf, sem að hefur
verið einstakt.
Aðstandendum vottum við inni-
lega samúð.
Hlíf og Agnar.
Eggert Á. Konráðsson
allt sem þú gerðir fyrir okkur og með
okkur. Það mun verða geymt í mínu
hjarta um ókomin ár. Tár niður kinn
breytist í bros, verður koss og þú
verður alltaf á meðal okkar.
Þinn Nonni,
Jón Arason.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og systir,
ALDA STEINÞÓRSDÓTTIR BLÖNDAL
tannlæknir,
lést á sjúkrahúsi í Herlev i Danmörku þriðjudaginn
17. júní.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Ole Blöndal,
Guðný Þóra, Þorsteinn, Bjarki og Nína,
tengdabörn, barnabörn og systkini hinnar látnu.
✝
ÞORSTEINN HEIÐDAL GUÐMUNDSSON,
Seljalandi 7,
Reykjavík,
fæddur 11. apríl 1937,
lést miðvikudaginn 9. júlí á Landspítalanum.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Bræður og systrabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ZOPHONÍAS KRISTJÁNSSON,
Teigaseli 2,
Reykjavík,
lést á Vífilsstöðum föstudaginn 18. júlí.
Útförin auglýst síðar.
Kristján Zophoníasson, Björk Ólafsdóttir,
Viðar Zophoníasson,
Steinunn Kr. Zophoníasdóttir, Árni Haukur Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir og amma,
RAGNHEIÐUR G. ÁSGEIRSDÓTTIR,
Neðstaleiti 5,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
mánudaginn 7. júlí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Guðmundur H. Garðarsson,
Guðmundur Ragnar Guðmundsson,
Ragnar Hannes Guðmundsson
og barnabörn.
✝
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
GUNNAR MAGNÚSSON SALÓMESON,
lést á deild 18, Landspítalanum í Kópavogi fimmtudaginn 17. júlí.
Útför hans verður auglýst síðar.
Þorsteinn Magnússon, Halla Bachmann Ólafsdóttir,
Salóme McInnis, Melvin McInnis,
Guðmundur Magnússon, Vaka Hrund Hjaltalín
og frændsystkini.
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj.,
s. 691 0919
! "# $!% & '
(!!%
! $)
(!!*% !! +! (
(!!*% , ( '$
(!!*% - $ .! $
(!!*% / 0
(!!*% 0 1 !
(!!*%