Morgunblaðið - 20.07.2008, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 20.07.2008, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 59 Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn HANDRITSHÖFUNDAR eru sjaldnast stærstu stjörnurnar í Hollywood og líklega eru þau helst tvö sem hinn almenni bíógestur er líklegur til þess að þekkja með nafni (fyrir utan leikstjóra sem skrifa myndirnar sínar líka), þau Charlie Kaufmann og Diablo Cody. Sú síð- arnefnda er þó bara með eina mynd á ferilskránni enn, en sagan af fata- fellunni sem skrifaði Juno og fékk Óskarsstyttu í kaupbæti náði eyrum heimspressunar ólíkt betur en allar sögurnar af óteljandi handritshöf- undum sem hörkuðu í alls kyns braski þangað til þeir duttu loksins í lukkupottinn og Hollywood keypti af þeim eitt stykki handrit (og gerði það vitaskuld óþekkjanlegt á end- anum). En Cody hefur meðal annars heillað stærsta leikstjórann af þeim öllum, Steven Spielberg, og hefur þegar skrifað fyrir hann handrit að sjónvarpsþáttum, United States of Tara, sem hann framleiðir. Næst er svo á dagskrá gamanmynd – og meira vitum við ekki, og nánast eng- inn annar ef út í það er farið, en svo mikil leynd hvílir yfir söguþræð- inum að fregnir herma að jafnvel sumir sem vinna að myndinni hafi ekki hugmynd um hvað hún er. Spielberg og fata- fellan Stéttabarátta Diablo Cody tók virkan þátt í stéttabaráttu handrits- höfunda síðasta vetur. FLEST virðist benda til þess að ekki verði af gerð framhaldsmyndar byggðrar á bókaröð Philip Pullmann sem á frummálinu gengur undir nafn- inu His Dark Materials. Kvikmyndin Gyllti áttavitinn (e. Golden Comp- ass) var sýnd í bíóhúsum í lok síðasta árs en fékk ekki eins góða aðsókn vestanhafs og framleið- endur höfðu vonast eftir. Hörð mótmæli kristinna trúarhópa eru talin hafa átt verulegan þátt í hinni dræmu aðsókn, en í þeim söguheimi sem Pullmann lýsir ræður skelfi- leg kaþólsk valdastofnun heiminum og nær bóka- röðin hámarki með orrustu við sjálft himnaríki. Áður hafði verið sagt að von væri á framhalds- mynd í lok árs 2009. Höfundur bókanna segist hinsvegar í samtali við Independent ekkert hafa heyrt frá framleiðendum myndanna um fram- haldið og það þýði væntanlega að næsta mynd í þríleiknum, Lúmski hnífurinn (e. The Subtle Knife) verði ekki kvikmynduð á næstunni. Óvíst með fram- hald á trílógíu Pullmans Illmennið Nicole Kidman í hlutverki sínu sem hin slynga frú Coulter í Gyllta áttavitanum. Skólar og námskeið Glæsilegt sérblað um skóla og námskeið fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 15. ágúst. Meðal efnis er: • Endurmenntun • Símenntun • Tómstundarnámskeið • Tölvunám • Háskólanám • Framhaldsskólanám • Tónlistarnám • Skólavörur Allar nánari uppl. veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is. Auglýsendur! Pantið fyrir klukkan 16, mánudaginn 11. ágúst. Ásamt full af spennandi efni. Örfá sæti laus! Heimsferðir bjóða ótrúlegt stökktu tilboð á síðustu sætun- um til Fuerteventura 29. júlí - 12. ágúst. Þessi skemmti- lega eyja í Kanaríeyjaklasanum hefur svo sannarlega sleg- ið í gegn hjá Íslendingum. Þú bókar flugsæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins yfir verslunarmannahelgina á þessum vin- sæla sumarleyfisstað. Að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Fuerteventura 29. júlí í 2 vikur Frábært stökktu tilboð yfir verslunarmannahelgina Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Verð kr. 59.990 - 2 vikur Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna saman í herbergi / stúdíó / íbúð, 29. júlí - 12. ágúst. Verð kr. 49.990 - 2 vikur Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í herbergi / stúdíó / íbúð, 29. júlí - 12. ágúst. frá kr. 49.990 Stökktu til ÞAÐ eru fleiri en Garðar Thór sem aflýsa tónleikum með litlum fyr- irvara þessi miss- erin. Á þriðjudag- inn biðu 4000 reiðir tónleika- gestir í Bundoran á Írlandi eftir tónleikum Meat Loaf, en Kjöt- hleifur gamli af- lýsti tónleikunum aðeins klukkutíma áður en hann átti að mæta á svið. Tvennum sögum fer af ástæðunum, Meat Loaf segir að- stæður einfaldlega ekki hafa verið boðlegar og öryggi hvorki hljóm- sveitar né tónleikagesta væri tryggt. Á meðan sögðu ýmsir söngvarann einfaldlega ekki virst hafa verið í neinu ástandi til þess að koma fram. En Meat Loaf átti þó lokaorðið þegar tónleikarnir fóru loks fram kvöldið eftir, og rokkaði sá sextugi feitar en nokkurn tímann að sögn tónleikagesta, en um 3000 af þeim 4000 sem keyptu miða á upphaflegu tónleikana létu sjá sig. Meat Loaf hefur raunar lengi státað af því að vera sérstakur Írlandsvinur og seg- ist hafa túrað Írland meira en U2 nokkurn tímann, hafi spilað á hlöðu- böllum út um hvippinn og hvappinn, oft fyrir þúsundir manns. Umdeildur Kjöthleifur Írlandsvinur Meat Loaf á þol- inmóða aðdáendur á eyjunni grænu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.