Morgunblaðið - 31.07.2008, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 31.07.2008, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í sólina aðra leiðina til Alicante á hreint ótrúlegum kjörum 6. eða 13. ágúst. Gríptu tækifærið og tryggðu þér sumarauka á frábærum kjörum. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Alicante *** Aðeins örfá sæti laus *** Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. frá kr. 19.990 6. eða 13. ágúst kr. 19.990 Flugsæti aðra leið með sköttum til Alicante 6. eða 13. ágúst. Netverð á mann. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gud- laug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is FRÉTTASKÝRING Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is „ÞAÐ sem vegur þyngst er að olíu- verð hefur sett reksturinn úr skorð- um. Við sáum ekki þessar þreng- ingar fyrir. Veikt gengi krónunnar er líka mjög slæmt fyrir reksturinn enda eru öll okkar aðföng keypt er- lendis, til dæmis varahlutir í vagn- ana,“ segir Reynir Jónsson, fram- kvæmdastjóri Strætó bs. Útlitið er ekki gott hjá fyrirtæk- inu um þessar mundir. „Við áætlum að okkur vanti um þrjú hundruð milljónir í reksturinn bara til þess að komast í gegnum þetta ár,“ segir Reynir. Að sögn Reynis hafa nýir kjara- samningar einnig sett strik í reikn- inginn. Laun hafi hækkað enda eru starfsmenn fyrirtækisins hjá fjórum stéttarfélögum, Starfsmannafélagi Reykjavíkur, Samiðn, Eflingu og svo eru ökumenn verktaka sem keyra vagna fyrir fyrirtækið hjá ASÍ. Miðaverð í strætó hér er lágt í sam- anburði við önnur lönd. Miðaverð hefur ekki breyst síðan í ársbyrjun 2006, þegar það var lækkað. Sveitarfélögin þurfa að mæta rekstrarvanda félagsins Ein af spurningunum sem Strætó stendur frammi fyrir er hvaðan fjár- magnið eigi að koma. Er til dæmis réttlætanlegt að gefa frítt í strætó þegar fyrirtækið er í fjárhags- kröggum? „Það er tekist á um þessi atriði. Þegar ákveðinn hópur í sam- félaginu fær frítt í vagnana þá missir fyrirtækið auðvitað tekjustofn, eðli málsins samkvæmt. Taki sveitar- félögin tekjustofninn út verða þau hreinlega að kaupa hann af okkur, það er grundvallarhugsunin. Vand- inn í þessu er samt sá að þegar harðnar á dalnum hjá fólki þá versn- ar fjárhagur sveitarfélaganna. Þetta er því ekki auðsótt fé, “ segir Reynir. Fyrir liggur að tekjur borgarsjóðs Reykjavíkurborgar munu dragast saman um tvo milljarða á þessu ári samkvæmt spám. Lögboðnum verk- efnum sveitarfélaga fjölgar þegar kreppir að, enda þurfa fleiri á aðstoð að halda. Fjárhagsvandi Strætós er bæði gamall og nýr. Um er að ræða fortíðarvanda sem hefur aldrei verið leystur fyllilega. Flest venjulegt fólk gerir kröfu um góðar almennings- samgöngur. Því snertir vandinn öll sveitarfélögin sem standa að baki fyrirtækinu. Eitt af þeim úrræðum sem standa til boða er að minnka tíðni á leiðum sem eru illa nýttar af farþegum. „Okkar talningar sýna að með- alfjöldi farþega á einni stræt- isvagnaleið á heilu kvöldi eru kannski tveir til þrír farþegar. Þá spyrjum við okkur, er þetta skyn- samleg ráðstöfun á fjármunum?“ Leiðirnar sem um ræðir eru leiðir inn á jaðarsvæði, nýjar byggðir í út- jaðri borgarinnar, til dæmis leið 18 sem fer upp í Grafarholt. Hugmyndir voru uppi á vettvangi sveitarfélaga að ef verkefnið með námsmannakortið myndi heppnast vel yrði það skoðað hvort grunn- skólanemum yrðu gefin slík kort. Að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, formanns borgarráðs, hafa engar ákvarðanir um slíkt verið teknar. Morgunblaðið/hag Almenningssamgöngur Strætó bs. glímir nú við mikinn rekstrarvanda. Fyrirtækið vantar 300 milljónir í reksturinn til þess að komast í gegnum þetta ár. Mikill vandi hjá Strætó  300 milljónir vantar í reksturinn á þessu ári  Ástæður eru olíuverð, nýir kjara- samningar og dýr aðföng  Ekki liggur fyrir hvort grunnskólanemar fá frítt MIÐJAN, þáttur í Útvarpi Sögu, síðdegis í gær þar sem Sverrir Stormsker ræddi við Guðna Ágústs- son, formann Framsóknarflokksins, endaði með því að Guðni gekk út í beinni útsendingu. „Eftir klukku- tíma þref yfirgaf ég þáttinn,“ sagði Guðni. „Ég tel mér ekki skylt að sitja í svona samræðum.“ Guðni sagði það sem olli því að hann gekk á dyr hafa verið „útúrsnúningar og athugasemdir sem ég kann ekkert við í svona þætti um menn og mál- efni“. Ekki meiningin að ögra Guðna Talið barst meðal annars að land- búnaðarstefnu Guðna. Sverrir sagði fé sem færi í landbúnaðarráðuneytið jafngilda því að fimmtán milljörðum væri sturtað í klósettið á hverju ári. Hann sagði líklega mest hafa fokið í Guðna við þessi orð. Hann sagði einnig hugsanlegt að Guðni hefði gengið út „vegna þess að ég gaf það í skyn að hann væri sveitamaður eða sagði það jafnvel beinum orðum“. Sverrir sagðist efast um að stjórn- málamaður hefði nokkurn tímann áður yfirgefið útvarpsþátt í bræði. Sverrir sagði að eftir þáttinn hefði Guðni komið að máli við Arnþrúði Karlsdóttur, útvarpsstjóra á Út- varpi Sögu, og óskað eftir því að þátturinn yrði ekki endurfluttur. Í samtali við Morgunblaðið sagðist Guðni vona að útvarpsstöðin endur- skoðaði hvað hún sendi í loftið. Aðspurður sagðist Sverrir ekki hafa búist við þessum viðbrögðum og að meiningin hefði ekki verið að ögra Guðna. „Það er gaman að kallinum, og það hefði verið ennþá meira gaman að honum ef hann hefði viljað sitja lengur.“ sigrunhlin@mbl.is Guðni gekk út í beinni Þáttur á Útvarpi Sögu endaði óvænt Guðni Ágústsson Sverrir Stormsker HEILSULIND og gufubað verða tekin í notkun á Laug- arvatni vorið 2010. Framkvæmdir hófust sl. haust en rekstraraðili verður dótturfélag Bláa lónsins hf. Nauðsynlegt reyndist að loka gamla gufubaðinu á fram- kvæmdatímanum, m.a. vegna þess að heilbrigðisyfirvöld gátu aðeins veitt takmarkaðar undanþágur til rekstrar. Það hefur lengi verið vinsælt meðal aðkomu- og heima- manna og er með þekktari heilsulindum landsins. Byggingin myndi samstæða heild við umhverfið Í fréttatilkynningu frá Bláa lóninu kemur hins vegar fram að við uppbygginguna verði lögð áhersla á að við- halda þokka og ímynd gamla gufubaðsins, jafnt út frá stærð, rými, efnisvali og tilfinningu. Byggingin verður að hluta til felld inn í landslagið svo hún myndi samstæða heild við umhverfið. Vonast er til að með uppbyggingunni verði til aðlaðandi útivistar- og baðstaður fyrir alla fjölskylduna og að nýja gufubaðið og heilsulindin verði einstök hér á landi. Upp- haflega átti að taka heilsulindina í notkun sl. vor en fram- kvæmdum var frestað vegna ytri aðstæðna. Gufa ehf. mun reisa og eiga mannvirkin sem byggð verða við gufubaðið á bökkum Laugarvatns. Félagið stofn- uðu hollvinasamtökin Smíðahús og Gufubað. ylfa@mbl.is Bygging heilsulindar á Laugarvatni hafin  Framkvæmdir í fyrra og taka á bygginguna í notkun vorið 2010  Reynt að viðhalda ímynd gamla, þekkta gufubaðsins Nýtt Svona mun heilsulindin við Laugarvatn líta út. Hvers vegna er strætó í rekstrarerfiðleikum? Olíuverð hefur aldrei verið hærra. Krónan er veik og mestur hluti að- fanga er keyptur erlendis. Laun starfsmanna hafa líka hækkað. Ferðast allir námsmenn frítt með strætó? Framhalds- og háskólanemar á höf- uðborgarsvæðinu, fyrir utan Garða- bæ, fá námsmannakort. Gildir það frá 15. ágúst til 31. maí. Hvaðan ætti fjármagnið að koma? Frá sveitarfélögunum á höfuðborg- arsvæðinu, þau reka og eiga Strætó bs. Reykjavíkurborg er þar stærsti hluthafinn með 65% eignarhlut. Hvað gerist ef sveitarfélögin útvega ekki aukafjármagn? Nokkur úrræði eru í stöðunni. Hækka miðaverð, draga úr ferða- tíðni, fækka leiðum eða fækka starfsfólki. Ekkert slíkt er hins vegar á dagskrá. S&S

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.