Morgunblaðið - 31.07.2008, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
SUMARHÚSAEIGENDUR eru
ábyrgir fyrir frárennslinu frá hús-
um sínum, en fráfarandi formaður
Landssambands sumarhúsaeigenda
vill að sveitarfélög eða orkuveitur
annist fráveitulagnirnar. Því eru
talsmenn þeirra ekki sammála.
Í nýútkominni sumarhandbók
Landssambands sumarhúsaeigenda,
ritar Ásgeir Guðmundsson, fráfar-
andi formaður LS, grein þar sem
hann beinir því til umhverfisráðu-
neytisins að settar verði reglur, sem
skyldi sveitarfélög eða orkuveitur til
að annast fráveitulagnir í sum-
arhúsabyggðum. Í flestum þétt-
býliskjörnum sé talið sjálfsagt að
sveitarfélagið sjái um lagnir til og
frá húsum. Ásgeir bendir einnig á
að algengt sé að heitt vatn úr pott-
um renni beint út í hraun eða það sé
leitt út í næsta skurð eða á næstu
lóð og endi hugsanlega í nærliggj-
andi stöðuvatni, „paradís svæð-
isins“. Því fylgi hugsanlega meng-
unarhætta.
Mikill kostnaður fyrir eigendur
Um 14.200 sumarhús eru skráð á
landinu, samkvæmt Sumarhúsa-
handbókinni, og þar af um 50% á
Suðurlandi.
Jakob Sigurður Friðriksson,
framkvæmdastjóri framleiðslu og
sölu hjá Orkuveitu Reykjavíkur,
segir að enginn geti skyldað OR til
að taka að sér kostnaðarsöm verk-
efni eins og fráveitur í sum-
arhúsabyggðum. Hins vegar sé
ábending Ásgeirs réttmæt og þetta
sé mál sem umhverfisráðuneytið
þurfi að skoða. Ekki sé þar með
sagt að hlaupa eigi upp um öll fjöll
með lagnir.
Jakob rifjar upp að þegar Orku-
veitan ætlaði að byggja upp þétta
um 600 húsa sumarhúsabyggð á
Úlfljótsvatni fyrir um tveimur árum
hafi hún ætlað að leggja fráveitu og
hreinsistöð sem landeigandi og
skipuleggjandi svæðisins. Hann
bendir á að uppsetning hreinsi-
mannvirkja sé mjög dýr og kostn-
aður við fráveitu og hreinistöð hljóti
alltaf að lenda á sumarhúsaeigend-
um í formi þjónustugjalda.
Birgir Þórðarson, heilbrigð-
isfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Suð-
urlands, telur að sveitarfélög fari
seint í það að sinna fráveitum í sum-
arhúsabyggðum – kostnaðurinn geti
verið um 100 milljónir fyrir um 300
til 400 manna byggð – en þau geti
sett ýtarlegri reglur en reglugerð
segi til um.
Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri í
Bláskógabyggð, bendir á að sveitar-
félagið nái frá Hveravöllum að
Reykjavík og um 1.700 sumarhús
séu því á mjög dreifðu svæði.
Hreinsibúnaður fyrir örfáa bústaði
upp á meira en 100 milljónir króna
verði ekki settur upp á kostnað
sveitarfélagsins að óbreyttu. Fast-
eignaskattar fari í rekstur sveitarfé-
lagsins og ef auka eigi skyldur og
verkefni sveitarfélaga þurfi peninga
til þess að standa undir því. Mik-
ilvægt sé að skoða heildarmyndina
frá upphafi til enda og hvernig eigi
að fjármagna þjónustuna. Eins
verði að gera greinarmun á þéttbýli
og frístundasvæði.
Heitt vatn ekki í rotþró
Í leiðbeiningum Hollustuverndar
ríkisins um rotþrær og siturlagnir
frá 2002 segir að frárennsli frá ofna-
kerfum, baðvöskum, heitum pottum,
baðkörum og sturtuklefum þurfi
ekki að leiða í rotþró þar sem slíkt
geti skert virkni hennar til muna.
Slíkt affallsvatn megi leiða í skipti-
brunn eða jöfnunarþró. Viðmæl-
endur taka í sama streng og vara
við því að leiða heitt vatn í rotþró.
Það eyðileggi virkni rotþróarinnar
með þeim afleiðingum að saurgerlar
geti komist í grunnvatn sem renni í
neysluvatn.
Tekist á um fráveitulagnir
Morgunblaðið/Ómar
Sumarhús Húsum í frístundabyggðum hefur fjölgað mikið og þar með óskum um bætta þjónustu. Fráfarandi
formaður Landssambands sumarhúsaeigenda vill að settar verði reglur um frárennslismál.
Fyrrverandi formaður LS vill að sveitarfélög eða orkuveitur annist fráveitulagnir í sumarhúsabyggðum
Greinarmunur gerður á bæjum og þéttbýliskjörnum sveitarfélaga og frístundabyggðum
Í HNOTSKURN
» Í reglugerð um fráveit-ur og skolp segir að á
öllum þéttbýlisstöðum, þétt-
býlissvæðum og eftir atvik-
um í þyrpingu frístundahúsa
o.fl., skuli vera fráveita og
farið eftir gildandi kröfum
um hreinsun skolps. Ekki er
minnst á skyldur sveitarfé-
laga.
» Aðlögunartími vegna úr-bóta í fráveitumálum á
vatnsverndarsvæði Þing-
vallavatns er til 1. janúar
2011.
Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri
Umhverfisstofnunar, segir að verið
sé að vinna að frumvarpi til laga
um fráveitur og þar verði skerpt á
skyldum sveitarfélaga og annarra
landeigenda og skipulagsyfirvalda
frístundabyggða varðandi ábyrgð
á fráveitum, þar með talið frá-
rennsli frá húsum.
Í 13. grein reglugerðar um frá-
veitur og skólp segir að fráveitur
skuli vera frá einstökum húsum og
þar á meðal frístundahúsum. Þar
sem ekki sé sameiginleg fráveita
beri að veita fráveituvatni um
rotþró og siturleiðslu. Heilbrigð-
isnefnd geti bannað notkun ófull-
nægjandi fráveitulagna og krafist
endurbóta og endurnýjunar. Krist-
ín Linda segir að reglugerðin sé
skýr og samkvæmt henni liggi fyrir
reglur um frárennslismál í frí-
stundahúsum. Hins vegar megi
ekki útiloka mengunarhættu
vegna fráveitumála í sumarhúsum
og hafa beri í huga að lífríki Ís-
lands sé mjög viðkvæmt.
Kristín Linda segir að mikil
vinna hafi verið lögð í nýtt frum-
varp. Drögin hafi meðal annars
verið unnin í samráði við Samtök
sveitarfélaga, Samorku og félags-
málaráðuneytið, sem hafi áður
verið með málaflokkinn á sinni
könnu, en gert sé ráð fyrir að
frumvarpið verði lagt fram í haust.
Skerpt á skyldum sveitarfélaga og annarra
SÍMON Sveinn Sigurjónsson,
fyrrverandi barþjónn í Naust-
inu og síðar starfsmaður Al-
þingis, andaðist á Grensás-
deild Landspítalans 30. júlí, 77
ára. Hann var fæddur 4. ágúst
1930 í Reykjavík, sonur
hjónanna Sigurjóns Símonar-
sonar póstmanns og Hólmfríð-
ar Halldórs-
dóttur
húsfreyju.
Símon ólst
upp í austur-
bænum og átti
heima um
tíma í Ási við
Laugaveg.
Hann lærði til
framreiðslu-
manns og vann á námstíman-
um á Hótel Borg. Að loknu
námi 1952 gerðist hann yfir-
þjónn á Gullfossi, flaggskipi
Íslendinga. Þegar Veitinga-
húsið Naustið var opnað 1954
varð hann yfirþjónn þar og
síðar barþjónn. Símon lét af
störfum á Naustinu 1985 og
varð þá starfsmaður Alþingis
og vann þar til 2002.
Símon kvæntist Rögnu Est-
er Guðmundsdóttur 21. mars
1953. Hún lifir mann sinn. Þau
eignuðust synina Sigurjón og
Guðmund sem lifa föður sinn.
Andlát
Símon S.
Sigurjónsson