Morgunblaðið - 31.07.2008, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
HVERT hitametið á fætur öðru var
slegið á landinu í gær. Hitinn mæld-
ist mestur á Þingvöllum en ekki bar
á öðru en fólk hvarvetna á landinu
kynni vel að meta þessi óvenjumiklu
hlýindi.
Ströndin í Nauthólsvík og flestar
sundlaugarnar voru þétt setnar.
Fólk spókaði sig jafnt á grænum
svæðum sem í miðbæjum og ruku
köldu svaladrykkirnir og íspinnarnir
út. Útiborð kaffihúsanna voru þétt
setin sem og nálægir grasbalar þar
sem fólk mætti með sínar eigin veit-
ingar. Hvert sem litið var mátti sjá
fólk í sínum sumarlegustu fötum,
með sólgleraugu og bros á vör enda
ekki nógu oft sem landsmenn fá að
upplifa daga sem þennan.
Heitt við sjó og upp til fjalla
Alls var um tugur hitameta sleg-
inn í gær, flest frá ágústmánuði árs-
ins 2004. Elsta hitametið sem féll
var á Stórhöfða í Vestmannaeyjum
en það hafði staðið síðan 1924. Þá
var ekki aðeins heitt við sjávarmálið
heldur líka upp til fjalla. Efst á
Skálafelli, í 700 metra hæð, mældist
hitinn 23,1 gráða.
Hjá Veðurstofunni fengust þær
upplýsingar að þó svalara yrði í dag
en í gær tæki hitinn eflaust kipp á
morgun. Þá verður hlýtt á laugardag
en í kjölfarið mun kólna í veðri.
Veðrið um verslunarmannahelgina
verður því prýðisgott enda spáð hita,
litlum vindi og lítilli úrkomu. Lands-
menn geta því vel við unað.
Morgunblaðið/Júlíus
Á ströndinni Fjöldi fólks mætti í Nauthólsvíkina til að njóta hitans. Sannkölluð sólstrandarstemning ríkti á ströndinni og skiptist fólk á að liggja í sandinum eða leika sér og kæla sig í sjónum.
Hlýjasti dagurinn í mörg ár
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landmannalaugar Þegar manngerðar laugar eru ekki nálægt er gráupplagt að skella sér í eina náttúrulega.
Morgunblaðið/G. Rúnar
Að leik Börn í Flatey léku sér í sjávarmálinu undir vökulu auga bátsverja.
!"
!#
$
!
%
&'#(
% )
!
*
*
*
*
*
*
*
*
Landsmenn
brostu breitt
í veðurblíðunni
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Svölun Gott er að stinga sér undir vatnsbunu þegar verður of heitt.
Miðsumarshlýindin sem landsmenn hafa notið undanfarna daga náðu hámarki í gær
Besta sumar frá 1944
mbl.is | Sjónvarp