Morgunblaðið - 31.07.2008, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
RADOVAN Karadzic, fyrrverandi leið-
togi Bosníu-Serba, kemur fyrir Al-
þjóða sakamáladómstólinn fyrir Júgó-
slavíu (ICTY) fyrrverandi í Haag í dag
en hann var fluttur með flugi til Rotter-
dam í Hollandi í gær, þaðan sem hann
var síðan fluttur í varðhaldsmiðstöð
Sameinuðu þjóðanna í Haag. Karadzic
kemur fyrir dóminn klukkan fjögur að
staðartíma og verður þá gefið færi á að
leggja fram málsvörn, ellegar einhvern
tímann næstu þrjátíu dagana þar á eft-
ir. Karadzic var tekinn höndum fyrir
skömmu en hann fór huldu höfði sem
náttúrulækningamaður í Belgrað, eftir
þrettán ár á flótta frá réttvísinni. Hon-
um er gefið að sök að hafa sem leiðtogi
Bosníu-Serba framið glæpi gegn mann-
kyni og stríðsglæpi, m.a. í umsátrinu
um Sarajevo, þar sem 12.000 óbreyttir
borgarar féllu í loftárásum. Karadzic
lét sér vaxa sítt skegg en kemur fyrir
dóminn rakaður eins og þegar hann
leiddi Bosníu-Serba. baldura@mbl.is
Karadzic fluttur til Haag
! "# $ $ %&' (
)
'* ' +* *,%-),.' '$.. $/ $/ 0+ . 123456
7.
8 +9
& 9:
.9
;* $' <
$,=
8' ,'
! "#
9> #
?
"#
5
! !#
&( >' # "
6( 7
!2''/"!
! !! ! #
! # !
"
#$%$$&'"
8#
8,'@ ,' #'
! !
"
> @ (#(%
)
!
$ *
+ ,
*
-$ !
"
) .$ "
/
> > #0
$ *
+ #
>#! ,91%
)
! $
*
!2 3
! !
@, A #&%
)
!
$ 4 )
#
5!
6
46
7"
6
!
%
7"
7" ) 8
7. *'$ '9
$/ % 9(
' %
-#3 '
& 9(
$$.9
.<
$.9
' ('
)B'
' (' $/ )B'
=9 (+
&9*' '
8
-"
+
! 6-6
+
% $ $69"$$!- " 9
9
6%+-
-
)
$$
"
"
::&
"6
%
$
. %
;< -)
"::
Karadzic
árið 1992.
Karadzic í
gervi sínu.
ÞAÐ hefur verið heitt á Íslandi síðustu daga og
það hefur líka verið bærilegur hiti í Búlgaríu,
um 30 stig eða svipað og mældist á Þingvöllum í
gær. Þegar svona viðrar taka veiðiklærnar í
borginni Varna fram stengurnar og vaða út í sjó-
inn vel vopnaðir. Það er að sjálfsögðu heldur
svalara í sjónum en hvers vegna karlarnir eru
allir í einum hnapp fylgir ekki sögunni. Þá fer
heldur engum sögum af aflanum eða hvers kon-
ar fiskur það er, sem sóst er eftir. Hann hlýtur
þó að vera vel við vöxt ef nokkuð er að marka
vígalegar stangirnar.
AP
Með sjóstöng í Svartahafi
TYRKNESKI
stjórnlagadóm-
stóllinn ákvað í
gær að banna
ekki AK-flokk-
inn, stjórnar-
flokkinn, en
hann hafði verið
sakaður um að
brjóta gegn hinu
veraldlega
stjórnkerfi í
landinu. Aftur á móti verða opinber
framlög til hans helminguð í refs-
ingarskyni.
AK, sem vann mikinn kosninga-
sigur í fyrra og er af íslömskum
rótum runninn, reyndi að afnema
bann við slæðuburði kvenna í há-
skólum en það hleypti illu blóði í þá,
sem vilja gera skýran greinarmun á
trúarbrögðum og stjórnmálum,
ekki síst herinn.
Talsmenn AK þvertaka fyrir, að
flokkurinn vilji koma á íslömsku
kerfi í Tyrklandi og kölluðu kær-
una árás á lýðræðið. Frá því á sjö-
unda áratugnum hafa tuttugu ísl-
amskir flokkar verið bannaðir í
Tyrklandi. svs@mbl.is
AK ekki
bannaður
Abdullah Gul,
forseti Tyrklands.
ÞAU sáu aumur á honum, umkomu-
lausum krákuunganum, hjónin í
Somerset í Bretlandi þegar þau
voru á veiðum. Jack heitir hann og
hann hefur vaxið og dafnað í góðu
yfirlæti á heimilinu og tileinkað sér
ýmsa siði heimilishundanna, sem
alls eru fimm talsins. Hann er t.d.
vanur að gera atlögu að bréfber-
anum og stökkva upp í kjöltu hús-
bóndans. Jack er hrifinn af góðgæti
fyrir hunda en hann bregður sér
stundum frá í einn dag eða svo og
svalar sér svo á vatni í eldshúsvask-
inum. baldura@mbl.is
Krákan Jack hermir
eftir heimilishundinum
Snarl Krákan Jack í eldhúsinu.
HÁTTSETTUR starfsmaður banda-
rísku leyniþjónustunnar, CIA, átti
fyrr í þessum mánuði fund með koll-
egum sínum í pakistönsku leyniþjón-
ustunni, ISI, og sýndi þeim sannanir
fyrir því, að þeir hefðu náin tengsl við
uppreisnarhópa í Afganistan. Er
þetta haft eftir heimildum innan
Bandaríkjahers og CIA.
Pakistanar studdu á sínum tíma
talibanastjórnina í Afganistan og þeir
hafa lengi verið grunaðir um að hafa
enn mikil tengsl við talibana og aðrar
herskáar hreyfingar. Hafa þeir ávallt
neitað því en sagt er, að CIA hafi sýnt
fulltrúum ISI og leyniþjónustu pak-
istanska hersins fullar sannanir fyrir
stuðningi þeirra, m.a. við þá, sem
stóðu fyrir sjálfsmorðsárás á ind-
verska sendiráðið í Kabúl fyrr í mán-
uðinum.
Bandaríkjamenn hafa ekki síðan
skömmu eftir hryðjuverkin vestra 11.
september 2001 varað Pakistana
jafn-alvarlega við framferði þeirra og
nú en Yousaf Raza Gilani, forsætis-
ráðherra Pakistans, er einmitt um
þessar mundir í Washington þar sem
hann á fund með George W. Bush,
forseta Bandaríkjanna. Í viðtali við
fjölmiðla á þriðjudag vísaði hann á
bug fréttum um tengsl Pakistana við
talibana og aðra hópa í Afganistan.
Kvaðst hann ekki mundu leyfa slíkt
en ýmsir telja, að ISI fari sínu fram,
einkum nú eftir stjórnarskipti.
Versnandi sambúð
Hermt er, að fundur CIA-manns-
ins Stephen R. Kappes með fulltrú-
um ISI hafi farið fram nokkrum dög-
um eftir árásina á indverska sendi-
ráðið í Kabúl en afgönsk stjórnvöld
fullyrtu þá, að Pakistanar hefðu haft
hönd í bagga með hryðjuverkamönn-
unum. Er fundurinn talinn til marks
um, að Bandaríkjamenn séu búnir að
fá sig fullsadda af tvískinnungi Pak-
istana og sambúðin við þá muni held-
ur versna á næstunni. svs@mbl.is
Nóg komið af
tvískinnungnum
AP
Þverneitar Yousuf Raza Gilani, for-
sætisráðherra Pakistans, er nú
staddur í Bandaríkjunum.
Í HNOTSKURN
» Pakistanar voru duglegirvið að smygla vopnum til
Afganistans þegar Sovétmenn
réðu því og tóku síðan upp góð
samskipti við talibana.
» Nú eru það þó ekki Rúss-ar, sem falla fyrir kúlum
uppreisnarmanna, heldur
Bandaríkjamenn.