Morgunblaðið - 31.07.2008, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 17
MENNING
TILNEFNINGAR til Booker-
bókmenntaverðlaunanna voru op-
inberaðar í Lundúnum í gær. Þrett-
án bækur eru tilnefndar nú, en í
september verður tilkynnt um
hverjar af bókunum þrettán komast
á stutta tilnefningalistann, en verð-
launabókin verður valin af honum og
tilkynnt um úrslit í október.
Á listanum nú eru vel þekkt skáld,
eins og Joseph O’Neill, Salman
Rushdie og Mohammed Hanif, en
einnig Aravind Adiga. Gaynor Arn-
old, Sebastian Barry, John Berger,
Michelle de Kretser, Amitav Ghosh,
Linda Grant, Philip Hensher, Tom
Rob Smith og Steve Toltz.
Michael Portillo er formaður dóm-
nefndar og lét hann hafa eftir sér við
bresku miðlana í gær að bækur
skáldanna þrettán væru afar fjöl-
breyttar, en tveir þræðir væru þó
gegnumgangandi, stór frásagn-
arskáldskapur og húmor.
Alls voru 112 bækur lagðar fyrir
dómnefndina, en á tilnefningalist-
anum eru skáld frá Ástralíu, Ind-
landi og Pakistan auk Bretlands.
Epík og
húmor
Booker-tilnefn-
ingar kynntar
í Lundúnum í gær
SVO gæti farið að ekkert yrði af
frumsýningum haustsins í Scala
óperunni í Mílanó, að því er ítalska
dagblaðið Corriere della Sera
greinir frá. Ástæðan er sú að
verkalýðsfélag tónlistarmanna
hússins hefur afþakkað kjarasamn-
ing sem starfsmönnum var boðið að
skrifa undir nýverið. Stéttarfélög
annarra starfsmanna óperuhússins
fræga eiga sömuleiðis í kjaradeilu,
sem varð til þess að ekkert varð af
frumsýningu á nýrri uppfærslu
Francos Zeffirellis á La bohème
eftir Puccini í tilefni af 150 ára af-
mælis tónskáldsins fyrr í mán-
uðinum.
Undirbúningur haustannar húss-
ins ætti nú að standa yfir en í ljósi
hörkunnar í samningaviðræðum er
viðbúið að ekkert verði af frumsýn-
ingu á Spaðadrottningunni eftir
Tsjaíkovskí 1. október.
Verkfall
á Scala
Frá Scala-óperunni.
KAMMERKÓR frá Pori, eða
Bjarnarborg í Finnlandi, held-
ur tónleika í Norræna húsinu
annað kvöld kl. 20. Stjórnandi
kórsins er Leelo Lipping. Kór-
inn, sem heitir Porin Laulajat,
eða Bjarnarborgarsöngv-
ararnir, var stofnaður 1937 og
hélt því upp á sjötugsafmæli
sitt í fyrra með hátíðarkonsert
í Miðborgarkirkjunni í Bjarn-
arborg. Á efnisskránni í Nor-
ræna húsinu verða m.a. finnsk þjóðlög, valsar,
finnskir tangóar og söngvar frá Svíþjóð og Eist-
landi að ógleymdri Finlandiu. Kórinn syngur líka
við messu í Langholtskirkju á sunnudag kl. 11, tvo
finnska sálma eða lofsöngva og einn sænskan.
Tónlist
Bjarnarborgar-
söngvarar syngja
Bjarnarborgar-
söngvararnir
Í KVÖLD kl. 20 verða tón-
leikar í Skálholtskirkju á veg-
um Sumartónleika í Skálholti.
Yfirskriftin er Dauði Dídóar,
eftir samnefndri kantötu
Monteclairs sem flutt verður
ásamt hljóðfærasvítum eftir
Jean-Baptiste Lully, André-
Cardinal Destouches og Jean-
Marie Leclair. Flytjendur eru
Marta G. Halldórsdóttir sópr-
ansöngkona, Jaap Schröder
fiðluleikari og leiðari hljómsveitarinnar, Anna
Starr, Georgia Brown, Hildigunnur Halldórs-
dóttir, Svava Bernharðsdóttir, Bryndís Braga-
dóttir, Sigurður Halldórsson og Bertrand Cullier
á sembal. Ókeypis er inn á tónleikana!
Tónlist
Dídó deyr
í Skálholti
Marta Guðrún
Halldórsdóttir
SUMRI í Hömrum, tónleika-
röð Tónlistarfélagsins á Ísa-
firði verður framhaldið kl. 20 í
kvöld með tónleikum þeirra
Geirþrúðar Ásu Guðjónsdóttur
fiðluleikara og Matthildar
Önnu Gísladóttur píanóleikara,
sem leika verk eftir Mozart,
Ravel og Sarasate. Geirþrúður
Ása, sem er af ísfirsku bergi
brotin, lauk B.Mus.-prófi frá
Listaháskóla Íslands í vor. Á
hausti komanda hefur hún nám við Stetson-
University í Flórída, Matthildur Anna lauk B.
Mus.-prófi í píanóleik frá Listaháskóla Íslands í
fyrravor og er í nú námi við Konunglegu tónlistar-
akademúna í Lundúnum.
Tónlist
Geirþrúður Ása
á Sumri í Hömrum
Geirþrúður Ása
Guðjónsdóttir
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
KUNNGJÖRT var í gær hverjir
hljóta styrki í ár úr Menningarnæt-
urpotti Landsbankans. Þetta er í
fyrsta sinn sem úthlutað er úr sjóðn-
um, en þessi nýjung er liður í nýund-
irrituðum þriggja ára samstarfs-
samningi Höfuðborgarstofu við
Landsbankann sem áfram verður
máttarstólpi Menningarnætur – eins
og verið hefur frá því Menning-
arnótt var fyrst haldin fyrir 13 árum
síðan.
Sjö verkefni urðu fyrir valinu, og
þóttu þau öll taka á skemmtilegan
hátt mið af þema Menningarnætur
2008 – Torg í borg.
Verkefnin eru:
Leiksýning á tyrfðu torgi
Hilmir Jensson og Ingibjörg Huld
Haraldsdóttir búa til litla eyju í
mannþrönginni og sýna frumsamið
verk sem hverfist um sögur og
sagnalist. Eyjan verður á mörkum
Laugavegar og Bankastrætis.
Torgin í Grjótaþorpi
Íbúasamtök Grjótaþorps bjóða
upp á fjölbreytta dagskrá á torgum
úti. Í Grjótaþorpinu leynast nokkur
torg. Á Edinborgartorgi, í Álfa-
steinsgarði og í Vinaminnisgarð-
inum verður kátt á hjalla. Sagnafólk,
fornir leikir, ljósmyndasýning o.fl.
Lýðheilsutorg
Hópur meistaranema í lýð-
heilsufræði býður upp á ýmsa leiki
fyrir alla fjölskylduna. Heilbrigði,
fjölskylda og kátína eru lykilorðin.
Lýðheilsutorg verður í Hljóm-
skálagarðinum.
Vatnslistaverk á Skólavörðuholti
Óskar Ericsson sjónlistamaður
gerir vatnslistaverk á Skólavörðu-
holti sem er búið til úr þvottavélum.
Stígís
Leikhópurinn Stígis mun setja
ljóðið í nýtt form, nánar tiltekið
mennskt og fimm metra langt. Ljóð-
ið mun lifna við sem risavaxin
mennsk fígúra sett saman af þremur
pappírsklæddum verum í dularfullri
athöfn. Gjörningurinn verður í port-
inu við hlið Hverfisgötu 32.
Innitorg
Leikmyndahönnuðurinn Gustavo
Blanco og myndlistamaðurinn Davíð
Örn Halldórsson umbreyta versl-
unarrými að Laugavegi 66 í torg.
Sirkus
Lost Horse Gallery setur upp vid-
eo-innsetningu í Sirkusportinu að
Laugavegi 21. Verkið er unnið í sam-
starfi við fjölda listamanna og sýnir
þverskurð íslenskrar videolistar.
Verkið er litríkt og dáleiðandi.
Rótgróin hefð
Björgólfur Guðmundsson formað-
ur bankaráðs Landsbankans segir
að bankinn hafi lagt mikinn metnað í
samstarf við Menningarnótt allt frá
upphafi. „Von okkar er að þetta
framtak gefi fleira fólki kost á að
sýna hvað í því býr.“ Hann segir
bankanum þykja verulega vænt um
samstarfið. „Það er rótgróin hefð í
starfi bankans og undirstrikar víð-
tækan stuðning okkar við íslenskt
lista- og menningarlíf. Það er því
engin tilviljun að í gegnum árin hafa
fjölmargir listamenn og hljómsveitir
sem komið hafa fram á vegum bank-
ans átt í samstarfi við bankann eða
notið stuðnings hans í listsköpun
sinni.“
Björgólfur segir að þau hjónin
sæki Menningarnótt á hverju ári.
„Hér í bankanum í Austurstræti er
alltaf fjölbreytt og skemmtileg dag-
skrá og svo komum við að sjálfsögu
við á Miklatúni í fyrra. En okkur
þykir ekki síður skemmtilegt að
rölta um bæinn og leita uppi ýmsa
minni og áhugaverða viðburði sem
er að finna á ólíklegustu stöðum í
miðborginni.“
Rótgróin hefð í bankanum
Sjö hugmyndir hljóta styrki úr fyrsta Menningarnæturpotti Landsbankans
Fjölskylduleikir, vatnslistaverk, myndbönd, mennskt ljóð og eyja í mannþröng
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Menningarnæturpotturinn Björgólfur Guðmundsson, Sif Gunnarsdóttir,
forstöðumaður Höfuðborgarstofu, aðrir aðstandendur og styrkþegar.
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
Í ÁRSBYRJUN 2009 mun nýr ritstjóri taka við
Tímariti Máls og menningar, en næstu tvö blöð
verða þau síðustu sem Silja Aðalsteinsdóttir rit-
stýrir. Silja tók við ritinu þegar það var hálf-
munaðarlaust í kjölfar hræringa hjá því sem áður
var útgáfurisinn Edda og hefur ritstýrt því heim-
an að frá sér síðustu fimm árin. Í haust tekur Silja
svo við sem útgáfustjóri bókaútgáfunnar Máls og
menningar og fylgir blaðið henni í höfuðstöðvar
Forlagsins, sem rekur Mál og menningu ásamt
fleiri bókaútgáfum.
„Kannski bauð Jóhann Páll mér þetta starf á
Forlaginu til þess að ná í tímaritið, því hann fær
það núna,“ segir Silja glettin. „En það er í raun
ekki hægt að bjóða nokkurri manneskju upp á það
að halda þessu tímariti úti eins og ég hef gert, sjá
um bæði efnisöflun, ritstjórn, prófarkalestur og
fjármálin,“ bætir ritstjórinn, prófarkalesarinn og
fjármálastjórinn Silja við.
Poppað ár
En hvernig mun Silja svo kveðja ritið? „Þetta
verður svolítið poppað ár, Sigur Rós var á forsíð-
unni fyrr á árinu og það verður væntanlega grein
um Björk núna í öðru hvoru haustheftinu. Annars
er ég með svo lélegt blaðamannsnef og hef alltaf
haft, ég hugsa meira í gæðum en skúbbi. Það hef-
ur líka lítið að segja að skúbba í svona tímariti til
langs tíma litið, ef fólk gerist áskrifendur bara út
af einhverju fréttnæmu er það líka mjög fljótt að
fara aftur.“
Gæði frekar en skúbb
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Breytingar Silja Aðalsteinsdóttir er að hætta aft-
ur sem ritstjóri Tímarits Máls og menningar.
Silja Aðalsteinsdóttir hættir sem ritstjóri TMM
Hvað er Menningarnæturpottur Landsbankans?
Menningarnæturpottur Landsbankans er hvatningarstyrkur og ný leið til að
veita frumlegum og sérstökum hugmyndum brautargengi á Menningarnótt.
Hvaðan kemur hugmyndin?
Landsbankinn átti hugmyndina og vill með henni styrkja sérstaklega grasrót-
arverkefni á Menningarnótt.
Hvert er hlutverk pottsins?
Markmið hans er að styrkja lítil og meðalstór verkefni einstaklinga, hópa eða
félagasamtaka sem verða síðan hluti af dagskrá Menningarnætur.
Hverjir koma til greina við styrkveitingar úr pottinum?
Allir sem sækja um verkefnastyrki fyrir hugmyndir sínar til Menningarnætur.
S&S
ÁSKRIFENDUR að Tímariti Máls
og menningar eru um þúsund tals-
ins. Silja tók aftur við ritinu árið
2003 þegar það virtist hafa dáið
drottni sínum. „Það voru um 400
áskrifendur eftir. Það er liðin sú
tíð að svona tímarit geti haft
3000-4000 áskrifendur eins og var
á níunda áratugnum en svona
tímarit þarf að minnsta kosti þús-
und áskrifendur til þess að geta
staðið undir sér. Þetta tókst á
svona einu og hálfu ári en það er
mjög erfitt að koma fjöldanum
upp fyrir það.“
Silja var áður ritstjóri tímarits-
ins á níunda áratugnum, en tíma-
ritið hóf göngu sína árið 1938.
Treystir
á áskrifendur