Morgunblaðið - 31.07.2008, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
T
ölvuteiknibrellur (CGI)
eru vafalaust umtals-
verðasta byltingin sem
orðið hefur í kvikmynda-
gerð síðustu áratugina
og þar stendur einn risi upp úr, Pixar
Animation Studios. Saga þess er
merkileg því þar leggja hönd á plóg-
inn nokkrir af frumkvöðlum í kvik-
mynda- og brellugerð og hátækninýj-
ungum á tölvusviðinu. Pixar var
stofnað fyrir tæpum þrem áratugum,
af George Lucas. Það var árið 1979,
Lucas var þá þegar búinn að hirða
væna sneið af hefðbundinni brellu-
gerð í kvikmyndum með tilkomu fyr-
irtækis síns, Industrial Light and
Magic, ILM. Það hafði séð um
vinnslu á byltingarkenndum, sjón-
rænum brellum í fjölda kassastykkja
sem framleidd voru undir merki
Lucasfilm, kvikmyndafyrirtækis leik-
stjórans, sem stóð að baki helstu að-
sóknarmyndum Hollywood á of-
anverðri síðustu öld, með Star Wars
og Indiana Jones-myndbálkana í
fremstu víglínu. Stafræn tækni var að
koma til sögunnar og auðséð að hún
myndi brjóta blað í kvikmyndasög-
unni með nýjum og ótakmörkuðum
möguleikum. Lucas stofnaði Pixar,
sem upphaflega hét Graphics Group,
árið 1979, gagngert til að þróa þessa
tækni og fyrirtækið óx og dafnaði ár
frá ári. Því var ekkert ómögulegt og
sá það m.a. um brellur í nokkrum
Star Trek-myndum og The Young
Sherlock Holmes, áður en áhugi
Steve Jobs vaknaði á tækniverinu.
Jobs er sem kunnugt er annar stofn-
enda Apple-rafeindarisans, bráð-
snjall hugsuður og frumkvöðull í
margflóknum hátæknibúnaði sam-
tímans. Hann var nýbúinn að selja
sinn hlut í Apple og fann verðuga
áskorun í Graphics Group og keypti
það af Lucas árið 1986.
Það fyrsta sem Jobs gerði var að
breyta nafni GG í Pixar, og hressa
upp á ímynd fyrirtækisins á ýmsa
lund. Hann kom með nokkra frábæra
hugvitsmenn að Pixar og var fyrr en
varði byrjaður að selja margvíslega
þjónustu þess út um allar jarðir en
stæsti viðskiptavinurinn varð smám
saman Walt Disney. Jobs var enn að
gæla við tölvusmíði, en Pixar-tölvan
var mislukkuð og fyrirtækið stóð
tæpt þegar Jobs gerði samning við
Disney um samvinnu við gerð mynd-
arinnar Toy Story. Hún var frum-
sýnd 1995 og markaði tímamót í útliti
og varð upphafið á einstaklega far-
sælli samvinnu, sem skilaði hálfum
þriðja milljarði Bandaríkjadala í
kassann. Velgengni Pixar var hafin
fyrir alvöru.
Jafnvel lukkulegasta sambúð getur
farið veg allrar veraldar og Pixar,
sem hafði mátt horfa upp á Disney
hirða stærsta bitann af hagnaði sam-
vinnuverkefna fyrirtækjanna, hótaði
öllu illu, jafnvel að slíta samstarfinu
ef kröfur Jobs gengu ekki eftir.
Orðlagður samningamaður, Michael
Eisner, stjórnaði Disney á þessum
tíma og mættust þar stálin stinn.
Hvorki rak né gekk uns Eisner var
látinn fara árið 2005 og upp úr því
gleypti Disney-risinn litlu, sætu
brellugerðina hans Jobs. Ratatoullie
(’07), var síðasta myndin þar sem
Jobs kom við sögu.
Disney tekur við taumunum
Við yfirtökuna eignaðist Jobs væn-
an hlut í Disney-samsteypunni og er í
dag stærsti hluthafi hennar og stjórn-
armaður. Á yfirborðinu myndaðist
ekki gára vegna samrunans, farsæld-
in heldur áfram, eins og ekkert hafi í
skorist.
Nýju eigendurnir hafa gæði og aft-
ur gæði að leiðarljósi rétt eins og
Jobs og það gerir útslagið. Mynd-
irnar eru sem fyrr óhemjuvandaðar
tæknilega og það sem skiptir ekki
minna máli, hér er lögð sérstök
áhersla á handritin, nokkuð sem öll
önnur kvikmyndaver vestra mættu
taka til fyrirmyndar. Framhalds-
myndir eru óþekktar (að Toy Story 2
undanskilinni), en leitað er logandi
ljósi að frumlegum sögum sem hafa
af fleira að státa en skemmtanagildi.
Nýjasti smellurinn, Wall-E, er engin
undantekning, frumleg og djörf
ádeila í auðskildum umbúðum.
Óslitin sigurganga
Að venju hafa dómarnir um Wall-E
verið á einn veg, reyndar fram-
úrskarandi, og myndin mokar inn fé
um allar jarðir. Samkvæmt sam-
antekt Metacritic-vefsíðunnar, þar
sem dómar virtustu gagnrýnenda
Bandaríkjanna eru metnir frá 1–10
(og Mbl. vitnar gjarnan í), gerir ekk-
ert kvikmyndaver betri myndir en
Pixar. Það á 6 myndir á listanum yfir
þær 100 bestu. Ratatouille trónir efst,
í 7. sæti; Wall-E er í því 21. á listan-
um. Toy Story er nr. 31 (við hlið Ósk-
arsverðlaunamyndarinnar No Co-
untry for Old Men). Þar með er
aðeins hálf sagan sögð því myndir
Pixar hafa tekið inn mest fé allra
keppinautanna 100.
Stefna teiknimyndaversins er af-
markaðri en annarra í Hollywood
samtímans, það gerir margflóknar
listrænar myndir sem höfða til
fjöldans. Oft eru þær mannaðar
myrkum persónum undir varasömum
kringumstæðum en flétturnar leysast
og þegar komið er að lokum er útlitið
bjart og gestirnir yfirgefa salinn í sól-
skinsskapi.
Þessi afdráttarlausa gæðastefna
og ásetningurinn að koma gestum í
gott skap hefur gert Pixar að pott-
þéttasta fjölskyldumyndaframleið-
andanum í kvikmyndaheiminum.
Stundum eru þær ekki aðlaðandi til
að byrja með (t.d. Ratatouille), en við
getum treyst því að það rætist úr fí-
gúrunum og aðstæðunum með hverri
mínútunni sem líður. Þetta er hrein-
ræktuð snilld, Pixar bregst ekki þó
útlitið sé tvísýnt á köflum.
Það verður að taka með í reikning-
inn að Pixar framleiðir aðeins 1–2
myndir á ári og leyfir sér að nostra
við þær uns allir eru sáttir. Önnur
kvikmyndaver verða að bjóða þrjár
sumarmyndir, tvær jólamyndir
o.s.frv. og ekki hægt að ætlast til að
þær lukkist undantekningarlaust.
Samt er forvitnilegt að velta fyrir sér
hversvegna þessi eina Pixar-mynd er
betri en 20 frá Fox og Warner og ein-
ar 18 frá Sony og Paramount.
Allt aðrir innviðir og bakgrunnur
eru sterkir þættir sem skapa sér-
stöðu Pixar, á meðan hinir risarnir í
kvikmyndaborginni eru komnir í
fjögurra kynslóða fjarlægð frá inn-
flytjendunum sem stofnuðu þá og
starfsemi þeirra minnir meira á
stönduga banka en kvikmyndaver
þar sem starfsmennirnir hafa jafnan
hugfast að þeirra fyrsta og síðasta
skylda er að græða og vinna upp
kostnaðinn sem oft fer úr böndunum.
Þau eru í eigu stórfyrirtækja og það
er Pixar reyndar líka, en andi Jobs,
þessa einstæða draumsýnismanns og
frumkvöðuls í nútíma-hátækni, svífur
yfir vötnum. Hér starfa mennirnir
sem fundu upp tölvuvædda teikni-
vinnu og eru að betrumbæta hana á
hverjum degi.
Ósviknir frumkvöðlar sem leita
gjarnan fanga á nýjum miðum þar
sem enginn hefur leitað gæfunnar.
Wall-E og hinir smellirnir
Wall-E er spáð Óskarnum í ár,
hann bætist þá í safn sem telur á ann-
an tug þessara eftirsóttu verðlauna.
Titilpersónan er vélmenni, eins konar
ræstitæknir framtíðarinnar, sem er
skilinn eftir á jörðinni til að taka til
eftir okkur þegar mannkynið flýr
óbyggilegan sóðaskapinn. Hann er
einmana og leiðist en svo hleypur
óvænt á snærið hjá honum. Myndinni
leikstýrir Andrew Stanton, sem hefur
starfað alla tíð í hinum ýmsu deildum
Pixar. Hann er sagður votta virðingu
sína vísindaskáldsögu-myndunum
sem hann ólst upp með á áttunda ára-
tugnum: 2001, Star Wars og Close
Encounters of the Third Kind, svo
nokkrar séu nefndar. Að endingu er
listi yfir glæsilega framleiðsluna og
sigurvegarana frá Pixar frá upphafi
og þær sem eru á teikniborðinu.
Myndirnar eru allar í 4 stjörnum +,
nema ef vera skyldi Cars, sem náði
ekki að hrífa mann upp úr skónum.
Pixar – þar sem galdrarnir gerast
Man einhver gamanmyndina Hver skellti sökinni á Kalla kanínu? – Who Framed Roger Rabbit? Tuttugu ár eru liðin frá frum-
sýningunni og ef hún situr enn í kollinum á einhverjum þá er það vegna tímamóta-brellugerðar, hér sást einna fyrst vel heppn-
aður samruni leikinnar og teikni-myndar, ástæðan var ný, stafræn, tölvuunnin teiknitækni (CGI), sem hefur síðan unnið sér
fastan sess í kvikmyndaheiminum. Það blasti við Sæbirni Valdimarssyni að eitt fyrirtæki, Pixar, á mestan heiðurinn af þróun-
inni, en nýjasta mynd þess, Wall-E, verður frumsýnd á miðvikudaginn.
© Disney/PIXAR
Nýjasta verkið „Þessi afdráttarlausa gæðastefna og ásetningurinn að koma gestum í gott skap hefur gert Pixar að pottþéttasta fjölskyldumyndaframleiðandanum í kvikmyndaheiminum.“
Einmana Wall-E er spáð Óskarnum í ár og bætist þá í safn stytta sem telur á annan tug. Titilpersónan er vélmenni, eins konar ræstitæknir framtíðarinnar.
Fyrirtækið sem
hefur leitt staf-
rænu teikni-
myndaheimsbylt-
inguna hittir
naglann rétt einu
sinni beint á höf-
uðið með Wall-E.
John Carter of Mars (2012)
Toy Story 3 (2010)
Up (2009)
1906 (2009)
WALL·E (2008)
Ratatouille (2007)
Cars (2006)
The Incredibles (2004)
Finding Nemo (2003)
Monsters, Inc. (2001)
Toy Story 2 (1999)
A Bug’s Life (1998)
Toy Story (1995)