Morgunblaðið - 31.07.2008, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 31.07.2008, Qupperneq 40
40 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ / ÁLFABAKKA THE LOVE GURU kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára WALL• E m/ísl. tal kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ DARK KNIGHT kl. 5 - 8 - 11:10 POWERSÝNING B.i. 12 ára DECEPTION kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára KUNG FU PANDA m/ísl. tal kl. 4 LEYFÐ / KRINGLUNNI VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA POWER SÝNING KL. 11:1 0 Í KRINGL UNNI DECEPTION kl. 11:10 B.i. 14 ára KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 LEYFÐ KUNG FU PANDA m/ensku. tali kl. 8 LEYFÐ WANTED kl. 11:10 B.i. 16 ára CHRONICLES OF NARNIA 2 kl. 5 B.i. 7 ára SÝND Í KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALISÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI "VÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ! THE DARK KNIGHT ER STÓRKOSTLEG. THE DARK KNIGHT ER SVO GÓÐ AÐ ERFITT ER AÐ ÍMYNDA SÉR AÐ SÚ ÞRIÐJA GETI ORÐIÐ BETRI. UNDIRRITAÐUR KIKNAÐI Í HNJÁLIÐUNUM... Á NÝJUSTU BATMAN-MYNDINNI" -T.S.K - 24 STUNDIR "EINFALDLEGA OF SVÖL,THE DARK KNIGHT MUN SÓPA AÐ SÉR ÓSKARSVERÐLAUNUM. ÓTRÚLEGAR BARDAGASENUR OG ÓVÆNTAR FLÉTTUR Í HANDRITINU GERA MYNDINA FRÁBÆRA." -ÁSGEIR J. - DV "ÞETTA ER BESTA BATMAN-MYNDIN, BESTA MYNDASÖGUMYNDIN OG JAFNFRAMT EIN BEST MYND ÁRSINS..." -L.I.B.TOPP5.IS THE DARK KNIGHT ER KOMINN Í EFSTA SÆTI Á VIRTASTA KVIKMYNDAVEF HEIMS,IMDB.COM, YFIR BESTU KVIKMYNDIR ALLRA TÍMA! HANN ER SNILLINGUR Í ÁSTUM NÝJASTA GRÍNMYND MIKE MYERS SEM FÆRÐI OKKUR AUSTIN POWERS MYNDIRNAR SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI UPPSELT ÖRFÁ SÆTI LAUS THE DARK KNIGHT kl. 2 - 5 - 8 - 11:10 B.i. 12 ára THE DARK KNIGHT kl. 2 - 5 - 8 - 11:10 B.i. 12 ára LÚXUS VIP WALL• E m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 LEYFÐ DIGITAL WALL• E m/ensku. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ MAMMA MIA kl. 2 - 5:50 - 8:20 B.i. 12 ára STÆRSTA OPNUN Á ÍSLANDI FYRR OG SÍÐAR. 30.000 MANNS Á 7 DÖGUM. EIN BESTA MYND ÁRSINS! Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is LEITARVÉLINNI Cuil var hleypt af stokkunum í vikunni og voru menn þar á bæ stóryrtir. Sögðu leitarvélar ekki hafa náð að fylgja eftir þeirri hröðu þróun sem orðið hefði á netinu og úr því ætluðu þeir að bæta. Í yfirlýsingu segir að þeir leiti á þrefalt fleiri síðum en Google, röð leitarniðurstaðna fari frekar eftir efnistökum og vægi heldur en strípuðum vinsældum. En stendur hún undir þessum yfir- lýsingum? Prófum að taka stikk- prufu á efni blaðsins í gær og leit- um að Nick Cave, Cate Blanchett, Wall-E, Gay Pride og Í svörtum fötum á báðum síðum og skoðum hvaða niðurstöður rata á forsíðuna, enda hafa fæstir þolinmæði í að fletta í gegnum allar síðurnar nema leitin sé því mikilvægari. Google sérviskulegri Tölurnar eru þar ekki cuil í hag, Google skilar iðulega þrefalt fleiri síðum. Hins vegar má til sanns vegar færa að á forsíðunni koma fleiri lykilsíður en á Google, þar sem oft læðast einhverjar einkenni- legar síður með, jafnvel stöku ís- lensk bloggsíða, en það má deila um hvort það sé endilega alltaf já- kvætt – stundum er maður einmitt að leita að litlu skrítnu síðunum – fyrir utan að notendur þekkja lík- lega flestir fyrir síður eins og Wikipedia og MySpace og geta far- ið þangað beint án aðstoðar leitar- véla. Þá virðist cuil oftast gleyma youtube, sem þýðir að maður missir af bíóbroti úr Wall-E, Cate Blanchett sem Dylan og sérstak- lega flutningi Nick Cave og P.J. Harvey á Henry Lee, en fá mynd- bönd má finna sem eru jafn skemmtilega sexí. Hins vegar hefur cuil útlitið með sér. Síðunni er skipt í þrjá dálka og þannig er hægt að sjá mun ítar- legri útlistun á hverri síðu heldur en á Google þrátt fyrir að taka álíka pláss, og auk þess er oftast mynd með. Á meðan er Google kannski óþarflega berstrípað, mínímalískt og textamiðað. Eins er mjög skemmtilegur rammi efst í hægra horni cuil þar sem boðið er upp á að brjóta leitina betur upp, þar má til dæmis leita sérstaklega eftir einstökum plötum Nick Cave og fleira slíkt. Kúl ekki ylhýr Yfirburðir Google eru hins veg- ar algerir þegar leitað er efnis á ástkæra ylhýra. Fyrir það fyrsta bíður google.is manni að leita að- eins á íslenskum vefsíðum, en jafn- vel þótt maður noti alþjóðlegu síð- urnar eru niðurstöðurnar á Í svörtum fötum að virðist algjör- lega tilviljunakenndar og lítt nothæfar á cuil. Enn versnar það þegar prófað var að slá inn „áhyggjudúkkur“ (eftir samnefndri skáldsögu Steinars Braga) þá fann Google 235 síður en cuil enga einustu, og virðist sem forritið annað hvort skilji íslenska stafi illa eða skoði ekki íslensku síðurnar nógu vel. Raunar virðist hún skilja Á betur en á, miðað við að skyndilega birtast 60 niður- stöður ef litla stafnum er breytt í stóran. Þegar flett er upp á Gay Pride þá kemur hið íslenska Gay Pride upp á forsíðunni, en á Google eru tvær efstu leitirnar af íslensku hátíðinni. Í grein í Time Magazine bendir Anita Hamilton á að heimspeki cuil sé í raun afturhvarf til þeirrar gerðar vefleitar sem var alls ráð- andi áður en Google nánast tók yfir leitarvélamarkaðinn og því sé í raun verið að stíga skref aftur til fortíðar. Það sem hún finnur síð- unni helst til kosta er að hún virði einkalíf notenda sinna betur en hinar og geymi ekki leitarsögu þeirra. Þá vantar möguleikann á því að leita sérstaklega að mynd- um, myndböndum og öðru slíku á cuil. Einvígi leitarvélanna Samanburður á leitarvélunum Cuil og Google Morgunblaðið/Ómar Jónsi ekki cuil Þegar leitað er að hljómsveitinni Í svörtum fötum á cuil.com virðist aðeins ein leitarniðurstaðan á forsíðunni koma sveitinni eitthvað við.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.