Morgunblaðið - 06.08.2008, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ RagnhildurKristín Sandholt
fæddist í Reykjavík
6. ágúst 1949. Hún
lést á líknardeild
LSH í Kópavogi 27.
júlí síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Þóra Guðrún
Alexandrína Krist-
jánsdóttir Sandholt,
f. 18.7. 1912 og Ás-
geir Jakob Sandholt,
bakarameistari, f.
3.7. 1913, d. 19.5.
2003. Systkini Ragn-
hildar eru: Erla Ruth Sandholt f.
1940, Sverrir Sandholt f. 1941 og
Stefán Harald Sandholt f. 1945.
Ragnhildur giftist 25.4. 1970 Jóni
Eiríkssyni, lögmanni, f. 21.5. 1946.
Foreldrar hans eru Sjöfn Jóns-
dóttir frá Eskifirði f. 10.7. 1925 og
Eiríkur Jónsson, múrarameistari, f.
3.8. 1923, d. 29.7. 2004. Börn Ragn-
hildar og Jóns eru: 1) Eiríkur, raf-
virkjameistari, f. 4.10. 1970, maki
Ásthildur Björnsdóttir, bókari, f.
12.7. 1975, börn þeirra: a) Rík-
harður Aron f. 4.1. 2001, b) Re-
bekka Rut f. 29.8. 2002. 2) Íris,
grafískur hönnuður, f. 26.6. 1972,
maki Einar Sigurðsson, iðnhönn-
uður, f. 11.1. 1968, börn þeirra: a)
Elmar f. 29.11. 2000, b) Rakel f. 9.7.
2004. 3) Atli Már, bifvélavirki, f.
14.2. 1977, maki Lilja Dagbjarts-
dóttir, viðskiptafræðingur, f. 7.7.
1982.
Ragnhildur var fædd og uppalin
í Reykjavík, fyrst á Flókagötu 9 en
ýmsu listgreinum. Frá árinu 1995
lagði hún mesta áherslu á leir- og
myndlist. Hún tók þátt í nokkrum
samsýningum, m.a. Myndlistarskól-
anum Mynd-máli og í Gerðarsafni
með Myndlistarskóla Kópavogs sl.
vor. Síðastliðna helgi lauk fyrstu
einkasýningu Ragnhildar, –Tré og
Perlur– sem staðið hefur að und-
anförnu í Minni-Borg í Grímsnesi.
Ragnhildur hóf nám í innanhúss-
arkitektúr í Akademisk brevskole
1985 með góðum árangri, en ýmsar
ástæður urðu til þess að hún fór
ekki til Kaupmannahafnar til að
taka lokapróf úr skólanum.
Ragnhildur var útivistar- og
íþróttakona. Hún stundaði dans
sem keppnisíþrótt um margra ára
skeið og var meðal fremstu dans-
ara í sínum aldursflokki í sam-
kvæmisdönsum. Vann oft til verð-
launa og var fulltrúi Íslands á
heimsmeistaramótum nokkrum
sinnum. Ragnhildur var Íslands-
meistari í standarddönsum vorið
2004, þegar hún varð að hætta
íþróttaiðkun að mestu. Einnig lagði
hún stund á badminton, skokk og
gönguferðir.
Ragnhildur tók þátt í að koma af
stað foreldrastarfi í Foldaskóla
þegar hann tók til starfa auk þess
að taka virkan þátt ásamt eig-
inmanni sínum í því að leggja
grunn að stofnun Ungmennafélags-
ins Fjölnis. Hún var meðal stofn-
enda Félags sjálfstæðismanna í
Grafarvogi og sat í stjórn félagsins
fyrstu árin.
Eftir greiningu sjúkdóms síns
helgaði Ragnhildur sig starfi Ljóss-
ins og var þar leiðbeinandi og virk-
ur þátttakandi.
Útför Ragnhildar fer fram frá
Grafarvogskirkju á afmælisdegi
hennar miðvikudaginn 6. ágúst kl.
13.
síðan á Kirkjuteigi 25.
Á brúðkaupsdaginn
árið 1970 flutti Ragn-
hildur í eigið húsnæði
sem þau hjón höfðu
byggt í Tungubakka
16, en 15 árum síðar í
Hverafold 132, þar
sem hún bjó ásamt
eiginmanni sínum til
hinsta dags.
Fyrstu námsár
Ragnhildar voru í Ís-
aksskóla, en hún sleit
barnsskónum í Teiga-
hverfinu og lauk
grunnskólanámi sínu í Laugarnes-
skóla, þar sem góður grunnur var
lagður að listsköpun nemenda. Hún
lauk síðan gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Verknáms þar
sem áhersla var lögð á heim-
ilisfræði og handmennt.
Á unglingsárum sínum starfaði
Ragnhildur sem afgreiðslustúlka í
bakaríi föður síns, hvenær sem tóm
gafst á námsárum hennar og síðan
í fullu starfi þar til hún eignaðist
sitt annað barn 1972 að hún sneri
sér alfarið að uppeldi barna sinna
og rekstri heimilis. Árið 1987 hóf
hún störf að nýju utan heimilis.
Starfaði hún m.a. hjá Alþýðu-
bankanum á Laugavegi, síðar Ís-
landsbanka, Max vinnufatagerð og
nú síðast hjá fjárreiðudeild TVG–
Zimsen sem síðar varð Eimskip og
starfaði þar til ársloka 2005 þegar
hún hætti störfum vegna veikinda.
Ragnhildur var fjölhæf listakona
og sótti fjölmörg námskeið í hinum
Englarnir grétu þegar við gengum
út frá þér á sunnudaginn. Fallegri
stund hefðum við ekki getað átt með
þér, elsku mamma. Þú varst svo falleg
og mikill friður og ró yfir þér. Þú barð-
ist svo hetjulega við þennan hræðileg
sjúkdóm, krabbamein. En nú vitum
við að þér líður betur og ert komin á
góðan stað hjá pabba þínum, við erum
sannfærð um að hann hafi verið hjá
þér síðustu dagana og fylgt þér.
Takk fyrir allt sem þú hefur gert
fyrir mig, þú ert besta mamma sem ég
gæti nokkurn tíma hugsað mér. Góð,
falleg, drífandi, ákveðin, hjálpsöm og
sannur vinur.
Þú hefur alltaf verið drifkraftur-
inn í allri skipulagningu og nú sitjum
við hér öll saman komin aum og dof-
in, og vantar þig til að drífa hlutina af
stað.
Til hamingju með afmælið í dag,
elsku mamma mín, þín verður
minnst með miklum söknuði. Við
reynum að hugga okkur við að nú liði
þér betur, en það er sárt að horfa á
eftir þér. Ég mun halda minningu
þinni á lofti fyrir krakkana og minna
þau á hversu yndislega ömmu þau
eiga sem vakir nú yfir þeim.
Þín dóttir,
Íris.
Amma þú ert best í heimi, góð, fín
og flott. Amma þú ert skemmtileg og
fórst með mér út á skip að skoða
hvali, í bíó og út að borða. Gaman var
með ykkur í sumarbústaðnum. Svo
fannst mér alltaf gaman að gista hjá
ykkur og vildi sem oftast gera það.
Ég á þig alltaf sem ömmu þótt þú
sért upp á himnum. Vona að guð passi
þig vel. Ég sakna þín rosalega mikið.
Bless amma.
Þinn, Elmar.
Ragnhildur Kristín
Sandholt
Fleiri minningargreinar um Ragn-
hildi Kristínu Sandholt bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu daga.
✝ Anna Þorgils-dóttir fæddist á
Þorgilsstöðum,
Fróðárhreppi á
Snæfellsnesi, 14.
mars 1928. Hún lést
á Landspítalanum
við Hringbraut þann
25.júlí síðastliðinn.
Hún var dóttir
hjónanna Áslaugar
Kristensu Jóns-
dóttur, f. 1.12.1892,
d. 25.2.1973, og Þor-
gils Þorgilssonar, f.
5.9.1886, d.
18.6.1971. Hún var yngst fjögurra
systkina, sem á legg komust. Hin
eru Þorgils, f. 5.12. 1918, d. 28.8.
2000, Una, f. 18.4. 1920, Hermann,
f. 27.2. 1926, d. 19.3. 2006.
Anna ólst upp á Þorgilsstöðum,
en fluttist til Reykjavíkur um tví-
tugt. Anna giftist 1. janúar 1951
Sveini B. Ólafssyni frá Syðra–
Holti í Svarfaðardal, f. 13.6. 1926.
Þau áttu 2 börn. Þau
eru; 1) Ólafur, f. 5.9.
1953, kvæntur
Björgu Guðmunds-
dóttur f. 31.1. 1956,
dætur þeirra eru
Anna Kristín, f. 2.7.
1978, unnusti Þröst-
ur Gestsson, f. 4.7.
1976, og María, f.
31.3. 1986, unnusti
Einir Guðlaugsson,
f. 1.2. 1984. 2) Krist-
laug Sigríður, f. 5.5.
1958, gift Guðmundi
Hannessyni, f. 22.9.
1960, börn þeirra eru Áslaug Rós,
f. 13.10. 1983 gift Tómasi Guð-
mundssyni, Hannes f. 10.7. 1988,
unnusta Helen Lilja Helgadóttir,
f. 3.9. 1988, og Valdís, f. 9.10.
1992.
Útför Önnu fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag, miðvikudaginn
6. ágúst, og hefst athöfnin klukk-
an 13.
Elskuleg móðir mín og tengda-
móðir, Anna Þorgilsdóttir, er nú
horfin af sjónarsviðinu. Hún átti við
veikindi að stríða síðustu áratugina,
en hélt þó ávallt yfirvegun og léttri
lund.
Eftir því sem árin færðust yfir
naut hún í vaxandi mæli ósérhlífni
og dugnaðar eiginmannsins, sem
hefur gert allt sem í hans valdi hef-
ur staðið til þess að henni liði sem
best. Meðan starfskraftar leyfðu
hafði hún yndi af útiveru og garða-
gróðri. Hún hafði mikinn urmul
blóma- og trjátegunda í görðum sín-
um að sumarlagi og þekkti þær
reyndar allar með nafni. Hún sá
einnig til þess að fuglar fyndu þar
eitthvað í gogginn á köldum vetr-
ardögum og kristallaðist þar um-
hyggja hennar í garð þeirra, sem
minna máttu sín í lífsbaráttunni.
Hún nýtti handlagni sína til þess
að vinna að alls kyns hannyrðum og
eru til eftir hana ýmsir fallegir og
sérstæðir munir. Hún var alltaf með
eitthvað nýtt á nálinni og tilbúin til
þess að tileinka sér eitthvað nýtt í
þeim efnum. Hún hafði mikið dálæti
á tónlist. Sérstaklega náði harm-
onikkan að heilla hana og kalla fram
löngun til að stíga dans. Minnis-
stæðar eru fjörugar dansæfingar
fyrir próf í samkvæmisdönsum, sem
haldar voru reglulega á heimilinu
með Einari og Stínu.
Gestrisni var henni í blóð borin
og tók alla tíð vel á móti gestum
bæði á heimili sínu og í sumarhús-
um enda var oft mjög gestkvæmt á
heimilinu og oft glatt á hjalla. Hún
átti auðvelt með að eignast og eiga
vini á öllum aldri.
Þegar litið er yfir farinn veg
hrannast upp góðar minningar.
Minningar um góða konu, hennar
léttu lund, glettni og glaðlegt bros.
Hún hafði það sem oft er kallað já-
kvæð útgeislun. Blessuð sé minning
hennar.
Ólafur og Björg.
Mig langar að minnast móður
minnar með nokkrum orðum.
Hún var glaðvær kona og alltaf
var stutt í grínið. Hún var góður
vinur vina sinna og tilbúin að rétta
hjálparhönd ef einhvern vanhagaði
um eitthvað. Eitt finnst mér lýsa
henni vel en ég man vel eftir því
þegar ég var lítil stelpa að hún bak-
aði reglulega, oft kleinur og fór með
til gamals manns sem ég man ekki
hvað hét. Hann bjó töluvert frá okk-
ur og átti fáa ef einhverja að. Henni
fannst það bara eðlilegt að hjálpa
honum og naut þess. Þetta viðhorf
hef ég reynt að tileinka mér og það
hefur án efa gert mig að betri
manneskju. Einnig voru mamma og
pabbi iðin við að hjálpa ömmu og
afa fyrir vestan og síðar Hermanni
Anna Þorgilsdóttir
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÓLAFÍA PÁLSDÓTTIR,
Sléttuvegi 23,
áður Langagerði 74,
Reykjavík,
lést á Landakotsspítala mánudaginn 28. júlí.
Hún verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
föstudaginn 8. ágúst kl. 13.00.
Guðmundur Pálmi Kristinsson, Ragnheiður Karlsdóttir,
Hrönn Kristinsdóttir, Brynjólfur Helgason,
Ólafía Pálmadóttir, Halldór Már Sverrisson,
Karl Pálmason, Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir,
Kristinn Pálmason, Unnur Eir Björnsdóttir,
Pálmi Örn Pálmason
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamamma og
amma,
ALBÍNA ELÍSA ÓSKARSDÓTTIR,
Efstahjalla 1a,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi, þriðjudaginn
29. júlí.
Útför fer fram frá Landakirkju, laugardaginn
9. ágúst kl. 14.00.
Huginn Sveinbjörnsson,
Oddný Huginsdóttir, Óskar Sigmundsson,
Viðar Huginsson, Ester Kjartansdóttir,
Elísa Birkisdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengda-
faðir, afi, langafi og langalangafi,
EIRÍKUR GUÐMUNDSSON,
fyrrv. mjólkurbílstjóri,
Grænumörk 3,
Selfossi,
lést á Kumbaravogi laugardaginn 2. ágúst.
Útför hans fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn
9. ágúst kl. 13.00.
Margrét Benediktsdóttir,
Ingvar D. Eiríksson, Eygló Gunnarsdóttir,
Óli Jörundsson,
Þorbjörg Henný Eiríksdóttir, Bjarni Einarsson,
Sigurður Eiríksson,
Guðmundur Eiríksson,
Benedikt Eiríksson, Helga Haraldsdóttir,
Guðrún Halldórsdóttir, Valdimar Valdimarsson,
afabörn, langafabörn
og langalangafabörn.
✝
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
HALLDÓRA BRYNJÓLFSDÓTTIR
frá Þykkvabæjarklaustri,
síðast til heimilis í
Fögrubrekku 34,
Kópavogi,
lést laugardaginn 2. ágúst á Vífilsstaðaspítala og
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju, föstudaginn
8. ágúst kl. 13.00.
Jón Hannesson,
Brynjólfur Jónsson, Kristín Siggeirsdóttir,
Hannes R. Jónsson, Beatriz Ramirez Martinez,
Guðrún Jónsdóttir, Eiríkur Ingi Eiríksson,
Soffía Jónsdóttir, Björn L. Bergsson,
barna- og barnabarnabörn.
✝
Heittelskuð eiginkona mín og elsku hjartans
mamma okkar,
HELGA EINARSDÓTTIR,
Laugalæk 38,
Reykjavík,
varð bráðkvödd á heimili sínu, fimmtudaginn
31. júlí.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju,
fimmtudaginn 14. ágúst kl. 13:00.
Jakob S. Friðriksson,
Rósa, Páll og Karl.