Morgunblaðið - 06.08.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.08.2008, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ Sími 551 9000Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum 650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - Í ALLT SUMAR Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó Þú færð 5 % endurgreitt í BorgarbíóSími 462 3500 Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga Hellboy 2 kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára The Strangers kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára Mamma Mia kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ Meet Dave kl. 5:50 - 8 B.i. 7 ára The Incredible Hulk kl. 10:10 B.i. 12 ára The Love Guru kl. 6 - 8 - 10 B.i.12ára The Strangers kl. 10:10 B.i.12ára Mamma Mia kl. 6 - 8 LEYFÐ The Dark Knight kl. 6 - 9 B.i. 12 ára Hellboy 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Mamma Mia kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ Sex and the City kl. 6 - 9 B.i. 14 ára 650kr. 650kr. SÝND SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI FRÁ VERÐLAUNA-LEIKSTJÓRA PAN´S LABYRINTH. eee - Tommi - kvikmyndir.is eeee - V.J.V./TOPP5.is/FBL 650k r. HANN ER SNILLINGUR Í ÁSTUM NÝJASTA GRÍNMYND MIKE MYERS SEM FÆRÐI OKKUR AUSTIN POWERS MYNDIRNAR eeee - Ó.H.T, Rás 2 eee - T.V. - Kvikmyndir.is eee - L.I.B, Topp5.is/FBL 650k r. 650kr. BRENDAN FRASER JET LI eeee - Ó.H.T, Rás 2 eee “Hressir leikarar, skemmtilegur fílingur og meiriháttar tónlist!” - T.V. - Kvikmyndir.is SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI SÝND SMÁRABÍÓI Stórbrotin ævintýramynd sem allir ættu að hafa gaman af! STÆRSTU OG BESTU ÆVINTÝRIN ERU EINFALDLEGA ÓDAUÐLEG! BÆKUR» Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is EINN af þeim glæpapennum sem batna með árunum er Robert Crais. Hann skrifar bækur um einkaspæj- arann Elvis Cole, sem er ekki bara með kjánalegt nafn (Elvis!?) heldur er hegðan hans sérkennileg um margt. Reyndar hefur dregið úr sér- visku Coles, sem betur fer, því greini- legt var í annarri eða þriðju bókinni um hann að Crais var eiginlega kom- inn í klemmu – Mikka Mús-síminn og Gosa-klukkan eru bara fyndin í fyrsta og hugsanlega annað sinn, en síðan ekki söguna meir. Sögurnar af Cole hafa líka batnað í gegnum árin, Crais fer fram sem höf- undi, og þó deila megi um þann of- urraunsæa stíl sem hann hefur til- einkað sér smám saman, líkt og Pelecanos, þá er hann það lipur penni að allt gengur upp. Töffarabókmenntir og glæpasögur fara vel saman og þær eru ófáar ein- farahetjurnar sem leysa glæpi með sorg í hjarta. Sumir glíma við drykkju- skap, til að mynda Dave Robicheaux, alkóhólisti í afturbata, sem er hug- arfóstur James Lee Burke, ömurlega æsku, eins og Hieronymus „Harry“ Bosch, sem kominn er úr penna Mich- ael Connellys, og enn aðrir eru of miklir töffarar til að vera flæktir og um leið of miklir töffarar til að vera til eins og Spencer sem Robert B. Parker gjörði. Svo er það Elvis Cole. (Til gamans má geta þess að Harry Bosch bregður fyrir í einni Crais-bók og Connelly borgaði fyrir í sömu mynt.) Cole er spæjari í Los Angeles og líkt og vill verða er hann með óstöðv- andi aðstoðarmann (Pike, bara Pike) sem er nánast ofurmannlegur, bar- dagameistari, óstöðvandi hjartalaus drápsvél ef svo ber við, en annars með gullhjarta. Pike fékk eigin bók á síðasta ári, The Watchman, sem fékk fína dóma fyrir einhverjar sakir, en hún var venju frekur blóðug – bókin hefst nánast með því að fjórir menn eru drepnir á mettíma (Pike í stuði) og þeim fjölgar ört er líður á. Önnur jaðarpersóna hefur líka fengið eigin bók, þó réttara sé að segja að hún hafi slegist í hópinn eftir að hafa slegið í gegn í eigin bók, Demolition Angel. Robert Crais hóf ferilinn sem hand- ritshöfundur í sjónvarpsþáttaröðunum Cagney & Lacey, Miami Vice, Quincy, M.E., The Equalizer og Hill Street Blues, sem skýrir stílinn hjá honum að nokkru leyti, og hann hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir bækur sínar. Ein bókanna var kvikmynduð fyrir nokkrum árum, Hostage, og til stend- ur að kvikmynda Demolition Angel. Síðasta bók Crais er Chasing Dark- ness og segir frá frekari ævintýrum þeirra Coles og Pikes. Chasing Darkness eftir Robert Crais. Orion gefur út. Forvitnilegar bækur: Einkaspæjari með kjánalega kæki Elvis og Pike Naglapabbi Robert Crais, skapari Elvis Cole og Pike (bara Pike). ÞESSI bók Chris Cleave, sem er fyrsta skáldsaga hans, hefur þegar vakið nokkra athygli þó hún sé eig- inlega nýkomin út. Í bókinni, sem segir frá örlögum flóttastúlkunnar Little Bee, fléttar Cleave saman óhugnað og kímni og tekst alla jafna býsna vel upp. Sérstaklega er frá- sögn Little Bee vel skrifuð en að sama skapi skelfileg og hennar örlög eru þyngri en tárum taki. Þó hún sé skáldskapur þá er hún um leið átakanlega sönn og gott dæmi um þá þraut sem græðgi Vest- urlandabúa í efnisleg gæði leggur á íbúa Afríkulanda. Víst er ástandið í Nígeríu frekar stöðugt, lýðræði nokkurn veginn virkt og yfirvöld ala einhverja önn fyrir þegnum sínum, eða svo segja yfirvöld víða um Evr- ópu þegar flóttamenn þaðan eru sendir heim – oftar en ekki út í opinn dauðann. Andrew og Sarah rekast harka- lega á raunveruleikann þar sem þau eru stödd á lúxusstrandhóteli í sum- arleyfisferð sem bjarga á hjóna- bandi þeirra. Andrew er blaðamaður á virtu bresku blaði og Sarah ritstjóri tímarits sem höfða á til ungra kvenna; bæði frjálslynd og raunsæ í senn og vel með á nót- unum, eða svo halda þau í það minnsta þegar þau rekast á tvær stúlkur sem eru á flótta undan morð- sveit ríkisolíufélags Nígeríu. Það sem ber við á eftir að breyta lífi þeirra og draga annað þeirra til dauða áður en yfir lýkur. The Other Hand er harkaleg frá- sögn um margt, en hún er líka fynd- in að mörgu leyti, grátbroslegur harmleikur. Cleave dregur ekkert undan í lýsingu sinni á hörmulegu viðurværi flóttamanna í Bretlandi, þ.e. þeirra sem eru svo óheppnir að komast ekki inn í landið heldur lenda í eilífðarbið í flóttamannabúð- um. Það er sitt hvað athugavert við það hvernig tekið er á móti flótta- mönnum og þá ekki bara hér á landi, heldur víðast í Vestur-Evrópu. Grátbroslegur harmleikur The Other Hand, skáldsaga eftir Chris Cleave. Sceptre gefur út. 368 bls. innb. Árni Matthíasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.