Morgunblaðið - 07.08.2008, Síða 11

Morgunblaðið - 07.08.2008, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2008 11 FRÉTTIR Skagaströnd | Þær þurftu sannarlega að nota þolinmæðina kindurnar þrjár sem gleymdu sér við að éta þang á meðan flæddi. Þær lentu á flæðiskeri um 100 metra frá landi þegar eyðið í land fór á bólakaf á háflóði. Þurftu þær að híma á skerinu í rúmlega sex klukkutíma og bíða þess að félli út svo þær kæmust í land aftur. Líklega hefur þeim þótt biðin nokkuð löng og verið fegnar að komast í land á ný. Þeim varð þó ekki meint af. Hvort þær hins vegar læra af þessari erfiðu lífsreynslu þannig að skynsemin verði græðginni yfirsterkari á næsta flóði, á svo eftir að koma í ljós. Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Á flæðiskeri staddar ÓMAR Ragnars- son, kvikmynda- gerðarmaður og fyrrverandi fréttamaður, hlýtur Seaco- logy-umhverfis- verndarverðlaun- in í ár fyrir baráttu sína fyrir náttúru á hálendi Íslands. Fram kemur í tilkynningu frá Seacology að Ómar hljóti verð- launin fyrir að hafa vakið almenn- ing til vitundar um virkjanafram- kvæmdir á hálendi Íslands og umhverfisspjöll sem stíflugerð og uppistöðulón hafi valdið. Þar kemur einnig fram að efnahagslegur ávinningur Íslands af framkvæmd- unum sé lítill en stór svæði ósnort- innar náttúru hafi verið eyðilögð. Því sé Ómar hetja í umhverfismál- um á Íslandi. Í fyrsta sinn vegna umhverf- isverndarstarfs í Evrópu Seacology-umhverfisverndarverð- launin hafa verið veitt árlega frá 1992 til þeirra sem þykja hafa lagt mikið af mörkum til verndar lífríki á eyjum um allan heim. Er þetta í fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt vegna umhverfisverndarstarfs í Evrópu. Ómar mun veita verðlaununum formlega viðtöku í San Francisco í Bandaríkjunum 2. október nk. Ómar „hetja í umhverfismálum“ Ómar Ragnarsson Hlýtur Seacology-umhverfisverndarverðlaunin Bjóðum nú frábært sértilboð 23. ágúst í viku á Hotel Forum með hálfu fæði og Hotel Forum Beach með allt innifalið, tveimur af okkar aðalgististöðum á Rhodos. Hótelin eru vel staðsett og í göngufæri við ströndina. Góðir sundlaugagarðar eru við hótelin, veitingastaðir og barir. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins á perlu gríska Eyjahafsins. Takmarkaður fjöldi íbúða í boði á þessu frábæra verði. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Verð kr. 54.990 -m/ hálfu fæði Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð m/1 svefnherbergi í viku á Hotel Forum með hálfu fæði. Aukalega m.v. gistingu í íbúð á Hotel Forum Beach í viku með allt innifalið kr. 15.000. Verð kr. 64.990 -m/hálfu fæði Netverð á mann , m.v. 2 fullorðna í íbúð m/1 svefnherbergi í viku á Hotel Forum með hálfu fæði. Aukalega m.v. gistingu í íbúð á Hotel Forum Beach í viku með allt innifalið kr. 15.000. Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Frábær gisting - örfáar íbúðir í boði! Rhodos 23. ágúst frá kr. 54.990 Ótrúleg sértilboð Hotel Forum - með hálfu fæði Hotel Forum Beach - með allt innifalið Eftir Davíð Pétursson Skorradalur | Yfir 200 manns voru við minningarathöfn um Sverri S. Einarsson, fyrrverandi rektor Menntaskólans við Hamrahlíð og formann Karlakórs Reykjavíkur, sem efnt var til á Fitjum í Skorradal. Ógleymanleg var stundin þegar félagar úr Karla- kór Reykjavíkur stóðu í hálfhring um gröf Sverris og sungu nokkur lög. Sverrir lést fyrir tíu árum en hann hefði orðið sextugur 29. júlí sl. Af því tilefni buðu börn hans og ekkja ættingjum, fyrrum sam- starfsfólki og vinum til veislu á Fitjum. Sungu til minningar um formann Morgunblaðið/Davíð Pétursson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.