Morgunblaðið - 07.08.2008, Síða 33

Morgunblaðið - 07.08.2008, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2008 33 Skólar og námskeið Glæsilegt sérblað um skóla og námskeið fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 15. ágúst. Meðal efnis er: • Endurmenntun • Símenntun • Tómstundarnámskeið • Tölvunám • Háskólanám • Framhaldsskólanám • Tónlistarnám • Skólavörur Allar nánari uppl. veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is. Auglýsendur! Pantið fyrir klukkan 16, mánudaginn 11. ágúst. Ásamt fullt af spennandi efni. E N N E M M / S IA • N M 3 48 14 Frábært sértilboð fyrir áskrifendur Morgunblaðsins Costa del Sol Frábærar haustferðir í október Morgunblaðið, í samstarfi við Heimsferðir, býður áskrifendum sínum frábær tilboð í spennandi haustferðir í október til eins allra vinsælasta sólaráfangastaðar Íslendinga, Costa del Sol á Spáni. Í boði eru vikuferðir, með möguleika á framlengingu, 4., 11. eða 18. október. Fjölbreytt gisting bæði íbúðir og hótel á ótrúlegum kjörum. Costa del Sol býður allt það helsta sem maður getur óskað sér í fríinu, og miklu, miklu meira til. Gríptu þetta einstaka tækifæri til að njóta lífsins á þessum vinsæla áfangastað á frábærum tíma í haust. Vikuferð frá aðeins kr. 49.990 Áskr. verð Alm. verð Þú sparar Arcosur Principe Spa - íbúðir 2 fullorðnir og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð í viku 49.990 82.790 32.800 2 í íbúð í viku 59.990 92.535 32.545 Principito Sol - íbúðir 2 fullorðnir og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð í viku 54.990 88.460 33.470 2 í íbúð í viku 64.990 101.835 36.845 Hotel Cervantes **** m/hálfu fæði 2 í herbergi m/hálfu fæði í viku 79.990 118.445 38.455 Hotel Melia Costa del Sol **** m/hálfu fæði 2 í herbergi m/hálfu fæði í viku 89.990 133.660 43.670 Innifalið í verði er flug, skattar, gisting, rútuferðir til og frá flugvelli og gististaða og íslensk fararstjórn. Ath. flogið er í beinu leiguflugi til og frá Jerez og ekið þaðan með rútu til gistastaða á Costa del Sol (liðlega 2,5 klst). Ótrúlegt verð! Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Þú spa rar allt að 43.670 kr. á mann Þú mætir með miðann sem fylgdi Morgunblaðinu 2. ágúst til Heimsferða, Skógarhlið 18, eða á einhverja af umboðsskrifstofum þeirra. Einnig er unnt að bóka tilboðið á www.heimsferdir.is Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is „ÞAÐ er einn hvalur í myndinni, hann gegnir stóru hlutverki en aðalógnin í myndinni er þó mannfólkið sjálft.“ Það er Ingvar Þórðarson framleið- andi sem fullvissar þarna blaðamann um að það verði einhverjir hvalir í Reykjavík Whale Watching Massacre en tökur hófust á myndinni úti á Granda í gær eins og sjá má á með- fylgjandi myndum. Myndin verður einnig tekin upp í Faxaflóa, Hvalfirði, kvikmyndaveri í Keflavík og fleiri stöðum til 20. september og eru tökudagarnir alls 40, sem er óvenjumikið fyrir íslenska mynd, enda frægt að afar erfitt er að taka upp myndir sem eiga að gerast á hafi úti. En um hvað fjallar þessi hvalaskoðunar-splatter? „Það er hópur af hvalaskoðunarfólki sem heldur af stað til að skoða alla fallegu hvalina. En þegar skipstjórinn deyr af slysförum flýr hinn áhafnarmeðlimurinn á eina björgunarbátnum, það næst að senda út eitt neyðarkall – en þau einu sem heyra það er hvalveiðifjölskylda sem má ekki veiða hvali og útgerðin er á hausnum. Skiljanlega er það síðasta sem þau langar að gera að bjarga þessu liði. En þau halda samt á móts við þau – og það fer ekki vel,“ segir Ingvar en meðal íslenskra leikara í myndinni eru Helgi Björnsson, Guðrún Gísladóttir, Stefán Jónsson, Snorri Engilbertsson og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Flestir eru hins vegar erlendir og koma frá Japan, Bras- ilíu, Bandaríkjunum, Finnlandi og Bretlandi enda eru þeir að leika túrista sem koma hingað í hvalaskoðun. Leðurfés snýr aftur Einn þessara útlendinga er þó fæddur hérlendis og flutti út fimm ára gamall, sjálfur Gunnar Hansen, sem lék Leðurfés (Leatherface) í einhverri frægustu hrollvekju allra tíma, The Texas Chainsaw Massacre. „Hann er al- gjör goðsögn, spennandi fyrir okkur og mjög góður leik- ari,“ segir Ingvar og bætir við: „Hann tryggði það að myndin er sjálfkrafa komin með athygli á netinu frá hryll- ingsaðdáendum.“ Blóðbað í Reykjavíkurhöfn Morgunblaðið/Valdís Thor Fjögur frækin Snorri Engilbertsson ásamt þremur breskum leikurum. Gunnar Hansen meðal leikara í Reykjavík Whale Watching Massacre Hvalaskoðun Hluti sviðsmyndarinnar við höfnina. Dóra Wonder Halldóra Geirharðsdóttir er á meðal leikara í myndinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.