Morgunblaðið - 17.08.2008, Page 42
42 SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er sunnudagur
17. ágúst, 230. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Og á þeim degi mun ég
bænheyra, segir Drottinn. Ég mun
bænheyra himininn, og hann mun
bænheyra jörðina. (Hs. 2, 21.)
Víkverji þurfti að endurnýja Visa-kortið sitt á dögunum og mætti
til þjónustufulltrúa síns í Glitni, sem
yfirleitt er afar sanngjarn og samn-
ingslipur.
„Ég vil að Visakortið verði velti-
kort,“ sagði Víkverji. „Nei, það viltu
auðvitað ekki,“ sagði þjónustu-
fulltrúinn blíðlega. „Ha?“ sagði Vík-
verji. „Veltikort er með ógurlega
vexti,“ sagði þjónustufulltrúinn. „Mér
er alveg sama,“ sagði Víkverji. „Ertu
viss?“ spurði þjónustufulltrúinn. Úr
málrómi hans og augnaráði las Vík-
verji: „Visakortið er ekki til að geta
farið á útsölur í rándýrum verslunum
eða til að borða nautalundir á Holtinu
eða til að fara í helgarferð til London
bara af því að þannig liggur á manni.“
x x x
Víkverja langaði til að segja: „Éghef aldrei getað gert neitt sem
mig hefur langað til nema á lánum.“
En hann kunni ekki við að segja það
og sagði í staðinn upphátt og reyndi
að setja þunga í röddina: „Ég vil Visa-
veltikort, takk.“
Þjónustufulltrúinn þagði en fór inn
í tölvukerfið til að slá inn beiðnina. Úr
augnaráði hans las Víkverji: „Þú get-
ur svosem haft þetta eins og þú vilt en
það mun koma að skuldadögum og þá
verður allt í mínus.“
x x x
Víkverji hugsar aldrei um skulda-daga fyrr en að þeim kemur.
Svo veit hann líka að í nútíma-
samfélagi er hægt að framlengja
skuldadaga nær endalaust. Einmitt
þess vegna finnst Víkverja svo gaman
að lifa í nútímasamfélagi.
Foreldrar Víkverja tóku aldrei lán
heldur staðgreiddu allt. Þess vegna
áttu þeir aldrei neitt sérlega mikið.
Víkverji á fullt af hlutum. Hann á
meira að segja fremur snotra íbúð á
besta stað í bænum. Honum finnst
bara ágætt að bankinn hirði hana upp
í skuldir þegar þar að kemur.
Bankinn hefur reynst Víkverja vel
og Víkverji ætlar að reynast bank-
anum vel – eftir andlátið.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 klettaveggur,
8 launung, 9 auðugur, 10
úrskurð, 11 vísa, 13
mannsnafn, 15 baug, 18
stefnan, 21 blóm, 22
vonda, 23 steins, 24 mik-
ill þjófur.
Lóðrétt | 2 drekka, 3
suða, 4 brjósta, 5 vind-
hviðan, 6 fyrirtæki, 7
tölustafur, 12 ætt,14
megna, 15 hljóðfæri, 16
spríklinu, 17 þyngd-
areining, 18 kærleik-
urinn,19 ámu, 20 tæp.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 björk, 4 þjaka, 7 gadds, 8 ótækt, 9 tef, 11
ræða, 13 bana, 14 lægir,15 mont, 17 átak, 20 fat, 22
lenda, 23 Júðar, 24 Iðunn, 25 nauti.
Lóðrétt: 1 bugur, 2 önduð, 3 kost, 4 þjóf, 5 afæta, 6
aftra, 10 eggja, 12 alt, 13 brá, 15 mælgi, 16 nunnu, 18
tuðru, 19 korði, 20 fann, 21 tjón.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 b5 4. cxb5 a6 5.
bxa6 g6 6. Rc3 Bxa6 7. g3 d6 8. Bg2
Bg7 9. Rf3 Rfd7 10. O–O Rb6 11. He1
O–O 12. Bf4 Rc4 13. Dc1 He8 14. Bh6
Bh8 15. Rg5 Rd7 16. Bh3 Rf8 17. Df4
Bf6 18. Rce4 Re5 19. Rxf6+ exf6 20.
Re4 Rfd7 21. Rxd6 He7 22. Re4 f5 23.
Bg5 fxe4 24. d6 f6 25. dxe7 Dxe7 26.
Dxe4 Rb6 27. f4 Bb7
Staðan kom upp í alþjóðlegu móti
Taflfélagsins Hellis og Fiskmarkaðar
Íslands sem lauk fyrir skömmu í
Reykjavík. Sigurvegari mótsins,
franski stórmeistarinn Vladimir Laz-
arev (2482) hafði hvítt gegn Róberti
Lagerman (2354). 28. Dxe5! og svartur
gafst upp. Lazarev fékk 7 1/2 vinning
af 9 mögulegum en Róbert og Björn
Þorfinnsson deildu öðru sætinu á
mótinu með 5 1/2 vinning.
Hvítur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Afneitun Belladonna.
Norður
♠G4
♥K4
♦G10876
♣Á764
Vestur Austur
♠K9 ♠2
♥D1087 ♥Á965
♦K95 ♦D432
♣KD93 ♣G1082
Suður
♠ÁD1087653
♥G32
♦Á
♣5
Suður spilar 4♠.
„Því miður,“ sagði Belladonna, „ég
spilaði ekki þetta spil – vildi að satt
væri.“ Árum saman birtist spilið hér
fyrir ofan í bridsdálkum dagblaða víða
um heim, sem dæmi um öruggt hand-
bragð ítalska meistarans Belladonna
(1923–1995). Og víst er að handverkið
fagurt, þótt Bellinn hafi afneitað því.
Útspilið er ♣K.
Ef hjarta er spilað að kóngnum,
drepur austur og trompar út, sem er
banvænt í legunni: vörnin fær þrjá slagi
á hjarta og einn á tromp. Leiðin til að
tryggja hjartastungu (eða slag á hjarta)
er að spila ♥4 úr borði undan kóngnum.
Þá skiptir engu máli hvernig landið
liggur. Í þessari legu fær vestur slag-
inn, en getur ekki trompað út, þannig að
sagnhafi nær að stinga þriðja hjartað.
Heiðarlegur maður, Belladonna, að
afneita þessari Lilju.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ákveðinn vinur vill alltaf vera að
keppa við þig. Það er eðlilegt að vilja gera
betur en þeir bestu. En það er ekki heil-
brigt að reyna að traðka á vinum sínum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Kannski mistúlkar þú merkin sem
ný manneskja sendir þér, og niðurstöð-
urnar eru fyndnar. Í kvöld verður auðvelt
að sjá hverjum líkar við þig og hvernig.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Velgengni þín stendur og fellur
með því hvernig þér tekst að nýta
drauma þína til að leysa vandamál. Hugs-
aðu upp 10 leiðir til þess og notaðu þær.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert í tilfinningalegu merki, en
getur líka sett þær til hliðar og verið
mjög hlutlæg/ur. Þú þarft að greina viss-
ar aðstæður og ert mjög vísindaleg/ur við
verkið.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það hefur ekki reynst auðvelt að
komast að því hvað þú í raun vilt, því
svarið breytist í sífellu. Í kvöld munu
viska þín og hugur sameinast í lausn
vandans.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Ráðvendni þín er heilsteypt og þú
veist alveg hvað hentar þér. Frá þessu
heiðarlega sjónarhorni getur þú séð hvar
þú stendur í öllum aðstæðum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þig langar mun meira að blómstra en
rétt að komast af. Þó er gott að eðlis-
hvötin er skarpari. Þú tekur ósjálfrátt
réttu áhættuna til að bjarga því sem
bjarga verður.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú getur ekki verið öllu fólki
allt. Veittu það sem þú vilt veita og getur
veitt. Gefðu það sem þú vilt sjálfur fá, það
sem þú telur stórkostlegt og öðrum finnst
það líka.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Orkan í samböndum breytist
þegar nýtt fólk mætir á svæðið. Þú mátt
búast við því að fara inn á viðkvæmt svið.
Ekki vera með neinar yfirlýsingar.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þrýstingnum hefur verið létt af.
Nema auðvitað þrýstingnum sem þú
sjálfur setur á þig, sem er meira og minna
stöðugur. Skemmtu þér smá eða mikið.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Allt hefur sinn tíma. Gamalt
markmið skýst upp á yfirborðið og er
núna meira viðeigandi og auðveldara í
framkvæmd.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það þýðir ekkert að djöflast þetta
áfram – enginn, sérstaklega ekki þú, mun
græða á því. Vinir og fjölskylda hafa vald-
ið til að breyta stöðunni.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
17. ágúst 1899
Landsbankinn flutti í hús sitt á
horni Austurstrætis og Póst-
hússtrætis, þar sem hann hef-
ur verið síðan. „Það er hin
mesta bæjarprýði, langfalleg-
asta og vænsta húsið á land-
inu,“ sagði Ísafold.
17. ágúst 1924
Ítalski flugmaðurinn Antonio
Locatelli kom til Reykjavíkur
á flugbáti. Hann fór héðan til
Grænlands 21. ágúst ásamt
Nelson, sem fyrstur kom fljúg-
andi til Íslands, 2. ágúst.
17. ágúst 1946
Valgerður Þorsteinsdóttir tók
einkaflugmannspróf, fyrst ís-
lenskra kvenna, þá 21 árs.
17. ágúst 1947
Hús Héraðsskólans að Laug-
arvatni stórskemmdist af eldi.
Tvær efstu hæðirnar eyðilögð-
ust, en þar voru íbúðir skóla-
stjóra, kennara og nemenda.
Stúlka slasaðist þegar hún var
að bjarga sér úr eldinum.
17. ágúst 1980
Heklugos hófst þegar „Hekla
þverklofnaði af nærri 6 km
langri sprungu,“ eins og
Morgunblaðið orðaði það.
Breskur jarðfræðinemi sem
var í Skjólkvíum við Heklu átti
fótum fjör að launa. Gosið stóð
í fáa daga en annað stutt gos
hófst 9. apríl 1981.
17. ágúst 1997
Lítið eldgos varð undir Vatna-
jökli í tengslum við hlaup í
Skaftá.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist þá…
„Þetta kalla ég nú ekki stórafmæli, þetta er bara lít-
ið,“ segir Reynir Guðnason, fv. skólastjóri Lækjar-
skóla í Hafnarfirði. Hann er 65 ára í dag og deg-
inum mun hann fagna með dóttur sinni og
fjölskyldu hennar í Sviss. Þar ætlar hann að dveljast
í tíu daga. „Já, hún ætlar að halda veislu fyrir mig,
þar verður bara nánasta fólkið, hún og hennar fjöl-
skylda og við hjónin.“
Tólf ára gamall fór Reynir að leika með lúðra-
sveitum. Hann hlær þegar það er rifjað upp en tek-
ur undir að það sé rétt. „Ég var í Laugarnesskól-
anum og tónmenntakennarinn valdi mig og fleiri til
að taka þátt í stofnun drengjalúðrasveitar,“ segir Reynir. Stjórnendur
sveitarinnar voru Karl Ottó Runólfsson og Páll Pampichler Pálsson.
Karl Ottó stjórnaði hópi Reynis og eftir að hafa tekið próf var hann
gerður að trommuleikara. Hann spilaði eitthvað eftir það og kenndi
m.a. skólalúðrasveit í Hafnarfirði í tíu ár.
Reynir er hættur störfum, notaði sér 95 ára regluna, eins og hann
segir. „Ég hætti sextugur, búinn að vera í þessu í tæp 40 ár, fannst þá
komið gott.“ Eftir að hann hætti hefur hann tekið að sér sérkennslu
annað slagið en núna er hann „heimavinnandi“. „Konan mín er enn að
vinna, hún býr ekki að þessari góðu 95 ára reglu og hættir þess vegna
ekki fyrr en hún verður 67. Það eru nokkur ár eftir í það.“ Reynir er svo
heppinn að heilsan er góð „og ég er bara í þessu ljúfa lífi“. sia@mbl.is
Reynir Guðnason 65 ára
„Er bara í þessu ljúfa lífi“
;) Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is