Morgunblaðið - 20.08.2008, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir,
annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
„ÞAÐ skiptir
máli að þetta
raski ekki heil-
brigðisþjónustu í
hverju landi. Það
mun einnig ávallt
þurfa fyrirfram
leyfi fyrir að fá
að sækja þjón-
ustu til útlanda. Í
þessu felast
sóknartækifæri
fyrir Íslendinga.
Ef við skipuleggjum okkur vel þá
eru góðir möguleikar fyrir íslenska
heilbrigðisþjónustu til að taka við
sjúklingum annars staðar frá án
þess að skaða þjónustuna. Við get-
um bætt hana um leið hérna
heima,“ segir Guðlaugur Þór Þórð-
arson heilbrigðisráðherra.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins (ESB) samþykkti
2. júlí síðastliðinn tillögu að til-
skipun um rétt sjúklinga til að fá
heilbrigðisþjónustu yfir landamæri.
Tillagan hefur þó enn hvorki verið
samþykkt af ráðherraráði ESB né
Evrópuþinginu.
Þar sem um er að ræða ósam-
þykkta tillögu er ekki búið að taka
hana inn í EES-samninginn en
vinnuhópar eru að skoða efni henn-
ar og meta faglega hvort og þá
hvernig eigi að taka hana inn í
EES-samninginn. Verði raunin sú
að tilskipunin verði hluti EES-
samningsins mun hún því gilda hér
á landi.
Morgunblaðið sagði á mánudag
sögu Elvars Guðjónssonar sem
sárkvalinn sá fram á að þurfa að
bíða í 8-10 mánuði eftir mjaðmaað-
gerð. Hann tók því málin í eigin
hendur: gerði sér ferð til Finnlands
og gekkst þar undir aðgerð á mjöðm
sem kostaði um 1,6 milljónir króna.
Elvar vill nú að Tryggingastofnun
ríkisins greiði fyrir aðgerðina og
bíður eftir svari þaðan.
Heilbrigðisþjónusta erlendis
Samkvæmt lögum greiðir Trygg-
ingastofnun kostnað við meðferð ef
sjúkratryggðum er brýn nauðsyn á
læknismeðferð erlendis á sjúkrahúsi
vegna þess að ekki er unnt að veita
þeim hjálp hér á landi. „Siglinga-
nefnd“ Tryggingastofnunar ákveður
hvort þessi skilyrði eru fyrir hendi.
Verði þessi nýja tilskipun ESB
hluti EES-samningsins er ljóst að
íslenskir sjúklingar munu eiga rétt á
því að sækja sér heilbrigðisþjónustu
erlendis og fá endurgreitt með
sjúkratryggingum hér á landi á
grundvelli sömu reglna og ef þjón-
ustan hefði verið veitt hér. Eins
munu aðrir sjúklingar af Evrópska
efnahagssvæðinu geta leitað bótar
meina sinna hér á landi.
Þá felur tilskipunin ennfremur í
sér aukið og nánara samstarf milli
aðildarríkja hvað varðar miðlun
læknisfræðilegra upplýsinga.
Þetta væru umtalsverðar breyt-
ingar frá núverandi fyrirkomulagi.
Heilbrigði án landamæra
Verði ný tilskipun Evrópusambandsins samþykkt munu sjúk-
lingar geta fengið erlenda heilbrigðisþjónustu endurgreidda
Woolworths
opnar dyrnar
fyrir Baug
STJÓRNARFORMAÐUR Wool-
worths, Richard North, er tilbúinn
að ræða við Baug um kaup á yfir
800 verslunum félagsins. Þetta kom
fram á vef Financial Times í gær-
kvöldi. Á sunnudaginn var sagt frá
því að Woolworths hefði hafnað til-
boði Baugs sem forstjóri Iceland,
Malcolm Walker, setti fram. Sagði
North þá að tilboðið væri alls ekki
nógu hátt.
Í Morgunblaðinu á mánudaginn
kom fram að miklar líkur væru á að
stjórnendur Woolworths myndu
endurskoða þá ákvörðun. Baugur
myndi áfram reyna að yfirtaka búð-
irnar og stefndi að því að breyta
hluta þeirra í Iceland-verslanir sem
selja frosin matvæli.
North sagði að hann væri tilbú-
inn til viðræðna en hefði verið pirr-
aður á að þurfa að gera það fyrir
opnum tjöldum. Lausnir væru fyrir
hendi ef skynsamlegri tillögur
væru lagðar fram.
Financial Times segir að upp-
haflegt tilboð Baugs hafi hljóðað
upp á 50 milljónir punda. Það jafn-
gildir um 7,6 milljörðum íslenskra
króna. bjorgvin@mbl.is
Neskaupstaður | Það er ekki amalegt útsýnið sem Tómas Zoëga snjóathug-
unarmaður í Neskaupstað nýtur við störf sín. Við blasir Norðfjarðarflóinn
með Búlandi, Hellisfjarðarnesi, Viðfjarðarnesi og Barðsnesi, auk þess sem
vel má greina snjóflóðavarnirnar undir gilinu. Tómas reisir hér upp snjó-
mælistiku sem legið hefur niðri, svo að lesa megi af henni í vetur. Snjó-
athugunarmenn starfa á vegum Veðurstofunnar víðsvegar um landið þar
sem talin er hætta á að snjóflóð geti fallið í þéttbýli. Eitt af verkefnunum er
að fylgjast með og mæla snjódýpt þannig að betur megi meta hættuna á
snjóflóðum.
Ljósmynd/Kristín
Vetrarundirbúningur
Útsýnið gott á vinnustaðnum
RÍKISSJÓÐUR var í árslok 2007
með jákvætt fé upp á tæpa tíu millj-
arða króna og var það í fyrsta sinn
sem það gerðist. Í upphafi ársins var
eigið fé ríkissjóðs neikvætt um 63
milljarða. Hagur ríkissjóðs vænkað-
ist í fyrra eins og sjá má í ríkisreikn-
ingi 2007 sem birtur var í gær.
Handbært fé frá rekstri var jákvætt
um 69 milljarða króna.
Tekjur jukust um 15,2%
Rekstrarreikningur ríkissjóðs í
fyrra sýnir 88,6 milljarða tekjuaf-
gang eða sem nemur 18,2% af
tekjum ársins 2007. Árinu áður var
tekjuafgangur ríkissjóðs 81,8 millj-
arðar króna eða um 19,4% af tekjum
ársins. Undanfarin þrjú ár hefur
ríkissjóður skilað samtals 283 millj-
arða tekjuafgangi. Sem fyrr segir
var eigið fé í lok árs 2007 jákvætt
um tæpa tíu milljarða króna en til
samanburðar var eigið fé ríkissjóðs
neikvætt um 198 milljarða í árslok
2000 á verðlagi þess tíma.
Alls voru tekjur ríkissjóðs 486
milljarðar í fyrra en á árinu 2006
voru þær 422 milljarðar. Tekjurnar
hækkuðu því um 66 milljarða á milli
ára. Það er um 15,2% hækkun eða
9,7% að raungildi miðað við vísitölu
neysluverðs. Tekjur af sköttum á
sölu vöru og þjónustu 2007 voru 195
milljarðar og hækkuðu um 9 millj-
arða frá fyrra ári. Þar vó þyngst að
tekjur af virðisaukaskatti hækkuðu
um tæpa sex milljarða á milli ára.
Tekjur af fjármagnstekjum og
sköttum á tekjur einstaklinga og
hagnað fyrirtækja námu 153 millj-
örðum í fyrra en 138 milljörðum árið
2006.
Heilbrigðismál kosta mest
Gjöld ríkissjóðs í fyrra voru 398
milljarðar króna og hækkuðu um 57
milljarða frá 2006 þegar þau voru
340 milljarðar. Hækkunin á milli ára
var 16,9% eða 11,3% að raungildi.
Heilbrigðismál voru stærsti út-
gjaldaliður ríkisins sem fyrr og fór
til þeirra tæplega fjórðungur af rík-
isútgjöldum. Alls fóru um 95 millj-
arðar króna til heilbrigðismála.
Hækkunin frá fyrra ári var 9,5 millj-
arðar eða 5,8% að raungildi. Al-
mannatryggingar og velferðarmál
eru næststærsti gjaldaliður ríkisins.
Til þeirra fóru 85 milljarðar í fyrra
og hækkaði þessi liður um 9,1% að
raungildi. Undir þennan málaflokk
falla m.a. útgjöld vegna öldrunar-
mála upp á 28 milljarða, gjöld vegna
örorku og fötlunar upp á 25 millj-
arða, barna- og vaxabætur upp á
13,5 milljarða og gjöld vegna fæð-
ingarorlofs upp á átta milljarða.
Gjöld til menntamála 2007 námu
38 milljörðum og hækkuðu um fjóra
milljarða frá fyrra ári eða 6,5% að
raungildi. Gjöld til háskólastigsins
námu 19 milljörðum og til fram-
haldsskóla 16 milljörðum. Gjöld til
efnahags- og atvinnumála námu 52
milljörðum, þar af 25 milljörðum til
samgöngumála og 12 milljörðum
vegna landbúnaðarmála.
Eigið fé Seðlabanka styrkt
Góð afkoma ríkissjóðs í fyrra var
m.a. notuð til að styrkja eiginfjár-
stöðu Seðlabankans um 44 milljarða.
Staða á bankareikningum batnaði
um tólf milljarða og var hún í lok
ársins alls 104 milljarðar. Langtíma-
lántökur ríkissjóðs á árinu námu 107
milljörðum en afborganir voru 81
milljarður. Hreinar skuldir ríkis-
sjóðs í árslok 2007 námu 288 millj-
örðum eða 22,5% af landsframleiðslu
eða svipað og 2006. gudni@mbl.is
Eigið fé ríkis-
sjóðs jákvætt
í árslok 2007
Tekjuafgangur ríkissjóðs 88,6 milljarðar
Í HNOTSKURN
»Tekjur ríkissjóðs í fyrravoru alls 486 milljarðar.
Skattar á sölu vöru og þjón-
ustu skiluðu 195 milljörðum.
»Gjöld ríkisins voru 398milljarðar. Stærstu gjalda-
liðir voru heilbrigðismál, al-
mannatryggingar og velferð-
armál og svo menntamál.
»Hagur ríkissjóðs vænk-aðist talsvert í fyrra.
Tekjuafgangur var upp á 88,6
milljarða króna.
Mikil sóknar-
tækifæri
Guðlaugur Þór
Þórðarson
TVEIR slösuðust alvarlega í um-
ferðarslysi um tíuleytið í gærmorg-
un. Slysið varð á Krýsuvíkurvegi en
að sögn lögreglu virðist fólksbíll
hafa ekið í veg fyrir malarflutninga-
bíl með fyrrgreindum afleiðingum.
Klippa þurfti flak fólksbílsins í
sundur til að ná fólkinu út og tók sú
aðgerð nokkurn tíma.
Að sögn læknis á gjörgæsludeild
í gærkvöldi hlaut fólkið alvarlega
áverka. Var öðrum haldið í öndun-
arvél. Líðan þeirra var þó talin
stöðug.
Morgunblaðið/Júlíus
Alvarlegt
bílslys
BJÖRGUNARSVEITARMENN
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
fundu 24 ára erlendan ferðamann
ómeiddan á Esjunni um kl. 23.30 í
gærkvöldi. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar, TF-GNÁ, sótti manninn og
flutti hann til Reykjavíkur.
Maðurinn gekk á fjallið í gær en
lenti í þoku og villtist um kl. 17.30.
Hann hringdi eftir hjálp um kl.
20.00 í gærkvöldi. Maðurinn hélt
kyrru fyrir þar sem hann var kom-
inn og beið björgunar.
Um 20 björgunarsveitarmenn úr
björgunarsveitum á höfuðborgar-
svæðinu fóru strax til leitar og
fjölgaði þeim í um 80 leitarmenn og
sex leitarhunda þegar leið á kvöld-
ið. TF-GNÁ var á leið í æfingarflug
og tók þátt í leitinni. Þegar leið á
kvöldið birti til á fjallinu.
Maðurinn var allan tímann í
símasambandi við björgunarlið.
Hann fannst um sex km austur af
Þverfellshorni, sem flestir ganga á,
og var kominn að Hátindi sem er
austarlega á Esjunni, ofan við Graf-
ardal og Kattahryggi. gudni@mbl.is
Bjargað úr
villu á Esjunni