Morgunblaðið - 20.08.2008, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BARNAHEILL harma niðurstöður
dóms sem féll 14. ágúst sl. í Hér-
aðsdómi Norðurlands eystra í máli
karlmanns sem
hafði ítrekað
beitt tvo drengi 4
og 6 ára lík-
amlegum refs-
ingum. Karlmað-
urinn var kærður
fyrir líkamsárás
og brot á barnaverndarlögum.
Hann var sýknaður af báðum
ákærum.
Í tilkynningu frá Barnaheillum
segir m.a. að íslensk stjórnvöld
hafi staðfest barnasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna þar sem kveðið
er skýrt á um að „börn skuli njóta
verndar gegn öllu ofbeldi, lík-
amlegu, andlegu og kynferðislegu
(19. grein). Enn fremur er kveðið
á um að börn megi ekki beita
ómannúðlegri meðferð eða nið-
urlægjandi meðferð eða refsingu
(39. grein). Dómurinn sem hér um
ræðir er því brot á barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna. Með því að
staðfesta barnasáttmálann hafa ís-
lensk stjórnvöld skuldbundið sig
til að aðlaga íslensk lög að sátt-
málanum.“
Barnaheill
harma dóm
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
„ÞAÐ ER ákveðin vinna farin í gang
í ráðuneytinu til þess að kanna
grundvöll fyrir þessari breytingu,“
segir Ögmundur Hrafn Magnússon,
lögfræðingur i fjármálaráðuneytinu.
Gísli Tryggvason, talsmaður neyt-
enda, leggur til að sett verði ákvæði í
virðisaukaskattslög og tollalög um
niðurfellingu virðisaukaskatts og
tolls af vörusendingum að utan með
lágu verðmæti.
Er lagt til að felld verði niður op-
inber gjöld á forræði fjármálaráðu-
neytis af vörusendingum nema
heildarfjárhæð álagðs virð-
isaukaskatts og eftir atvikum tolls
fari fram úr 500 kr.
Er tillögunni ætlað að draga úr
umsýslukostnaði neytenda á Íslandi
sem panta smáar vörusendingar
beint með pósti að utan, einkum
óhagkvæmum umsýslukostnaði sem
býr fyrst og „fremst til múra en skil-
ar í raun litlu í þjóðarbúið“, eins og
Gísli orðar það. Ef neytandi kaupir
bækur, geisladiska eða annað í litlu
magni að utan bætist við virð-
isaukaskattur og í öðrum tilvikum
tollur. Umsýslugjald vegna útreikn-
ings virðisaukaskatts er 450 kr., oft
mun hærri fjárhæð en virð-
isaukaskatturinn sjálfur.
Dæmi um vöru sem
yrði 62% lægri
Í rökstuðningi talsmanns neyt-
enda fyrir tillögunni er tekið dæmi
um bók sem kostar 300 kr. og send-
ingarkostnaður nemur 540 kr. Þá
bætist virðisaukaskattur við sem er
59 kr. auk umsýslugjalds, nú kr. 450
hjá Íslandspósti, samtals 1.349 kr.
Ef virðisaukaskatturinn væri enginn
myndi ríkissjóður tapa 59 kr. brúttó-
tekjum en bókin hefði í staðinn kost-
að 840 kr. eða 62% af því sem hún
kostar neytanda í dag. Mismun-
urinn, 509 kr. er nær níföld fjárhæð
virðisaukaskattsins.
Samkvæmt upplýsingum frá fjár-
málaráðuneytinu hafa farið fram
viðræður milli ráðuneytisins og tals-
manns neytenda um þessi mál en
engin ákvörðun hefur verið tekin og
hugmyndir talsmanns neytenda hafa
ekki verið kynntar ráðherra.
Í tillögunni er bent á að Ísland sé
eina landið á EES sem er ekki með
reglu um niðurfellingu opinberra
gjalda af smápökkum, svo sem bók-
um og geisladiskum.
Yrði bót fyrir neytendur
Hagur neytenda myndi vænkast með
smápakkareglu Vill brjóta niður múra
Morgunblaðið/ÞÖK
Diskar Talsmaður neytenda leggur til niðurfellingu opinberra gjalda af
sendingum nema álagður virðisaukaskattur og tollur fari fram úr 500 kr.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
LEIGUMIÐLARAR sem rætt var
við í gær segjast hafa orðið varir við
aukin umsvif verktaka á leiguhús-
næðismarkaðnum. Þeir kynni sér
leigumarkaðinn, spyrjist fyrir um
verð og auglýsi eignir sínar í auknum
mæli til leigu, þá yfirleitt til skamms
tíma, enda stefnan ennþá að selja áð-
ur en yfir lýkur.
Hjá Leigulistanum ehf. hefur
framboðið aukist gríðarlega mikið á
þessu ári og hröð velta er í íbúðum.
Smærri og ódýrari íbúðirnar fara
mjög hratt út en þær dýrari sitja hins
vegar lengur á listanum, að sögn
starfsmanns. Mikið framboð sé af
nýjum og stórum íbúðum þar sem
leigusalar setja upp nokkuð hátt verð
og tekur lengri tíma að koma út. T.d.
er mikið framboð í nýbyggðum hverf-
um í Hafnarfirði og Kópavogi, svo
sem Völlum og Kórum.
Halldór Jensson, leigumiðlari hjá
Rentus, býst við meiri aukningu í
framboði með haustinu, en segir óvíst
hvort það verði nógu mikið til að
lækka verð að ráði.
Dýrar íbúðir sem bætast við
Verktakar eru líka að gera leigu-
íbúðafélögum tilboð og hvetja þau til
að nýta leiguíbúðalán Íbúðalánasjóðs.
Gísli Örn Bjarnhéðinsson, fram-
kvæmdastjóri Búseta, sem á um 670
íbúðir og leigir 170 þeirra út með
hefðbundnum hætti, segir fyrirtækið
fá hringingar og tilboð frá verktökum
í hverri viku, ekki síst vegna íbúða í
fyrrnefndum hverfum.
Félagið sé opið fyrir öllum til-
boðum. Hins vegar eru flestar þær
íbúðir sem verktakarnir bjóða bæði
stórar og dýrar og lánveitingar ÍLS
bundnar stærðar- og kostnaðarvið-
miðum. Ekki er sem sagt lánað út á
nema takmarkaðan fermetrafjölda og
ekki nema ákveðin upphæð á hvern
fermetra. „80%“ leiguíbúðalán enda
því sem tæp helmingsfjármögnun á
íbúð ef hún er stór og dýr. „Menn-
irnir sem hafa verið að hringja eru
með íbúðir sem eru að jafnaði tölu-
vert stærri en viðmið Íbúðalánasjóðs.
Íbúðalánasjóður lánar til dæmis ekki
út á meira en 105 fermetra ef íbúðin
er fjögurra herbergja. Ég hefði hald-
ið að slík íbúð á markaðnum í dag sé
almennt á bilinu 125 til 150 fermetr-
ar,“ segir Gísli Örn.
Lág viðmið hjá sjóðnum skjóti
skökku við, því á sama tíma geri
skipulagsyfirvöld og markaðurinn
auknar kröfur um stór rými í íbúðum.
Verktakar sem spurðir voru hvort
þeir væru komnir út á leigumark-
aðinn svöruðu neitandi, en sögðust þó
heyra af því að aðrir í greininni væru
byrjaðir að leigja út.
Morgunblaðið/Jim Smart
Nýbyggingar Þrýstingur á að koma
íbúðarhúsnæði í notkun eykst.
Þreifa á mark-
aðnum og bjóða
dýrar eignir
Eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur
tka@mbl.is
VINNINGSHAFARNIR sem unnu
65 milljónir í Lottó eru 29 ára taí-
lensk hjón með þrjú lítil börn, sem
búa í Fellahverfi í Breiðholti.
Jakkapong Srichakan og Phen-
porn Theehakde kynntust fyrir
fimm árum á Íslandi þegar þau
unnu hörðum höndum hjá fyr-
irtækinu Matfugli í Mosfellsbæ.
Núna eru þau milljónamæringar.
„Maðurinn minn kaupir alltaf
tvo miða í Víkingalottói og tvo
miða í Laugardagslottóinu. Hann
fyllir alltaf annan út sjálfur en
lætur vélina um hinn og það voru
tölur vélarinnar sem gerðu gæfu-
muninn fyrir okkur í þetta skipti,“
segir Phenporn Theephakdee.
Penporn starfar enn hjá Matfugli
en Jakkapong vinnur hjá Myll-
unni. Þrátt fyrir vinninginn hefur
engin breyting orðið á atvinnu-
málum þeirra og það hvarflar
ekki að þeim að hætta að vinna.
„Ég vann frá sjö til miðnættis í
dag [í gær] og ætla ekkert að
hætta því.
Ég ætla ekkert að fá skyndilega
peninga og hætta bara að vinna.
Ég er ekki svoleiðis,“ segir Phen-
porn.
Hjálpa fjölskyldu og vinum
Það var stöðugur gestagangur
hjá hjónunum í gær enda á Jakka-
pong stóra fjölskyldu á Íslandi.
Jakkapong og Phenporn ætla
meðal annars að nota vinninginn
til að hjálpa fjölskyldu og vinum.
Þau eru að byggja hús í Taílandi,
fyrir sig sjálf og börnin þrjú og
móður Phenporn.
Phenporn starfaði við að selja
ávexti og grænmeti á markaði í
Taílandi áður en hún kom hingað
til lands. Hana langar nú að rækta
og selja sína eigin ávexti og búa
til skiptis í húsinu í Taílandi og á
Íslandi.
Jakkapong segist ennfremur
ekki ætla að hætta að spila í lottó-
inu. „Ég held því áfram. Það er
alltaf gaman að kaupa lottómiða.
Bróðir minn og systir ætla líka
núna að fara að kaupa miða,“ seg-
ir hann hlæjandi.
Hjónin segjast ætla að gefa fjöl-
skyldum sínum með sér af vinn-
ingnum.
„Við setjum líka peningana inn
á banka og svona. En við viljum
líka gera eitthvað gott eins og að
gefa peninga til skóla í Taílandi
en þar vantar mikið af pen-
ingum.“
Stálheppin hjón Jakkapong Srichakan og Phenporn Theehakde duttu í lukkupottinn og unnu 65 milljónir króna í
lottóinu síðastliðinn laugardag. Vinningstölurnar galdraði sjálfvalið upp úr pottinum að þessu sinni.
Taílenskir milljóna-
mæringar í Fellahverfi
Sjálfvirkt val færði hjónunum 65 milljónir Byggja hús
í Taílandi og vilja gefa peninga til skóla í heimalandinu
Lottóvinningshafar kynntust í kjúlingabúi
Milljónamæringar í Fellunum
mbl.is | Sjónvarp
„Þegar til er fullbyggt og óselt
húsnæði leita menn allra leiða
til að koma því í verð eða vinnu
með skammtíma- eða lang-
tímaleiðum. Þetta er ein leið,“
segir Árni Jóhannsson hjá Sam-
tökum iðnaðarins. Það fari eftir
bolmagni hvort verktakar taki
leiguíbúðalán, en dæmi séu um
að þeir hafi gert það. Þetta sé
hins vegar bara kostur fyrir þá
sem standa sæmilega tryggum
fótum í rekstrinum og sé ekki
notað til að sleppa fyrir horn frá
gjaldþroti.
Verðmætin í vinnu