Morgunblaðið - 20.08.2008, Side 28
Eitthvað segir mér því
að í þetta sinnið sé
það að duga eða drepast
fyrir Metallica … 30
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
GESTIR í brúðkaupsveislu sem ný-
verið var haldin á höfuðborgarsvæð-
inu ráku upp stór augu þegar Stefán
Hilmarsson, söngvari Sálarinnar hans
Jóns míns, mætti til veislunnar í hlut-
verki rótara. Þannig var í pottinn búið
að hljómsveitin
Fixed tróð upp í
veislunni, en
trommuleikari
sveitarinnar heitir
Birgir Steinn og
er sonur Stefáns.
„Ég tel ekki eftir
mér að hlaupa
undir bagga með
sveitinni þegar
þurfa þykir og hef tekið að mér störf
rótara, bílstjóra og ljósmyndara þeg-
ar þess hefur verið óskað. Það er mér
vitaskuld ljúft og skylt,“ segir Stefán
þegar hann er spurður hvernig standi
á þessu nýja starfi hans. „Þau æfa
hérna í bílskúrnum og ég er því jafnan
skammt undan. Strákurinn spilar á
trommur og stundum einnig á hljóm-
borð, þannig að það er margt hand-
takið,“ segir Stefán.
„Fjölhæfari en ég“
Birgir verður sextán ára í næsta
mánuði, en aðrir sem skipa sveitina
eru jafnaldrar hans Andri Geir Torfa-
son söngvari, Aron Örn Vilhjálmsson
bassaleikari, Hlynur Halldórsson gít-
arleikari og Anna Hjördís Valgeirs-
dóttir, hljómborðsleikari og söngkona,
en þess má geta að Anna Hjördís er
dóttir tónlistarhjónanna Guðrúnar
Gunnarsdóttur og Valgeirs Skagfjörð.
Aðspurður hvort hann hafi haft
áhrif á tónlistarbrölt sonarins svarar
Stefán: „Ég hef síður en svo þrýst á
hann, ef frá er talið stutt blokkflautu-
og píanónám sem við foreldrarnir átt-
um frumkvæði að fyrir löngu. En
hann hefur síðan leitað í músíkina
sjálfur og eftir að hann fékk trommu-
sett í hitteðfyrra og kynntist tónlist
Muse hafa frístundir aðallega farið í
músík. Auk þess eru vinir og bekkjar-
félagar margir í músík og eitt leiðir af
öðru.“
En hefði Stefán ekki viljað sjá
strákinn feta beint í hans fótspor og
syngja? „Birgir er mjög músíkalskur
og fjölhæfari en ég, leikur á píanó,
trommur, semur lög og syngur reynd-
ar annað slagið og lofar góðu finnst
mér þar einnig. Við útskrift frá Digra-
nesskóla í vor lék hann t.a.m. á píanó
og söng lagið „Líf“, en þann texta
samdi ég til hans á sínum tíma. Þetta
var nokkuð sem hann fann alveg upp
hjá sjálfum sér og var mjög eft-
irminnilegt móment.“
Hvort möguleiki sé á að Fixed muni
einhvern tíma hita upp fyrir Sálina
segir Stefán aldrei að vita. „Og
kannski á ég eftir að hita upp fyrir
þau,“ segir söngvarinn kíminn að lok-
um.
Stebbi Hilmars rótar fyrir son sinn
Fixed Birgir Steinn er annar frá vinstri. Á myndina vantar Önnu Hjördísi
Valgeirsdóttur. Heyra má í sveitinni á myspace.com/thefixedpenalty.
Stefán Hilmarsson
myspace.com/thefixedpenaty
Grein sem Jak-
ob Björnsson,
fyrrum orku-
málastjóri, skrif-
aði og birt var í
Morgunblaðinu á
mánudaginn hef-
ur vakið þónokkra athygli. Greinin
bar yfirskriftina „Álnotendur eru
undirstaða áliðnaðar“ og í henni
fjallar Jakob um íslenska söngkonu
sem „...hefur um allmörg ár flogið
víða um heim, til allra heimsálfa
nema Suðurskautslandsins, og
sungið fyrir fólk.“
Flestir vita eflaust að hér á Jakob
við Björk Guðmundsdóttur, en ein-
hverra hluta vegna nefnir hann
hana ekki á nafn í greininni. Hann
fullyrðir annars að Björk hefði ekki
náð þeim árangri sem hún hefur
náð án nútíma flugsamgangna, og
bætir því við að hún sé ekki sam-
kvæm sjálfri sér þar sem hún sé á
móti áli, en nýti sér það um leið.
En hefur Björk nokkurn tímann
sagst vera á móti áli? Hún berst
gegn frekari fjölgun álvera á Ís-
landi, sem er langt frá því að vera
einn og sami hluturinn. Björk getur
því vart talist annað en samkvæm
sjálfri sér í sinni baráttu. Eða hvað?
Má Björk ekki ferðast
með flugvélum?
Eins og fram
kemur á síðu 35 í
Morgunblaðinu í
dag verður leik-
árið hjá Leik-
félagi Akureyrar
glæsilegt í ár, og
er margt spenn-
andi á dagskránni. Þar á meðal má
nefna verkið Falið fylgi eftir
Bjarna Jónsson, en leikstjóri þess
er hinn ungi Jón Gunnar Þórð-
arson. Svo skemmtilega vill til að
Jón Gunnar er bróðir Magnúsar
Geirs, sem hætti sem leikhússtjóri
LA eftir síðasta leikár, og tók við
LR. Merki Þórðarsona verður því
áfram haldið á lofti norðan heiða.
Bróðir fyrir bróður
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„ÞAÐ eru þó nokkuð margir sem vilja skrifa
undir plagg sem ég er að vinna þessa dagana
með lögfræðingi,“ segir Snorri Ásmundsson
myndlistarmaður, spurður að því hvort ein-
hverjir hafi lýst yfir áhuga á því að leyfa hon-
um að nota jarðneskar leifar sínar í víd-
eóverk. Á annan tug manna hafi sýnt þessu
áhuga, sumir hverjir dauðvona. Snorri aug-
lýsti á dögunum eftir líkum í Fréttablaðinu,
sagðist þar vilja fá jarðneskar leifar fólks lán-
aðar til gerðar listaverks. Hugmynd Snorra
er sú að fólk leyfi honum að nota jarðneskar
leifar sínar sem efnivið í listaverk og skrifi
undir skjal því til staðfestingar.
Allt gert með samþykki
Snorri segist vinna verkið í samstarfi við
fólkið, hann útskýri nákvæmlega fyrir við-
komandi hvað hann ætli að gera við líkið.
„Þetta verður allt skrásett og verkið er eig-
inlega þrískipt. Í fyrsta lagi er það auglýs-
ingin og viðbrögðin við henni, í öðru lagi
skrásetning samskipta minna við hinn látna
og svo þetta vídeóverk sem ég geri þar sem
líkið hefur nauðsynlegu hlutverki að gegna,“
segir Snorri. Skrásetning á samskiptum fari
bæði fram á skriflegu formi og með hljóð-
upptökum.
Mun fólkið hafa einhver áhrif á víd-
eóverkið, þ.e. hvernig það verður á endanum?
„Mögulega hefur það áhrif. Ég er með viss-
ar hugmyndir sem ég vil ekki fara nánar út í
og ég hugsa reyndar að samskipti okkar verði
á þeim nótunum að ég sé að sannfæra fólkið
um að taka þátt,“ svarar Snorri. Hann segist
lengi hafa haft verkið í huga, ein tvö ár, og
efniviðurinn sé bæði ögrandi og spennandi.
„Þetta er einhvers konar óður til lífsins,“ seg-
ir Snorri. Verkið eigi sér ótalmargar hliðar,
fjalli m.a. um dauðann, lífið og manneskjuna
almennt.
Þetta er grafalvarlegt verk, í bókstaflegri
merkingu?
„Það er auðvitað grafalvarlegt, það eru all-
ar tilfinningar í þessu verki í rauninni, þetta
er dramatískt og þetta er líka skemmtilegt,
fyndið jafnvel,“ segir Snorri. Hann ætli auð-
vitað að sýna hinum látnu fullna virðingu.
„Fólk misskildi þetta dálítið, hélt að ég væri
að leita að líki til þess að óvirða það en það
hefur aldrei staðið til. Þetta er algjörlega inn-
an siðferðismarka.“
Heldurðu að fólk misskilji verkin þín yf-
irleitt, haldi að þú sért alltaf að grínast?
„Ég grínast aldrei. Ég hef alveg húmor fyr-
ir hinu og þessu og jú, jú, kannski einhvers
staðar nota ég húmor sem einhvern undirtón
en ég er aldrei að grínast.“
Til stendur að sýna verk Snorra í Listasafn-
inu á Akureyri á næsta ári.
Óður til lífsins
Á annan tug manna hefur lýst yfir áhuga á því að lána myndlistarmanninum
Snorra Ásmundssyni jarðneskar leifar sínar til listgjörnings
Morgunblaðið/Ómar
Með virðingu „Fólk misskildi þetta dálítið, hélt að ég væri að leita að líki til þess að óvirða það...“
Í HNOTSKURN
» Snorri Ásmundsson fæddist árið 1966 áAkureyri og stundaði nám við Mynd-
listaskólann á Akureyri frá unga aldri.
Hann hefur haldið á annan tug einkasýn-
inga og tekið þátt í fjölda samsýninga inn-
anlands sem utan.
» Snorri hefur vakið mikla athygli fyrirgjörninga sína og listaverk, m.a. boðið
sig fram til forseta Íslands, haldið bæna-
stund allra trúarbragða í Hljómskálagarð-
inum, selt aflátsbréf og breitt út fallega og
góða orku með því að hugleiða í píramída.
» Vefsíðu Snorra er að finna á slóðinnithis.is/snorri.