Morgunblaðið - 20.08.2008, Síða 30

Morgunblaðið - 20.08.2008, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ Sú rokkplata sem beðið hefurverið með mestri eftirvænt-ingu í ár (og síðustu ár ef út í það er farið) verður að teljast næsta Metallica-plata, Death Magn- etic. Í dægurtónlistarheimum, svo við skilgreinum þetta vítt, er það aðeins plata Coldplay sem hefur kallað á viðlíka eftirvæntingu (og svo er það spurning hvort að U2 nái að negla út sinni plötu fyrir enda árs). En ólíkt Coldplay, sem höfða rækilega til fjöldans (og meira að segja til fólks sem er ekkert sér- staklega áhugasamt um tónlist, en það er önnur saga) þá státa Metal- lica af afar fjölmennri hirð sem hagar sér eins og sértrúarsöfn- uður. Og Guð hjálpi þér, ef þú ætlar að hafa nafn hennar í flimtingum.    Segulspennan magnast nú meðhverjum degi, en platan kemur út 12. september. Lög og lagabútar eru farin að trítla út á netið og sveitin sjálf er dugleg að kynda undir fólki og stýra slíku með glans af vefsíðu sinni, Metallica.com. Töfralæknirinn Rick Rubin, sem breytir öllu í gull sem hann snertir, stýrir upptökum og fyrsta smáskíf- an, „The Day That Never Comes“, kemur út núna á föstudaginn (og á víst að minna á epíkina „One“). Samfara spennunni eru samt margir með hnút í maga vænti ég. Ástæðan? Jú, síðasta plata Metal- lica, St. Anger (2003). Þessi end- urreisnarplata sveitarinnar, þar sem farið var aftur í ræturnar ef svo má segja, reyndist hvorki fugl né fiskur þegar nánar var að gáð. Fyrstu tvö lög plötunnar, „Frantic“ og „St. Anger“ eru sæmilega brjál- uð já, en voru síðan bara stormur í vatnsglasi, eiginlega aumk- unarverð tilraun til að segja, „Hei! Við erum víst með þetta ennþá!“ Platan féll því í sæmilega grýttan jarðveg, menn voru sáttastir með að sveitin héldi enn saman, en minnstu mátti muna að hún koðn- aði niður (eins og glögglega má sjá í hinni ævintýralegu heimild- armynd Some Kind of Monster).    Eitthvað segir mér því að í þettasinnið sé það að duga eða drepast fyrir Metallica. Þó að menn séu komnir á aldur er þetta hægt, sjá t.a.m. síðasta ópus Iron Maiden, A Matter Of Life And Death (voða- legt dauðaraus er þetta annars). Sú plata er afar sterk og meðlimir Maiden allnokkru eldri en Metal- lica-menn. Rokkið er kirfilega bundið á klafa æskudýrkunar, vissulega, en Maiden hefur sýnt og sannað að fyrst og síðast snýst þetta um anda og stemningu, metn- að og heilnæmt viðhorf gagnvart því sem þú ert að gera. Við sjáum því hvað setur - munu Hetfield og co ná að soga að sér gamla sem nýja aðdáendur eins og „segull“? Eða eru þeir kannski „dauðir“ úr öllum æðum? Með öðr- um orðum, verður þetta „Death“ eða „Magnetic“??? arnart@mbl.is Dauðinn handan við hornið »Eða eru þeir kannski„dauðir“ úr öllum æðum? Spenna „Örlítið meiri bassa kannski?“ James Hetfield og Lars Ulrich hlusta á lokahljóðblöndunina af Death Magnetic. AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen FÉLAGARNIR Poetrix og Dabbi T sjá um tónlistina á hipphopp tón- leikum á skemmtistaðnum Organ í kvöld. Flytja þeir blöndu af nýju efni og eldri lögum. Á Poetrix að baki plöt- una Fyrir lengra komna og hefur lag hans VGT fengið hvað mesta spilun. Dabbi T sendi frá sér sína fyrstu plötu í september, Óheflað málfar, og þykir útgáfan bera nafn með rentu. Hefjast tónleikarnir stundvíslega kl. 22 og er ókeypis inn. Rappari Dabbi T í kvennafans. Óheflaðir hipphopparar myspace.com/poetrixmusic myspace.com/dabbihugrof Sími 551 9000Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum 650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - Í ALLT SUMAR Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó Þú færð 5 % endurgreitt í BorgarbíóSími 462 3500 X - Files kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára Mamma Mia kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ Love Guru kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára The Strangers kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára "EINFALDLEGA OF SVÖL,THE DARK KNIGHT MUN SÓPA AÐ SÉR ÓSKARSVERÐLAUNUM. ÓTRÚLEGAR BARDAGASENUR OG ÓVÆNTAR FLÉTTUR Í HANDRITINU GERA MYNDINA FRÁBÆRA." -ÁSGEIR J. - DV "ÞETTA ER BESTA BATMAN-MYNDIN, BESTA MYNDASÖGUMYNDIN OG JAFNFRAMT EIN BESTA MYND ÁRSINS..." -L.I.B.TOPP5.IS STÆRSTA OPNUN Á ÍSLANDI FYRR OG SÍÐAR. 61.000 MANNS Á 25 DÖGUM. EIN BESTA MYND ÁRSINS! 650kr. “Svona á að gera hrollvekjur!” - Stephen King X-Files kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.16ára Skrapp út kl. 10:10 Síðasta sýning B.i.12ára Mamma Mia kl. 6 - 8 LEYFÐ eeee - Ó.H.T, Rás 2 eee - L.I.B, Topp5.is/FBL 650k r. Stærsta mynd ársins 2008 75.000 manns. SÝND HÁSKÓLABÍÓI „Duchovny og Anderson sýna gamla takta” -Þ.Þ. - DV HANN ER SNILLINGUR Í ÁSTUM NÝJASTA GRÍNMYND MIKE MYERS SEM FÆRÐI OKKUR AUSTIN POWERS MYNDIRNAR SÝND SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI „Duchovny og Anderson sýna gamla takta” -Þ.Þ. - DV SÝND SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI Frá leikstjóra Full Monty Eina von hljómsveitarinnar ... ...er vonlaus 650k r. 650kr. The Rocker kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 7 ára Skrapp út kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára The Dark Knight kl. 6 - 9 B.i. 12 ára Mamma Mia kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.