Fréttablaðið - 18.04.2009, Síða 1
HELGARÚTGÁFA
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI18. apríl 2009 — 92. tölublað — 9. árgangur
menning
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ]
apríl 2009
Þ
að er verið að taka upp
teppi og laga gólf. Stól-
arnir komu úr Regnbog-
anum og voru alls ekki
óþægilegir, en það þurfti
að laga gorma og setur. Það hefur
ekkert verið hugsað um þá. Svo er
bara verið að taka allt í gegn: raf-
magn, klósettin. Þetta er dýr fram-
kvæmd en það er ódýrara en að
byggja frá grunni, fara inn í hrátt
rými og breyta því í leikhús.“
Pabbinn og fleira
Bjarni hefur hin síðari ár lagt
gjörva hönd á margt: hann leik-
stýrði síðla vetrar sýningu í Þjóð-
leikhúsinu og hafði þá um nokkurt
skeið einbeitt sér að samningu og
flutningi einsmannssýninga:
Pabbanum og Hvers virði er ég?
Hann ætlar reyndar um næstu
mánaðamót að setja upp nokkrar
sýningar af Pabbanum. Sýningar
eru orðnar 120 og tíundi hver
Íslendingur hefur séð sýninguna.
Enn fleiri eru kunnugir leikstíl og
kómískum tilþrifum Bjarna af
Hellisbúanum, sem er ein fjölsótt-
asta leiksýning íslensk síðari ára-
tuga. Þetta er vanur maður: hefur
staðið fyrir leiksýningum og sjón-
varpsþáttaframleiðslu hér heima
og víðar um Norðurlönd. Var því
að undra að hann kæmi sér upp
leikhúsaðstöðu?
Dagar Loftkastala
Sú frétt barst út síðla vetrar að
Bjarni Haukur væri búinn að taka
Loftkastalann á leigu. Eigendur
hússins höfðu þá horfið í bili frá
þeim áætlunum að rífa gamla
Sindrahúsið og byggja þar stór-
hýsi með íbúðum fyrir aldraða.
Staðföst ákvörðun Bjarna að hefja
á ný leikhúsrekstur í húsinu kom á
óvart: eftir að Flugfélagið Loftur
rann inn í samsteypuna Leikfélag
Íslands og það fór litlu seinna í
þrot töldu flestir að dagar leikhús-
rekstrar vestur á Seljavegi væru
taldir, þótt Sigurður Kaiser héldi
þar áfram um nokkra hríð. Það
eru rúm tuttugu ár síðan leiksýn-
ingar hófust þar í gamla vélasaln-
um sem gengur vestur úr húsinu:
fyrst fór þangað inn Frú Emelía.
„Ég ætla að láta
reyna á þetta“
Framhald á bls. 4
Það gengur mikið á í starfi Bjarna Hauks Þórssonar
þessa dagana: Selma Björnsdóttir er nú í undirbúnings-
vinnu fyrir æfi ngar á Grease, ásamt samverkafólki
sínu: Þorvaldi Bjarna tónlistarstjóra, Brian Pilkington
leikmyndahönnuði og Maríu Ólafsdóttur búninga-
hönnuði; vinnan fyrir frumsýningu á Grease í Loft-
kastalanum hinn 11. júní er í fullum gangi . Og ekki
nóg með það: í Loftkastalanum, sem varð að fullburða
leikhúsi vorið 1995, er verið að taka húsið í gegn. Þar
ætlar Bjarni Haukur að reka leikhús næstu árin: „Það
er verið að gera húsið aftur boðlegt fyrir fólk.“
MENNING PÁLL BALDVIN BALDVINSSON
Spennandi
hlutverk
Hrólfur Sæmundsson
barítón er kominn með
samning við óperuna í
Aachen. SÍÐA 2
Stærsta leiklistarhátíð
Íslandssögunnar
Þjóðleikur á Austurlandi SÍÐA 6
Menningar-
og listamiðstöð
Hafnarfjarðar.
Strandgata 34
www.hafnarborg.is
Opið alla daga kl. 11 – 17
og fimmtudaga til kl. 21.
Lokað á þriðjudögum.
4. apríl – 10. maí
2009
Veðurskrift
Weather Writing
Guðrún
Kristjánsdóttir
Listamannsspjall
sunnudag kl. 15.
heimili&hönnun
LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
GOTT FRAMTAK
Siggi Anton og
Guðbjörg Jóhanns-
dóttir felldu hugi
saman á við-
skiptastefnu-
móti. BLS. 2
ÍSLENKIR LESTAR-
TEINAR Nemendur
við Borgarholtsskóla
smíða lestarteina
sem eiga að sam-
eina betur þjóðir
Evrópu. BLS. 2
SÓMALÍA 30
STÍLL 50
Jóhann Sigmars-
son varð fyrir
fólskulegri árás
FÓLK 66
TVÖ SÉRBLÖÐ Í DAG
Töffaratíska
hjá Gucci
Sjóræningjar láta
fátt stöðva sig
EVRÓPUMÁL Stórauknar líkur eru
á því að næsta kjörtímabil verði
stytt eftir að meirihluta Alþingis
mistókst að ná fram breytingum á
stjórnarskrá fyrir þingrof.
Koma átti inn í stjórnarskrána
ákvæði sem gerði það mögulegt
að fullgilda breytingu á stjórnar-
skránni með þjóðaratkvæða-
greiðslu í stað þess að rjúfa þurfi
þing og fá breytinguna samþykkta
af nýju þingi.
Það er yfirlýst forgangsmál
Samfylkingarinnar, sem kannanir
á fylgi flokkanna benda til að
muni fara fyrir næstu ríkisstjórn,
að láta reyna á aðildarviðræður
við Evrópusambandið sem fyrst.
Verði aðildarsamningur gerður
á næstu misserum og samþykkt-
ur að því loknu í þjóðaratkvæða-
greiðslu er útlit fyrir að kjósa
þurfi á ný til Alþingis. Nýtt þing
þyrfti að fullgilda þá breytingu á
stjórnarskránni sem tæki af tví-
mæli um að það framsal á ríkis-
valdi sem talið er myndu felast í
Evrópusambandsaðild kæmist í
gildi áður en aðildarsamningur-
inn tæki gildi.
Hefði fyrirhuguð breyting á
fyrirkomulagi stjórnarskrár-
breytinga verið samþykkt fyrir
kosningarnar nú hefði verið hægt
að fullgilda síðarnefndu stjórnar-
skrárbreytinguna í sömu þjóðarat-
kvæðagreiðslunni og ESB-aðildar-
samningurinn yrði borinn undir.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi sem haldinn var í gær til að
kynna skýrslu nefndar um þróun
Evrópumála. - aa / sjá síðu 8
Stórauknar líkur á
stuttu kjörtímabili
Verði samið um aðild að ESB á næstu misserum þarf að kjósa á ný til Alþingis til
að breyta stjórnarskrá. Nýtt þing þarf að fullgilda breytingu á stjórnarskránni.
EFNAHAGSMÁL Áhyggjuefni er
hvernig svonefnd krónubréf geta
ógnað stöðugleika krónunnar og
mikilvægt að eigendum þeirra sé
gefið tækifæri til að losa um þau
með skipulögðum og markvissum
hætti. Þetta sagði Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætisráðherra á árs-
fundi Seðlabankans í gær.
Svein Harald Øygard seðla-
bankastjóri upplýsti að bankinn
mæti nú úrræði sem gætu gert
óþolinmóðustu fjárfestunum sem
hafa verið bundnir af gjaldeyris-
höftum kleift að skipta skulda-
bréfum sínum í íslenskar krónur
þannig að ekki komi niður á gjald-
eyrisforða bankans. - óká / sjá síðu 4
Ógna stöðugleika krónunnar:
Vilja losa um
krónubréfin
SKIPULAGSMÁL Að minnsta kosti 29
hús standa að öllum eða mestum
hluta auð í miðbæ Reykjavíkur.
Tíð meirihlutaskipti í borgar-
stjórn Reykjavíkur eru helsta
orsök þess að húseignir eru auðar
eða í niðurníðslu. Þetta kemur
fram í máli húseigenda og tals-
manna þeirra. Benedikt Sigurðs-
son, stjórnarformaður Festa og
Foldar fasteignaþróunarfélags,
gagnrýnir skipulagsmál borgar-
innar og segir að ákvarðanataka
um þau hljóti að eiga að snúast um
langtímamarkmið en ekki geð-
þótta manna. - jse/ sjá 32
Fjöldi tómra húsa í borginni:
Tómu húsin
bíða dómsdags
STENDUR AUTT Fjölmörg hús standa auð
í miðbænum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BJÖSSI BEIKON OG KEIKÓ
VIÐTAL 24
Sigrún Ósk Kristjáns-
dóttir og Andrés
Jónsson ræða örlög
dýra á Rökstólum
ORRUSTUBJARKI YRÐI
GÓÐUR GLÆPAMAÐUR
VIÐTAL 42
Áfram
Skólahreysti!
– AÐALSTYRKTARAÐILI
SKÓLAHREYSTI
Munið keppnina
í kvöld á RÚV kl. 18
Sjá dagskrá á bls. 20 og 49 eða á:
www.ferdafagnadur.is
Norrænt
velferðarsamfélag
Mín Vildarborg
ferðablað Icelandair
fylgir með
Fréttablaðinu í dag.
GEYMIÐ BLAÐIÐPÓLITÍKIN 2007-2009
IN MEMORIAM
ANNÁLL 28
VORIÐ GÓÐA GRÆNT OG HLÝTT Fjörið var allsráðandi þegar þessir glaðlegu strákar úr Barnaskóla Hjallastefnunnar í Garðabæ
sprettu úr spori niður grasbalann sem fyrr en varir verður orðinn iðagrænn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM