Fréttablaðið - 18.04.2009, Síða 8
8 18. apríl 2009 LAUGARDAGUR
1 Hvaða leikari fékk að gjöf
forláta einkennisbúning frá
ónefndum aðdáanda sem hann
mun klæðast í á leiksýningum?
2 Hver sló stigamet í lokaúrslit-
um úrslitakeppni í körfubolta?
3 Hver lagði fram tillögu í
borgarráði um að bókhald
frambjóðenda í prófkjöri verði
opnað?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 66
EVRÓPUMÁL Aðilar þverpólitískrar
nefndar um þróun Evrópumála,
sem skipuð var í tíð fyrri ríkis-
stjórnar Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar, skiluðu fimm sér-
álitum við skýrslu nefndarinnar
sem kynnt var á blaðamannafundi
í gær.
Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrr-
verandi varaformaður Samfylk-
ingarinnar og annar tveggja for-
manna nefndarinnar, sagðist hafa
óskað sér að unnt hefði verið að
leggja fram sameiginlega niður-
stöðu úr starfi nefndarinnar, en
skoðanir væru einfaldlega of
skiptar til að á því hefði reynst
kostur.
Þrír stjórnmálaflokkar – Sjálf-
stæðisflokkur, VG og Framsóknar-
flokkur – skila hver sínu sérálit-
inu og BSRB sínu. Hins vegar
standa ASÍ, Samtök iðnaðarins,
Viðskiptaráð Íslands, Samtök
verslunar og þjónustu og Samtök
ferðaþjónustunnar ásamt Sam-
fylkingunni að sameiginlegu áliti
þar sem því er lýst sem forgangs-
verkefni nýrrar ríkisstjórnar að
skilgreina samningsmarkmið og
sækja um aðild að Evrópusam-
bandinu.
Ágúst Ólafur sagði það niður-
stöðu þessara aðila að þetta væri
lykilatriði í að skapa vænlegar for-
sendur fyrir endurreisn íslensks
efnahagslífs, þar sem með því
að stefna inn í ESB og evrópska
myntbandalagið fengist „kærkom-
ið skjól í gjaldmiðilsmálum“.
Illugi Gunnarsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokks og hinn
formaður nefndarinnar, færði rök
fyrir séráliti sjálfstæðismanna, en
í því er lagt til að látið verði á það
reyna að íslensk stjórnvöld leiti
liðsinnis Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins (AGS) til að fara þess á leit við
Evrópusambandið að það heimili
Íslendingum að nota evruna vegna
þess neyðarástands í gjaldmiðils-
málum sem Íslendingar búi nú
við. Tilefni þessarar tillögu er að
AGS hefur lagt það til við Evrópu-
sambandið að það heimili nýjustu
aðildarríkjum sambandsins í Mið-
og Austur-Evrópu að fá afnot af
evrunni jafnvel þótt þau hafi enn
ekki uppfyllt Maastricht-skilyrðin
svonefndu. Illugi sagði „rangt að
láta ekki reyna á þetta“.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
gaf lítið fyrir þessa tillögu sjálf-
stæðismanna; það væri fyrirfram
ljóst að slík bónleið til AGS og
ESB, án þess að lýsa yfir vilja til
að ganga í ESB, yrði sneypuför.
Aðalsteinn Leifsson, lektor
og annar fulltrúi Samfylkingar
í nefndinni, vakti athygli á því
að innan ESB gætti „stækkun-
arþreytu“. Eina umsóknarríkið
sem nú hefði tímasettan ramma
fyrir inngöngu í sambandið væri
Króatía, sem gert er ráð fyrir að
geti fengið aðild á árinu 2011 eða
í síðasta lagi í ársbyrjun 2012.
Legði Ísland fram aðildarum-
sókn fyrir haustið ætti það kost á
að vera í samfloti við Króatíu inn
í sambandið og væntanlegir aðild-
ar samningar beggja ríkja gætu
fylgst að í gegnum fullgildingar-
ferlið hjá hinum núverandi 27
aðildarríkjum ESB. Gerðist það
ekki væri hætt við að Íslandi yrði
sem umsóknarríki vísað aftar
í biðröðina eftir aðild, sem gæti
þar með frestast aftur fyrir árið
2015.
audunn@frettabladid.is
MARGKLOFIN NIÐURSTAÐA Ágúst Ólafur Ágústsson, í miðju, ásamt öðrum nefndar-
meðlimum á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ný stjórn setji
ESB í forgang
ASÍ og fjögur stærstu aðildarfélög SA standa ásamt
Samfylkingunni að séráliti við nýja skýrslu nefndar
um þróun Evrópumála. Forgangsverkefni nýrrar
ríkisstjórnar er að sækja um aðild að ESB.
TAÍLAND, AP Tilraun var gerð til
að myrða leiðtoga mótmælenda-
hreyfingarinnar á Taílandi, sem
á síðasta ári lokaði helstu flug-
völlum landsins og hrakti þrjá
forsætisráðherra frá völdum.
Sondhi Limthongkul var
fluttur á sjúkrahús og gekkst
undir aðgerð þar sem nokkur
brot úr byssukúlu voru fjarlægð
úr höfuðkúpu hans. Hann var
hins vegar með fullri meðvitund
og sagður við góða heilsu eftir
aðgerðina.
Lögreglan brást skjótt við og
jók viðbúnað sinn. Aðeins fáir
dagar eru síðan annar hópur mót-
mælenda, andstæðingar núver-
andi stjórnar, hætti aðgerðum í
höfuðborginni Bangkok. - gb
Morðtilræði á Taílandi:
Skotið á leið-
toga mótmæla
SONDHI LIMTHONGKULI Varð fyrir skoti,
en slapp lítt meiddur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VINNUMARKAÐUR Atvinnulausir eru
nú alls tæplega 18 þúsund tals-
ins á landinu öllu, ríflega 11 þús-
und karlar og 6.500 konur. Mest er
atvinnuleysið á Suðurnesjum og
höfuðborgarsvæðinu.
Atvinnuleysi var að meðaltali 7,1
prósent vinnuaflsins á fyrsta árs-
fjórðungi þessa árs. Atvinnuleysið
mældist 9,2 prósent hjá körlum og
4,8 prósent hjá konum. Mest mæld-
ist það meðal fólks á aldrinum
16-24 ára, eða 12,6 prósent. Þetta
kemur fram hjá Hagstofu Íslands.
Atvinnulausum fjölgaði um
8.500 manns frá fyrsta ársfjórð-
ungi 2008 til fyrsta ársfjórðungs á
þessu ári. - ghs
Margir ungir atvinnulausir:
Átján þúsund
án atvinnu
ÓSAMMÁLA Ágúst Ólafur Ágústsson og
Illugi Gunnarsson formenn nefndarinnar
eru ekki sömu skoðunar um Evrópumál.
VEISTU SVARIÐ?
DÓMSMÁL Síbrotamaður hefur verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald til
11. maí. Hann hefur stolið öllu sem
hönd á festi að undanförnu, meðal
annars fatnaði öryggisvarða, sem
var merktur Securitas, úr þvotta-
húsi. Hann var gómaður í stiga-
gangi þar sem þvottahúsið er og
sagðist þá vera að tína ánamaðka.
Maðurinn er grunaður um níu
innbrot og þjófnaði á fáeinum
dögum. Meðal mála sem eru til
rannsóknar hjá lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu eru innbrot og
þjófnaður á síma og greiðslukort-
um úr herbergi á Fosshóteli við
Rauðarárstíg. Jafnframt þjófnað-
ur greiðslukorta, síma og fjármuna
frá starfsmanni á öðru hóteli. Þá
braust hann inn í íbúðarhúsnæði.
Lögregla fann hann í hnipri bak
við bíl rétt hjá húsnæðinu. Hann
var með talsvert af skartgripum og
stafræna myndavél í fórum sínum.
Næst braust hann inn hjá Bænda-
samtökunum og er grunaður um að
hafa stolið fartölvu.
Úr bílum stal hann sjónauka,
lyfjaglasi, afsali og sólgleraugum.
Í þvottahúsinu stal hann svo fatn-
aði merktum Securitas. Þegar
lögreglan handtók hann var hann
kominn í buxur eins og öryggis-
verðir klæðast.
Maðurinn hefur hlotið fjölda-
marga fangelsisdóma. - jss
SECURITAS Maðurinn skartaði buxum
eins og öryggisverðir klæðast þegar
lögreglan tók hann.
Síbrotamaður sem stolið hefur öllu sem hönd á festir í gæsluvarðhald:
Stal fatnaði öryggisvarða Securitas
VIÐSKIPTI Tölvufyrirtækið CCP
gæti þurft að flytja höfuðstöðvar
fyrirtækisins úr landi. Vilhjálm-
ur Þorsteinsson, stjórnarformaður
CCP, segir að fyrirtækið geti ekki
búið við gjaldeyrishöft lengur en í
um það bil tvö ár til viðbótar.
„Ef við erum að sjá fram á að
gjaldeyrishöftin séu komin til
að vera til lengri tíma, og engin
leið út úr þeim vanda, kemur að
því að félag eins og CCP þarf að
flytja höfuðstöðvar sínar eitthvert
annað,“ segir Vilhjálmur. Hann
segir einu sjáanlegu leiðina út úr
núverandi ástandi aðild að Evrópu-
sambandinu.
CCP hannaði og framleiðir fjöl-
þátttökutölvuleikinn Eve Online,
sem hefur verið einn af vinsæl-
ustu tölvuleikjum þeirrar tegund-
ar undanfarin ár.
Vilhjálmur segir félagið vilja
vera áfram hér á landi, en ekki sé
hægt að búa við höft til langs tíma.
Ekki sé verið að tala um að færa
starfsmenn úr landi, en félagið
verði að vera skráð í landi þar sem
aðgengi sé að erlendu fjármagni.
„Við getum ekki verið lengi
innan virkisveggja þar sem erlent
fjármagn kemst hvorki inn né út,“
segir Vilhjálmur.
Gjaldeyrishöftin voru sett í
kjölfar efnahagshrunsins síðasta
haust. Áætlanir gera ráð fyrir að
þeim verði aflétt innan tveggja ára
frá því þau voru sett. - bj
Aðild að ESB einu leiðina út úr gjaldeyrishöftum:
CCP gætu þurft að
flytja úr landi
EVE ONLINE CCP hannaði og viðheldur
fjölþátttökutölvuleiknum Eve Online,
sem er með um 292 þúsund áskrifend-
ur um heim allan.