Fréttablaðið - 18.04.2009, Side 32

Fréttablaðið - 18.04.2009, Side 32
32 18. apríl 2009 LAUGARDAGUR Fjöldi tómra húsa og íbúða eru í miðbæ Reykjavíkur. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur á skrá 57 hús og íbúðir sem eru tóm samkvæmt þeirra eftirliti. Í könn- unarferð sinn komst Fréttablað- ið að því að reyndar eru margar þessara íbúða nú þegar komnar í notkun. Ein af þeim ástæðum sem hús- tökumenn gáfu fyrir því að þeir yfirtóku húsið að Vatnsstíg 4 er að verktakar kaupi hús í miðbæ borg- arinnar, opni þau fyrir útigangs- mönnum og láti þau grotna niður og skapi þannig þrýsting á borgar- yfirvöld til þess að gefa leyfi fyrir því að rífa húsin og hefja uppbygg- ingu í þeirra stað. Húseigandi einn sem Frétta- blaðið talaði við sagði hins vegar að tíð stjórnarskipti í yfirstjórn Reykjavíkurborgar og hringl anda- hátturinn sem því fylgir hafi sett framtíð húsanna í uppnám. Fréttablaðið fór því á stúfana og reyndi að hafa uppi á eigendum tómra húsa til að spyrjast fyrir um það hvað á að gera við húsin? Af hverju eru þau tóm? Tómu húsin í bænum Síðan hústökufólk kom sér fyrir í auðu húsi að Vatnsstíg hafa vaknað áleitnar spurningar um hversu mörg hús séu auð í bænum og hví sé þannig fyrir þeim komið. Jón Sigurður Eyjólfsson brá sér í miðbæinn ásamt ljósmyndurum og kannaði málið. HVERFISGATA 61 Þetta er ekki hæft til útleigu og verður líklega rifið innan tveggja mánaða. Samson Properties á þetta hús. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN LAUGAVEGUR 46 Sola Capital er skráð fyrir þessum húsi. Ekki náðist í forsvarsmenn þess félags. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN GAMALT OG NÝTT Hér ægir saman gömlu og nýju. Þetta hús við Veghúsastíg er reyndar að falli komið meðan nýbyggingarnar í baksýn rísa. Húsið var númer eitt í götunni en hefur nú verið fært, að því er fyrrverandi eigandi segir og tilheyrir nú Klapparstíg. Það er þó víðast enn skráð á Veghúsastíg. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HVERFISGATA 46 Foldir fasteignaþróunarfélag á þetta hús. Önnur og þriðja hæð verða teknar í notkun eftir að endurbót- um lýkur, líklegast í sumar, segir eigandinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Staðsetning Eigandi Hverfisgata 28 Festar ehf. Hverfisgata 32 Festar ehf. Hverfisgata 34 Festar ehf. Laugavegur 21 Festar ehf. Skýring eiganda: Framtíð húsa í óvissu vegna óreiðu í yfirstjórn borgarinnar. Hverfisgata 46 Foldir fasteignaþróunarfélag ehf. Skýring eiganda: Önnur og þriðja hæð tómar vegna endurbóta sem verður lokið í sumar. Hverfisgata 58a (autt að hluta) Vatn og land ehf. (Samson Properties). Hverfisgata 61 Vatn og land ehf. (Samson Properties). Skýring eiganda: Hús númer 58a er í leigu nema kjallarinn sem er óíbúðarhæfur. Borgaryfirvöld bíða uns Samson Poperties gera grein fyrir eignarhaldi félagsins. Friðrik Þór Snæbjörnsson, frá Samson Properties, segir það verða gert innan tveggja mánaða. Hverfisgata 61 er hins vegar óhæf til útleigu og er áætlað að rífa húsið innan tveggja mánaða. Hverfisgata 92a Rauðsvík (Samson Properties) Skýring eiganda: Friðrik Þór Snæbjörnsson, frá Samson Properties, segir það verða rifið á sama tíma og Hverfisgata 61 eða innan tveggja mánaða. Laugavegur 33b ÁF hús ehf. Vatnsstígur 4 ÁF-hús ehf. Skýring eiganda: Hefur unnið í málinu í fjögur ár, skipulagsráð er nú loks að klára það. Þá verður unnið að uppbyggingu reitsins. Hverfisgata 41 M. Hlíðdal Hverfisgata 65 Byggingarfélagið Vöxtur Hverfisgata 75 Björt Rúnarsdóttir, Þuríður Sævarsdóttir, Marléne Pernier Bergstaðastræti 12, (bakhús) Bergtak ehf. Bergstaðastræti 16 BBH byggingarfélag Bergstaðastræti 20 Birtingur Bergstaðastræti 22 Fríða Bragadóttir Freyjugata 16 Iðunn Angela Andrésdóttir Grettisgata 20c Anna María Torfadóttir Grettisgata 61 Trausti Guðjónsson Klapparstígur 30 Gamli Sirkus, hús tekið af skrá Laufásvegur 2 Dugguklettur Laugavegur 4-6 Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkur Laugavegur 46 Sola Capital ehf Laugavegur 49a Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Erla Gísladóttir, Þór Ludwig Stiefel Lindargata 62 Félagsbústaðir hf. 02/10/1992 Skúlagata 26 Skipulagssjóður Reykjavíkurborgar 28/09/2004 Skúlagata 28 Skipulagssjóður Reykjavíkurborgar 05/03/2004 Veghúsastígur 1 Sigrún G. Fjeldsted Skýring eiganda: Segir húsið ekki lengur vera á þessu heimilisfangi og hún sé ekki lengur eigandi þess. Benedikt Sigurðsson, er stjórnarformaður Foldar fast- eignaþróunarfélags, sem á húsið að Hverfisgötu 46. Á jarðhæð er Sportbarinn en önnur og þriðja hæð standa auðar. „Það var verið að vinna í því innanverðu þegar við keyptum það [25. júní 2008] og sú vinna heldur bara áfram og verður líklegast lokið í sumar,“ segir hann. „Þá verður þarna skrifstofuhúsnæði og íbúðir.“ Benedikt er einnig stjórnarformaður Festa. HVERFISGATA 46: VERÐUR TILBÚIÐ Á NÆSTU MÁNUÐUM HVERFISGATA 58A Þetta hús er í leigu nema kjallarinn sem er óíbúðarhæfur. Húsið er í eigu Samson Properties og segir Friðrik Þór Snæbjörnsson að reynt sé halda húsum á þessum stað í leigu en það geti verið erfitt vegna sviptinga í málefnum þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM AUÐ HÚS Í MIÐBÆ REYKJAVÍKUR Hverfisgata Laugavegur Klapparsígur Va tn ss tíg ur Fr ak ks tíg ur 32 34 46 33a 33b 58a 33 61 6541 46

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.