Fréttablaðið - 18.04.2009, Side 40
● Forsíðumynd: Vilhelm Gunnarsson tók mynd á heimili
Bryndísar Bolladóttur Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Roald Eyvindsson roald@
frettabladid.is og Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is Aug-
lýsingar: Hlynur Þór Steingrímsson s. 512 5439 Útlitshönnuður:
Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is.
heimili&hönnun
LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
GOTT FRAMTAK
Siggi Anton og
Guðbjörg Jóhanns-
dóttir felldu hugi
saman á við-
skiptastefnu-
móti. BLS. 2
ÚT FYRIR RAMMANN
Bryndís Bolladóttur beitir nýstárlegum aðferðum í hönnun sinni þar
fyrirmyndin er handverk fyrri tíma.
ÍSLENKIR LESTAR-
TEINAR Nemendur
við Borgarholtsskóla
smíða lestarteina
sem eiga að sam-
eina betur þjóðir
Evrópu. BLS. 2
● heimili&hönnun
„Í vörunum mætast gamlir og
nýir tímar en það gefur oft góða
raun,“ segir Bryndís ánægð með
útkomuna.
Hún hefur frá árinu 2003
verið í samstarfi við Örva, sem
er vinnustaður fyrir fatlaða sem
framleiðir ýmsar plastvörur.
„Þegar atvinnulífið fór að róast
dróst saman hjá Örva eins og ann-
ars staðar. Fyrir vikið höfðu þeir
eins og önnur fyrirtæki meiri
tíma og finnst mér sem hönnuði
allt annað að koma inn í fyrirtæki
nú samanborið við árið 2007. Örvi
hefur hingað til gert pakkningar
utan um textílvörur mínar en fyrir
skömmu fór ég að skoða tækja-
búnaðinn hjá þeim og fékk verk-
stjórana til að sýna mér hvernig
vélarnar virkuðu. Mig langaði að
vita hvort ég gæti á einhvern hátt
sameinað textílinn og plastið. Ég
prófaði alls kyns textílefni en datt
svo niður á heklið,“ segir Bryndís
innt eftir því hvernig hugmyndin
kviknaði.
Í samstarfi við tvær vinkon-
ur, sem eru vanar hekli, þróaði
Bryndís réttu munstrin. Heklið
er síðan notað sem skapalón sem
er hitapressað ofan í plastið. Það
er svo fjarlægt en eftir situr textíl-
áferðin. Bryndís notar þrenns
konar munstur á diskamotturnar
sem heita Esja, Hekla og Katla
en munstrið í skálarnar, sem fást
í þremur stærðum, nefnir hún
Öskju.
Bryndís segir marga hafa það
á orði við sig að vörurnar séu
þjóðlegar. Hún er sama sinnis þó
hekl sé vitanlega ekki eingöngu
íslenskt fyrirbæri. „Það minnir
okkur á gamla tíma en þessi
yfirfærsla á plastið tengir það
við nútímann. Ég hugsa að mörg-
um þættu heklaðar diskamottur
sætar í dag en heldur ópraktískar.
Plastmotturnar hafa þetta gamla
yfirbragð en eru hentugri í notkun
enda bara hægt að skola af þeim.“
- ve
Gamalt blúndumunstur
tekur á sig nýja mynd
● Textílhönnuðurinn Bryndís Bolladóttir framleiðir, í samstarfi við Örva, plastdiskamottur
og -skálar með hekl-munstri. Diskamotturnar fást með þrenns konar munsturáferð og skál-
arnar í þremur mismunandi stærðum.
Diskamotturnar fást með þrenns konar
munstri.
Óhætt er að segja að nemendur við málmdeild
Borgar holtsskóla hafi haft í nógu að snúast síðustu
tvö ár. Þeir hafa á þeim tíma tekið þátt í samvinnu-
verkefni 24 evrópskra verkmenntaskóla sem kall-
ast European CNC-Network og
miðar að gerð lestarlíkans sem
til stendur að tengja saman og
á þannig að tákna sameinaða
Evrópu. Aðalsteinn Ómarsson,
kennari við málmdeild skólans,
er umsjónarmaður íslenska
verkefnisins en hann ferðast til
Brussel í næstu viku þar
sem útkoman verður til
sýnis í húsakynnum
Evrópusambandsins.
„Skólunum var skipt í
þrjá hópa sem fengu það verkefni
að smíða lestarvagna eða -teina,“
segir hann. „Þannig féll það í hendur okkur Ís-
lendingum að smíða lestarteina og svo hluti í gufu-
eimreið sem keyrir hina vagnana áfram þótt við
séum síður en svo þekkt fyrir lestarkerfi. Hinum
þótti það reyndar bráðfyndið og kannski vorum
við meðal annars þess vegna valin til verksins.“ Á
annan tug nemenda við skólann hafa beint og óbeint
komið að smíðinni sem Aðalsteinn segir hafa
gengið vonum framar. „Þetta hefur
gengið mjög vel. Svo má segja
að þátttakan hafi eflt málmdeild-
ina í þeim skilning að skólinn varð
að kaupa nýjan tækjabúnað, þar
sem vinnsla í tölvustýrðum kerf-
um var sett sem skilyrði fyrir
þátttöku,“ bendir hann á og
bætir við að sé þetta kjörið
tækifæri fyrir Evrópuþjóðirnar
til að kynnast skólastarfi hverra
annarra. „Nú svo er aldrei að
vita nema þetta verði upphafið að ein-
hverju meiru. Menn vita að minnsta
kosti hvert þeir geta leitað ef einhvern
tímann stendur til að leggja lestarteina hér á landi,“
segir hann og hlær. - rve
Lestarlíkan sameinar Evrópu
H önnunarmiðstöð Íslands og Innovit standa fyrir verkefninu Orku-verið, viðskiptastefnumóti hönnuða og viðskiptafræðinga sem
miðar að því að koma á auknu samstarfi milli stéttanna og efla fram-
leiðslu og sölu á íslenskri hönnun. Vöruhönnuðurinn Siggi Anton og
viðskiptafræðingurinn Guðbjörg Jóhannsdóttir hittust á slíku stefnu-
móti. „Þetta er mjög gott fyrir unga hönnuði sem eru að fóta sig, þurfa
að vinna fjárhagsáætlun og sækja um styrki, að eiga í góðu samstarfi
við aðila sem veita aðhald og geta átt í árangursríkum skoðanaskiptum
við þá,“ segir Siggi Anton. „Ég myndi segja að það væri nauðsynlegt
fyrir hönnuðina að fá sjónarhorn einhvers með viðskiptaþekkingu til
að drífa verkið áfram alla leið,“ bætir Guðbjörg við og segir samstarf
þeirra Sigga Antons hafa gengið mjög vel. „Hann kom
með hugmynd að tilbúinni vöru, Lucio veggljósinu, og
við stöndum framarlega í ferlinu; erum að skoða með
hvaða hætti er hægt að koma vörunni betur
út á markaðinn og möguleika á útflutningi.“
Þau segjast vera með Norður-
löndin í sigtinu, einkum
Svíþjóð. „Ljósið hefur verið
selt í Módern og hægt að
panta það á www.birkiland.
com. Nú stendur hins vegar
til að koma því í verslanir er-
lendis á árinu.“ Þau eru bjartsýn
á framtíðina. „Þetta eflir
vitund fólks um þverfag-
leg vinnubrögð,“ segir
Guðbjörg. „Nú er um að
gera að nýta sköpunar-
hæfni fólks, sem sumir
vilja meina að geti komið
okkur upp úr kreppunni,“
bætir Siggi Anton við. - rve
Ást við fyrstu sýn
Vörurnar framleiðir Bryndís í samstarfi við Örva. Þær fást í Mýrinni í Kringlunni og Kraum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Upplýsingar um
verkefnið eru á
vefsíunni www.cnc-
network.eu
● RÓSAPÚÐI Púða má fá í öllum stærðum, gerðum, formum og
litum. Þessi fallegi rósapúði fæst í John Lewis-verslununum í Bretlandi
en einnig er hægt að versla þar í gegnum netið, www.johnlewis.com.
hönnun
18. APRÍL 2009 LAUGARDAGUR2