Fréttablaðið - 18.04.2009, Page 58

Fréttablaðið - 18.04.2009, Page 58
● heimili&hönnun M r. & Mrs. Jones heitir þessi óvenjulega búsáhaldalína breska hönnuðarins Polly George. Línan, sem er skreytt handgerðum brjóstmyndum, samanstendur af krúsum, tekatli, brauðstandi, smjördiski, sítrónupressu og mjólkur- flöskum. Sams konar gripi má fá með útskornum fiðrildum, rósum og fugl- um. Þótt hlutirnir séu stílhreinir og lausir við marglit munstur og rósaflúr þá er yfir þeim breskur bragur og koma settleg teboð í grámóskulegu veðri óneitanlega upp í hugann. Sjá nánar á www.pollygeorge.com/ - ve Útskornar rósir, fuglar og fiðrildi Tekrúsir húsbóndans og húsfreyjunnar. Smjördiskur í stíl. Tilheyrandi brauðstandur. 4

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.