Fréttablaðið - 18.04.2009, Síða 78

Fréttablaðið - 18.04.2009, Síða 78
50 18. apríl 2009 LAUGARDAGUR utlit@frettabladid.is DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA Anna Margrét Björnsson Æðislegt rakagefandi mistur fyrir andlit til að nota hvenær sem er dagsins frá Make Up Store. Algjört möst fyrir tölvunotend- ur. Fæst í Kringlunni. Gullfallegan gagnsæjan topp sem lítur út eins og skikkja frá Einveru, Laugavegi. Nærandi og fegrandi Immortelle-krem frá franska snyrtivörufyrir- tækinu L‘Occitane til að fríska upp húðina eftir veturinn. Í gegnum aldirnar og áratugina hafa ætíð myndast litlir þjóðfélags- hópar sem deila sömu lífssýn, fatastíl, tónlistarsmekk og almennri fagurfræði. Heimurinn hefur fengið að njóta nærveru bítnikka, rokk- ara, pönkara, gothara, „grunge“, moddara og hippa og hér á landi hafa minni og séríslenskir hópar skotið upp kollinum. Eftirminnilegastir eru hnakkarnir, með sína rökuðu hnakka, strípur og appelsínugulan litarhátt og dúndrandi teknótónlist en þeir eru víst enn til í ákveðn- um bæjarhlutum. Rokkarar, treflar og krútt lifa góðu lífi í miðbænum ásamt „bara vá“-genginu svokallaða sem sam- anstendur af ungu fólki í fötum frá Kron Kron sem er ötult við að dásama fatasmekk hvers annars. Goth-tískan þótti dálítið jaðar og töff í fyrrasumar en dó drottni sínum í byrjun árs þegar hún komst út í „meinstrímið“ með Emo- krökkum, vampírumyndum og South Park. Nú spyr maður sig hver verði eiginlega næsti hóp- urinn til að myndast og hvaða æði verði næst? Er það „grunge“, ásamt köflóttum skyrtum, lopahúfum og post-rokk tónlist? Munu moddar- arnir aftur komast í tísku og hópar af svart- klæddu fólki í támjóum skóm með Marc Bolan-klippingar og ælæner streyma um strætin? Eða hvernig væri að gerast hippi og gera hústök- ur, taka upp kommúnulifnað og athuga hvort maður kemst upp með að rækta maríjúana í kryddjurtasettinu frá Kokku? Eða kannski að „sækadelían“ sé málið ásamt loðfeldum, kringlóttum sólgleraugum og síðu hári. Það gefur auga leið að andleg uppvakning, nirvana og möntr- ur koma í kjölfar peningjahyggjunnar og Gucci-plebbaskapar góð- ærisins og rói okkur á krepputímum. Dalai Lama er líka að koma til landsins bráðlega og er ekki um að gera að snobba fyrir honum? Eða kannski að listamenn, heimspekingar og bókmenntaspekúlantar taki bara yfir bæjarlífið ásamt spekingslegum höttum og hvítum treflum í anda Sigga Páls og sitji í heimspekilegum umræðum yfir „chai latte“ á kaffihúsunum. Nýir tímar hljóta að kalla á nýja og skemmtilega þjóð- félagshópa og ég bíð spennt eftir því hvað kemur næst. Hvað næst? > LOKASÝNING FATAHÖNNUNARNEMA Næstkomandi miðvikudag, síðasta vetrardag, munu nemendur á lokaári í fatahönnunardeild Listahá- skóla Íslands sýna afrakstur náms síns á glæsilegri tískusýningu i Hafnarhúsinu. Einn prófdómara er Louise Wilson sem er yfir mastersnámi í fatahönnun við St. Martins-skólann í London. Fötin verða áfram til sýnis á Kjarvalsstöðum til 3. maí. „Hjá okkur er engin kreppa,“ sagði ítalski hönnuðurinn Frida Giannini spurð um haust- og vetrarlínu Gucci fyrir 2009. „Gucci-stelpan lifir bara fyrir næsta partí.“ Línan er sérlega klæðileg og samanstendur af flottum, stuttum kjólum í svörtu, smaragðsgrænu og fjólubláu við rokkaðar leggings, pelsa, stígvél sem ná upp á læri og sólgleraugu. Skemmtilegt lúkk sem auðvelt er að stæla. - amb TÖFFARATÍSKA HJÁ GUCCI Stuttir kjólar, sólgleraugu og rokkaðar leggings GLÆSILEGT Flottur svartur kjóll í anda níunda áratug- arins með belti við leggings. TÖFF Flottur grænn pels við svartar buxur og bol. HIMINHÁ Geggjuð þröng stígvél sem ná upp á læri. ROKKAÐ Glitrandi leggings við stuttan svartan kjól og pels. GRÆNT Flottur stuttur kjóll með einum hlýra við leggings og hælaskó. ÞÆGILEGT Sniðug sam- setning sem klikkar ekki, víður svartur toppur við þröngar leggings. RENDUR Glæsilegur fjólublár skikkjukjóll við þröngar svartar legg- ings. OKKUR LANGAR Í …
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.