Fréttablaðið - 18.04.2009, Page 80
52 18. apríl 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
> VILL MEIRA JAFNVÆGI
Keira Knightley óttast að ferill sinn
muni binda enda á fjögurra ára sam-
band hennar og Rupberts Friend. Í viðtali
við ástralska tímaritið Marie Claire seg-
ist hún vilja finna betra jafnvægi milli
sambandsins og vinnunnar. „Það
er erfitt að vera í sambandi þegar
maður vinnur svona mikið. Maður
þarf að hugsa um hvað skiptir raun-
verulega máli. Ef maður einbeitir sér
bara að ferlinum mun koma sá dagur
að maður verður einmana,“ segir
Knightley.
Hvað er að frétta? Ég er að leggja
lokahönd á BS-ritgerðina mína í
hagfræði við HÍ og svo er nóg að
gera í vinnunni. Þannig að ég hef
lítinn frítíma þessa dagana, sem
bitnar á líkamsræktinni sem ég
hef vanrækt að undanförnu.
Augnlitur: Grænn.
Starf: Fréttakona.
Fjölskylduhagir: Í sambúð með
Þórði Gunnarssyni.
Hvaðan ertu? Ég er uppalin í
Hafnarfirði, en hef búið í Reykjavík
núna í mörg ár.
Ertu hjátrúarfull? Ekki í dag, en
þegar ég var lítil notaði ég alltaf
sama hárbandið í fótboltaleikj-
um, þangað til það slitnaði af
ofnotkun.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn:
Fyrstu seríurnar af Grey’s Anatomy
voru frábærar. Svo klikkar Seinfeld
aldrei.
Uppáhaldsmaturinn: Grillaðar
svínalundir og fajitas.
Fallegasti staðurinn: Goa á
Indlandi.
iPod eða geislaspilari: iPod.
Hvað er skemmtilegast? Að vera
áhyggjulaus í útlöndum.
Hvað er leiðinlegast? Próflestur.
Helsti veikleiki: Get verið algjör
þrasari.
Helsti kostur: Hreinskilin og gefst
aldrei upp.
Helsta afrek: Að komast heil í
gegnum árið 2006.
Mestu vonbrigðin: Ég verð oft fyrir
vonbrigðum, en man ekkert
sérstakt í augnablikinu.
Hver er draumurinn? Að
vera áfram hamingju-
söm.
Hver er fyndnastur
eða fyndnust? Ég hlæ
sjaldan jafn mikið og
þegar Björg Magnús-
dóttir, vinkona mín,
segir mér sögur sem
hún er búin að „hag-
ræða“ aðeins.
Hvað fer mest í taug-
arnar á þér? Óheiðar-
leiki.
Hvað er mikilvægast?
Heilsan og fólkið sem
maður elskar.
HIN HLIÐIN SIGRÍÐUR MOGENSEN FRÉTTAKONA
Er hreinskilin og gefst aldrei upp
„Ástæðan fyrir því að ég fór í þetta var að ég vildi
athuga hvort ég væri útbrunninn,“ segir Hlyn-
ur Benediktsson, 26 ára, sem bar sigur úr býtum
í trúbadorakeppni FM 95,7 sem fór fram fyrir
fullu húsi á Baltazar á fimmtudagskvöldið. Sjö
kepptu um að verða „Trúbador FM957“, en í dóm-
nefnd sátu útvarpsmennirnir Brynjar Már og
Svali ásamt Ingó Veðurguði. „Ég var veikur heima
þegar ég sá þetta auglýst á Netinu og ákvað að það
væri gaman að taka þátt. Ég hef verið í tónlistinni
heillengi, er búinn að vera svona „barrotta“, og
maður hefur alveg spilað á leiðinlegri samkomum,“
útskýrir Hlynur, sem er í sveitaballahljómsveitinni
Mono.
Aðspurður segir hann sigurinn vissulega koma
á hentugum tíma því hljómsveitin sé nú starfandi
af fullum krafti. „Við ætlum að taka upp lagið sem
ég samdi og söng í keppninni á kosningadaginn í
Stúdíó Sýrlandi. Lagið heitir Partý Jesús og fjallar
um mann sem er að hugsa um af hverju hann ætti
að láta ferma sig, en það er meiri ádeila á mann-
inn sjálfan heldur en nokkurn tíma trúna,“ segir
Hlynur.
Verðlaunin voru ekki af verri endanum og
segir Hlynur þau hafa komið sér algjörlega í opna
skjöldu að keppni lokinni. „Hljóðfærahúsið gaf
gítar upp á 100.000 krónur, Baltazar gaf máltíð upp
á 100.000 og svo fékk ég tíu kassa af bjór frá Cor-
ona. Þetta er 260.000 kall á einu bretti,“ segir hann
brosandi. - ag
Hlynur Ben besti trúbadorinn
JÁKVÆÐUR TRÚBADOR „Þetta er nokkuð sem ég hefði ekki
þorað að gera fyrir þremur árum, en núna er ég rólegri yfir því
hvað öðrum finnst um mig. Lífið snýst bara um að skemmta
sjálfum sér, en ekki öðrum,“ segir Hlynur brosandi.
Vöruhönnuðurinn Oddný
Magnea hannar dúkkur
sem líkjast mæðrum barna.
Þannig verður auðveldara
fyrir börn að afbera fjar-
vist móðurinnar.
„Dúkkugerðin byrjaði þannig
að ég á litla frænku sem er með
aðskilnaðarkvíða. Sálfræðingur
benti móðurinni á þessa leið: Að
láta gera dúkku sem líktist henni
til að láta barnið hafa þegar hún
færi út í búð eða í göngutúr. Í raun
og veru kemur dúkkan þannig í
staðinn fyrir mömmuna á meðan
hún er í burtu,“ segir Oddný
Magnea Arnbjörnsdóttir vöru-
hönnuður.
Dúkkur hennar, sem hannaðar
eru með það að markmiði að líkj-
ast mæðrum barnanna, hafa notið
vinsælda en hún segir að fyrsta
dúkkan sem hún hannaði hafi ein-
faldlega spurst út og hún hafi því
farið að taka pantanir.
„Ég fæ ljósmynd af mæðrun-
um og fæ jafnframt að vita hver
uppáhaldslitur þeirra er til að nota
í kjólinn til dæmis. Yfirleitt er ein
mynd nóg en hún verður þá að vera
dæmigerð fyrir útlit móðurinnar,
með hennar brosi og þvíumlíkt. Ég
nota einkennandi svipbrigði móð-
urinnar sem ég handmála, augn-
lit hennar og háralit. Einnig líki
ég eftir klæðaburði hennar ef því
er til að dreifa. Til að mynda var
móðir sem bað mig um að gera
dúkku eftir sér en hún býr í Los
Angeles og gengur dagsdaglega
í fínum Prada-kjólum og slíku.
Hún sendi mér nokkra kjóla sem
hún vildi að ég notaði sem fyrir-
mynd,“ segir Oddný og segir að
það sé merkilegt hverju ná megi
fram í andlitinu með því að líkja
eftir augabrúnum, lagi augnanna
og brosi.
„Fyrstu dúkkuna hannaði ég
í febrúar en þetta hefur spurst
hratt út. Dúkkurnar sem ég geri
eru handgerðar frá A-Ö og engin
þeirra er eins, enda verða þær
ekki eins þegar fyrirmyndirnar
eru ólíkar.“ Oddný er með heima-
síðuna oddny.com en dúkkurnar
eru til í þremur stærðum eftir því
hversu stór eigandinn er.
juliam@frettabladid.is
Hannar dúkkur sem
líkjast mæðrum
MÆÐGUR MEÐ DÚKKUR Oddný Magnea og dóttir hennar með nokkrar af dúkkunum.
Oddný heldur á dúkku sem hún gerði eftir sjálfri sér. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Pamela Anderson vonast til að geta feng-
ið tæpa þrjú þúsund dollara, eða tæplega 400
þúsund krónur, fyrir sundbolinn fræga sem
hún klæddist í sjónvarpsþáttunum Baywatch.
Lycra-sundbolurinn varð heimsfrægur þegar
Pamela sprangaði um í honum með David
Hasselhoff en hann verður áritaður af leikkon-
unni brjóstgóðu.
Þetta verður þó ekki eini frægi leikmun-
urinn sem verður boðinn upp því jafnframt
verða í boði byssurnar sem Angelina Jolie not-
aði í Tomb Raider og skotvopn Harrisons Ford
í Blade Runner. Búist er við því að sú ágæta
byssa slái met og verði seld fyrir 107 þúsund
dollara, eða þrettán milljónir íslenskra.
Uppboðið hefst í Calabasas í Kaliforníu hinn
30. apríl.
Selur sundbolinn
Á UPPBOÐ Rauði
sundbolurinn hennar
CJ og byssur Löru Croft
og Blade Runner verða
til sölu á uppboði sem
haldið verður 30. apríl.
31.07.1985
Árlega veitir Íslandsbanki tíu félögum í Námsvild námsstyrki.
Við vonum að styrkirnir geti hjálpað nemendum að einbeita
sér að því að ná góðum árangri í námi sínu. Alls eru veittir tíu
styrkir sem í heildina nema 3,4 milljónum króna.
Styrkirnir skiptast þannig:
2 styrkir til framhaldsskólanáms 100.000 kr. hver
4 styrkir til háskólanáms (BA/BS/B.Ed) 300.000 kr. hver
4 styrkir til framhaldsnáms á háskólastigi 500.000 kr. hver
Hægt er að sækja um á vef okkar islandsbanki.is/namsstyrkir.
Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti merktar:
Íslandsbanki
Markaðs- og sölumál „Námsstyrkur“
Kirkjusandi 2
155 Reykjavík
Umsóknarfrestur er til 1. maí og eru styrkirnir greiddir út fyrir
1. júní.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
9
-0
6
6
4