Morgunblaðið - 03.09.2008, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 3. S E P T E M B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
240. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
Leikhúsin
í landinu >> 37
REYKJAVÍKREYKJAVÍK
LEIKARAR LEIKA LEIK-
ARA OG FELLA HAMI
FRÉTTIR
Urðu McCain á mis-
tök með Palin?
örvandi efnum. Maðurinn er útlend-
ingur, en þjóðerni hans fékkst ekki
uppgefið.
Norræna lagðist að bryggju á
Seyðisfirði um hádegisbil í gær. Við
tollafgreiðslu voru notaðir fíkniefna-
leitarhundar frá embætti tollgæslu
Eskifjarðar og Reykjavíkur, en um
KARLMAÐUR á sjötugsaldri var í
gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til
16. september nk. eftir að verulegt
magn fíkniefna fannst í bifreið hans
við tollafgreiðslu ferjunnar Nor-
rænu. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins er um að ræða um tutt-
ugu kíló af efnum, bæði hassi og
Stór fíkniefnasending stöðvuð
var að ræða samstarfsverkefni toll-
gæslunnar á Íslandi og í Færeyjum.
Fíkniefnadeild lögreglu höfuð-
borgarsvæðisins fer með rannsókn-
ina en í gærkvöldi sagðist Karl
Steinar Valsson, yfirmaður hennar,
ekki vilja gefa neinar upplýsingar á
þessu stigi málsins. andri@mbl.is
Í HNOTSKURN
»Þetta er í annað skipti áárinu sem útlendingur á
sjötugsaldri er tekinn fyrir
fíkniefnasmygl með Norrænu.
»Hinn hefur setið í gæslu-varðhaldi frá því í júní.
Hann var með 190 kg af hassi.
Annar karlmaðurinn á sjötugsaldri sem handtekinn er fyrir
tilraun til innflutnings á fíkniefnum á fjórum mánuðum
UNGA kýrin Kría átti fullt í fangi með að verja klukkustundargamlan
kálfinn sinn fyrir ágangi eldri kúa í haganum við bæinn Kópsvatn í gær.
Magnús Jónsson, bóndi á Kópsvatni, segir það vanalegt að eldri kýr
skipti sér af kálfum yngri kúnna. Hann hafi því fært Kríu og kálfinn
hennar inn í fjós svo þau fengju að vera í rólegheitum. Kálfinum, sem
enn hefur ekki fengið nafn, vegnar vel enda ekki að undra með svo
margar stjúpmæður. Kálfurinn er sá eini á búinu og ekki er von á fleir-
um í bráð, hann ætti því að halda athyglinni óskiptri í nokkurn tíma enn.
Móðureðlið kallar á kýrnar
Morgunblaðið/RAX
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
„ÞAÐ er mikilvægt að senda þessi skilaboð út á markaðina
og þessi lántaka ætti að auðvelda frekari lántöku ríkissjóðs
og lántöku bankanna þegar þar að kemur,“ segir Jón
Bjarki Bentsson, hagfræðingur í greiningardeild Glitnis.
Hagkvæmt erlent gjaldeyrislán, sem ríkissjóður er að
ganga frá upp á 30 milljarða króna til þess að styrkja gjald-
eyrisvaraforðann, kemur ekki til með að breyta mjög
miklu fyrir íslenskt efnahagslíf fyrst um sinn. Er mun
fremur um að ræða vörðu á lengri vegferð.
„Þetta er mjög gott merki um að við getum brotist út úr
þessu umsátri um íslenska fjármagnsmarkaðinn,“ segir
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins.
Lánið er sterk vísbending um að skuldatryggingarálag
á ríkissjóð sé of hátt. Er lántakan ákveðin forskrift að við-
miði, sem erlendar lánastofnanir munu nota þegar íslensk-
ar fjármálastofnanir leita eftir lánum, að sögn sérfræðings
sem vann að undirbúningi lántökunnar fyrir ríkissjóð.
Bankarnir ættu því að geta fengið betri kjör.
Auðveldar frekari lán
30 milljarða lán ríkissjóðs hefur ekki bein áhrif fyrst um sinn Í HNOTSKURN
»Geir H. Haarde forsætis-ráðherra tilkynnti lántök-
una þegar hann flutti skýrslu
um efnahagsmál á Alþingi í
gær.
»Samhliða því tilkynntihann fyrirhugaða aðild Ís-
lands að samningi Evrópusam-
bandsins um viðbrögð og að-
gerðir í fjármálakreppu.
Ríkið tekur lán | 8 og 12
Neyðarástandi
var lýst yfir í
Bangkok í gær til
að unnt yrði að
heimila hernum
að binda enda á
átök stuðnings-
manna og and-
stæðinga stjórn-
arinnar eftir
mestu götuóeirð-
ir í borginni í sextán ár.
Forsætisráðherra Taílands, Sam-
ak Sundaravej, er sakaður um spill-
ingu og eru hann og stjórn hans
sökuð um að vera strengjabrúður
Thaksins Shinawatra, fyrrverandi
forsætisráðherra. Lagt hefur verið
til að flokkur Sundaravejs verði
leystur upp vegna gruns um að
hann hafi keypt sér atkvæði. » 16
Ríkisstjórn Taílands sök-
uð um atkvæðakaup
Samak Sundaravej
Dímítri Medve-
dev Rússlands-
forseti sagði í
viðtali við ítalska
sjónvarpsstöð í
gær að Rússland
viðurkenndi ekki
Mikhail Saaka-
shvili sem for-
seta Georgíu.
Hann væri
ekki lengur til í augum rússneskra
yfirvalda. „Hann er pólitískt lík,“
sagði Medvedev. Hann sagði miður
að Bandaríkin hefðu gefið yfirvöld-
um Georgíu frjálsar hendur í und-
angengnum átökum í Georgíu.
Forseti Georgíu er póli-
tískt lík í augum Rússa
Dímítrí Medvedev
Fundist hafa tengsl á milli ákveð-
ins gens í körlum og þess hvernig
þeim gengur að tengjast mökum
sínum. Þetta gæti útskýrt hvers
vegna sumir karlmenn eiga erf-
iðara með að binda sig en aðrir.
Sænskir vísindamenn hafa fundið
út að karlar með eitt eða fleiri ein-
tök af geninu allele 334 séu síður
líklegir til að bindast maka sínum
sterkum böndum.
Eiginkonur karla með þetta gen
reyndust síður ánægðar með ást-
arsamböndin en þær sem voru gift-
ar mönnum með ekkert slíkt gen.
Kannski að þar með sé komin leið
fyrir konur til að sneiða hjá ást-
arsorg eða þá bara ágætis afsökun
fyrir karla sem vilja ekki binda sig.
Verður hægt að forðast
ástarsorg í framtíðinni?
Gjaldeyrisforð í milljörðum
65
febrúar 2006
150
ágúst 2007
300
september 2008
500
september 2008
með lánalínum