Morgunblaðið - 03.09.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2008 11
FRÉTTIR
3-6 GSM símar og heimasími
Með því að skrá símanúmer heimilisfólksins í Núllið þarf fjölskyldan
ekki að borga krónu fyrir símtöl sín á milli innanlands. Hægt er að skrá
þrjú til sex GSM númer notenda hjá Símanum og eitt heimanúmer. Skil-
yrði er að notendurnir hafi sama lögheimili. Eitt númeranna má vera
fyrirtækjanúmer og hringir heimilisfólkið þá í það fyrir 0 kr.
Kostir Núllsins
Enginn aukakostnaður eða auknar skuldbindingar fylgja því að vera í
Núllinu. Heimilisfólkið skráir sig í þá áskriftarleið sem hentar best eða
í Mitt Frelsi. Mitt Frelsisnúmer getur meira að segja hringt í öll hin
númerin þótt inneignin sé búin! Kynntu þér skilmálana og skráðu fjöl-
skylduna strax í síma 800 7000 eða á siminn.is!
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
35
27
4
Núllið
Í Núllinu þarf fjölskyldan ekki að borga krónu þegar hún hringir sín á milli • Það er
Skráðu fjöl-
skylduna í síma
800 7000
eða á
siminn.is
án tafar!
0kr.
að hringja innan
fjölskyldunnar
- í i í i
Í Núllinu þarf fjölskyldan ekki að borga krónu fyrir símtöl sín á milli
innanlands. Hægt er að skrá þrjú til sex GSM númer heimilisfólks sem
er hjá Símanum og eitt heimanúmer. Eitt númeranna má vera fyrir-
tækjanúmer. Skilyrði er að allir hafi sama lögheimili og að a.m.k.
eitt GSM nú er sé skráð í áskrift.
i ll i
Enginn aukakostnaður eða auknar skuldbindingar. Heimilisfólkið getur
verið í áskrift eða með Mitt Frelsi. Mitt Frelsisnúmer getur hringt í öll
hin númerin þótt inneignin sé búin. Kynntu þér skilmálana og skráðu
fjölskylduna í Núllið í dag í síma 800 7000, á siminn.is eða í næstu
verslun Símans.
GERT er ráð fyrir að atvinnuleysi
aukist jafnt og þétt í september,
einkum á höfuðborgarsvæðinu og á
Suðurnesjum. Líklegt þykir að með-
alatvinnuleysi ársins 2009 verði um
eða yfir 3%.
Þetta kom fram í ítarlegri saman-
tekt Vinnumálastofnunar sem Jó-
hanna Sigurðardóttir félags- og
tryggingamálaráðherra kynnti á
fundi ríkisstjórnar í gærmorgun.
Áætlað er að atvinnuleysi verði
um 1,2% í lok ágúst eftir hægfara
aukningu að undanförnu. Staðan er
hins vegar betri víðast hvar á lands-
byggðinni sé litið
til næstu tveggja
mánaða vegna
aukinna fiskveiða
og vinnslu við
upphaf nýs kvóta-
árs.
Í fyrra var er-
lent starfsfólk
rúm 9% af vinnu-
afli landsins, talið
er að því muni
fækka nokkuð í lok þessa árs. At-
vinnulausum erlendum ríkisborgur-
um hefur fjölgað töluvert síðustu
mánuði, þeir voru 230 í júlí og fjölg-
aði í ágúst en tölur liggja ekki fyrir.
Aðgerðir Vinnumálastofnunar
Vinnumálastofnun tekst á við auk-
ið atvinnuleysi með ýmsum hætti.
Greiningarvinna ráðgjafa er mikil-
vægur þáttur auk þess sem á höf-
uðborgarsvæðinu verður starfrækt-
ur vinnuklúbbur. Þar fær fólk aðstoð
við gerð ferilskráa og ýmsa ráðgjöf.
Ráðist hefur verið í gerð rafrænn-
ar skráningar atvinnulausra til að
bæta þjónustu og auka sjálfshjálp.
jmv@mbl.is
Mun aukast jafnt og þétt
Atvinnuleysi var 1,2% í lok ágúst og telur Vinnumálastofnun að það muni aukast
í september Vinnumálastofnun telur sig vel í stakk búna til að taka á vandanum
Í HNOTSKURN
»Allt að 1.400 manns hefurverið sagt upp í hóp-
uppsögnum á árinu.
»Fjölgun atvinnulausra erlítil því mikið er um að fólk
fái fljótt aftur störf.
»Ráðnir hafa verið pólsku-mælandi starfsmenn hjá
Vinnumálastofnun.
Jóhanna Sigurð-
ardóttir
KOSTNAÐUR
við ferð forseta
Íslands, eigin-
konu hans og rit-
ara á Ólympíu-
leikana í Peking
var 2.777.276
krónur.
Kostnaðurinn
skiptist í far-
gjöld, kr.
1.472.220, gist-
ingu, kr. 896.880 og dagpeninga
forseta og forsetaritara (fyrir
skatt), kr. 408.176. Hótelkostnaður
í Peking var mikill því kínversk
stjórnvöld áskildu að þjóðhöfð-
ingjar gistu á sérvöldum hótelum
þar sem krafist var lágmarks-
greiðslu. Hún var miðuð við tíu
daga dvöl og hana varð að greiða
þótt forseti dveldi skemur í landinu.
Kínaferð vel á
þriðju milljón
Ólafur Ragnar
Grímsson
66°NORÐUR hefur
gert þriggja ára stuðn-
ings- og samstarfs-
samning við Íþrótta-
samband fatlaðra.
Samningurinn felur meðal annars í
sér að 66°Norður styrkir íþrótta-
sambandið með fatnaði.
Íslenski hópurinn sem er á leiðinni
á Ólympíuleika fatlaðra í Peking var
viðstaddur undirskriftina. Fengu ís-
lensku keppendurnir Grettis-boli frá
66°Norður en þeim munu þau klæð-
ast meðan á leikunum stendur.
66°Norður
styrkir ÍF
MENNINGAR- og minningarsjóður
kvenna ætlar að úthluta einstæðum
mæðrum námsstyrk úr sjóðnum í
haust. Verður styrkurinn veittur
einstæðum mæðrum, 25 ára og
yngri, sem hyggjast stunda nám á
komandi vetri. Einkum verður litið
til þeirra sem eru á leið í nám á ný
eftir nokkurt hlé, skv. upplýsingum
sjóðsins. Nemur styrkurinn 1 millj-
ón kr. og áskilur stjórn MMK sér
rétt til að úthluta fénu í einu lagi
eða deila því á milli tveggja til
þriggja kvenna.
Ein milljón í
námsstyrki
BJÖRGVIN G. Sigurðsson við-
skiptaráðherra fundaði í gær með
Alistair Darling, fjármála- og
bankamálaráðherra Bretlands.
Á fundi þeirra bar m.a. á góma
stöðuna á fjármálamörkuðum og
framtíðarhorfur í fjármála-
starfsemi.
Ræddi við Darling
KARLMAÐUR um þrítugt var
handtekinn á mánudagskvöld eftir
að lögregla höfuðborgarsvæðisins
fann í íbúð hans 54 kannabis-
plöntur. Að sögn lögreglu voru þær
á lokastigi ræktunar. Var því stutt í
að kannabisefnið hefði farið í sölu á
götum borgarinnar.
Íbúð mannsins, sem er í miðborg
Reykjavíkur, er fremur lítil og var
hún nánast undirlögð af plöntun
auk tækja og tóla til ræktunar.
Maðurinn játaði sök og einnig að
framleiðslan var til sölu.
Minnt á fíkniefnasímann
Í tengslum við aðgerðina vill lög-
regla minna á fíkniefnasíma lög-
reglu og tollyfirvalda, 800-5005, en
þar má koma nafnlausum ábend-
ingum á framfæri. andri@mbl.is
Með á sjötta
tug plantna
BRESKI akstursíþróttaklúbburinn HERO
(hero.org.uk) verður á ferð um landið á 65 fornbílum
dagana 7. til 12. september. Á sunnudaginn kl. níu mun
borgarstjóri ræsa bíla frá ráðhúsinu í Reykjavík sem svo
aka um Þingvelli, Gullfoss og Geysi áður en eiginleg
keppni hefst sem er sambland af góðakstri og ökuleikni.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Mikið djásn Björgvin Arnaldsson, starfsmaður Samskipa, virðir fyrir sér glæsilegan Bentley af árgerðin 1935.
Fornbílar á ferð um Ísland