Morgunblaðið - 03.09.2008, Blaðsíða 20
Þunguð Varast ber að takmarka hitaein-
ingafjölda verulega á meðgöngu.
konur oft víðum fötum, en í dag býðst þeim
mikið úrval af þröngum óléttufatnaði sem
jafnvel er merktur frægum hönnuðum.
Tískan er þó dýru verði keypt í tilfelli
kvenna sem þjást af þungunarstoli, því
heilsu móður og barns er ógnað þegar móð-
irin fær ekki næga næringu.
Konur með þungunarstol sneiða oft hjá
mjólkurvörum. Þá tekur fóstrið kalk sem
það þarfnast úr tönnum og beinum móður-
innar, og í alvarlegum tilfellum kalk- og D-
vítamínskorts verða læknar varir við beina-
sjúkdóma hjá móður og barni. „Hér áður
fyrr var talað um að konur misstu tönn fyr-
ir hvert barn sem þær eignuðust,“ segir Pat
O’Brien fæðingarlæknir í London. „Ástæð-
an er sú að barnið tekur næringu sem það
þarfnast frá móðurinni borði hún ekki
nóg.“
Nýtt hugtak er á sveimi um konur semóttast svo mjög að þyngjast á með-
göngu, að þær borða lítið og hreyfa sig
óhóflega mikið. Talað er um að þær þrói
með sér þungunarstol (pregorexia).
Samkvæmt vefriti The Daily Mail, snýst
þungunarstol ekki um löngun til að losa sig
við meðgöngukíló á undraverðum hraða
líkt og Hollywood-stjörnur gera sumar eftir
barnsburð. Hugtakið á frekar við um konur
sem takmarka verulega hitaeiningafjölda
og stunda mikla líkamsrækt á meðgöngu.
Talið er að þróun meðgöngutískufata
spili ákveðið hlutverk hvað varðar þung-
unarstol. Í gamla daga klæddust óléttar
Stíf líkamsrækt getur líka verið varasöm.
Þunguðum konum er yfirleitt ráðlagt að
ganga, hjóla eða synda, en minnka við sig
þolfimi og erfiðar æfingar. Ástæðan er sú
að liðbönd hjá þunguðum konum eru mýkri
og því meiri hætta á meiðslum. Samkvæmt
bandarískri rannsókn sem birt var í The
British Medical Journal, eignast konur sem
stunda ákafa líkamsrækt léttari börn en
þær sem hreyfa sig minna.
Þungunarstol er ekki eins algengt og of-
fita, en það fylgir því líka áhætta að þyngj-
ast of mikið á meðgöngu. Of þungum kon-
um er hætt við meðgöngueitrun, en hún
getur verið lífshættuleg fyrir móður og
eykur líkur á fyrirburafæðingu. Konur sem
eru með BMI stuðul yfir 30, eru fjórum
sinnum líklegri til að þróa með sér með-
göngusykursýki en konur í kjörþyngd.
Þungunarstol
heilsa
20 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Lilju Þorsteinsdóttur
liljath@mbl.is
ÁÍslandi, sem og annars staðar, verðakonur með átraskanir barnshafandiog í sumum tilvikum er það með-gangan sem hrindir af stað átröskun
sem ef til vill var undirliggjandi fyrir.
Nína Björg Magnúsdóttir, ljósmóðir, skrifaði
lokaverkefnið Átraskanir barnshafandi kvenna
fyrir rúmu ári. Hún segir að konur með átrask-
anir eigi í frekari erfiðleikum með að verða
barnshafandi en konur almennt. „Þær hafa síð-
ur egglos því sjúkdómurinn hefur áhrif á horm-
ónastarfsemi þessara kvenna og oft þurfa þær
sálræna aðstoð áður en þær geta orðið þung-
aðar. Þær sem veikjast á meðgöngu hafa líklega
undirliggjandi einkenni sem koma frekar í ljós
þegar þær byrja að þyngjast. Allt að 5% kvenna
eru með átraskanir á meðgöngu og margar
þeirra eru veikar fyrir þungunina. Það kom mér
á óvart við lestur erlendra heimilda hversu
margar konur sem leita sér aðstoðar vegna
ófrjósemi eru með undirliggjandi átröskun, en
þær fá þá gjarnan hormónagjöf til að örva egg-
los.“
Afneitun algeng
„Þungunin hjálpar ekki konunum að takast á
við veikindin, þvert á móti. Þær afneita því líka
oft að ófrjósemin tengist átröskuninni,“ segir
Nína Björg. „Þungaðar konur með átröskun
skiptast gjarnan í tvo hópa á meðgöngutím-
anum. Sumar hugsa mikið um það að borða nóg
fyrir barnið og ná að halda sjúkdómnum niðri.
Eftir fæðingu detta þær því miður oft í gamla
farið og jafnvel ennþá neðar, en þá vilja þær ná
af sér meðgöngukílóunum. Aðrar eru það langt
leiddar að þær þyngjast lítið sem ekkert. Þær
eiga líka erfitt eftir fæðingu og rannsóknir sýna
að þær eiga í miklum erfiðleikum með að ná
bata.“
Nína Björg hefur sjálf orðið vör við sjúkdóm-
inn í sinni vinnu. „Nýverið hitti ég konu sem var
langt undir sinni kjörþyngd og hún hafði aðeins
þyngst um þrjú kíló á allri meðgöngunni. Sam-
kvæmt skýrslum viðurkenndi hún ekki vand-
ann, en hún hafði ítrekað fengið ráðleggingar
varðandi mataræði. Læknir, ljósmóðir og nær-
ingarráðgjafi voru tilbúin til að hjálpa henni en
konan þáði enga aðstoð. Það er svo algengt að
konur með átraskanir afneiti veikindum sínum
en þessi kona var greinilega mikið veik.“
Konur með átraskanir á meðgöngu eiga oft
erfiðari fæðingu en aðrar. „Þær eiga til dæmis
frekar á hættu að rifna alvarlega á spangar-
svæði og eru í frekari hættu á miklum blæð-
ingum eftir fæðinguna,“ segir Nína og bætir því
við að einhver áhætta sé líka fyrir barnið. „Það
er aukin hætta á fyrirburafæðingu og fylgikvill-
um hjá barninu. Börn þessara kvenna fæðast
oft léttari en önnur börn, keisaratíðni er hærri
og auknar líkur eru á inngripum í fæðingu. Þess
má einnig geta að konurnar eru í meiri hættu á
að upplifa erfiðleika eftir barnsburð, svo sem
síður árangursríka brjóstagjöf og tilfinninga-
legt ójafnvægi. Rannsóknir hafa sýnt að stúlku-
börn þessara kvenna eru í þrisvar sinnum meiri
hættu á að þróa með sér lystarstol einhvern
tíma á lífsleiðinni sem síðan hefur sömu áhrif á
börn þeirra. Sjúkdómurinn getur því þróast á
þennan hátt á milli kynslóða. Því er svo mikil-
vægt að konur nærist vel á meðgöngutímanum
til að sporna gegn sjúkdómnum. “
Mikilvægt að skima fyrir átröskun
Nínu Björgu finnst mikilvægt að ljósmæður
skimi markvisst fyrir átröskunum og spyrji
konur opinna og beinna spurninga um það hvort
þær hafi verið með átröskun eða þjáist af henni
nú.
„Best væri að nota staðlaða spurningalista,
en ég birti þá í lokaverkefninu mínu. Það hefur
frekar verið einblínt á barnshafandi konur í
yfirþyngd. Oftast er verið að hafa eftirlit með að
konur þyngist ekki of mikið, enda er það al-
gengara. Það má samt ekki gleyma konum sem
eru með átraskanir. Ég hef komist að því að
margar konur almennt sem eru í kjörþyngd eða
aðeins yfir kjörþyngd kljást við lotugræðgi og
kasta upp. Það er erfitt að sjá það á þeim og þá
eru þær síður spurðar. Þess vegna finnst mér
mikilvægt að ljósmæður í mæðraeftirliti fái
vitneskju um líkamsímynd allra barnshafandi
kvenna, reglur þeirra í tengslum við mataræði
og næringarvenjur. Þá er hægt að halda betur
utan um þær konur sem þurfa á því að halda og
það er ekki síður mikilvægt eftir barnsburð.
Morgunblaðið/RAX
Morgunblaðið/hag
Ljósmóðirin Nína Björg Magnúsdóttir segir mikilvægt að ljósmæður skimi markvisst fyrir
átröskunum og spyrji konur opinna og beinna spurninga.
Glíma við átraskanir á meðgöngu
Þegar kona sem þjáist af átrösk-
un verður barnshafandi, verður
erfiðara fyrir hana að fela sjúk-
dóminn. Ljósmæður fylgjast
gjarnan með þyngd kvenna á
meðgöngu og vexti fóstursins og
eru lærðar í að koma auga á
einkenni átraskana.
Í HNOTSKURN
» Átröskunum er almennt skipt upp íþrjá flokka en þeir eru: lystarstol, lotu-
græðgi og átröskun, ekki nánar skilgreind,
stundum kölluð ódæmigerð átröskun.
» Átraskanir eru oft falinn sjúkdómurog margir gera sér ekki grein fyrir því
hversu útbreiddur hann er.
» Átraskanir eru ein algengasta geð-röskunin hjá ungum konum nú um
stundir og hafa orðið mun meira áberandi í
samfélaginu og eftirspurn eftir meðferð-
arúrræðum hefur aukist mjög.
»Átraskanir eru mjög flóknir sálrænirsjúkdómar og sérlega erfiðir fyrir kon-
ur á meðgöngutímanum.