Morgunblaðið - 03.09.2008, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.09.2008, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Reuters Á flótta Þúsundir manna hafa flúið af „öryggissvæðum“ Rússa til Gori. LEIÐTOGUM ríkja Evrópusam- bandsins tókst að jafna ágreining sinn um hvernig bregðast ætti við hernaði Rússa í Georgíu en niður- staða leiðtogafundarins í fyrradag sýnir að sambandið er í tiltölulega veikri stöðu gagnvart Rússlandi, að mati fréttaskýrenda. Vladímír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, lýsti niðurstöðunni sem sigri „heilbrigðr- ar skynsemi“. Helsta niðurstaða leiðtoga ESB var að fresta viðræðum við stjórn- völd í Rússlandi um nýjan sam- starfssamning þar til rússneska her- liðið í Georgíu færi af svæðum sem það náði á sitt vald eftir átök við her landsins í ágúst. Fyrir fundinn vildu Bretar, Pól- verjar og fleiri ESB-þjóðir harðari aðgerðir gegn Rússum. Aðrar þjóðir, þeirra á meðal Frakkar, Þjóðverjar og Ítalir, voru tregari til að stofna viðskiptatengslum við Rússa í hættu. Embættismenn í Brussel lýstu niðurstöðunni sem sigri fyrir einingu ESB en nokkrir fréttaskýrendur töldu hana til marks um vanmátt sambandsins gagnvart Rússum. Sú ákvörðun að fresta viðræðunum væri veik málamiðlun, það minnsta sem ESB hefði getað gert. bogi@mbl.is Talin sýna vanmátt ESB  Niðurstaða leiðtogafundarins sögð til marks um veika stöðu ESB gagnvart Rússlandi  Vladímír Pútín segir niðurstöðuna vera sigur heilbrigðrar skynsemi AP Bros Stjórnarandstæðingar fagna á mótmælafundi fyrir utan stjórnarráðshúsið í Bangkok í gær. Mótmælendur hafa haft bygginguna á valdi sínu í viku. Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is FORSÆTISRÁÐHERRA Taí- lands, Samak Sundaravej, lýsti yfir neyðarástandi í Bangkok í gær til að geta heimilað hernum að gera ráðstafanir til að binda enda á átök stuðningsmanna og andstæðinga stjórnarinnar eftir mestu götuóeirð- ir í borginni í sextán ár. Stjórnarandstæðingarnir saka stjórnina um spillingu og telja Sam- ak og ráðherra hans vera strengja- brúður Thaksins Shinawatra, fyrr- verandi forsætisráðherra sem var steypt af stóli í valdaráni hersins fyrir tveimur árum. Thaksin flúði nýlega til Bretlands til að komast hjá því að verða sóttur til saka í heimalandinu fyrir spillingu. Her Taílands hefur átján sinnum tekið völdin í landinu í sínar hendur frá árinu 1932 þegar komið var á þingbundinni konungsstjórn. Yfirmaður taílenska hersins, Anupong Paochinda, boðaði til blaðamannafundar í gær og lagði áherslu á að markmið hersins væri að komast hjá því að beita ofbeldi. Hann sagði ekkert hæft í vangavelt- um um að herinn væri að búa sig undir nýtt valdarán. Leiðtogi Lýðræðisbandalagsins (PAD), samtaka sem standa fyrir mótmælunum, hvatti stuðnings- menn sína í Bangkok til að fara ekki út úr stjórnarráðshúsi sem þeir hafa haft á valdi sínu í viku. Nokkrir fréttaskýrendur sögðu að markmið bandalagsins væri að stuðla að frekari átökum í von um að herinn steypti ríkisstjórninni eða að almenningur risi upp gegn henni. Auk þess að krefjast þess að for- sætisráðherrann segi af sér vill PAD að stjórnarskránni verði breytt þannig að aðeins 30% þing- manna landsins verði þjóðkjörnir, en aðrir skipaðir á þingið með ein- hverjum hætti. Bandalagið segir að markmiðið með þessu sé að koma í veg fyrir að spilltir stjórnmálamenn geti komist til valda með því að kaupa atkvæði. Flokkurinn verði bannaður Ríkisstjórnin varð fyrir enn einu áfallinu í gær þegar yfirkjörstjórn landsins lagði til að flokkur for- sætisráðherrans yrði leystur upp og bannaður vegna ásakana um að hann hefði tryggt sér sigur í síðustu þingkosningum í desember með því að kaupa atkvæði. Ríkissaksóknari Taílands þarf nú að taka afstöðu til þess hvort ástæða sé til að skjóta málinu til stjórnlagadómstóls lands- ins. Verði það gert og staðfesti dómstóllinn niðurstöðu kjörstjórn- arinnar verður flokkur forsætisráð- herrans bannaður og leiðtogum hans meinað að gegna opinberum embættum í fimm ár. Lýst sem spilltri leikbrúðu Forsætisráðherra Taílands á í vök að verjast vegna ásakana um atkvæðakaup Í HNOTSKURN » Lýðræðisbandalagið,PAD, sem stendur fyrir mótmælunum, nýtur einkum fylgis í Bangkok og fleiri borgum Taílands. PAD á einn- ig öfluga bakhjarla í yfirstétt- inni. » Bandalagið nýtur hinsvegar lítils stuðnings í dreifbýlinu þar sem flokkur Samaks Sundaravejs forsætis- ráðherra og forvera hans, Thaksins Shinawatra, hefur verið öflugur.                                    " #  "   $         %         !" &''  (  (    ) + "*  !    +  ' ,--     !      "     " + " ' %  +   .  + !    ! ) * ' %   ! )  /   !. " .       "  ! "#$   0 ) ! 1  *       %&  '()* +  '!,- (-. /) '/   , &*&, +*  '%-  ' % ' )-  -  00- %* ' - ,1*  ') &%--   %*  +   ,& $2   *01' ) %' '&)--- &') 3'  %& ' ) 4 :4;:<=> ? -;@* A %)*?* 56!7 872!9 2*   .)   !  (    .   .  %     ( .  .  ++ " )  (3 ' )  ( ."  (   4  !       *  ' 5.      .    ! "     !  "   ' KVENKYNS reykingamenn geta átt á hættu að fá hjartasjúkdóma um sama aldur og karlkyns reykinga- menn, en allajafna fá konur hjarta- sjúkdóma mun seinna á lífsskeiðinu en karlar. Þetta sýnir ný rannsókn sem gerð var af vísindamönnum við sjúkrahús í Lillehammer í Noregi. Rannsóknin leiddi í ljós að reyklausir karlar fengu að meðaltali fyrsta hjartaáfall- ið 72ja ára en 64 ára ef þeir reyktu. Reyklausar konur fengu hins vegar að meðaltali fyrsta hjartaáfallið 81 árs en 66 ára ef þær reyktu. Þegar tekið hafði verið tillit til annarra þátta, sem geta orsakað hjartaáfall, kom í ljós að konur sem reykja eiga á hættu að fá hjartaáfall nærri 14 árum fyrr en konur sem ekki reykja. Hjá körlum er munur- inn sex ár. Talið er að kvenhormón verndi konur gegn hjartasjúkdómum og geri það að verkum að þær fá sjúk- dómana seinna en karlar. Með reyk- ingum telja vísindamennirnir líklegt að konur fari fyrr á breytingaskeiðið og verði því berskjaldaðri gegn hjartaáföllum. jmv@mbl.is Reykingar veikja vörn kvenna Konur fá hjartaáfall mun fyrr ef þær reykja AP. Jerúsalem. | Ísraelsku leyniþjón- ustumennirnir sem náðu Adolf Eich- mann frá Argentínu árið 1960 létu Josef Mengele, hinn illræmda lækni úr útrým- ingarbúðum nas- ista, afskiptalaus- an til þess að stefna ekki hand- töku Eichmanns í hættu. Mikilvæg- ara þótti að ná Eichmann, en hann hafði yfirumsjón með skipu- lagningu og starfsemi útrýmingar- búða nasista í Þriðja ríki Þýskalands. Rafi Eitan, einn ísraelsku leyni- þjónustumannanna, greindi frá þessu í gær. Hann sagði að leyniþjónustunni hefði verið kunnugt um að Mengele byggi ásamt konu sinni í íbúð í Bue- nos Aires á sama tíma og þeir sátu fyrir Eichmann. Mengele náðist aldrei og lést árið 1979. Hann sá um að flokka fanga sem komu í útrýmingabúðirnar auk þess sem hann gerði grimmilegar til- raunir m.a. á börnum. Hann fékk við- urnefnið „Engill dauðans“. Eichmann var fluttur til Ísraels og tekinn af lífi, fundinn sekur um morð á 6 milljónum gyðinga. jmv@mbl.is Engill dauð- ans slapp Josef Mengele KÖTTURINN Bella, sem á heima í Arizona í Bandaríkjunum, lifði af rúmlega 100 km bílferð liggjandi á varadekki undir pallbíl eiganda síns. Gil Smith var á leiðinni á fund og þegar hann steig út úr bílnum á leiðarenda, tveimur og hálfri klukkustund síðar, heyrði hann aumingjalegt mjálm berast undan bílnum og fann köttinn sinn liggj- andi á varadekkinu. Bella var skjálfandi hrædd og í losti en hafði haft vit á að stökkva ekki undan bílnum á ferð. Smith-hjónin eiga mörg dýr en Bella er í sérstöku uppáhaldi. Gil afboðaði því viðskiptafundinn til að aka Bellu sinni aftur heim og hlúa að henni. jmv@mbl.is Farandkött- urinn Bella

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.