Morgunblaðið - 03.09.2008, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.09.2008, Blaðsíða 21
Í HNOTSKURN »Þeir hjálmar semseldir eru hér á landi uppfylla flestir öryggiskröfur. Það skiptir þó miklu máli að stilla þá rétt og endurstilla reglulega. » Hjálmar hafatakmarkaðan líf- tíma. Einnig skyldi skipta um hjálm ef hann verður fyrir hnjaski. Betra er að nota þunna lamb- húshettu undir hjálm- inn en húfu því þá situr hjálmurinn kyrr ef þú dett- ur. » Ekki ætti aðlíma eða tússa utan á hjálm- inn. Það getur skemmt ytra byrði hans og haft áhrif á virkni hans. Fjóla hefur hjólað mikið í sumar og segir það valda sér áhyggjum hversu margir hjóli hjálmlausir. Það sé löngu tímabært að við látum af pjattinu. „Það var leiðinlegt, til dæmis í Hjólað í vinnuna átakinu í vor, að sjá hversu margir hjóluðu hjálmlausir því það er einfaldlega ekkert vit í slíku. Þetta er einföld hlíf sem hefur margsannað gildi sitt, enda er það engin tilviljun að hjálmarnir eru hannaðir eins og þeir eru. Lögun þeirra byggir á áratugalangri þróun og prófunum þar sem tekið er tillit til þeirra slysa sem hjólreiðamenn lenda helst í. Til eru reglur um notkun hlífðarhjálms við hjólreiðar barna og gilda reglurnar fyr- ir börn yngri en 15 ára. Ísland hefur fengið mikið hrós fyrir setningu þeirra á á hinum Norð- urlöndunum. En auðvitað ætti reglu- gerðin að ná yfir alla. Sérstaklega núna þegar fólk er farið að hjóla meira, bens- ínverð er hátt og yf- irvöld beinlínis hvetja fólk til að nota þennan samgöngu- máta.“ Látum af pjattinu Í HNOTSKURN » Öll hjól ættu að hafa hvítt ljós að framanog rautt ljós að aftan svo ökumenn og aðrir vegfarendur sjái á hvaða leið hjólið er. » Glitauga á að vera á fótstigi.» Teinaglit á að vera framan og aftan áhjólinu. » Endurskinsborðar og endurskinsvestigera hjólreiðamanninn sýnilegri » Eigi að hjóla reglulega í haust og veturer full ástæða til að skipta yfir á nagla- dekk eða grófari dekk. Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttir annaei@mbl.is Áhaustin verða flest hjólreiðaslys, sam-kvæmt nýlegri frétt í danska dagblaðinuBerlingske Tidende. Þó að við Íslend-ingar séum ekki jafnduglegir og Danir að nýta okkur þennan farkost er engu að síður full þörf á að yfirfara hjólið eigi að hjóla áfram yfir haust- og vetrarmánuðina. „Skólar hafa margir hverjir leyft hjólreiðar út september og þá er það á ábyrgð foreldra að sýna ábyrgð og fara yfir hjólið með krökkunum. Það er nefnilega allt annað að hjóla í maí en september,“ segir Fjóla Guðjónsdóttir hjá Forvarnahúsi Sjóvá. Hún segir sýnileikann mikilvægan á þessum árstíma. „Lýsing er ekki talin nauðsynleg yfir sumarmánuðina, en þegar skammdegið færist yfir skipta ljósin og glitaugun miklu máli.“ Samkvæmt reglugerð 57/1994 ber hjólreiðafólki að hafa ljós og teinaglit framan og aftan á hjólinu, sem og glitaugu á fótstigi. Bjalla skal enn fremur vera á hjólinu, lás, bremsur að framan, jafnt sem aftan og keðjuhlíf – svo fatnaður hjólreiðamanns- ins flækist ekki. „Þó þess sé ekki sérstaklega getið í reglugerð- inni teljum við hjá Forvarnarhúsi Sjóvá að fatn- aður hjólreiðamannsins þurfi líka að vera í lagi. Endurskinsborðar sem smella má utan um buxnaskálmar eru til dæmis góð hugmynd, sem og endurskinsvesti. Mikið af útivistarfatnaði er raun- ar þegar í skærum neonlitum og því vel sýnilegt, en það er samt aldrei slæm hugmynd að bæta fleiri endurskinsmerkjum á fatnaðinn,“ segir Fjóla og bætir við að endurskinsmerkin sé auðvelt að nálg- ast í apótekum og vefnaðarvöruverslunum. Æskilegast er að skipta um dekk sé meiningin að hjóla áfram í haust og vetur, yfir á nagladekk eða grófari dekk. „Svo verða menn náttúrulega alltaf að meta að- stæður. Þegar snjór er og slabb og ekki búið að ryðja þá er það ekki endilega besta hugmyndin að fara hjólandi upp Ártúnsbrekkuna,“ segir hún. „Hjólreiðamenn verða nefnilega líka að sýna varúð á stígum jafnt sem götum.“ Morgunblaðið/Kristinn Endurskinsvesti Það er góður kostur að nota endurskinsvesti þegar dimma tekur, þó útivistarfatnaður í skærum neonlitum sjáist oft ekki síður vel. Vetrarbúnaður Glitauga á fótstigi, ljós og teinaglit er nauðsynlegur búnaður fyrir hjólreiðamanninn yfir vetrarmánuðina, ásamt endurskinsmerkjum. Sýnileiki hjólreiðamannsins mikilvægur hreyfing MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2008 21 E N N E M M /S ÍA /N M 34 98 9 Nú höfum við opnað nýja Vínbúð í Skútuvogi 2 og aukum þar með þjónustu okkar við viðskiptavini. vinbudin.is Kjartan Björnsson frá Hraunkotií Aðaldal orti í bændaferð á Írlandi fyrr í sumar: Í dag oss veitist vegleg sjón, víst eru sagnir slyngar. Ökum hér um feðrafrón, frjálsir Íslendingar. Kristín Bjarnadóttir frá Syðri-Brúnavöllum var einnig með í för og sendi Kjartani kveðju: Kjartan vísum kann á skil kæti vekur sanna. Ætli’ hann reki ættir til írskra landnámsmanna? Og hún bætti við: Um írska tign ei efast skal, né upphefð þér til handa en eflaust finnst í Aðaldal einhver norræn blanda. Kjartan talaði um það í ferðinni að sig vantaði hrút og Sigurjón Þórarinsson brást snöggt við, keypti forláta hrút, að vísu úr gleri, og gaf Kjartani. Hann fékk auðvitað vísu að launum: Nú er ég á grænni grein, gleði á ferðaþingi, eignaðist ég hrútinn Hrein frá hressum Austfirðingi. VÍSNAHORN pebl@mbl.is Af bændum og Írlandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.