Morgunblaðið - 03.09.2008, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 03.09.2008, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is ÁSTÆÐA þess að auglýst er eftir slíkum fjölda á þessum tímapunkti er að ráðgert er að byggja tvær slökkvistöðvar á höfuðborg- arsvæðinu. Aðra í Mosfellsbæ og hina hugsanlega við Stekkjar- bakka – umsókn um lóð þar hefur þó ekki verið samþykkt. Á sama tíma verður einni slökkvistöð lok- að. Þetta er liður í að minnka út- kallstíma á höfuðborgarsvæðinu og var raunar samþykkt í stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á síðasta ári. Í stjórn SHS eiga m.a. sæti borgarstjóri og bæj- arstjórar sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu. Jón Viðar Matt- híasson slökkviliðsstjóri segir þetta táknrænt skref og til merkis um að sveitarfélögin hafi öryggi íbúanna í fyrirrúmi. FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl.is SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæð- isins mun um næstu helgi auglýsa eftir á milli 20 og 30 mönnum sem hafa áhuga á að verða slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn. Það er stærsta ráðning sem Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri man eftir. Mest hafa verið ráðnir 15 manns. Ljóst er að starfið er ekki allra og verða umsækjendur að ganga í gegnum erfitt inntökuferli. Fyrst af öllu er það menntunin. Umsækjendur verða að hafa iðn- menntun, s.s. sveins- eða vélstjóra- próf, eða sambærilega menntun, t.d. stúdentspróf. Þá þurfa þeir að vera ágætlega á sig komnir, bæði andlega og líkamlega. Þjálfun tekur hátt í ár Hópur sérfræðinga mun fara yfir þær umsóknir sem berast og verða umsækjendur sem uppfylla grunn- skilyrði boðaðir í próf. Er þar um að ræða 3.000 metra hlaup, sundpróf, styrkleikapróf, próf vegna loft- hræðslu og innilokunarkenndar og próf í almennri þekkingu og tungu- málum auk akstursprófs. Gerðar eru miklar kröfur til slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna og komist menn í gegnum inntökuferlið og séu ráðnir til reynslu tekur við frekari þjálfun. „Þjálfun tekur hátt í ár og það er tími sem nýttur verður á næsta ári. Þegar nýju slökkvistöðvarnar verða tilbúnar verður mannskapurinn það einnig,“ segir Jón Viðar sem reiknar með miklum fjölda umsækjenda. Umsóknarfrestur er fram í byrjun nóvember, og geta t.a.m. þeir sem standast ekki hlaupaprófið fengið aðra tilraun. „Þeir sem eru með grunnþrek geta bætt sig mikið á nokkrum vik- um, þannig að menn hafa nokkur tækifæri.“ Leitað eftir slökkviliðsmönnum 20-30 nýir slökkviliðs- og sjúkraflutn- ingamenn ráðnir á höfuðborgarsvæðið Erfitt og hættulegt Óhætt er að segja að um krefjandi starf sé að ræða og þurfa umsækjendur því að vera í góðu líkamlegu og andlegu ásigkomulagi. Morgunblaðið/Jón Sig. LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu stöðvaði allumfangsmikla kannabisræktun í lítilli íbúð í mið- borginni í gærkvöld. Þegar lögreglumenn komu á vettvang og fóru að svipast um í húsinu fundu þeir 54 kannabis- plöntur, sem voru næstum full- þroska og á lokastigi ræktunar. Þar var einnig að finna tæki og tól til þess konar framleiðslu en íbúðin var meira eða minna undirlögð af þessari starfsemi, að sögn lögreglu. Karlmaður um þrítugt var hand- tekinn í þágu rannsóknar málsins og hefur hann játað sök. Fram kom hjá lögreglunni, að efnin hefðu verið ætluð til sölu. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Yfirfull af kannabis TVEIR karlmenn, á fimmtugs- og sextugsaldri, voru í gærkvöldi úr- skurðaðir í gæsluvarðhald til 8. sept- ember nk., á grundvelli rannsóknar- hagsmuna, vegna meintra tengsla við andlát karlmanns á sjötugsaldri. Hinn látni fannst í íbúð sinni við Skúlagötu um kvöldmatarleytið á mánudag. Hann var með áverka á höfði. Maðurinn sem tilkynnti and- látið var handtekinn en ekki reyndist unnt að yfirheyra hann sökum ann- arlegs ástands. Hinn maðurinn var handtekinn í gærmorgun. Yfirheyrslur yfir mönnunum gengu erfiðlega en þeir neituðu báðir sök. Bráðabirgðaniðurstöður úr krufningu ættu að liggja fyrir í dag og gætu varpað ljósi á andlát manns- ins. andri@mbl.is Tveir sæta varðhaldi Dánarorsök enn óljós LITLAR breytingar hafa orðið í samsetningu þjóðernis þeirra ferðamanna sem koma hingað til lands. Flestir erlendir ferðamenn eru Bandaríkjamenn, því næst koma Bretar og Þjóðverjar og ferðamenn frá Norðurlöndum þar á eftir. Þeim ferðamönnum, sem koma sérstaklega til Reykjavíkur utan sumartímaans, fjölgar stöð- ugt. Á síðasta ári komu 485.000 ferða- menn til Íslands en í samanburði voru þeir tæplega 9.300 árið 1957, samkvæmt upplýsingum frá Ferða- málastofu. Miðað við 6% fjölgun ferðamanna árlega má búast við að 637.813 er- lendir ferðamenn komi hingað til lands árið 2015. Þessir hressu hjólreiðamenn nutu veðurblíðunnar í miðborg Reykjavíkur þegar ljósmyndara bar að garði. Ekki liggur fyrir hvert ferðinni var heitið. thorbjorn@mbl.is Erlendir hjólreiðamenn njóta sín í miðborginni í septembersól Morgunblaðið/Golli Flestir ferðamenn frá Banda- ríkjunum MÁLFLUTNINGUR hefst fyrir Hæstarétti í dag eftir réttarhlé í sumar. Fyrsta málið verður flutt kl. níu fyrir hádegi, þrotabú Parma ehf. gegn Erki efh. Þegar skoðaður er listi yfir áfrýj- uð mál, sem bíða flutnings fyrir Hæstarétti, vekur athygli hve málin eru mörg eða 239 talsins. Þorsteinn Jónsson, skrifstofu- stjóri Hæstaréttar, segir að ódæmd mál séu nokkru fleiri en undanfarin ár. Þetta sé mesti fjöldi sem hefur verið ódæmdur að hausti til allt frá síðustu aldamótum. Undir lok síðustu aldar voru dæmi þess að fleiri mál biðu afgreiðslu Hæstaréttar. Var þá gripið til að- gerða til að hraða meðferð mála, meðal annars með fjölgun dómara við réttinn. Dómarar við Hæstarétt eru nú níu talsins. Þorsteinn segir að fylgst verði með þróun mála hjá Hæstarétti í haust. Aðeins hafi verið rætt innan- húss hvort grípa þurfi til aðgerða til að hraða málflutningi en engar ákvarðanir verið teknar. Ekki kveðst Þorsteinn vita skýr- inguna á því hvers vegna svo mörg mál hafa borist Hæstarétti á und- anförnum mánuðum. sisi@mbl.is Alls 239 mál bíða umfjöllunar og dóms Málflutningur hefst í Hæstarétti í dag eftir réttarhlé Byggja á tvær slökkvistöðvar INFLÚENSA af B-stofni greindist í ágústlok hjá árs- gamalli stúlku í Hafnarfirði. Sótt- varnalæknir seg- ir að ekki sé hægt að fullyrða að það merki að inflú- ensan verði snemma á ferð- inni í ár en venju- lega líða nokkrar vikur frá því að sóttin greinist fyrst þar til faraldur brýst út. Sóttvarnalæknir segir að allur sé þó varinn góður og rétt að hefja bólusetningu strax og bóluefnið berst. Sá tími nálgast að árleg inflú- ensubólusetning hefjist en miðað hefur verið við októberbyrjun. Áætlað er að bóluefni verði komið til landsins í lok þessa mánaðar og geta heilbrigðisstofnanir og aðrir þar til bærir pantað það hjá Parlog- is, sem annast dreifingu þess. Inflúensan komin á kreik Inflúensubólusetn- ing hefst innan skamms.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.