Morgunblaðið - 03.09.2008, Síða 6
Morgunblaðið/Frikki
Réttur Það er óljóst hvort Sigurður
G. Guðjónsson verji Jón Ólafsson.
MÁLFLUTNINGI í máli Ríkislög-
reglustjóra gegn Jóni Ólafssyni,
Hreggviði Jónssyni, Ragnari Birg-
issyni og Símoni Ásgeiri Gunn-
arssyni var í gærmorgun frestað
þar sem Hæstiréttur hefur enn ekki
tekið fyrir hvort Sigurður G. Guð-
jónsson fær að verja Jón ásamt
Ragnari Aðalsteinssyni.
Í júlí sl., þegar málið var þing-
fest, benti Helgi Magnús Gunn-
arsson, saksóknari efnahagsbrota,
á að svo kynni að fara að Sigurður
yrði kallaður til vitnis í málinu. Þar
af leiðandi væri ekki unnt að skipa
hann verjanda Jóns skv. ákvæðum í
lögum um meðferð opinberra mála.
Dómari málsins úrskurðaði sak-
sóknaranum í hag en Ragnar og
Sigurður kærðu úrskurðinn til
Hæstaréttar. andri@mbl.is
Beðið eftir
Hæstarétti
! "#! $%
&'#(!)#
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
UMFERÐIN í nýliðnum ágúst er
3,48 prósentum minni en í ágúst 2007
þegar bornir eru saman 14 talning-
arstaðir um land allt. Þetta kemur
fram í yfirliti frá Vegagerðinni.
Í ágúst 2007 jókst hinsvegar um-
ferðin um 7,81 prósent frá því í sama
mánuði árið á undan eða árið 2006.
Þetta er fimmti mánuðurinn í röð
þar sem dregur úr umferð á milli ára
en um langt skeið þar áður hefur um-
ferð aukist stöðugt. Telja sérfræð-
ingar að hækkandi eldsneytisverð sé
helsta skýringin á minnkandi umferð
í sumar.
Örlítið minna dró úr umferð í
ágúst en sumarmánuðina á undan
þegar umferðin dróst saman um allt
að 5,56 prósent í júní frá sama mán-
uði árið á undan. Þannig dróst um-
ferðin um hringveginn við Hvalfjarð-
argöng aðeins saman um 0,35%
miðað við ágúst í fyrra.
Í yfirliti Vegagerðarinnar kemur
fram, að árið 1999 var vegakerfi suð-
vestursvæðis, en höfuðborgarsvæðið
er í því umdæmi, rétt rúm 5% af
heildar þjóðvegakerfi landsins en um
40% alls aksturs fóru þar fram.
Þannig skipti miklu máli hvað höf-
uðborgarbúar eru að gera. Ekki sé
víst að heildarniðurstaðan fyrir 2008
verði minni umferð en árið 2007.
Stöðugt dregur úr umferð á vegum
Tölur Vegagerðarinnar sýna að dregið hefur úr umferð um vegi landsins í hverj-
um mánuði undanfarna fimm mánuði Ástæðan er m.a. hærra eldsneytisverð
Morgunblaðið/Ómar
Bílar Bílaumferð um vegi landsins
er ekki lengur að aukast.
6 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
ÁTAKSVERKEFNINU Borgar-
börnum verður hleypt af stokkunum í
dag. Um er að ræða verkefni til fjög-
urra ára á vegum Reykjavíkurborgar
en það felur í sér uppbyggingar-
áætlun og þjónustutryggingar og
miðast við að árið 2012 geti öll börn
eins árs og eldri fengið vistun hjá
dagforeldrum eða í leikskólum. Geng-
ið er út frá þeim forsendum að fæð-
ingarorlofið verði á þessu tímabili
lengt úr 9 mánuðum í 12 mánuði.
Ungbarnaskóli á teikniborðinu
Verkefnið miðar einnig að því að
brúa bilið milli fæðingarorlofs og
öruggrar vistunar en of fá úrræði
þykja í boði að fæðingarorlofi loknu.
Algengast er að leikskólar taki við
börnum það ár sem þau verða
tveggja ára gömul. Margir foreldrar
bregða því á það ráð að leita til dag-
foreldra en eftirspurnin er mun meiri
en framboðið. Þar að auki hafa leik-
skólar glímt við manneklu undanfarin
ár, þótt hún sé nokkru minni nú í ár
en áður, og því ekki öruggt að barnið
komist að jafnskjótt og foreldrar
kjósa. Talið er að um 1.000 börn bíði
nú eftir vistun hjá dagforeldrum eða í
leikskólum.
Að sögn Þorbjargar Helgu Vigfús-
dóttur, formanns leikskólaráðs
Reykjavíkurborgar, felst í uppbygg-
ingaráætluninni að byggja nýja leik-
skóla, stækka þá sem fyrir eru auk
þess að hækka greiðslur til sjálf-
stæðra leikskóla og dagforeldra. Þá
er í deiglunni að setja á laggirnar
ungbarnaskóla fyrir börn á aldrinum
1-3 ára. Þeirri uppbyggingu verður
hins vegar ekki að fullu lokið fyrr en
eftir fjögur ár. Þangað til mun for-
eldrum barna er bíða eftir dagvistun
bjóðast svokölluð þjónustutrygging
sem er mánaðarleg greiðsla upp á
35.000 kr.
Létt af kerfinu
Foreldrar mega ráðstafa greiðsl-
unni eins og þeim hentar, t.d. vera
sjálfir lengur heima með barninu eða
greiða ættingjum fyrir að gæta
barnsins.
Áætlað er að kostnaðurinn við
þjónustutrygginguna nemi alls 312
milljónum króna. Að sögn Þorbjargar
Helgu er lykilatriðið það að trygg-
ingin úreldist því eftir því sem upp-
byggingaráformin haldi áfram, þurfi
færri á henni að halda. „Við erum að-
eins að létta af kerfinu og hjálpa fólki
að hjálpa sér sjálft þangað til við
náum að byggja alla þjónustuna.“
Þjónustutryggingin verður aðeins í
boði 11 mánuði ársins en einn mán-
uður fellur niður líkt og í sumarfríum
í leikskólum og hjá dagforeldrum. Þá
er þess krafist að henni sé skipt milli
foreldra, líkt og fæðingarorlofinu,
nema um einstætt foreldri sé að
ræða.
Öllum börnum tryggð dagvistun
Foreldrar barna er hvergi fá inni geta
sótt um þjónustutryggingu í millitíðinni
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Gaman Á þjónustuvef Reykjavíkurborgar verður í fyrsta sinn í dag hægt að
sækja um leikskólapláss og þjónustutryggingar með rafrænum hætti.
ÞAÐ var virkilega gott veður í höfuðborginni í
gær og fjöldi fólks sem nýtti sér það til hollrar
hreyfingar og útivistar. Kjartan Þorbjörnsson,
ljósmyndari Morgunblaðsins, rakst á þessa í fót-
bolta í Seljahverfinu rétt áður en kallað var á þá
inn í kvöldmat. Ungu piltarnir nýta sólina eins
og þeir geta, berir að ofan, en sá eldri varð að
vera betur klæddur enda í markinu og aldrei að
vita til hvaða aðgerða hann þyrfti að grípa.
„Hvað ungur nemur, gamall temur“ á líka við um fótbolta
Morgunblaðið/Valdís Thor
Sparkað í haustblíðunni í Breiðholti
Reykjavík í ágúst 2008
1.000
börn sem bíða eftir plássi í
leikskólum eða hjá dagfor-
eldrum
6.594
börn í leikskólum
888
börn hjá 188 dagforeldrum