Morgunblaðið - 13.09.2008, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 2008 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
!!"
! "#$" %&
##'("$" %&
)*!
$*!*"+#*
, *-#*&./0
1
*"$" %&
2%&3*/#
4 +#*0
"
56 !"%-%"7%"8"9 :9" +
;%"
!!**"
<
!!*5
!"
%-5=
*##*
>" <#
?
":*
<-*
@*%!(8*
!
"
#
A
!%"<%-*%- ,$" *
,-&*8:
$ %&
'
@*8#*&!*
/*
*+ 8B # /C
2%&
DE F
G H D
DG GG IF
D I
DD EI FF
FD D IH
F I GGE
FDE H FFD
D E EEH DDD
I EH ED
7
DI FI F
H IHF EF
D IDI
D
7
E EDD EF
7
7
7
HG GI F
7
F
GJ
JE
FJF
GJ
DJHF
HJ
FJD
GEHJ
FJE
HJD
DJG
HJF
EDJF
FGJ
J
EJ
GJ
7
7
7
DGGJ
7
JF
GJ
JF
FJ
GJ
DJHI
HJG
FJ
GEEJ
FFJ
HJF
DJD
HJFI
EJF
FEJ
IJ
FJ
IJ
FJI
JH
HJ
DIFJ
J
J
:( *
'*8#*&!
F
FD
F
EF
I
7
IF
F
F
7
F
7
7
7
E
7
/
!*/
'*8# '
"8
F E FH
F E FH
F E FH
F E FH
F E FH
F E FH
F E FH
F E FH
F E FH
F E FH
E FH
F E FH
F E FH
F E FH
F E FH
E E FH
F E FH
G I FH
F H FH
D G FH
F E FH
E FH
I D FH
● SAMDRÁTTUR
er í smásölu í
Bandaríkjunum
annan mánuðinn í
röð kemur á óvart,
en spáð hafði ver-
ið örlitlum vexti. Á
vef BBC kemur
fram að þótt hag-
vöxtur hafi verið
rúm 3% í Banda-
ríkjunum á öðrum
ársfjórðungi megi þakka útflutningi
þá hækkun. Bandarískir neytendur
haldi aftur á móti fastar um budduna
og þar sé til dæmis um að kenna
auknu atvinnuleysi, hækkandi orku-
og matarverði og samdrætti á hús-
næðismarkaði. camilla@mbl.is
Smásala í Bandaríkj-
unum dregst saman
Bandaríkjamenn
eyða minna.
● FRAMTÍÐ bandaríska fjárfestinga-
bankans Lehman Brothers hangir á
bláþræði þessa dagana en gengi
bankans hríðféll í vikunni eftir að
ljóst varð að ekki kæmi nýtt fjármagn
inn í reksturinn. Financial Times seg-
ir frá því á vef sínum að hópur fjár-
festa undir forystu Bank of America
sé að undirbúa boð í bankann. Þá á
breski bankinn Barclays einnig að
vera að íhuga boð. Samkvæmt FT
virðist brunaútsala vera líklegasta
leið bankans út úr vandræðunum en
tap á rekstri bankans nam 3,9 millj-
örðum dala á þriðja ársfjórðungi.
camilla@mbl.is
Beðið eftir boði í
Lehman Brothers
● HAGVÖXTUR í
Kína í ágústmán-
uði var sá minnsti
undanfarið hálft
ár eða 12,8%.
Fjölda verksmiðja
var lokað meðan
á Ólympíu-
leikunum stóð til
að bæta loftið í
Peking. Því dróst framleiðni saman
með fyrrgreindum afleiðingum.
Vegna ótta við ofhitnun hagkerfisins
hefur kínverska ríkisstjórnin hækkað
vexti og dregið úr framboði á lánsfé
til fyrirtækja. camilla@mbl.is
Ólympíuleikarnir
hægja á hagvexti
GJALDÞROT XL Leisure Group og
tengdra félaga kemur niður á 285
þúsund viðskiptavinum þeirra. 85
þúsund Breta voru í ferðum á vegum
fyrirtækisins í gær og um tvö hundr-
uð þúsund voru búin að panta ferð á
næstunni.
Ófremdarástand skapaðist eftir að
tilkynnt var um gjaldþrotið og ljóst
var hve mörgum þyrfti að koma til
síns heima. Á vef Guardian komfram
að flugfélögin British Airways,
Easyjet, Ryanair, BMI og Flybe hafi
boðist til að ferja hluta farþeganna
en að tugþúsundum þurfi að bjarga
eftir öðrum leiðum. Forstjóri XL,
Peter Wyatt, sagðist í gær ósáttur
við að flugvélar félagsins skuli allar
hafa verið kyrrsettar. Nú liggi fyrir
hjá flugmálayfirvöldum að koma á
loftbrú fyrir að minnsta kosti 67.000
ferðalanga. Fólk sem XL Airways
hefði annars getað flogið heim.
Langflestir farþeganna fá ferðir sín-
ar endurgreiddar þar sem fyrirtækj-
um í ferðaþjónustu er gert að greiða
í sérstakan sjóð sem greiðir flug fyr-
ir strandaglópa eða endurgreiðir
þeim ferðina sem ekki voru lagðir af
stað. camilla@mbl.is
Tugþúsundir
strandaglópar
Breska ferðaþjónustan skalf í gær
ÞETTA HELST ...
● Úrvalsvísitalan í Kauphöll Íslands
stóð nánast í stað í gær. Lækkunin
nam 0,04% og lokagildið var 3.967
stig. Atorka Group hækkaði mest fé-
laga á aðallista eða um 4,36% og
Century Aluminium þar á eftir með
hækkun upp á 4,24% og Atlantic Air-
ways með 3% hækkun.
Eimskip lækkaði mest eða um
21,18%, Hampiðjan þar á eftir með
5,5% lækkun og Straumur með
1,78%. Heildarvelta með hlutabréf
var 6,3 milljarðar króna en velta
með skuldabréf 10,3 milljarðar.
thorbjorn@mbl.is
Atorka hækkaði mest
● ALLT bendir til að framboð á flug-
leiðum flugfélagsins Sterling, sem
er í eigu Íslendinga, verði skorið
verulega niður þegar vetraráætlun
félagsins verður kynnt í lok október.
Á vef Børsen kemur fram að sam-
kvæmt pöntunarvél á heimasíðu
Sterling loki félagið alveg, eða að
hluta, 24 flugleiðum af 50 í vetur.
Þar séu meðal annarra leiðir til
Gautaborgar og Brussel sem séu
mikið notaðar af þeim sem fari í
viðskiptaferðir. Sterling hafi tilkynnt
að félagið hygðist leggja aukna
áherslu á slíkt flug og því skjóti þró-
unin skökku við. Forsvarsmenn
Sterling segjast ekki hafa í hyggju
að draga saman seglin á næstunni.
camilla@mbl.is
Sterling dregur úr
framboði flugleiða
FRÉTTASKÝRING
Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
„ÞAÐ verður að viðurkennast að það
er stórt og mikið áfall fyrir Eimskip
að þurfa að taka á þessum skelli sem
gjaldþrot XL Leisure Group er,“
sagði Gylfi Sigfússon forstjóri Eim-
skips í gær.
Eimskip lækkaði um 21% í kaup-
höllinni í gær og hefur verðmæti fé-
lagsins rýrnað um 77% frá janúar.
Áhrifin af gjaldþroti breska ferða-
þjónustufyrirtækisins eru víðtæk.
Eimskip þarf að taka á sig 26 millj-
arða króna lán, andvirði 207 milljóna
evra, sem félagið ábyrgðist við söl-
una á XL seint á árinu 2006.
Þá getur Straumur fjárfestingar-
banki tapað 45 milljónum evra, tæp-
um 6 milljörðum króna miðað við
gengi gærdagsins, vegna gjaldþrots-
ins. Bankinn yfirtekur rekstur XL í
Frakklandi og Þýskalandi og óvíst er
hvaða verðmæti nást upp í tapið.
Feðgarnir Björgólfur Guðmunds-
son og Björgólfur Thor Björgólfsson
útvega lánið til Eimskips ásamt fleiri
ónafngreindum fjárfestum. Það
verður víkjandi sem þýðir að fyrst
verður staðið við skuldbindingar við
aðra lánardrottna. Það er mikilvægt
til að skapa ekki óróleika hjá þeim
enda Eimskip mikið skuldsett.
Ekki er búið að ákveða hvort lánið
verði með breytirétti í hlutabréf
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins. Bent er á að það þurfi sam-
þykki hluthafafundar til að svo verði.
Í ljósi þess að Björgólfsfeðgar ráða í
raun yfir Eimskipi, bæði í gegnum
Landsbankann og beina eignaraðild,
er ekki flókið mál að afla þess sam-
þykkis. Hins vegar er útfærslan á
láninu ekki fullmótuð ennþá. Yfirlýs-
ingin um aðkomu feðganna í fyrra-
dag var drifin út til að róa lánar-
drottna þegar stjórnendur sáu í hvað
stefndi með XL.
Ekki er heldur ljóst á hvaða kjör-
um þetta lán verður. Gylfi Sigfússon
sagði það skýrast fljótlega.
Flugreksturinn inn og út
Staðan sem upp er komin er af-
leiðing ákvarðana sem teknar voru
eftir að Magnús Þorsteinsson keypti
Eimskip árið 2005 og sameinaði flug-
rekstri sínum. Félagið var mikið
skuldsett og reksturinn olli von-
brigðum. Byrjað var að vinda ofan af
fjárfestingum, leggja áherslu á sjó-
flutninga og selja flugreksturinn. Til
að liðka fyrir þeirri sölu, eins og á
XL og Air Atlanta, tók Eimskip á sig
ábyrgðir. Erfitt var að endurfjár-
magna lánin og ábyrgð féll á Eim-
skip. Við það glíma hluthafar nú.
Reuters
Strand Um 3.500 farþegar áttu pantað far með 16 XL Airways flugvélum frá Gatwick í gær þegar þær voru stopp-
aðar vegna gjaldþrots félagsins. Talið er að allt að 1.700 störf leggist niður í Bretlandi. Málið olli miklum glundroða.
Grunnrekstur Eimskips hef-
ur skilað viðunandi afkomu
síðustu ársfjórðunga. Stjórn-
endur ætla að bæta um betur.
Sala á Atlas Versacold er
mikilvæg til að greiða niður
miklar skuldir og lækka
vaxtakostnað. Eigendur eru
taldir heppnir ef Versacold
verður selt án mikils taps.
Mikilvægt er fyrir hluthafa
að upplýst verði fyr-
irkomulag á aðkomu Björg-
ólfsfeðga. Það á við kjör á
láni uppá 26 milljarða króna
og hvort því verði á
ákveðnum tímapunkti breytt
í hlutafé.
Næstu skref
Stórt og mikið áfall
Hluthafar Eimskips og Straums tapa á gjaldþroti XL
Ákvarðanir sem teknar voru eftir 2005 afdrifaríkar
!
"#
!
$
!
%&
'
&
&
(
)
*
"
+
!
"
!
#
,
-.
/
"
!
%&
'
%
!
0
"
)
&
*
1
2
"
!
!
,
&
345
.
$
,
&
%&
'
1
!
6
*
2
!#
789
!
"
1
!
2
"
+
:
1
7997 799; 799< 7993 799= 799> 7998
Smærri hluthafar í Eimskipa-
félaginu eru um 20 þúsund.
Vegna þess hve markaðs-
verðmæti félagsins hefur
minnkað frá áramótum, um
77%, hefur hlutur hvers og
eins rýrnað sem því nemur.
Sem dæmi ef verðmæti hluta-
bréfaeignar um síðustu ára-
mót var ein milljón er virði
sama hlutar nú 230 þúsund.
Verði lán Björgólfsfeðga að
hluta eða öllu leyti breytt í
hlutafé þynnist hluturinn enn
meira.
Hluthafar
„VIÐ erum að fá beiðnir um alls
kyns verkefni í kjölfar gjaldþrots-
ins,“ segir Matthías Imsland, for-
stóri Iceland Express. Að sögn
Matthíasar verður ekki hægt að
sinna þeim beiðnum að fullu þar
sem flugvélafloti fyrirtækisins sé
ekki nægilega stór. Hann segir að
að öðru leyti hafi gjaldþrot XL
engin áhrif á reksturinn. „Bresk
yfirvöld óskuðu eftir fulltingi
Astreus, systurfélags okkar, við
flutning farþega sem urðu
strandaglópar eftir gjaldþrot XL,“
bætir Matthías við.
„Gjaldþrot XL mun ekki hafa
áhrif á rekstur og starfsemi Ice-
landair Travel Service eða önnur
félög undir Icelandair,“ segir
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Icelandair Group.
Gjaldþrot XL gæti haft í för
með sér að gerð verði krafa um
staðgreiðslu á aðföngum eins og
eldsneyti. thorbjorn@mbl.is
Hjálpuðu til
Matthías
Imsland
Björgólfur
Jóhannsson
»
»
»