Morgunblaðið - 18.09.2008, Blaðsíða 44
FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 262. DAGUR ÁRSINS 2008
&3
3
3 3&&
4#
5'
. +
6
%
1#. 3 3& 3 3 3&
3 - 7 "1 '
3
& 3&
3 3&
3 3 3
89::;<=
'>?<:=@6'AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@'77<D@;
@9<'77<D@;
'E@'77<D@;
'2=''@%F<;@7=
G;A;@'7>G?@
'8<
?2<;
6?@6='2+'=>;:;
Heitast 15 °C | Kaldast 8 °C
SV 13-20 m/s og
skúrir v-lands. Annars
SV 10-15, skýjað með
köflum, yfirleitt þurrt.
Hægara er líður á daginn. » 10
Þjóðleikhúsinu
Macbeth
»MEST LESIÐ Á mbl.is
>>VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
ÞETTA HELST»
Krónan hefur aldrei
verið veikari
Gengi krónunnar lækkaði um
2,52% í gær og hefur hún aldrei ver-
ið veikari. Gengi hlutabréfa á mörk-
uðum úti um allan heim lækkaði um-
talsvert í gær. Úrvalsvísitala
Kauphallarinnar í Reykjavík hefur
lækkað um 13,6% á einum mánuði.
» Forsíða
Miklar vegaskemmdir
Miklar skemmdir urðu á vegum
víða á Vestfjörðum í úrhellinu í fyrri-
nótt þegar skriður féllu á vegi.
Þorskafjarðarheiði var eini vegurinn
sem ekki tókst að opna að nýju í
gær. Aðrar leiðir voru að minnsta
kosti færar jeppum og stærri bílum í
gærkvöldi. » 4
Fluttur án samþykkis
Lögheimili sextán ára drengs í
Hafnarfirði var fært til Noregs að
móður hans forspurðri þótt hún færi
með fullt forræði. Móðirin er ósátt
við að engin skýring fáist á þessu.
» 2
Livni kjörin leiðtogi
Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísr-
aels, var kjörin leiðtogi stjórn-
arflokksins Kadima í gær og gæti
orðið fyrsta konan í 34 ár til að
gegna embætti forsætisráðherra
landsins, eða frá því að Golda Meir
var forsætisráðherra. » 16
SKOÐANIR»
Staksteinar: Fljúgum hærra
Forystugreinar: Vantar Tómas
stall? | Leiðin langa að 0,7%
Ljósvaki: Aukapersónan var aðalp.
UMRÆÐAN»
Þetta kemur ykkur við, annað ekki!
Ragnarök nýfrjálshyggjunnar
Fordæmalaus vinnubrögð!
Á nektardans að vera atvinnugrein?
Söngleikur Ólafs
Hauks Símonarson-
ar, Fólkið í blokkinni,
er nú að taka á sig
mynd á fjölum Borg-
arleikhússins. » 38
LEIKHÚS»
Fólkið á
sviðinu
TÓNLIST»
Notaleg tónlist á vel við
á haustin. » 40
Í Bítlamyndinni
frægu Magical
Mystery Tour kem-
ur íslenskt landslag
fram í þónokkrum
atriðum. » 37
KVIKMYNDIR»
Töfratúr
um Ísland
TÓNLIST»
Skrítnar stelpur gera
myndband. » 41
FÓLK»
Dóttir Willis og Moore
skapar sér eigið nafn. » 41
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Símadama á borgarstjóralaunum
2. Nýsir á barmi gjaldþrots
3. Hljóðritaði fund, falinn undir borði
4. Hrottaleg morð í Bretlandi
Íslenska krónan veiktist um 2,5%
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
KÆRA skiptastjóra þrotabús flugfélagsins City
Star Airlines, sem var í eigu Íslendinga, á hendur
fyrrverandi fyrirsvarsmönnum flugfélagsins, er
meðal þeirra verkefna sem eru nú til rannsóknar
hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra.
Efnahagsbrotadeildin hefur nú 66 mál til með-
ferðar og er stór hluti þeirra skattalagabrot. Við-
fangsefnin eru afar fjölbreytt, allt frá banka-
málum og ábyrgðum og skatta- og tollamálum til
ólögmætra veiða umfram kvóta.
Tvöfalda þyrfti fjölda starfsmanna
Fimmtán manns starfa hjá deildinni en Helgi
Magnús Gunnarsson, yfirmaður efnahagsbrota-
deildar, er þeirrar skoðunar að fjölga þurfi
starfsmönnum í þrjátíu. Helgi segist skynja
hærri fjárhæðir í efnahagsbrotum og brotin
teygja anga sína til fleiri landa í kjölfar útrás-
arinnar.
Forsvarsmenn City Star eru grunaðir um að
hafa skotið undan eigum félagsins með sölu á
flugvélum á undirverði og með öðrum hætti. Hin
meintu auðgunarbrot eru talin nema um 100
milljónum króna. City Star var staðsett í Aber-
deen í Skotlandi og var að mestu í eigu fjárfesta
úr Grindavík. Félagið lagðist á aðra hliðina í febr-
úar á þessu ári og 55 starfsmenn þess misstu
vinnuna.
Efnahagsbrotadeildin varðist allra frétta af
málinu í gær. „Ég get ekkert tjáð mig um þetta
tiltekna mál,“ segir Helgi Magnús. | Viðskipti
Brotin ná til fleiri landa
Álag á efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra eykst í niðursveiflu Hærri upphæðir
en áður Auðgunarbrot fyrirsvarsmanna flugfélags í eigu Íslendinga í rannsókn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ríkislögreglustjóri Viðfangsefni efnahags-
brotadeildar eru afar fjölbreytt.
Í HNOTSKURN
»Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjórahefur nú 66 mál til meðferðar.
»Dæmi um mál er lögmaður sem sakaðurer um fjársvik, kæra vegna gruns um
markaðsmisnotkun, meint fjársvik svæfing-
arlæknis og ýmis skattalagabrot.
»Álagið eykst verulega í niðursveiflu,eins og þegar netbólan sprakk. Sama
virðist uppi á teningnum núna.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
DRAUMAR Gísla Sverrissonar
breyttust í einni andrá 2. september
sl., þegar hann stakkst fram yfir sig
af hjóli sínu á ferð um Kjarnaskóg á
Akureyri. Gísli, sem er mikill úti-
vistarmaður, slasaðist alvarlega,
hryggbrotnaði og hefur ekki mátt
fyrir neðan brjóst, enn sem komið
er. Hann segir óvíst hversu miklum
bata hann muni ná, en er bjartsýnn.
„Mænan er svo svakalega flókin
og raunar einfaldlega ráðgáta. Og
þetta snýst um hversu mikill skaði
er á henni,“ segir Gísli og bætir við
að hann finni fyrir alls kyns skrítn-
um taugaboðum. „Líkaminn er þar
væntanlega að leitast við að lækna
sjálfan sig. Mikil bólga er enn í
kringum mænuna og því erfitt að
segja til um hversu mikill skaði er á
henni.
Gísli hefur mátt í höndunum en
ekki fullan kraft og miðast end-
urhæfing m.a. við að ná honum.
Slysið hefur gríðarleg áhrif á
fjölskyldulífið en Gísli er kvæntur
og fjögurra barna faðir. Hann er
búsettur á Akureyri þar sem börnin
ganga í skóla. | 6
Alls kyns
taugaboð
á ferð
Morgunblaðið/Frikki
Gísli Sverrisson slasaðist alvarlega í reiðhjólaslysi í byrjun mánaðar