Morgunblaðið - 18.09.2008, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÉG vænti mikils af samstarfi
landanna,“ sagði Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, á blaða-
mannafundi á Bessastöðum í gær
sem haldinn var í tilefni af op-
inberri heimsókn Yoweris K.
Musevenis, forseta Úganda, til
landsins.
Á fundinum kom fram að mark-
mið heimsóknar Úgandaforseta
hingað til lands væri einkum að
kynna sér nýtingu jarðhita hér-
lendis, þróun sjávarútvegs, mennt-
un í upplýsingatækni og beitingu
hennar í þágu opinberrar stjórn-
sýslu.
Löng hefð fyrir að nota heita
hveri til lækninga í Úganda
Í máli Musevenis kom fram að
tildrög þess að hann sækir Ísland
heim nú sé símtal sem hann átti
við Ólaf Ragnar fyrir tveimur ár-
um þar sem þeir ræddu um mögu-
leikana í nýtingu jarðvarma. Mus-
eveni minnti á að Ísland og
Úganda ættu það sammerkt að í
báðum löndum mætti finna heita
hveri. Sagði hann langa hefð fyrir
því í Úganda að nota heitu hverina
sér til lækninga, en að sú þekking
hefði dvínað á síðustu árum og
væri í dag af flestum talin bábilja
ein. Sagðist hann því afar ánægður
með að sjá að Íslendingar stæðu
framarlega í því nýta heita hveri í
lækningaskyni, en Museveni mun í
heimsókn sinni m.a. kynna sér
starfsemi Bláa lónsins og lækn-
ingamiðstöðina þar.
Gefa ekki upp afstöðu sína
Aðspurður hvernig Úgandamenn
gætu lært af reynslu Íslendinga á
sviði þróunar sjávarútvegs sagði
Museveni ofveiði því miður tals-
vert vandamál, sérstaklega við
strendur Viktoríuvatns, en vatnið á
landamæri að og er undir stjórn
þriggja landa, Úganda, Tansaníu
og Kenía.
Aðspurður hvort Úganda styddi
framboð Íslands til Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna sagði Mus-
eveni það mál enn órætt milli
þeirra forseta. Ólafur Ragnar
minnti á að mörg lönd gefi ekki
upp afstöðu sína opinberlega til
framboðsins fyrirfram, en bætti
við að vissulega gerðu menn sér
væntingar um stuðning.
Síðdegis í gær heimsótti Mus-
eveni Alþingi og átti þar fund með
fulltrúum utanríkismálanefndar. Í
dag mun Museveni heimsækja höf-
uðstöðvar Actavis sem og fisk-
vinnslufyrirtækið Vísi í Grindavík.
Vilja nýta jarðvarma
Úgandamenn
horfa til reynslu
Íslendinga í
fiskveiðistjórnun
Ljósmynd/Gunnar Geir Vigfússon
Á Bessastöðum Íslensku forsetahjónin buðu forsetahjónum Úganda,
Yoweri K. Museveni og Janet Museveni, til hátíðarkvöldverðar í gær.
LJÓSMÆÐUR á heilsugæslustöðvum og Miðstöð
mæðraverndar hafa þessa dagana í nógu að snú-
ast. Ekki aðeins þurfa þær að sinna þeim verðandi
mæðrum sem eiga bókaða tíma í vikunni heldur
bætast við konur sem áttu pantaða tíma í mæðra-
skoðun í síðustu viku. Sökum tveggja sólarhringa
verkfalls ljósmæðra féll öll mæðravernd niður á
fimmtudag og föstudag.
„Það er nóg að gera í mæðraverndinni,“ segir
Ragnheiður Bachmann, ljósmóðir á Miðstöð
mæðraverndar. Hún gerir ráð fyrir að mest verði
að gera í þessari viku en ástandið komist í samt lag
í næstu viku. „Ljósmæðurnar eru vanar að hliðra
til og forgangsraða,“ segir Ragnheiður og bætir
við að verðandi mæðurnar hafi sýnt ástandinu
mikinn skilning. „Þær eru besti kúnnahópur sem
maður getur fengið.“
Yfirbókað í sónarskoðanir
Einnig er nóg að gera á fósturgreiningardeild
Landspítalans þar sem sónarskoðanir fara fram.
Anna Sampsted, ritari deildarinnar, segir að hver
einasti tími sé fullbókaður og stoppi síminn ekki
þar sem verið sé að athuga með lausa tíma. Sumir
dagar séu yfirbókaðir en í næstu viku ætti allt að
fara í samt horf. Anna segir að verðandi mæður
hafi í síðustu viku verið afar skilningsríkar vegna
verkfallanna. „Það vantaði ekki. Ljósmæður fengu
fullan stuðningur allra kvenna sem hringdu.“
Sónarskoðanirnar féllu þó ekki að fullu niður
meðan á verkföllunum stóð heldur skertist þjón-
ustan einungis. Það má rekja til þess að ein ljós-
móðir deildarinnar er í Félagi íslenskra hjúkrun-
arfræðinga og gat því sinnt starfi sínu áfram. Þá
héldu sérfræðingar spítalans áfram sónarskoðun-
um á konum í áhættumeðgöngu. ylfa@mbl.is
Ljósmæður önnum kafnar
Vegna verkfallsins í síðustu viku þar sem öll mæðravernd féll niður hafa ljósmæð-
ur á heilsugæslustöðvum og á fósturgreiningardeild LSH nú í nógu að snúast
BJÖRN Óli
Hauksson hefur
verið ráðinn for-
stjóri Keflavík-
urflugvallar ohf.,
nýs opinbers
hlutafélags sem
tekur við rekstri
Flugmálastjórn-
ar Keflavíkur-
flugvallar og
Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar 1. janúar nk.
Umsækjendur um stöðuna voru
55 talsins. Björn Óli hefur undan-
farin sex ár unnið að uppbyggingu
flugmála í Kósóvó, m.a. sem for-
stjóri Pristina International Air-
port J.S.C. Hann setti þar á laggir
flugmálastjórn Sameinuðu þjóð-
anna.
Björn Óli er 47 ára að aldri og
með meistaragráðu í rekstrarverk-
fræði frá Álaborgarháskóla.
Forstjóri
Keflavíkur-
flugvallar
Björn Óli
Hauksson
SIGRÍÐUR Anna Þórðardóttir hef-
ur afhent Michaëlle Jean, land-
stjóra Kanada, trúnaðarbréf sitt
sem sendiherra Íslands í Kanada.
Sigríður Anna er fyrsta konan til að
gegna embætti sendiherra í Kan-
ada frá því að sendiráð var stofnað
þar árið 2001.
Í umdæmi sendiráðsins eru auk
Kanada eftirtalin ríki: Belís,
Bólivía, Ekvador, Hondúras, Kosta-
ríka, Kólumbía, Panama, Perú,
Úrúgvæ, Venesúela og Níkaragva,
að því er fram kemur á vef utan-
ríkisráðuneytisins.
Sendiherra
í Kanada
Fundur Sigríður Anna Þórðardóttir
og Michaëlle Jean landstjóri.
BÆJARSTJÓRN Akraness hefur
samþykkt einróma tillögur um
breytingar á drögum fyrir starfs-
leyfi Sementsverksmiðjunnar. Þær
verða lagðar til grundvallar um-
sögn bæjarins til Umhverfisstofn-
unar vegna starfsleyfistillögunnar,
en auglýstur frestur rennur út á
föstudaginn.
Helstu áherslur í breytingar-
tillögum starfshópsins eru að leyfið
verði eingöngu miðað við starfsemi
á Akranesi og einskorðað við sem-
entsframleiðslu. Lögð er áhersla á
að í starfsleyfi komi skýrt fram, að
ekki sé um brennslu að ræða á úr-
gangi, heldur mun eldsneyti sem
unnið er úr úrgangi utan verk-
smiðjunnar leysa kol af hólmi að
hluta til. Gerð er krafa um að
brennsla beina- og/eða kjötmjöls og
annars lífræns úrgangs verði felld
út. Gerð er krafa um að eldsneyti í
föstu formi skuli flutt til verksmiðj-
unnar í lokuðum og rykþéttum
vögnum. egol@mbl.is
Samþykktu
starfsleyfi
ÞÝSKUR karlmaður á sjötugsaldri
hefur verið úrskurðaður í áfram-
haldandi gæsluvarðhald til 7. októ-
ber vegna rannsóknar lögreglu á
tilraun til smygls á 20 kg af hassi og
1,7 kg af amfetamíni sem fundust í
bíl hans á Seyðisfirði í byrjun mán-
aðarins.
Varðhaldið
framlengt