Morgunblaðið - 18.09.2008, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Í FLJÓTU bragði lít ég svo á að
vegið sé að formanni flokksins með
þessari samþykkt,“ segir Kristinn
H. Gunnarsson, þingmaður Norð-
vesturkjördæmis og formaður þing-
flokks Frjálslynda flokksins, um
áskorun miðstjórnar þess efnis að
Jón Magnússon verði formaður
þingflokksins.
Á mánudag samþykkti miðstjórn-
arfundur Frjálslynda flokksins um-
rædda áskorun, sem Eiríkur Stef-
ánsson lagði fram. Í greinargerð
með ályktuninni kemur fram að lög
flokksins kveði skýrt á um að flokk-
urinn eigi að leggja áherslu á aukið
lýðræði og valddreifingu í samfélag-
inu. Í því ljósi sé óviðunandi að þing-
maður FF í Reykjavík skuli ekki
hafa verið gerður að formanni þing-
flokksins eftir síðustu alþingiskosn-
ingar og flokkurinn þannig stuðlað
að auknu lýðræði og valddreifingu
innan þeirra kjördæma landsins þar
sem FF fékk kjörna alþingismenn
árið 2007.
Kristinn H. Gunnarsson bendir á
að þetta sé í annað sinn sem vegið sé
að Guðjóni Arnari Kristjánssyni,
formanni flokksins, úr flokknum á
rúmri viku. „Hann lagðist gegn
ályktuninni og þeir keyra yfir hann
engu að síður.“
Í þingflokki Frjálslyndra eru fjór-
ir menn; Guðjón, Kristinn, Jón og
Grétar Mar Jónsson. Kristinn var
ekki á miðstjórnarfundinum en
áréttar að verkaskipting í þing-
flokknum sé málefni þingflokksins
en ekki miðstjórnar og málið verði
ráðið til lykta á þeim vettvangi en
ekki annars staðar.
Kristinn segir um skrif Össurar
að hann líti svo á að hann skrifi af
góðum hug og sér þyki vænt um það.
„En ég ætla bara að halda mínu
striki, kynna mér málin og sjá
hverju fram vindur. Ég á svo sem
ekki von á neinu öðru en að þetta
verði í svipuðu horfi og verið hefur.
Formaður flokksins mun hafa lagst
gegn þessari ályktun og ég veit ekki
um nein áform um breytingar á
stjórn þingflokksins.“
Spurður hvort hann sé á leið úr
flokknum segir Kristinn stutt og
laggott: „Nei.“
Segir vegið að formanninum
Kristinn H. Gunnarsson hefur ekki heyrt af áformum um breytingar á stjórn
þingflokksins Miðstjórnin skorar á þingflokkinn að skipta um formann
Kristinn H.
Gunnarsson
Grétar Mar
Jónsson
Jón
Magnússon
Guðjón A.
Kristjánsson
Í MJÓAFIRÐI í Ísafjarðardjúpi urðu rof
og skemmdir víða á þjóðveginum í fyrri-
nótt. Eins höfðu ræsi undir veginum í Ísa-
firði í Djúpinu ekki undan vatnsflaumnum
og þar urðu töluverðar vegarskemmdir á
um hálfs kílómetra kafla, að sögn Geirs
Sigurðssonar, rekstrarstjóra Vegagerð-
arinnar á Ísafirði. Vegurinn um Djúp var
opnaður í gær og bráðabirgðaviðgerðum
lýkur í dag. Töluvert var kallað til af tækj-
um og mannskap til að laga þjóðveginn á
þessum stöðum.
„Þetta virðist hafa verið óhemju vatns-
magn í nótt og ummerki um að það hafi
gengið gríðarlega mikið á,“ sagði Geir síð-
degis í gær.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
MIKLAR vegaskemmdir urðu víða á Vest-
fjörðum í vatnsveðrinu í fyrrinótt. Unnið var að
viðgerð í gær og lögðu starfsmenn Vegagerð-
arinnar kapp á að opna vegina á ný fyrir um-
ferð. Þorskafjarðarheiði var eini vegurinn sem
ekki tókst að opna en aðrar leiðir sem skemmd-
ust voru að minnsta kosti orðnar færar jeppum
og stærri bílum í gærkvöldi.
„Þetta er með því verra sem komið hefur í
fleiri, fleiri ár,“ sagði Eiður B. Thoroddsen
rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Patreksfirði.
Hann sagði að mörg hundruð rúmmetrar af
vegfyllingu hefðu sópast úr nýjum vegi sem
liggur upp á Kleifaheiði, í botni Patreksfjarðar.
„Við erum að reyna að gera fært fyrir vöru-
bíla svo þeir komist í Baldur,“ sagði Eiður síð-
degis í gær. Hann kvaðst ekki hafa átt von á að
þessi vegur færi nær því í sundur. Þarna hvarf
6-7 metra há vegfylling undir bundnu slitlagi á
löngum köflum. Eiður áætlaði að það tæki tvo
til þrjá daga að laga veginn.
Víða féllu skriður á vegina
Mikil skriða féll í Patreksfirði, á veginn sem
liggur út í Örlygshöfn við fjörðinn sunnan-
verðan. Skriðan var um 50 metra breið og allt
að sjö metra þykk.
Í Fossfirði, einum af innfjörðum Arn-
arfjarðar, rann vegfyllingin frá báðum endum
brúarinnar við Foss og vöruflutningabíll fór á
hliðina í Þernudal í firðinum. Þá féllu þrjár
nokkuð stórar aurskriður á Hrafnskagahlíð í
Fossfirði og að minnsta kosti aðrar þrjár á á
Sunnhlíðinni, á leiðinni í Trostansfjörð. Unnið
var að því að ryðja skriðunum burt í gærkvöldi.
Einnig grófst vegurinn í sundur í Trostansfirði
og tókst að gera hann jeppafæran í gærkvöldi.
Á Dynjandisheiði fór vegurinn í sundur við
Dynjandisá. Þar varð jeppafært í gærkvöldi.
Vegurinn yfir Þorskafjarðarheiði fór í sundur
og varð hún ófær. Vatnselgur rauf veginn á um
10 metra kafla og ruddi burt þremur met-
ersvíðum hólkum undir veginum. Enn er lokað
þar og verður ekki reynt að gera við skemmd-
irnar fyrr en elgurinn sjatnar, að sögn Jóns
Harðar Elíassonar, rekstrarstjóra Vegagerð-
arinnar á Hólmavík.
Ljósmynd/Halldór Þórðarson
Skemmdir Mörg hundruð rúmmetrar af efni runnu úr nýlegum vegi í botni Patreksfjarðar. Vegurinn liggur upp á Kleifaheiði og er mikilvæg sam-
gönguleið. Þar var reynt að gera veginn færan svo flutningabílar kæmust að og frá ferjunni Baldri. Fullnaðarviðgerð tekur nokkra daga.
Skriður og skornir vegir
Ljósmynd/Eiður B. Thoroddsen
Viðgerð Í Fossfirði þurfti að ryðja nýju efni að brúnni þar sem vegurinn hafði skolast í burtu.
Miklar vegaskemmdir urðu víða á Vestfjörðum í vatnsveðrinu sem gekk yfir í fyrrinótt
Þorskafjarðarheiði er
enn lokuð en aðrar leiðir
a.m.k. jeppafærar
ÖSSUR Skarp-
héðinsson iðn-
aðarráðherra
fjallar um áskor-
un miðstjórnar
Frjálslynda
flokksins varð-
andi formann
þingflokksins á
vef sínum í gær.
Hann segir þing-
menn Frjáls-
lyndra hafa sett fremst í forgangs-
röð sína að tæta eigin flokk í sundur
með innbyrðis illdeilum og býður
Kristin H. Gunnarsson velkominn í
þingflokk Samfylkingarinnar.
„Langbesti leikur Kristins H.
Gunnarssonar í þessari stöðu er að
skera á festar og sækja um inn-
göngu í þingflokk Samfylkingar-
innar,“ skrifar Össur. „Hann á ekki
að láta öfgamennina í Frjálslynda
flokknum niðurlægja sig með því að
hrekjast úr embætti þingflokks-
formanns.“
Kristinn
velkominn
Össur
Skarphéðinsson
Ljósmynd/Halldór Þórðarson
Vatnsósa Ár og lækir margfölduðust í
vatnsveðrinu og höfðu ræsi og brýr ekki
undan. Þá féllu víða skriður og sumar á
vegi svo að þeir lokuðust.
EKKERT ferðaveður var víða í fyrrinótt
eins og mátti raunar sjá fyrir af veður-
spám. Samkvæmt veðurstöð Vegagerð-
arinnar við brúna yfir Kolgrafafjörð á
Snæfellsnesi slógu vindhviður í 44 m/s eft-
ir miðnætti í fyrrinótt.
Enn hvassara varð þó á Gjögurflugvelli
á Ströndum en samkvæmt sjálfvirkri at-
hugunarstöð þar fór sterkasta vindhviðan
í 47 m/s og meðalvindur í 29 m/s, að því er
fram kom á vefnum strandir.is. Sam-
kvæmt veðurmæli á Ennishálsi fóru vind-
hviður mest í 40 m/s en meðalvindur í 30
m/s á þriðja tímanum í fyrrinótt.
Rafmagn fór af í sveitunum sunnan við
Hólmavík eftir kl. 23 í fyrrinótt og var þar
rafmagnslaust fram eftir nóttu.
47 m/s vind-
hviða á Gjögri
Djúpvegurinn
lokaðist