Morgunblaðið - 18.09.2008, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.09.2008, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Helga CharlotteJónsson fæddist í Königsberg í Þýskalandi 15. júlí 1926. Hún andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 10. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Alberta Klitsch, f. 11.10. 1893, d. 1947 og Franz Klitsch, f. 22.5. 1891, d. 1978. Systkini Helgu voru 1) Heinz, 2) Irmg- ard, 3) Gerhard, 4) Sigfrid, 5) Erna og 6) Eva, sem öll eru látin nema Erna, sem býr í Bremen í Þýskalandi. Í kjölfar stríðsins var faðir Helgu kallaður í landherinn og móður hennar og fjórum systk- inum var hjálpað til Þýskalands. Einu ári áður hafði Helga, þá átján ára gömul farið ásamt Irmgard til vinnu hjá Rauða krossinum í Lü- beck. Helga kom 9. júní 1949 ásamt öðrum Þjóðverjum með Esjunni til Íslands í atvinnuleit. Hún fékk vinnu í Brautarholti í Borgarfirði. kvæntur Önnu Finnbogadóttur, hann á einn son og tvær fóstur- dætur. 5) Stefán, f. 12.6. 1964, kvæntur Theodóru Marinósdóttur og eiga þau þrjú börn. Helga ólst upp í Þýskalandi hjá foreldrum sínum og systkinum, faðir hennar var skógarhöggs- maður og móðir hennar húsmóðir. Þar kynntist Helga sveitalífinu og hvernig lifa má af afurðum náttúr- unnar. Seinna meir bar heimili hennar og garður þess merki að mikil þekking var þar á ferð. Feg- urðarskyn hennar var ótakmark- að og færði hún allt á betri veg. Helga var húsmóðir af líf og sál en vann utan heimilis við ýmis störf og var hún rómuð fyrir dugnað og glæsileika hvar sem hún kom. Helga og Jón Ingimar bjuggu alla tíð í Reykjavík, lengst af í Miðtúni. Helga og Jón áttu land á Selströnd í Steingrímsfirði með elju og dugnaði byggðu þau sér sumar- bústað og eyddu flestum sumrum með börnum sínum þar. Helgu leið þar mjög vel og helst með hamar og sög í hönd. Alla tíð hefur Helga haldið bústaðnum við sjálf þó að heilsa og aldur hafi færst yfir. Eft- ir að Helga varð ekkja fluttist hún fljótlega í Gullsmára 11 í Kópa- vogi. Árið 2002 flutti Helga á Hrafnistu í Reykjavík. Útför Helgu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Síðar réð hún sig hjá kaupfélagsstjóranum í Borgarnesi. Þar kynntist hún Jóni Ingimari Jónssyni múrara, f. 12.1. 1917, d. 5.2. 1988. Þau giftu sig 9. desember 1949. Foreldrar hans voru Guðbjörg Gests- dóttir húsfreyja, f. 12.10. 1895, d. 3.8. 1968 og Jón Konráðs- son bóndi og smiður, f. 23.9. 1891, d. 7.9. 1961. Þau voru frá Hafnarhólma á Selströnd í Strandasýslu. Börn Helgu og Jóns Ingimars eru: 1) Reynir Hólm, f. 25.8. 1951, kvæntur Önnu Stefáns- dóttur, þau eiga þrjú börn og fjög- ur barnabörn. 2) Sigrún Hólm, f. 3.12. 1953, gift Benedikt Arasyni, þau eiga tvö börn og eitt barna- barn. 3) Haukur Franz, f. 11.8. 1957, á einn son úr fyrra hjóna- bandi með Henný Rós. Haukur er í sambúð með Auði Hafsteins- dóttur, hún á tvær dætur sem Haukur hefur gengið í föðurstað. 4) Jón Ingimar, f. 12.11. 1961, Elsku mamma, tengdó. Alltaf barstu þig vel þrátt fyrir vanlíðan vegna svima og háþrýst- ings. Varst sjaldnast rúmföst og þú vildir alltaf vera á ferðinni. Þó skrokkurinn væri bilaður og gamall þá var höfuðið frekar ungt. Þú varst alltaf svo hugmyndarík í hugsun og fylgdist með öllu. Þú sagðir okkur sögur frá því þegar þú varst ung og þurftir að flýja undan stríðinu. Hvernig þú fékkst vinnu hjá hernum og þegar þú faldir þig í skóginum ásamt öðru fólki á daginn og svo ferðaðist þú á nóttinni með birgðir fyrir flugher- inn. Hvernig þú týndir fjöldskyld- unni og vinum í marga mánuði og hve einmanalegt og erfitt það hafi verið. En í sama stað gerði þetta þig sjálfstæða og ákveðna. En þú sagðir að besta gæfan fyr- ir þig hafi verið að koma til Íslands. Þú varst orðin mikill Íslendingur og varst mikið fyrir íslenskan mat. Heimili þitt og pabba var alltaf til fyrirmyndar og þú vannst mikið. Keyptir þér skrautmuni og varst alltaf að fegra heimili þitt. Garð- urinn þinn var ótrúlegur og var alltaf mikið fallegri en hjá öðrum. Þú elskaðir að fara á Strandirnar með fjöldskyldunni til að verja sumrunum þar í friðsælli nátt- úrunni . Þar hafðir þú líka alltaf nóg að gera, bæta og fegra bústað- inn og byggja við ný herbergi. Og löngu eftir að þú varst orðin ekkja þá hélst þú áfram með hamarinn og sögina. Við hlógum alltaf þegar þú fékkst jólakort frá Húsasmiðjunni því þar voru allir farnir að þekkja þig, full- orðna konuna. Börnin þín, tengdabörn og barnabörn hafa aldeilis notið góðs og verða helst að fara þangað á hverju ári. Kveðjum þig nú og hvíl í friði, elsku mamma mín og tengda- mamma. Jón Ingimar og Anna. Elsku Helga, nú ertu farin frá okkur. Okkar kynni byrjuðu fyrir 11 árum, þegar við Haukur, sonur þinn, kynntumst og síðar byrjuðum að búa saman. Á þessum tímamót- um rifjast upp fjölmargar góðar minningar frá ánægjulegum stund- um, sem við fjölskyldan áttum sam- an með þér. Þessar minningar munum við varðveita í hjarta okkur um ókomna tíð. Þú varst góð, hörkudugleg og ákveðin kona og ef eitthvað þurfti að framkvæma, varð það alltaf að gerst strax. Þú gast ekki beðið. Þú varst vön að framkvæma hlutina sjálf í staðinn fyrir að bíða, þó að börnin þín og aðrir væru ekki alltaf ánægð með það. Þegar þú tókst ákvörðun, varð þér ekki haggað. Okkur er minnistætt fyrir um fjórum árum, að þú vildir komast norður á Strandir í sumarbústaðinn þinn, sem var þér mjög kær. Við gátum ekki gefið þér ákveðið svar um það hvort eða hvenær við ætl- uðum norður, þannig að þú varst ekkert að bíða heldur keyrðir bara sjálf alla leið á bílnum þínum eins og þú varst áður vön að gera. En þessi ferð var heldur erfiðari, þar sem aldurinn var farinn að segja til sín. Og eins og þú sagðir sjálf, þá vissirðu ekki hvernig þú fórst að því, en á leiðarenda komstu án áfalla. Okkur leist hins vegar ekki á blikuna og fórum við því á eftir þér og keyrðum bílinn þinn til baka. Við eigum erfitt með að trúa því, að þú sért farin frá okkur, ekki síst þar sem þú ert búin að tala um það sl. 10 ár að þú eigir ekki eftir að fara aftur í sumarbústaðinn þetta árið eða lifa önnur jól. Við erum svo afskaplega glöð að hafa drifið okk- ur öll saman norður á Strandir í sumarbústaðinn s.l. júní þar sem þú fékkst að njóta þín í síðasta sinn og að sjálfsögðu varstu á fullu allan tímann. Þó að aldurinn og heilsa þín hafi aðeins verið farin að hafa áhrif á dugnaðinn og framkvæmda- semina, léstu það ekki á þig fá, þú kunnir ekki að taka því rólega. Þú varst eins og stormsveipur þegar þú komst norður. Vildir helst gera allt á sama augnablikinu. s.s. að laga til, elda mat, baka pönnuköur, smíða og laga til í garðinum. Við eigum eftir að sakna þín, elsku Helga okkar og munum við minnast allra góðu samverustund- anna okkar þegar þú komst í mat heim til okkar Hauks og ekki síst stundanna norður á Ströndunum. Þú tókst á móti fósturdætrum Hauks eins og þær væru þín eigin barnabörn og alltaf fannst þér gaman að gefa og gleðja og varst vön að lauma einhverju smáræði til dætranna, þegar við hittumst. Þeg- ar dætur okkar voru yngri vildu þær svo gjarnan fara í heimsókn til þín, því þær vissu að þú áttir alltaf til eitthvað gott í gogginn. Elsku Helga, nú þegar þú ert farin frá okkur eigum við eftir að sakna þess mikið að geta ekki glatt þig með því að baka smákökur fyrir jólin, búa til rúsínublóðmör og annan mat sem þér þótti svo góður og varst svo glöð þegar við færðum þér þetta. Ástar- og saknaðarkveðja, elsku mamma, amma og tengdó. Minning þín er ljóslifandi í huga okkar allra. Haukur, Auður, María Björk og Sandra Dögg. Nú þegar ég fylgi Helgu tengda- móður minni hinstu sporin er margt sem flýgur í gegnum hug- ann. Helga C. Jónsson er fædd í Helga Charlotte Jónsson ✝ Árni IngvarMagnússon prentmyndasmiður fæddist á Þórodds- stöðum í Grímsnesi 18. október 1928. Hann lést á Land- spítalanum 12. september síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Magnús Eyjólfsson frá Snorrastöðum í Laugardal og síðar bóndi á Þórólfs- stöðum og organ- isti, f. 12.7. 1891, d. 1.6. 1983, og Hallbjörg Ingvarsdóttir, f. í Mið- dal í Laugarvatnshreppi 30.4. 1893, d. 2.3. 1985. Bjuggu þau hjónin á Þóroddsstöðum en 1936 fluttu þau til Reykjavíkur og stunduðu kúabúskap og mjólkur- sölu en síðar brugðu þau búi og bjuggu ávallt eftir það á Nönnu- götu í Reykjavík. Árni kvæntist 1.7. 1955 Guð- Árni hóf nám í prentmynda- smíði í Leiftri hf. 1945 og lauk sveinsprófi frá Iðnskólanum í Reykjavík 1949. Hann stofnaði síðan ásamt nokkrum félögum fyrirtækið Prentmót 1958 sem hann rak að lokum einn frá árinu 1994 til 2007. Árni stundaði fim- leika í KR, lengstum undir leið- sögn Benedikts Jakobssonar, og sýndi með meistaraflokki hans víða erlendis og innanlands fram yfir 1970. Var hann einnig að- alfánaberi liðsins. Ýmis trún- aðarstörf innti hann af hendi fyr- ir félagið, var í stjórn fimleikadeildar KR 1946–1973 og þar af formaður hennar 1950– 1968. Árni var sæmdur gullmerki KR 1965. Enn fremur var hann í stjórn Fimleikasambands Íslands á árunum 1970–1979. Árni sinnti einnig félags og trúnaðarstörfum fyrir Félag prentmyndasmiða og sat þar í stjórn um skeið og var auk þess í sveinsprófsnefnd fé- lagsins. Einnig var hann einn af stofnendum Fornbílaklúbbs Ís- lands árið 1977 og var í fé- lagstengslanefnd klúbbsins 1978– 1984. Útför Árna fer fram frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 15. finnu Gissurardóttur frá Selkoti í A-Eyja- fallahreppi, fyrrver- andi stjórnarráðs- fulltrúa í fjármála- ráðuneytinu, f. 1.7. 1934. Hún er dóttir Gissurar Gissurar- sonar, bónda og hreppstjóra í Sel- koti, f. 5.6. 1899, d. 30.12. 1984, og Gróu Sveinsdóttur, f. 18.7. 1905, d. 17.12. 1994. Árni og Guðfinna byggðu sér heimili á Nönnugötu 16 í Reykjavík og var það ávallt heimili þeirra. Börn þeirra hjóna eru Jón Arnar við- skiptafræðingur í Reykjavík, f. 21.11. 1955, dóttir hans og Sigur- veigar Björgólfsdóttur er Ísold Jónsdóttir, f. 18.9. 1997; og Halla Margrét, söngkona í Parma á Ítalíu, f. 23.4. 1964, gift Paolo Di Vita, dóttir hennar er Guðfinna Hlín Kristjónsdóttir, f. 25.5. 1991. Elsku afi minn, lítið bréf mun aldr- ei geta lýst hversu mikill höfðingi þú varst og ert enn í hjarta okkar. Alltaf muntu lifa í blóði okkar, alltaf mun andi þinn fylgja sporum okkar. Alltaf mun minning þín eiga stað í hjarta okkar. Aldrei gleymi ég er þú stóðst upp í veislu á fermingardegi mínum veikur orðinn og hélst hjartnæma ræðu fyr- ir framan fullan sal af fólki. Orð þín greyptust í hjarta mitt er þú talaðir fallega til mín og til allra ungmenna og foreldra. Þú minntist á hálkubletti sem oft liggja á vegi okkar unglinga og hversu nauðsynlegt væri að bera salt á þá sem fyrst svo að engin slys hlytust af. Elsku afi, oft sást þú um að bera salt á hálkubletti mína og gott var að vera þér samferða bæði á sumar- og vetrarvegi mínum. Mikill lífskennari varstu og mun ég geyma ráð þín í hjarta mér og vera til staðar og bera salt á hálkubletti í vegi litlu elsku Ís- oldar sem ófermd er. Alltaf gat ég talað við þig og fengið vönduð svör við vangaveltum sem gátu verið spaugilegar, mér flóknar og oft lengi geymdar í huga mér og ávallt tókstu mig alvarlega og svar- aðir alltaf af heilum hug. Þessi svör munu einnig bíða litlu frænku. Hetja verðurðu alltaf. Óbrjótandi klettur sem margt stórbrimið skall á og voru veikindi þín þar engin und- antekning. Þú barðist á móti þeim hetjulega og með bros í augum og kvartaðir aldrei. Ég vissi að góðar minningar, ekki síst um fjölskylduna, byggðu þig upp fyrir erfiða lyfjakúra en vita máttu að sömu minningar byggja okkur nú upp fyrir komandi tíð. Erfitt verður að feta í stór fótspor, en þú kenndir mér að sigla í ölduna óhrædd og gefast aldrei upp. Elsku afi minn, takk fyrir góða samveru, hlýju, ást, gáfu og styrk. Þetta eru aðeins lítil orð um stóran mann á leið í Drottins ljósi. Elsku afi, góða ferð. Þin stolta Skvetta, þín elskandi Guðfinna. Látinn er Árni Magnússon, prent- myndasmiður og fimleikamaður. Árni var frændi minn og KRingur. Það gat sem sagt ekki verið betra sambandið enda traust vinátta okkar í milli alla tíð og gagnkvæm virðing. Við Árni vorum þremenningar. Amma hans, Katrín, var systir Ell- erts afa míns. Þau voru bæði skilin eftir hjá vandalausum, eftir að móðir þeirra dó og faðirinn flutti til Am- eríku á síðari hluta nítjándu aldar- innar. Árni gekk ungur í Iðnskólann og lærði prentmyndagerð og starfaði sem slíkur alla sína tíð. Fyrst hjá Leiftri en síðar sjálfstætt með fé- lögum sínum. Þegar ég sá um útgáfu skólablaða, félagsblaða eða sér- stakra tímarita á unga aldri, átti ég samstarf við Árna og naut fagþekk- ingar hans og þjónustu. Kurteisi, fal- leg framkoma og heiðarleiki voru aðalsmerki hans. En Árni var meira en fagmaður í prentmyndagerð. Fimleikar voru hans ær og kýr. Ungur fór hann að sýna fimleika með sýningarhópi KR. Þeir sem eldri eru muna þessa fim- leika, bæði karla og kvennahópa. Við öll hátiðleg tækifæri var boðið upp á fimleikasýningar þar sem íturvaxnir ungir menn og konur gengu fram undir íslenskum fána, tóku flikk flakk og heljarstökk og allt hvað eina við mikla hrifningu. Árni var jafnan í fararbroddi með sínum félögum, fánaberi og ímynd þessar fögru íþróttar. Þeir voru ómissandi á þjóðhátíðum, út um allt land og fóru margsinnis í sýningar- ferðir til Norðurlanda, þar sem þess- ir fulltrúar íslenskrar æsku unnu hug og hjörtu áhorfenda. Hann var ungur kosinn í stjórn fimleikadeildar KR og sat í henni í tuttugu og sjö ár, þar af formaður deildarinnar í átján ár. Hann var einnig um hríð stjórn- armaður í Fimleikasambandi Íslands og keppti og vann til verðlauna þegar slík keppni í fimleikum var tekin upp. Já, Árni var glæsilegur og ógleyman- legur fimleikamaður og forystumað- ur á þessum vettvangi, enda bar hann það með sér alla tíð og fram á eldri ár, teinréttur, grannur og léttur í spori. Þegar saman fór prúð- mennska og fagur limaburður, hátt- vísi og myndarskapur, var ekki leið- inlegt að láta þess getið hver skyldleiki okkar væri. Með Árna er fallinn í valinn góð- borgari og gæfumaður. Tvö börn á Árni með konu sinni, Guðfinnu, Jón Arnar viðskiptafræðing og Höllu Margréti söngkonu. Þau syrgja nú föður sinn og eiginmann og við hin kveðjum KRinginn og heiðursmann- inn Árna Magnússon með þökk fyrir framlag hans og sameiginlega veg- ferð. Megi minning hans lifa. Ellert B. Schram. Fyrir hönd Fornbílaklúbbs Ís- lands viljum við minnast Árna Magn- ússonar, en Árni var einn af stofn- félögum Fornbílaklúbbsins. Árni var virkur félagi í FBÍ í mörg ár og var liðtækur við að taka að sér fundarstjórn á aðalfundum félagsins og gerði það með röggsemi, en Árni var ákveðinn og fastur fyrir ef á þurfti að halda enda vanur félags- málum. Árið 1979 tók Árni að sér að sitja í félagatengslanefnd klúbbsins ásamt Kjartani Friðgeirssyni og Ásmundi Jónassyni; störfuðu þeir saman í fimm ár, og héldu þeir félagar áfram að hittast reglulega framundir síð- ustu daga Árna til að ræða áhuga- málið og það sem efst var á baugi hjá klúbbnum þá stundina. Nefndin stóð til að mynda fyrir fyrstu utanbæjarferðum sem voru farnar á vegum FBÍ og öðrum akstri sem farinn var um höfuðborgar- svæðið og var þá gott að hafa Árna með því hann þekkti marga og greiddi oft götur klúbbsins ef á þurfti að halda. Vetrarstarfið hjá nefndinni var fjölbreytt á þessum árum, staðið var fyrir skemmtifundum með harm- onikkuleik, dansi, fræðsluerindum, kvikmyndasýningum og haldnar árhátíðir. Stærsta verkefni nefndar- innar var að koma á laggirnar að- stöðu til vikulegra funda þar sem fé- lagsmenn gætu hist yfir kaffibolla og rætt áhugamálið og fengu þeir fé- lagar lánað ris í gömlu húsi við Sölv- hólsgötu í Reykjavík til að koma upp fyrstu félagsaðstöðu klúbbsins. Árni hafði gaman af að fást við að laga og halda við bílunum sínum, enda átti hann þá lengi og eldri fé- lagar muna eftir Árna í ferðum á gráa Morrisnum sem var heimilis- bíllinn hjá Árna frá 1958 til 1980, en 1971 eignast hann nýja Cortinu sem átti að taka við af gamla „Móra“ en Cortinan þótti ekki eins lipur og „Móri“ og var því lítið notuð. Árni Ingvar Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.