Morgunblaðið - 18.09.2008, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 18.09.2008, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ EMILÍANA Torrini stekkur upp í fyrsta sæti tónlistans með nýja plötu, Me and Armini. Var vissu- lega kominn tími til að velta ABBA- söngvamyndarplötunni Mamma Mia! úr toppsætinu, eftir margra vikna setu. Platan var nánast gróin við fyrsta sætið og menn jafnvel farnir að velta því fyrir sér hvort hún myndi sitja þar fram að jólum. Me and Armini hefur fengið fína dóma það sem af er í erlendum fjöl- miðlum. Þá var lag af plötunni, „Big Jumps“, lag vikunnar í byrjun mánaðar á vef dagblaðsins Times sem hafði ekkert nema gott um það að segja og kallaði Emilíönu engil frá Íslandi. Ekki amalegt það. Safnplötur virðast falla vel að hlustum landans, ein slík í þriðja sæti, Ég fíla 90’s, sem þýðir á ís- lensku: Mér líkar vel við tónlist frá 10. áratug 20. aldar. Metallica- aðdáendur munu vera mýmargir og hljóta að svekkja sig á því að ný skífa sveitarinnar, Death Magnetic, skuli ekki komast ofar en í 4. sæti. Metallica er jú ekki allra, þó svo sveitin sé ein sú mikilvægasta í sögu þungarokksins. Platan Sýnir kemur í kjölfar Metallicu, geymir lög eftir Bergþóru heitna Árnadótt- ur í flutningi fjölda þjóðkunnra tón- listarmanna. Þá nýtur plata með lögum Vilhjálms Vilhjálmssonar enn gífurlegra vinsælda.                              !                  "  # $ $% %& %'() *+ , % '#  %'-./)%()             !"#$ %!&  '(!& $ '(!&  )* +!,  * * - $.!"#    -*/ 0$1 / *  # #2 -*$ 3" 455   )6 * )  455  7 8 9 :2 +!, ;& <            ! "   # $  %   &' ()*  +  , -* .-&' / 0*) ' 1*  ) *)  %* 2) 0*  33 4-  5 * 1 )2    ) 1)* -)* - 4- 6 7 82  8 ! 4  9  % :           01/ 2-. )  "  " 3 45 6 5      %   27+ "   " 0808 &,9 :;, %   <;<            $%0.'(  ',=>?'@A    )!2 -& (  ="  2  : +**7$ 8 9 = > ? *" * '1$*$1  %  05 8  % * @# A ** -*$ 3" 48B:8 C6,  0#$*  -& (  ="  2  3  * +$55  (  =    ;< 7-  2) "+  )  ' ; )   77  ) =*  4   $   $<7*  :     * 82  8 > ?-* ! $0   $@  5-*  $ A / B C-  * >  ' % * 2 %  * (-#7  (- D  :< E )  4- ) 2    F$G  C " > !-  C  D- E   %- H< * ** & ?-*  7 > (           7%08    &,9 B  9)   " "  (,5 / %   27+  (,5 C% 5  B  "  "   Emilíana sest í ABBA-sætið Torrini Mamma Mia! er komin í 2. sætið, Emilíana sá til þess. ÞEGAR haustlægðirnar skella á manni er gott að hlýða á hressandi og jákvæð lög á borð við þau sem eru í fyrstu tveimur sætum lagalist- ans, „Þú komst við hjartað í mér“ með Hjaltalín og „Það amar ekkert að“ með Sálinni hans Jóns míns. Sannarlega gott að kyrja þessi lög undir fréttum af bankagjaldþrotum og kreppuástandi hvers konar. Útgáfa Hjaltalín af poppsmelli Páls Óskars hefur klifrað upp listann hægt og bítandi seinustu vikur og ætti því ekki að koma á óvart að hún sé loks komið á topp- inn. Fyrstu fjögur lögin á lista eru öll íslensk, merkilegt nokk, Dikta og Baggalútur eiga þau sem eru í 3. og 4. sæti. Baggalútur syngur um stúlkurnar á internetinu sem ylja mönnum í mesta hretinu. Það má því segja að hressleikinn og já- kvæðnin sé viðvarandi hjá hinum ís- lensku flytjendum, þó svo gall- harðir femínistar geti eflaust fundið margt athugavert við texta Baggalúts-manna. Coldplay-menn eru enn á lista með „Viva la Vida“ og virðist sem önnur lög af plötunni Viva la Vida or Death and All His Friends nái ekki hlustum manna, í það minnsta ekki inn á lagalistann. Annars er ís- lenskt í meirihluta, 11 lög af 20 verk íslenskra listamanna. Það hlýtur að kitla þjóðarstoltið. Ást og hamingja í rigningu og roki JÆJA, þá eru frísku fjörkálfarnir í Bloc Party hoppaðir upp á „gefum út strax án þess að láta kóng né prest vita“ vagninn. Þessari þriðju plötu sveitarinnar var dúndr- að út á stafrænu formi hinn 21. ágúst en efn- islegt form er væntanlegt í endaðan október. Radiohead og Raconteurs hafa gert svipaða hluti en Bloc Party líta út eins og ólmir nördar sem vilja komast inn í teiti með fyrrnefndum meisturum. Bráðræði í að koma nýju efni út verður að haldast í hendur við það að menn hafi þá eitthvað í höndunum Of mikið, of fljótt Bloc Party – Intimacy bbnnn Arnar Eggert Thoroddsen ÞAÐ eru fáir tónlistarmenn jafn ötulir – eða á maður kannski að segja óhræddir – við að senda frá sér tónleikaplötur og alt-kántrí- kóngurinn Bonnie Prince Billy (Will Old- ham). Síðasta tónleikaplata listamannsins Winding in the West var ákveðin vonbrigði en hér eru á ferðinni afbragðsupptökur BBC frá tónleikaferð Bonnie Prince um Skotland og Írland árið 2006 þar sem hann naut m.a. liðsinnis Skotanna í Harem Scar- em. Á meðal þeirra laga sem heyra má á plötunni er „Love Comes to Me“, upphafslag plötunnar The Letting Go (2008) sem hann hljóðritaði hér á Íslandi með Valgeiri Sigurðssyni. Stjörnu-tónleikar Bonnie Prince Billy – Is It The Sea? bbbbn Höskuldur Ólafsson HEILAGUR Aschroft af Wiganskíri er upp- risinn með postula sína í tygi með sér, og meira að segja Pétur sjálfur, aka Nick McCabe er með í för. Forth er um margt merkileg plata, en því miður ekki vegna tón- listarlegra gæða. Jú jú, þetta er fínt. Allt í lagi. Platan skríður áfram með sæmilegustu reisn og er dægileg hlustunar, en geldur fyrst og fremst fyrir það að nú er 2008, ekki 1997. Þetta er arins- og rauðvínsend- urhljóðblöndun á Urban Hymns, varla eitthvað sem hans háæruverðugleiki sættir sig við. Eða hvað? Menn eru nú einu sinni komnir á fertugsaldurinn … Fram fram fylking The Verve – Forth bbbnn Arnar Eggert Thoroddsen / KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA SÝND Í KRINGLUNNI Saga George Lucas heldur áfram SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI -TOMMI - KVIKMYNDIR.ISSÝND Í KRINGLUNNI SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI - L.I.B. topp5.is/Fréttablaðið SÝND Í ÁLFABAKKA Stórbrotin ævintýramynd sem allir ættu að hafa gaman af!SÝND Í ÁLFABAKKA JOURNEY TO THE CENTER OF THE... kl. 5:50 3D - 8 3D - 10:10 3D LEYFÐ 3D - DIGITAL DEATH RACE kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára DARK KNIGHT kl. 8:30 B.i. 16 ára DARK KNIGHT kl. 5:40 - 8:30 B.i. 16 ára LÚXUS VIP SVEITABRÚÐKAUP kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ TROPIC THUNDER kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára THE MUMMY 3 kl. 6 B.i. 12 ára STAR WARS: C. W. kl. 5:50 LEYFÐ WALL • E m/ísl. tali kl. 5:50 LEYFÐ JOURNEY TO THE CENTER OF THE EARTH kl. 63D - 8:103D - 10:203D LEYFÐ 3D - DIGITAL SMART PEOPLE kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára DEATH RACE kl. 10:10 B.i. 16 ára GET SMART kl. 5:50 - 8 LEYFÐ EIN FLOTTASTA ÆVINTÝRAMYND ÁRSINS MEÐ ÍSLENSKU LEIKKONUNNI ANÍTU BRIEM Í EINU AF AÐALHLUTVERKUNUM. DENNIS QUAID, SARAH JESSICA PARKER, ELLEN PAGE, OG THOMAS HADEN CHURCH Frábær gamanmynd frá framleiðendum Sideways. VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG “HUGGULEGT GAMANDRAMAÍ ANDA JUNO OG SIDEWAYS” -TOMMI, KVIKMYNDIR.IS „...VEL LEIKIN OG ÓVENJU VEL SKRIFUÐ GAMANMYND...“ „PAGE VINNUR LEIKSIGUR Í HVERRI MYND...“ -S.V. Morgunblaðið. - H.G.G., POPPLAND-GUARDIAN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.