Morgunblaðið - 18.09.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.09.2008, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Andra Karl andri@mbl.is „HANN fer ekki mikið en við fjöl- skyldan verðum svolítið að halda líf- inu áfram. Nú eru krakkarnir byrj- aðir aftur í skólanum og þetta er sérstaklega erfitt þar sem við búum úti á landi,“ segir Lilja Sigríður Jónsdóttir þar sem hún situr við rúmstokk eiginmanns síns, Gísla Sverrissonar, en hann hlaut hrygg- brot og alvarlegan mænuskaða í byrjun mánaðar. Gísli, sem er lam- aður fyrir neðan brjóst, var fluttur á Grensásdeild Landspítalans á þriðjudag og er á fyrstu stigum langrar og erfiðrar endurhæfingar. Hann lætur þó engan bilbug á sér finna. Slysið varð 2. september sl. í Kjarnaskógi sunnan við Akureyri. „Við hjóluðum svolítið upp í skóginn eftir hjólastígum. Biðum svo eftir að allir kæmu upp, tíndum bláber og nutum lífsins,“ segir Gísli. „Þegar allir voru komnir dóluðum við okkur svo af stað niður. Við fórum um mel, en þar var ekki hjólastígur. Ég var fremstur og einhvern veginn gerðist það að ég fór fram af svona smá- stalli. Framdekkið skall á barði og ég steyptist fram yfir mig. Mér fannst eins og ég hefði lent á grjóti en veit ekki hvort það er rétt. Högg- ið kom einfaldlega beint á hrygginn, talsvert fyrir neðan hjálminn, og ég fann strax að ég var stórslasaður.“ Gísli tekur fram að hann hafi hjól- að mjög hægt og ekki hlotið aðra skrámu á líkamann. Hann veltir því einnig fyrir sér hversu oft hann hafi nú dottið á hausinn á lífsleiðinni. Erfið leið úr skóginum Gísli var á ferð ásamt félögum sínum í hjólahópi frá líkamsrækt- arstöðinni Bjargi. Innan hópsins voru m.a. læknir og geislafræð- ingur. Fékk hann því fyrsta flokks fyrstu hjálp. „Það var stórkostlegt að hafa svona fólk í kringum sig, aldrei nein taugaveiklun. Ég trúi því varla sjálfur hvað ég var rólegur.“ Biðin eftir sjúkrabörum virtist þó löng enda varð slysið frekar langt inni í skógi og Gísli átti fremur erfitt með andardrátt. Eftir erfiða leið niður var hann fluttur með hraði á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri þar sem hann fór í röntgen- myndatöku. Í kjölfarið var flogið með hann til Reykjavíkur og á gjör- gæsludeild. Byrjaði á að æfa öndunina Daginn eftir fór Gísli í aðgerð þar sem beinin voru víruð saman. Brotið var á milli neðsta hálsliðar og efsta hryggjarliðar. Aðgerðin heppnaðist vel en álagið á mænuna var gríð- arlegt og er hún væntanlega enn mjög bólgin. Afleiðingarnar eru því ekki enn alveg ljósar. Strax daginn eftir slysið hófst endurhæfing. „Þá byrjaði ég að æfa öndunina. Og það skiptir mjög miklu máli. Hætta er á að neðsti hluti lungnanna fylli sig ekki ef maður er latur að æfa öndunina og þá eykst hættan á lungnabólgu.“ Gísli hefur ekki náð fullum mætti í hendurnar en sér fram á að fá mest- an kraft í þær aftur. „Svo þarf að þjálfa fæturna og reyna að liðka svo þeir stífni ekki. Það er mjög mik- ilvægt.“ Óhætt er að segja að lífið hafi tek- ið stakkaskiptum hjá Gísla, sem er 47 ára. Hann hefur alla sína tíð ver- ið mikill útivistarmaður, hlaupið og hjólað auk þess að stunda líkams- rækt af kappi. Hann segir það raun- ar hjálpa sér í endurhæfingunni að hafa verið í góðu formi. „En svo veit maður ekki neitt hvort einhver bati verður. Það er hægt að segja að hendurnar komist í samt lag, en fyrir neðan brjóst- kassa; ekki er hægt að segja til um það. Þetta snýst allt um hversu mik- ill skaði hefur orðið á mænunni. Ef það koma í ljós taugar sem eru í lagi þegar bólgan hjaðnar yrði það til að mynda mjög jákvætt.“ Gísli og Lilja eiga fjögur börn, Al- dísi sem er í námi í Kaupmannahöfn og Eyrúnu, Tómas og Bjarka sem eru 18, 14 og 7 og búa enn heima. Systir Gísla flutti inn á heimili þeirra á Akureyri og er þar eins og sakir standa svo Lilja geti verið í Reykjavík hjá Gísla. „Það er ótrú- legur stuðningur að fá þau í heim- sókn,“ segir Gísli. „Nærvera þeirra hefur hjálpað mér mikið. Svo er það allur þessi velvilji sem maður finnur fyrir.“ Sá velvilji hefur m.a. skilað sér í að vinir og kunningjar hafa ákveðið að efna til fjársöfnunar á laugardag. Fjársöfnunin felst í Skíðastaða- trimmi og verður gengið, hjólað eða hlaupið upp í Hlíðarfjall. Lagt verð- ur af stað frá Gúmmívinnslunni og þátttökugjald er frjálst framlag. Jafnframt hefur verið opnaður söfnunarreikningur fyrir Gísla. „Þetta er hreint út sagt ótrúlegt og við viljum skila endalausu þakk- læti,“ segir Gísli og Lilja bætir við. „Við vissum og vitum ekkert út í hvað við erum að sigla en vinir okk- ar voru fljótir að átta sig á því að þetta eru stórar breytingar á lífi okkar og hafa brugðist vel við. Þau vilja einnig þakka fyrir frá- bæra umönnun, bæði á gjörgæslu- deild og á heila-, tauga- og æða- skurðdeild í Fossvoginum sem þau segja vera fyrsta flokks. Tekur bara einn dag í einu  Gísli Sverrisson hlaut hryggbrot og alvarlegan mænuskaða eftir reiðhjólaslys í byrjun mánaðar  Hann er á fyrstu stigum langrar og erfiðrar endurhæfingar en lætur engan bilbug á sér finna Í HNOTSKURN »Áætlað er að um 3,5-4,5milljónir manna í heim- inum búi við mænuskaða vegna slysa. Á Íslandi eru það um hundrað manns. »Mænuskaði er einn alvar-legasti skaði sem ein- staklingur getur hlotið. »Vinir og velunnarar Gíslahafa hafið söfnun fyrir hann. Reikningsnúmerið er 0565-14-400216. Kt. 180561-7069. Morgunblaðið/Frikki Saman Lilja Sigríður Jónsdóttir víkur ekki frá eiginmanni sínum, Gísla Sverrissyni, en hann er á Grensásdeild. Mænuskaðastofnun Íslands var stofnuð 11. desember á síðasta ári. Markmið hennar er að stuðla að því með öllum tiltækum ráðum að lækning á mænuskaða verði að veruleika. Og vekja athygli á mál- efninu á alþjóðavettvangi. Stofnunin fór nýverið af stað með landssöfnun sem nær há- marki annað kvöld. Þá verður bein sjónvarpsútsending á Stöð 2 þar sem m.a. koma fram landsþekktir skemmtikraftar, mænuskaddaðir einstaklingar segja sögu sína sem og aðstandendur þeirra. Einnig er hægt að leggja stofn- uninni lið með kaupum á gesta- þrautum úr tré sem meðal annars eru seldar í líkamsræktarstöðvum World Class, þjónustuverslunum N1, flestum sjúkrahúsum og fleiri stöðum. Auk þess verður sérstakt söluátak í verslunarmiðstöðvunum Smáralind og Kringlunni á morg- un. Söfnunarféð verður notað til að styrkja rannsókn en til þess þarf 80 milljónir króna. Fáist fjár- magnið er hægt að senda átta sjúklinga í tilraunameðferð. Landssöfnun í beinni útsendingu annað kvöld ÞÓRUNN Sveinbjarnardóttir um- hverfisráðherra og Framtíðar- landið opnuðu í gær náttúrukort Ís- lands. Tilgangur kortsins er að vera fræðandi og upplýsandi miðill um virkjunaráform á Íslandi, sam- kvæmt frétt Framtíðarlandsins. Kortið verður endurskoðað og upp- fært reglulega, en á kortinu eru merkt þau svæði sem þegar hafa verið virkjuð og svæði sem áætlað er að virkja. Eins kemur fram hvar í virkjunarferlinu fyrirhuguð virkj- unarsvæði séu, þ.e. hvort fram- kvæmdir séu hafnar, hvort þar sé spáð í raforkuframleiðslu eða hvort svæðið sé óraskað. Morgunblaðið/Árni Sæberg Umhverfisráðherra opnar náttúrukort Íslands MITSUBISHI i MiEV er fyrsti fjöldaframleiddi rafmagnsbíll heims og var frumsýning á honum á Hilton Reykjavík Nordica hóteli í gær í tengslum við alþjóðlega ráðstefnu um orkugjafa framtíðar sem fer fram á hótelinu í dag og á morgun. Bíll framtíðarinnar Bíllinn kom beint frá framleiðend- unum og verður til sýnis á ráðstefn- unni en síðan verður farið með hann á bílasýninguna Paris Motor Show. Rafmagnsbíllinn er sagður bíll framtíðarinnar. Hann er knúinn næstu kynslóð líþíumrafhlaðna fyrir bíla sem gefur honum akstursdrægi upp á 150-180 kílómetra og hefst fjöldaframleiðsla á honum á næsta ári. Á ráðstefnunni verður líka raf- magnsmótorhjólið Killacycle til sýn- is en það er sagt kraftmesta mót- orhjól veraldar. Hjólið er knúið líþíumrafhlöðum eins og margir helstu bílaframleiðendur heims hyggjast setja í tvinn-, tengiltvinn- og rafbíla sína á næstu árum. Auk þess verða rafbílar Orkuveitu Reykjavíkur til sýnis sem og rafhjól og rafvespur. Sérfræðingar Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson opnar ráðstefnuna í dag og Hanna Birna Kristjánsdóttir, borg- arstjóri í Reykjavík, slítur henni síð- degis á morgun. Sérfræðingar í raf- væðingu samgangna og sjálfbærum lausnum meðal annars frá Toyota, Ford, Mitsubishi Motors, Vattenfall, Dong Energy, Mitsubishi Heavy Industries, Better Place, Shell Hydrogen og MIT flytja erindi á ráðstefnunni. Fyrsti fjöldaframleiddi rafmagnsbíllinn sýndur Morgunblaðið/Árni Sæberg Bíll framtíðarinnar Komið var með fyrsta fjöldaframleidda rafmagnsbíl heims, Mitsubishi i MiEV, á Hilton Reykjavík Nordica-hótelið í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.