Morgunblaðið - 18.09.2008, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.09.2008, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR VINNUVÉLAR Glæsilegt sérblað um vinnuvélar, jeppa, atvinnubíla, fjölskyldubíla o.fl. fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 3. október. Meðal efnis er: • Vinnuvélar, það nýjasta á markaðnum. • Atvinnubílar. • Fjölskyldubílar. • Pallbílar. • Jeppar. • Fjórhjól. • Verkstæði fyrir vinnuvélar. • Varahlutir. • Græjur í bílana. • Vinnulyftur og fleira. • Dekk. • Vinnufatnaður fyrir veturinn. • Hreyfing og slökun gegn daglegu álagi og áreiti. Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is. Ásamt fullt af öðru spennandi efni og fróðleiksmolum. Auglýsendur! Pantið fyrir klukkan 16, mánudaginn 27. september. ÖSSUR Skarp- héðinsson iðnað- arráðherra telur að Íslendingar eigi einstaka möguleika meðal þjóða heims á að rafvæða allar samgöngur á landi á skömmum tíma – og það án þess að byggja nýjar virkjanir. Þetta hefði í för með sér forystuhlutverk Íslendinga á sviði orkuskipta frá olíu til raf- magns. „Árið 2010 er gert ráð fyrir því að fjöldaframleiddir rafbílar með háþróuðustu gerð rafhlaðna komi á markað,“ bendir Össur á. „Við erum að ræða við rafbílafram- leiðendur um að Íslendingar njóti forgangs þegar fjöldaframleiddum bílum verður hleypt af stokkunum. Þessi ökutæki verða mjög eftirsótt og því afar mikilvægt að við tryggj- um okkur flota,“ segir hann „Hingað til hefur það hamlað vel- gengni rafbílanna hversu skamm- drægar rafhlöðurnar hafa verið auk þess sem það hefur tekið tiltölulega langan tíma að hlaða þær og loks hafa þær ekki enst vel. En nú er að líta dagsins ljós árangur af þróun- arvinnu í rafhlöðuframleiðslu sem hefur notið gríðarlegs fjármagns í heimskapphlaupinu um að leysa loftslagsvandann. Á nýju rafhlöðun- um er hægt að aka 160 km miðað við bíl sem kemur á almennan markað 2010 og það tekur ekki nema 5–15 mínútur að hlaða þær að því ógleymdu að hægt er að skipta um þær með einu handtaki.“ Össur nefnir þrjár forsendur fyrir skjótri rafvæðingu bílaflotans hér- lendis. Í fyrsta lagi þurfi tæknilega fullkomnir og fjöldaframleiddir bílar að koma inn á markaðinn og í öðru lagi þurfi ríkisvaldið að ryðja nýju tækninni braut í formi nýrra skattareglna. „Ég tel nauðsynlegt að ríkisvaldið láti rafbíla njóta sömu kosta og metanbíla, þ.e. að fella nið- ur innflutningsgjöld á þeim,“ segir hann. Tryggja þarf innviðina „Í þriðja lagi þurfa stjórnvöld í samráði við fyrirtæki og markaði að tryggja innviðina þegar rafbílavæð- ingin hefst. Tryggja þarf að þeir, sem kjósa rafbíla, geti komist allra sinna ferða og í því skyni þarf að setja upp fjölorkustöðvar í þéttbýli jafnt sem dreifbýli. Ráðuneyti mitt er nú í viðræðum við sveitarfélög, orku- og dreifingarfyrirtæki um þessa hluti.“ orsi@mbl.is Rafmagnsbílarnir eru skammt undan Iðnaðarráðuneyti ræðir við bílaframleiðendur um að setja Ís- lendinga fremst í röðina þegar rafbílavæðing hefst að fullu Í HNOTSKURN »Össur Skarphéðinssonsegist sannfærður um að það sé ekki óskhyggja að ætl- ast til þess að Íslendingar geti orðið algerlega óháðir olíu og bensíni í samgöngum. »Einn kostur er lífeldsneytien nú þegar er framleitt metan sem dugar sem elds- neyti á 3–4000 bíla og séð er fram á enn meiri framleiðslu. Össur Skarphéðinsson Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is „ÞAÐ var aldrei mokfiskirí en við veiddum vel allan tímann; fengum 40-60 tonn á sólarhring en mest voru veidd og unnin 90 tonn einn sólar- hringinn,“ sagði Páll Rúnarsson við Morgunblaðið. Hann var skipstjóri á Brimnesi RE 27 í mettúr sem lauk í fyrradag. Afli skipsins í túrnum er að verðmæti 185 milljónir króna. „Við erum auðvitað allir gríð- arlega ánægðir með túrinn. Þetta gerist ekki nema maður sé með mjög gott skip og mjög góðan mann- skap. Það er algjör forsenda,“ sagði Páll skipstjóri. Veiddu 1.252 tonn Hann sagði afköst „karlanna“ geysilega góð. „Það eru ekki nema 18 menn um borð og verðmætin því meiri á hvern haus en á hefðbundnu frystiskipi þar sem fiskurinn er flak- aður enda venjulega 26 karlar um borð þar.“ Brimnesið, sem er í eigu Brims hf., var að veiðum í 37 daga og alls veiddust 1.252 tonn. Páll skipstjóri segir að hluta aflans hafi verið landað á Akureyri fyrir skemmstu. „Við köllum það millilöndun, en svo heldur túrinn áfram með sömu áhöfn,“ sagði hann. Samtals lönduðu þeir Páll 900 tonn- um af afurðum, allt heilfrystum fiski, að hluta til hausuðum. Aflinn var að stærstum hluta ufsi, 420 tonn, en nærri 170 tonn af þorski, 130 af ýsu og afgangurinn var karfi. „Við vorum mikið fyrir vestan og norðan land, á hefðbundnum slóð- um; fyrst á Halamiðum og síðan vestur af Látrabjargi, í kringum Víkurálinn,“ sagði skipstjórinn. Páll segir Brimnesið mjög gott skip. „Það er svo sem ekki komin mjög mikil reynsla á það hjá okkur, ekki nema rúmt ár því Brim keypti skipið í endaðan júlí í fyrra en það er löngu vitað að þetta er gríðarlega öflugt skip og veiðigetan mikil. Þetta var eitt af flaggskipum Norð- manna.“ Skipið hét áður Vesttind. Met af Íslandsmiðum? Eftir því sem næst verður komist er verðmæti afla Brimnessins að þessu sinni það mesta eftir einn túr þar sem eingöngu er veitt á Íslands- miðum. „Við fórum góðan túr í Bar- entshafið þar sem Brim á kvóta; veiddum fyrir 145 milljónir í norsku lögsögunni. En þetta er besti túr sem ég hef heyrt um hér á Íslands- miðum.“ Í tilefni þessa góða túrs var áhöfn og skipi fært málverk eftir Bjarna Jónsson, blómvöndur og terta, þegar komið var til hafnar í Reykjavík snemma á þriðjudagsmorgun. Gott skip og góðir menn  Brimnes að öllum líkindum með mesta aflaverðmæti af Ís- landsmiðum  Veiddu og unnu mest 90 tonn á sólarhring Í HNOTSKURN »Venus hf., sem er í eigu HBGranda, hefur komið með mesta aflaverðmæti íslenskra togara að landi eftir því sem best er vitað. Verðmæti afla Venusar, þegar hann kom úr Barentshafi í mars á þessu ári, var 250 milljónir króna. Sá afli, mestmegnis þorskur, var allur veiddur innan norsku lögsög- unnar. Til hamingju Guðmundur Kristjánsson afhenti áhöfninni málverk að gjöf. Páll Rúnarsson skipstjóri er til vinstri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.