Morgunblaðið - 19.09.2008, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 1 9. S E P T E M B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
256. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
HEIMILIOGHÖNNUN
NÝR TAKTUR SLEGINN
Í 40 SÍÐNA BLAÐAUKA
REYKJAVÍKREYKJAVÍK
Georg Bjarnfreðar
ætlar í stjórnmálin
Fjórar saman
Nýjar
umbúðir
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Leikhúsin
í landinu >> 37
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
ÍSLENDINGAR hafa undanfarið
ár dregið úr akstri, minnkað notkun
debetkorta og eru í auknum mæli
farnir að versla í lágvöruverðsversl-
unum. Vegna falls krónunnar er
fólk farið að huga nánar að neyslu
sinni þar sem verð á mat og drykk
hefur hækkað – vörukarfa ASÍ hef-
ur hækkað um 5-7% í flestum mat-
vöruverslunum frá miðjum júní – og
bensínverðið rokið upp. Þá hefur
kaupmáttur rýrnað um 5,4%.
Að sögn Runólfs Ólafssonar,
framkvæmdastjóra FÍB, hefur
dregið úr umferð og sölu eldsneytis
hjá olíufélögunum. „Það er mark-
tækur samdráttur milli ára,“ segir
hann og bætir við að fólk hringi í
auknum mæli í FÍB til að leita ráða
um hvernig draga megi úr eyðslu
ökutækja.
Eysteinn Helgason, fram-
kvæmdastjóri Kaupáss sem rekur
verslanirnar Krónuna, Nóatún, 11-
11 og Kjarval, segir að mikil aukn-
ing hafi orðið í sölu í lágvöruverðs-
verslunum.
Eysteinn segir meira að gera í
Krónunni en áður en sama vaxtar
gæti ekki hjá hinum búðum
Kaupáss. Hann segir litlar breyt-
ingar á sjálfri neyslu fólks en hins
vegar sé greinilegt að það hugsi
betur um hvar vörurnar eru keypt-
ar.
„Við höfum séð draga úr debet-
kortanotkun núna þegar líður á ár-
ið,“ segir Haukur Oddsson, forstjóri
Borgunar. Hann segir debetkorta-
notkun einkennast af miklum árs-
tíðasveiflum en marktækur munur
sé á kortanotkuninni í ágúst milli
ára. Hann segir engar marktækar
sveiflur vera í kreditkortanotkun
enda er hún mikið bundin við stærri
greiðslur sem inna þarf af hendi, en
debetkortin séu meira notuð til að
borga fyrir daglega neyslu.
Halda að sér höndum
!
""
!
# $ %&
%& '
( )
*
+% ,
"'-.
"'.
Marktækur samdráttur
í sölu eldsneytis á bíla
Aukin sala undanfarið
í lágvöruverðsverslunum
Kaupmáttur hefur
rýrnað um 5,4% á einu ári
Mikil óánægja ríkir meðal all-
margra nemenda Keilis sem þar
búa á nemendagörðum. Í ljós hefur
komið að leigusamningar sem
gerðir voru fyrir mánuði voru
vegna mistaka rangir. Nú er nem-
endum gert að skrifa undir nýjan
leigusamning hið fyrsta ellegar
eiga á hættu að fyrri leigusamningi
verði rift og fólk sitji uppi húsnæð-
islaust á fyrstu önn. Upphæðir á
hinum nýja samningi eru hærri
sem nemur rúmlega hundrað þús-
und krónum á eins árs samnings-
tímanum og munar um minna fyrir
námsmenn. » 8
Nemendur ábyrgir
JÓHANNES Gunnarsson, formaður Neytendasamtak-
anna, segist hafa heyrt talsvert af því að fólk breyti
neysluvenjum sínum og dragi úr neyslu. Hann segir
það vera besta ráðið í stöðunni þar sem um sé að ræða
eina af fáum vörnum heimilanna til að sporna við
þeirri kjaraskerðingu er nú gangi yfir heimilin.
Róa þarf lífróður
Launin hafi lítið hækkað og ekki í takt við vöru,
þjónustu og lán. Hann segir að ekki fari framhjá
nokkrum að illa ári og að öllu óbreyttu muni mörg
heimili eiga erfitt og við þeim blasi jafnvel þrot sé
ekkert róttækt gert. Að mati Jóhannesar kalla þrengingarnar í þjóð-
félaginu á tafarlausa setningu laga um greiðsluaðlögun. Nú þegar liggi
fyrir frumvarp um slíkt hjá viðskiptaráðherra en það verði að sam-
þykkja strax í haust.
Jóhannes segir þó lög um greiðsluaðlögun ein og sér ekki leysa vand-
ann. Ljóst sé að róa þurfi lífróður til að ná verðbólgunni niður og öðlast
stöðugleika í þjóðfélaginu. ylfa@mbl.is
Breyting neysluvenja
vörn heimilanna
Jóhannes
Gunnarsson
Condoleezza
Rice, utanrík-
isráðherra
Bandaríkjanna,
sagði í ræðu í
gærkvöldi að
Rússar ættu á
hættu að ein-
angrast frá al-
þjóðasamfélag-
inu. „Árásin [á Georgíu] sýnir á
hvaða leið Rússar eru og markar
tímamót fyrir Rússland og umheim-
inn,“ sagði Rice. Hún sagði að rúss-
nesk yfirvöld hefðu gengið of langt
þegar þau réðust inn í Georgíu hinn
7. ágúst síðastliðinn, Evrópuríki og
Bandaríkin myndu ekki láta þá
komast upp með áframhaldandi yf-
irgang. » 16
Condoleezza Rice ávítar
Rússa fyrir yfirgang
SKAGAMENN, sem löngum hafa verið sigursælir í knattspyrnunni, féllu í
gærkvöld úr efstu deild. Gísli Gíslason, formaður Knattspyrnufélags ÍA,
hughreysti leikmenn sína, Árna Thor Guðmundsson og Helga Pétur Magn-
ússon, þegar þeir gengu af velli eftir jafntefli við KR. | Íþróttir
Skagamenn fallnir úr efstu deild
Morgunblaðið/hag
Jafntefli við KR var ekki nóg
Veiking krónunnar eykur
vanda heimila. Í gær bárust
fréttir frá ASÍ um 5% með-
alhækkun matarkörfunnar
síðustu 3 mánuði. » 6
Mun dýrara að lifa
Hamfarir á erlendum fjár-
málamörkuðum hafa áhrif um
allan heim en vonandi ekki
bein áhrif á fjárhag einstakra
fyrirtækja hér. » 2
Tímabundið ástand
Reykjavíkurborg greiðir 414
milljónir króna árlega í leigu á öll-
um hæðum Borgartúns 10-12.
Sviðsstjóri framkvæmda- og eigna-
sviðs segir yfirleitt hagstæðara fyr-
ir borgina að eiga húsnæði fremur
en að leigja. Ekki var hægt að fá lóð
þegar leitað var eftir því árið 2005.
Lóðin undir Borgartúni 10-12 var
hins vegar einu sinni í eigu borg-
arinnar. Hún var seld til Eyktar ár-
ið 2000 fyrir 350 milljónir kr. » 8
Seldu lóðina árið 2000
og leigja þar nú húsnæði
Morgunblaðið/Golli
Höfðatorg Ársleiga 414 milljónir.
Á yfirstandandi skólaári verður
skoðað innan hjúkrunarfræðideild-
ar hvort betur færi að breyta ljós-
móðurnámi þannig að hjúkr-
unarfræðimenntun yrði ekki
inntökuskilyrði, að sögn Ólafar
Ástu Ólafsdóttur, forstöðumanns
náms í ljósmóðurfræði við Háskóla
Íslands.
Hefði það þær afleiðingar að nám
ljósmæðra styttist úr sex árum í
fimm. Ljósmæður gætu áfram bætt
við sig námi til að hafa tvöfalt
starfsleyfi, hjúkrunarfræðings og
ljósmóður, líkt og ljósmæður hafa í
dag. » 4
Styttra nám ljósmæðra