Morgunblaðið - 19.09.2008, Síða 9

Morgunblaðið - 19.09.2008, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2008 9 Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is ÞAÐ fór einkar vel á með gömlu skólabræðrunum og herbergisfélög- unum Toshizo Watanabe, forstjóra Nikken-fyrirtækisins og Geir H. Haarde forsætisráðherra þegar sá fyrrnefndi undirritaði stofnskrá styrktarsjóðs Watanabe við hátíð- lega athöfn í Háskóla Íslands í gær. Fyrir 37 árum voru þeir Wat- anabe og Geir skólabræður og her- bergisfélagar í Brandeis-háskól- anum í Bandaríkjunum og þá skapaðist kunningsskapur og vina- tengsl sem urðu til þess að Wat- anabe hafði samband við Geir fyrir tæplega ári og lýsti yfir áhuga á að leggja til stofnfé styrktarsjóðs við ís- lenskan háskóla. Stofnféð er þrjár milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 283 milljóna íslenskra króna. Watanabe hlaut á sínum tíma styrk til að ferðast til Bandaríkjanna og nema við háskólann. Hann kvaðst afar þakklátur þeim sem styrktu hann til námsins og hann hefði ætíð viljað þakka fyrir sig með því að koma svipuðum sjóði á fót. Fyrsta árið í háskólanum bjó Wat- anabe á heimavist með herberg- isfélaga sínum Geir H. Haarde „sem var mjög hávaxinn, myndarlegur og mjög horaður“, sagði Watanabe og brosti. Geir þakkaði Watanabe hjart- anlega fyrir hina rausnarlegu gjöf og sagði að þegar Watanabe hefði boðið fram styrkinn hefði honum ekki þótt annað hæfa en hann rynni til HÍ, enda væri skólinn eini háskólinn sem byði upp á nám í japönsku. Líkt og Watanabe talaði hann um hvernig þeir hefðu breyst, eftir því sem árin hefðu færst yfir. „Já, ég viðurkenni að ég var hávaxinn, myndarlegur og grannur en að kannski hafi ég bætt á mig nokkrum kílóum. En mér sýnist líka að þú hafir misst nokkur hár.“ Fram kom í ræðu Kristínar Ingólfs- dóttur rektors að sjóðurinn mun styrkja stúdentaskipti og rannsókn- ardvöl fræðimanna milli HÍ og jap- anskra háskóla. Fyrsta úthlutun verður innan árs. Annar bætti kannski á sig kílóum en hinn missti hár Morgunblaðið/Kristinn Styrkir Kristín Ingólfsdóttir og Toshizo Watanabe skrifuðu undir stofnsamninginn og Geir H. Haarde var vitni. SÍLDARFRYSTING hófst hjá HB Granda á Vopnafirði í fyrradag þegar unnin voru rúmlega 120 tonn af síld sem Ingunn AK kom með að landi. Á heimasíðu fyrirtækisins segir að síldin hafi verð gríðarvæn og veiðst ekki langt frá landi, Lundey NS kom til hafnar í gær- morgun með um 800 tonna afla sem fór til bræðslu. Þriðja uppsjávar- veiðiskip HB Granda, Faxi RE, landaði 640 tonnum af síld í Noregi í byrjun vikunnar. Þar af fóru 470 tonn til frystingar í Lödingen en um 170 tonn fóru til bræðslu í Bodö. Frysta síld á Vopnafirði Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Óvæntur glaðningur fylgir hverjum kaupum Komdu og kíktu á nýju vörurnar Laugavegi 44 • Sími 561 4000 www.diza.is Opið virka daga kl. 10:30-18:00 laugard. kl. 11:00-16:00 Diza m bl 10 47 38 5 Nýjar vörur Hverfisgötu 6 101 Reykjavík sími 562 2862 GLÆSILEGT ÚRVAL KJÓLA Laugavegi 54, sími 552 5201 Síðkjólar 30-50% afsláttur Tilboðið gildir til 25. september Mb l 10 48 26 6 ÁTAK – félag fólks með þroska- hömlun, fagnar fimmtán ára af- mæli á morgun, laugardag, og stendur af því tilefni fyrir stórri ráðstefnu um málefni þroskahaml- aðra. Hafa félagsmenn allan veg og vanda af skipulagningu ráðstefn- unnar og taka auk þess til máls. Ráðstefnan er haldin á Grand hóteli og hefst með setningu Þórs G. Þórarinssonar frá félagsmála- ráðuneytinu kl. 10. Í kjölfarið verða m.a. flutt erindi um stofnun Átaks og framtíðarsýn þess. Þá verður á ráðstefnunni rætt um kosti og galla þjónustu við þroskahamlaða og sjálfræði í búsetu svo dæmi séu tek- in. Ráðstefnuslit verða um kl. 15.40. En þá er fjörið rétt að byrja því um kvöldið er þriggja rétta kvöldverð- ur á hótelinu og ball. Ráðstefna á afmælisári HÆSTIRÉTTUR hefur þyngt dóm yfir karlmanni á fimmtugsaldri með því að dæma hann í eins árs fangelsi, þar af 9 mánuði skilorðsbundið, fyrir að eiga rúmlega 24 þúsund klámljós- myndir af börnum og 750 hreyfi- myndir að auki. Voru margar mynd- anna mjög grófar. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt manninn í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Maðurinn játaði brotin en fram kemur að hann hafi ekki áður gerst sekur um refsi- vert brot. Borgaði sig inn á klámsíðu Brotin voru meðal annars framin þannig að maðurinn borgaði fyrir að- gang að tiltekinni klámsíðu og á þann hátt gat hann horft á klámefni í gegnum netið og hlaðið niður mynd- efni að vild. Einnig aflaði hann sér hreyfimyndar, sem sýndi stúlkubarn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt, af annarri klámsíðu. Pantaði ákærði myndina með rafrænum hætti á netinu og greiddi fyrir hana með greiðslukorti en myndin komst ekki í vörslur hans. Refsiramminn í hegningar- lögum 2 ára fangelsi Brotin voru talin varða við 210. gr. almennra hegningarlaga þar sem 2 ára fangelsi er lagt við því að ná sér í ljósmyndir, kvikmyndir eða sam- bærilega hluti sem sýna börn á kyn- ferðislegan eða klámfenginn hátt. Fram kemur í dómi Hæstaréttar að ákærði hafi leitað aðstoðar sál- fræðings vegna klámfíknar sinnar og komi fram í vottorði sáfræðingsins að hann vilji takast á við vanda sinn. Við ákvörðun refsingar var hins vegar virt manninum til refsiþyng- ingar, að hann hafði mjög mikið magn af barnaklámi í vörslum sínum og að hluti þess var af allra grófasta tagi og varðaði mjög ung börn. Hæstiréttur taldi brotin stórfelld, vegna eðlis þeirra var ekki hægt að setja manninn á skilorð nema að hluta. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason og Ingibjörg Benedikts- dóttir. Verjandi ákærða var Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður og sækjandi Sigríður J. Friðjónsdóttir vararíkissaksóknari. Dæmdur fyrir mjög grófar barnaklámmyndir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.