Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Page 28
24
tilraunanna, að eitthvað sje þó hægt að gera, eins og nú
standa sakir, tii þess að bæta kjör verkalýðsins. Ein-
stöku menn álíta kaupfjelagsskapinn einskonar fjelæg-
ingasamtök — Socialisme —, og ef menn álíta að það
sje hið sama og einhuga starfsemi til að efla einstak-
lingsgagn, almenningsheill og bræðraþel, þá er þetta al-
veg rjett.
En ef menn álíta að Socialisme sje sama og tilraunir
til að bylta við fjelagslífinu og upphefja allt skipulag,
þá er kaupfjelagsskapurinn einmitt hið gagnstæða þessu.
Þar sem kaupfjelag, með góðri stjórn og almennri
hluttöku, hefir breitt út sparsemi og hagsæld, og sam-
einað ýmsar stjettir til ákveðinnar framsóknar, þar er
enginn gróðrarreitur fyrir æsingatilraunir og grunsamleg-
ar teygingar ýmislegra liðsafnara.
Allir þeir, sem hafa marga tilheyrendur: stjórnmála-
menn, alþýðuleiðtogar, skólakennarar, blaðstjórar, o. sv.
frv., eiga að hagnýta sjer vald orðsins til að afla þessu
máli fylgis.
Einkum er þetta þó verkefni fyrir dagblöðin, sem á
vorum dögum hafa svo mikil áhrif á hugsunarhátt al-
mennings.
F*ó stjórnmálaendurbótum vorum og sjálfforræði þjóð-
arinnar miði hægt áfram, þarf um fleira að ræða í
blöðum og tímaritum. Vjer getum með samvinnufje-
lögum og öðrum fjelagsskap unnið mikilsvert starf til
að efla framþróun þjóðar vorrar, heill hennar og sjálf-
stæði.
Þeir, sem ráða yfir útkomu blaða og bóka, eiga að
greiða götuna, vekja og leiðbeina, svo starfinu miði
sem bezt og fljótast áfram.
* *
*