Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Qupperneq 52
48
Kr.
Flutt . . . 7,557.98
4. Uppbót á stofnfjárvexti, 1% af 34,521.50
(auk 5 % áður)............................. 345.21
5. Uppbót á kaup verzlunarþjóna, fyrir aukin
störf og vanda, meðan kaupstjóralaust var 300.00
6. Til minnisvarða yfir fyrverandi kaupstjóra:
Kristján sál. Jóhannesson.................... 200.00
7 Leifar ti! næsta árs.......................... 45.84
Samtals . . . 8,449.03
Engey, ish 1911.
Vigfús Guðmundsson.
II. Vátrygging sveitabæja.
Því er ekki neitandi, að ýmislegar framfarir hafa átt
sjer stað í sveitunum okkar á síðustu tímum. En þegar
við lítum til hins forna lýðveldistímabils þjóðar vorrar,
eða athugum hvað gerist meðal sveitabænda í nálægum
löndum, þá þarf ekki lengi að leita til þess að sjá það,
að við erum eptirbátar í ýmsum mjög mikilvægum atrið-
um. Við höfum gleymt og glatað ýmsu af því, sem for-
Feður okkar þekktu og hagnýttu sjer, bæði hver einstak-
ur fyrir sig, og einnig fjelagsheildin í samvinnuáttina. í
þeim atriðum erum við því á lægra menningarstigi, nú
sem stendur. Við höfum eigi heldur, að verulegu ráði,
heimfært til okkar reynslu og reglur stjettarbræðra okk-
ar í ættarlöndunum, þó við þekkjum þesskonar, eða ætt-
um að þekkja það, og því verði heldur ekki neitað, að
samskonar ætti vel við hjer á landi.
Sem eitt dæmi í þessa áttina má minna á það, að for-