Morgunblaðið - 05.10.2008, Blaðsíða 1
S U N N U D A G U R 5. O K T Ó B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
272. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
Leikhúsin
í landinu >> 47ÓLAFUR HAUKUR OGFÓLKIÐ Í BLOKKINNI
Á FJÖLUNUM
MUNUM VIÐ FARA
NORSKU LEIÐINA?
HVAR Á AÐ VIRKJA?
„VIÐ höfum alltaf lagt mikla áherslu á að eiga löng og góð samtöl þar sem
ég reyni að tileinka mér það að hlusta ekki minna en að tala,“ segir Svan-
dís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, um son sinn Odd Ást-
ráðsson, dagskrárgerðarmann á Stöð 2. Mæðginin ræða tengsl sín í viðtali
í Morgunblaðinu í dag.
Svandís segir það pólitík hvernig maður talar við og umgengst börn en
pólitíkin í lífinu er henni hugleikin.
Oddur segir móður sína vera „tilkomumikinn karakter“ sem hafi gaman
af því að hafa fjölskylduna í kringum sig. „Hún vill hafa alla á sama stað og
ræða heima og geima.“ ingarun@mbl.is | 10
Morgunblaðið/Ómar
Góð samtöl eru gæfa
Frjálshyggjumenn hafa ekki lagt
árar í bát þótt margir telji fjár-
málavandann undanfarið til marks
um að hugmyndafræði þeirra hafi
beðið algjört skipbrot.
Skoðanaskipti
hugmyndaheima
Gengi FC Bayern München hefur
verið skelfilegt að undanförnu. Í
huga Bæjara er gangur him-
intunglanna ekki eðlilegur nema
stórveldið Bayern sé í fyrsta sæti.
Dapurt í boltanum
hjá Bæjurum
Bandarískir öldungadeildarþing-
menn settust niður þegar þeir
greiddu atkvæði um tillögu til
bjargar efnahagslífinu. Það gera
þeir aðeins í mikilvægustu málum.
Innspýtingin
var samþykkt
VIKUSPEGILL
isráðuneytið þarf sitt, við höldum uppi
löggæslu, dómstólum og fangelsum, greið-
um til almannatrygginga, kostum rann-
sóknir á hafinu og umhverfinu, búvöru-
framleiðslan fær sinn skerf og það kostar
Í HVAÐ fara skattpeningar landsmanna?
Þeir fara meðal annars í heilbrigðiskerfið,
þar sem sjúkrahús og aðrar heilbrigðisstofn-
anir taka drýgstan skerf, við rekum skóla-
kerfi frá grunnskóla og upp úr, utanrík-
auðvitað að leggja vegi um landið vítt og
breitt. Þá má ekki gleyma hafnargerð og
æðsta stjórn ríkisins þiggur laun sín og rekstr-
arkostnað úr vasa skattborgaranna. Enn er
drjúgur hluti ótalinn.
SKÓSM
IÐUR V
ÍNBÚÐ
Hvert fara skattarnir?
Grafík/Einar Elí Magnússon
Skattamálin eru skýrð með teikn-
ingu í miðopnu blaðsins í dag. » 28
Svona rekum við ríkið?
Eftir Agnesi Bragadóttur
og Önund Pál Ragnarsson
MINNISBLAÐ var lagt fram á fundi
aðila vinnumarkaðarins á föstudags-
kvöld, af hálfu ASÍ, með tillögu um
sameiginlega afstöðu í efnahagsað-
gerðum helgarinnar. „Mikilvægasta
verkefni á sviði efnahagsmála er að
tryggja hér stöðugleika til lengri
tíma. Aðilar vinnumarkaðarins eru
sammála um að slíkum stöðugleika
verði ekki náð með krónu sem gjald-
miðli,“ sagði í minnisblaðinu. „Því ber
að stefna að inngöngu í ESB og upp-
töku evru, svo fljótt sem auðið er. Á
þeim grundvelli þarf þróun efnahags-
og kjaramála á næstunni að miðast
við það að Ísland uppfylli Maastricht-
skilyrðin,“ stóð þar einnig.
Inntur eftir viðbrögðum við þessu í
gær lét Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri SA, ekkert uppi. Heim-
ildir herma að fulltrúum SA hafi þótt
orðalagið of eindregið. Viðmælendur
Morgunblaðsins úr röðum atvinnu-
rekenda benda á að ríkisstjórnin hafi
lagt fram fjárlagafrumvarp og kynnt
fjárlagaáætlun til ársins 2012, þar sé
gert ráð fyrir töluverðum halla til að
mæta samdrætti og atvinnuleysi. Ef
mæta eigi þessu skilyrði ASÍ þurfi að
stórauka niðurskurð í fjárlagafrum-
varpinu.
Hefur ekkert vægi
Sjálfstæðismenn sem leitað var við-
bragða hjá í gærmorgun vegna þessa
töldu slíka yfirlýsingu lítið hafa að
segja á þessum tímapunkti, enginn
þeirra hafnaði því þó alfarið að slíkar
kröfur gætu komið upp. „Ef menn
telja þetta nauðsynlegt innlegg og
fara að gera þetta að aðalatriði í mál-
inu þá sé ég ekki að sjálfstæðismenn
láti brjóta á því,“ sagði þingmaður.
Annar tók í sama streng. „Það er ver-
ið að róa algjöran lífróður í þessu
máli,“ sagði hann.
,,Slíkt gerir maður ekki í óðagoti.
Núna er hreinlega óðagot,“ sagði Pét-
ur H. Blöndal um þetta. „Menn eru að
leysa mjög mikið skammtímavanda-
mál, sem öll þjóðin stendur frammi
fyrir, og hafa í raun mjög góða lang-
tímastöðu. Mér þætti það þess vegna
mjög miður ef menn færu að nota sér
svona stöðu til að koma sínum póli-
tísku áhugamálum í gegn. Þá eru þeir
ekki að vinna sameiginlega að lausn
mála. Ég held að þetta hefði ekki mik-
ið vægi því víða í Evrópu eru mikil
vandamál. Ég minni á að í Hollandi er
líka evra og á Írlandi, Spáni og Ítalíu.
Ég sé ekki evran hafi leyst neinn
vanda þar. Ef menn ætla að gera
þetta að einhverri ýtrustu kröfu tel ég
að menn eigi ekki að láta brjóta á því.
Ástandið er alltof alvarlegt til þess.“
Tekist á um
ESB-tillögu
ASÍ vill aðildarumsókn inn í efnahags-
pakkann SA vildi draga úr orðalagi
Í HNOTSKURN
»Viðræður um efnahags-aðgerðir stóðu í gær og
var ekki lokið þegar Morg-
unblaðið fór í prentun.
»Landssamtök lífeyrissjóðafunduðu með formönnum
og framkvæmdastjórum allra
lífeyrissjóða eftir hádegið og
kynntu hugmyndir um björg-
unaraðferðir.
»Forsvarsmenn SA og ASÍáttu fund með ríkisstjórn í
ráðherrabústaðnum um tvö-
leytið og eftir það var ráðgert
að fulltrúar stjórnarandstöðu
kæmu þangað á fund.
Fundað stíft | 2