Morgunblaðið - 05.10.2008, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 05.10.2008, Qupperneq 10
10 SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Oddur: „Við eyddum fyrstu tíu sumrum ævi minnar í Hrísey á Eyjafirði. Foreldrar mínir áttu þarna hús í félagi við vinahjón. Mamma vann ýmis störf eins og á hreppsskrifstofunni eða í spari- sjóðnum. Bæði mamma og pabbi voru í námi, mamma í málvísindum og pabbi í lögfræði við Háskóla Íslands. Þau höfðu verið í Hrísey í tvö ár áður en ég fæddist. Mamma er ævintýrakona. Það er eig- inlega sama hvað hún tekur að sér, hún gerir það af lífi og sál með fullum krafti. Það er hennar stíll. Hún var að kenna í grunnskól- anum og tónlistarskólanum og þau pabbi voru í leikfélaginu og kirkjukórnum. Pólitíkin hefur alltaf verið mjög nálægt mér og allri minni fjöl- skyldu. Afi var menntamálaráðherra fyrst þegar ég man eftir hon- um. Ég veit að mamma forðaðist framan af bein afskipti af pólitík því hún vildi ekki fá á sig einhvern stimpil. Hún var að vinna mikið með heyrnarlausum í Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra eftir að hún kláraði sitt nám í mál- vísindum. Ég held hún hafi gert mikið gagn fyrir það litla samfélag. Hún er táknmálsfræðingur og vann algjört frumkvöðlastarf í að skrifa um, kortleggja og velta fyrir sér, með aðferðum málvísind- anna, málfræði íslensks táknmáls. Það eru ekki mörg ár síðan hún fór út í pólitíkina en það var eins og með svo margt sem hún hefur tekið sér fyrir hendur að hún var fljótlega komin við stjórnvölinn. Hún er aldrei músin sem læðist. Það er alltaf eitthvað að gerast í kringum hana. Hún var orðin formaður Reykjavíkurfélags Vinstri grænna svo til á öðrum degi. Síðan varð hún framkvæmdastjóri flokksins og svo fór hún í prófkjör fyrir sveit- arstjórnarkosningarnar og var þar valin mjög afgerandi af sínum fé- lögum til að leiða listann. Hún er mikill forystusauður og á mjög gott með að fá fólk í lið með sér. Sama hvaðan gott kemur Eitt sem einkennir pólitíkina hennar mömmu, sem sker hana frá flestum öðrum atvinnupólitíkusum, er að hún lítur þannig á að það sé alveg sama hvaðan gott kemur. Hún tekur algjörlega óhikað þátt í að vinna að góðum verkum þrátt fyrir að þau séu upprunnin í ranni andstæðinganna. Hún lítur svo á að hennar hlutverk og verkefni í pólitík sé fyrst og fremst að búa til betra samfélag. Ég veit að sam- starf hennar og núverandi borgarstjóra, Hönnu Birnu, hefur verið mjög gott. Þær eiga auðvelt með að vera drífandi saman í stað þess að vinna hvor gegn annarri. Ég held að þetta sé að mörgu leyti eitt- hvað sem aðrir pólitíkusar mættu taka sér til fyr- irmyndar. Mamma er mjög opin og gerir það með stolti sem hún gerir. Hún er samkvæm sjálfri sér og er sú sem hún segist vera. Hún er stór karakter en það er ekkert alltaf auðvelt að vera sonur svona tilkomumikils karakters. Þegar ég var að breytast úr barni í fullorðinn, sem er að einhverju leyti enn að gerast, áttum við okkar árekstra. Við erum núna bestu vinir og tölum mikið saman og getum dottið ofan í kjaftatarnir sem standa tímunum saman um lífið og til- veruna. Vel heppnaður skilnaður Mamma og pabbi skildu að skiptum þegar ég var níu ára gamall. Við Auður systir erum sammála um að það sé okkar mesta gæfa í líf- inu! Þau áttu miklu betra með að vera foreldrar okkar og vera sam- stiga í uppeldi eftir að þau voru skilin. Þeirra leið til að takast á við að vera fráskildir foreldrar er nokkuð sem ætti að kenna á nám- skeiðum. Samskiptin snerust um að tryggja að okkar hagur væri sem allra bestur. Það var aldrei neinn ágreiningur þeirra á milli sem við þurftum að finna fyrir. Pabbi og mamma voru bæði komin í aðra sambúð nokkrum mán- uðum eftir að þau skildu og þau eru bæði gift því fólki sem þau tóku saman við. Torfi hefur staðið þétt við bakið á mömmu í öldurótinu undanfarin ár. Langlundargeð hans er mikið og hann er kletturinn í hafinu fyrir hana. Hún er svo miklu örari en hann og það gerist allt svo hratt í höfðinu á henni. Henni finnst fátt skemmtilegra en að hafa fólkið sitt hjá sér og vera með matarboð. Hún vill hafa alla á sama stað og ræða heima og geima. Þá eru eldaðar stórar og miklar máltíðir og allir fara út standandi á blístri. Mamma á það til að hafa of miklar áhyggjur af mér og á stundum erfitt með að sleppa takinu. Það fer náttúrlega öfugt ofan í mig en er eitthvað sem við höfum alltaf getað talað um. Hún hefur samt treyst því að ég taki réttar ákvarðanir fyrir sjálfan mig að því leyti til að hún stendur með mér og ræður mér heilt. Kannski hefur hún aðrar meiningar um hvað ég ætti að vera að gera, en ég á voða erfitt með að láta segja mér fyrir verkum og er að því leyti líkur mömmu minni. Ég vil telja sjálfum mér trú um að ég hafi farið mínar eigin leiðir. Kórsöngur og fordómaleysi Mamma hefur á köflum allt of lítinn tíma til að sinna áhugamálum sínum en hún er þó búin að syngja í Dómkórnum í hátt í tuttugu ár. Mamma og pabbi byrjuðu saman í kórnum og eru enn í honum og núverandi makar þeirra líka. Tónlist er hennar áhugamál. Þegar á að vera virkilega gaman hjá okkur setjumst við niður með hljóðfæri og syngjum. Við getum sung- ið fram á morgun ef svo ber undir. Það er mikil músík í ættinni og fólkið er allt límheilar á lög og texta. Ég var að horfa á þáttinn Singing Bee og fannst skrýtið að fólk kynni ekki meira! Söngur og það að fólk kunni mikið af lögum hefur alltaf verið hluti af mínu lífi og uppeldi. Mamma og pabbi sungu með okkur. Meðan það er kannski lesið fyrir önnur börn var fyrst og fremst sungið fyrir okkur. Heima hjá mömmu og Torfa er hlustað á hvaðeina. Þar ríkir al- gjört fordómaleysi og ekkert er merkilegra en annað. Einu sinni söng hún 9. sinfóníu Beethovens með stórri útgáfu af Hamrahlíð- arkórnum og hlustaði ekki á neitt annað í marga daga. En svo gáfum við Auður þeim Romm Tomm Techno í jólagjöf og þeim fannst það ekkert minna skemmtilegt. Það er kannski klisja að tala um alætur á tónlist en mamma er það. Í þessu endurspeglast viðhorf hennar að það er aldrei neitt eitt merkilegra en annað. Verkin dæma sig sjálf og það er sama hvaðan gott kemur.“ Aldrei músin sem læðist Hún er mikill forystusauður og á mjög gott með að fá fólk í lið með sér. Svandís: „Oddur var mjög skemmtilegur krakki. Hann lét reyndar bíða eftir sér, ég gekk með hann nærri 20 daga framyfir. Hann var stór og tók til sín til að byrja með en ég var bara rúmlega tvítug þegar ég átti hann. Hann var alveg sér- staklega skemmtilegur krakki, mjög forvitinn og áhugasamur. Hann var mjög fljótur til máls og byrjaði snemma að fikta, til dæmis í tökkum og að taka hluti í sundur, eins og sjónvörp, útvörp og vekjaraklukkur, og gá hvað væri inni í þeim. Maður sá snemma að hann yrði betri en aðr- ir heimilismenn í því að fylgja leið- beiningum um nýjustu heim- ilistækin! Hann söng mikið sem krakki og hafði gaman af því. Hann lék íkorna í Dýrunum í Hálsaskógi í sextíu sýn- ingum þegar hann var átta eða níu ára. Hann hafði snemma gaman af því að vera miðpunkturinn, var laus við feimni og mjög brattur í alla staði. Hann var svolítið kallalegur þegar hann var lítill og aldrei mjög barnalegt barn. Hann hafði fullorð- inslegan orðaforða og kunni alls- konar vísur og fleira sem krakkar kunna yfirleitt ekki. Á tímabili held ég að hann hafi frekar yngst en elst! Hann var kallalegri sem barn en unglingur. Sérstaklega minnugur Svo var það fljótlega ljóst að hann væri sérstaklega minnugur. Hann hafði gaman af því að setja á sig fá- nýtan fróðleik. Það var mjög eðlilegt að hann skyldi enda í Gettu betur en frá því hann var lítill hafði hann gaman af því að þekkja fána og leggja afmælisdaga og úrslit í kapp- leikjum og fleira þess háttar á minn- ið. Hann á auðvelt með að muna alls- konar hluti og er að mörgu leyti með spjaldskrárminni. Hann varð mjög fljótt læs. Hann sagði mér það þegar hann var þriggja ára að hann væri tilbúinn að læra að lesa. Ég sagði að það væri dálítið snemmt og ágætt að bíða aðeins en hann neitaði því og sagðist vera tilbúinn NÚNA. Þannig að ég fór í Skólavörubúðina og keypti lestrarbók og kennsluleiðbeiningar og kenndi honum að lesa á nokkrum vikum. Hann var ofsalega áhugasamur krakki og það var einstaklega gaman að kenna honum nýja hluti og sýna honum eitthvað nýtt. Hann var líka fljótur til og átti auðvelt með bók- nám. Hann var ekki nema tveggja ára þegar Auður systir hans kom í heim- inn þannig að hann man ekki til- veruna öðruvísi. Þau hafa verið náin og góðir vinir alla tíð en ég held að það sé mikilvægt að eiga góða vini í systkinum sínum. Góður ráðgjafi Hann er einstaklega bjartur kar- akter. Það er jákvætt í kringum Odd en hann er samt alls ekki skaplaus. Hann hefur góð áhrif í kringum sig. Ég er ánægð með að geta kallað hann einn af mínum bestu vinum. Stundum er hann í hlutverki póli- tísks ráðgjafa en ég hef oft leitað til hans því í mínu starfi getur gengið á ýmsu. Það er gott að eiga hann að því hann er óhræddur við að segja sína meiningu og stendur óhikað með mér. Það er óvenju stutt á milli okkar, 20 ár, þannig að það er ekkert æpandi kynslóðabil á milli okk- ar. Oddur fór að heiman um tvítugt en við erum í miklu sambandi og ég hef stundum haldið því fram að naflastreng- urinn sé heldur stuttur hvað frumburðinn varð- ar. Frumburðurinn breytir manni fyrir lífstíð. Maður breytist í móður og er í því hlutverki alla ævi. Heimurinn breytist alveg við það að eignast barn og fer ekkert til baka. Viðstaddur fæðingu systkina Oddur og Auður voru bæði við- stödd fæðingu litlu systkina sinna. Oddur var 12 ára þegar bróðir hans fæddist og 16 ára þegar systir hans kom í heiminn. Þau hafa alltaf verið náin litlu systkinum sínum. Það eru ekki margir strákar á hans aldri sem hafa upplifað að fylgjast með fæð- ingu. Hann er að mörgu leyti lífs- reyndur ungur maður. Hefur góð áhrif Mægðinin spila og syngja saman Þegar fjölskyldan ætlar að hafa það virkilega skemmtilegt sest hún niður með hljóðfæri og syngur. Slíkar skemmtanir geta staðið fram á morgun ef svo ber undir. Tengsl Svandís Svavarsdóttir og sonur hennar Oddur Ástráðsson geta rætt málin tímunum saman. Inga Rún Sigurðardóttir skyggndist inn í samband þeirra og ræddi við þau um uppeldi, ráðgjafahlutverk, lítil samfélög og pólitíkina í lífinu. Hann var svolítið kallalegur þegar hann var lítill og aldrei mjög barnalegt barn. Á tímabili held ég að hann hafi frekar yngst en elst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.